13. apríl, 2026
Allar fréttir

Laugardaginn 11. apríl s.l. úthlutaði mennta- og barnamálaráðherra Inga Sæland styrkjum úr Sprotasjóði við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Leikskólinn Klettaborg í samstarfi við leikskólann Andabæ fékk veglega úthlutun úr sjóðnum til vinnslu verkefnisins STEAM og leiðsagnarmat- Þróun námsmenningar.

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastigs. Á þessu ári bárust 39 umsóknir til sjóðsins og fengu 20 skólaþróunarverkefni styrk.

Verkefni leikskólanna Klettaborgar og Andabæjar miðar að því að þróa og innleiða STEAM kennslu. Áhersla er lögð á að skapa lærdómsumhverfi starfsmanna og barna þar sem börn læra  í gegnum leik, rannsóknir og fjölbreytt skapandi verkefni sem tengja og sameina vísindi, tækni, verkfræði, listir og stærðfræði. Í verkefninu verða áherslur STEAM tengdar með markvissum hætti við útikennslu skólanna. Samhliða innleiðingu á STEAM-kennsluháttum þá á að þróa námsmat sem sýnir ferli náms sem á sér stað hjá börnum, þar sem virkni þeirra, þátttaka og eigin sjónarhorn eru í forgrunni. Börnin taka þátt í matsferlinu með því að endurspegla upplifun sína, sýna eigið nám í verki og taka þátt í samtali um eigin framfarir. Þannig styrkir verkefnið bæði faglega þróun kennara og dýpkar skilning barna á eigin námi.

Nánari upplýsingar um úthlutun úr sprotasjóði má finna hér

Tengdar fréttir