20. mars, 2026
Allar fréttir

Maurabú í heimsókn

Í vikunni höfum við verið með maurabú hér í leikskólanum, sem er hluti af skemmtilegu verkefni þar sem börnin fá að kynnast huldum og undraverðum heimi skordýra. Verkefnið tengist bókinni Matti og Maurún: Hulinn heimur íslenskra maura, sem gefin er út sérstaklega til að fræða börn um maura. Við höfum verið að lesa bókina og skoða hana samhliða maurabúinu.

Börnin hafa fengið að gefa maurunum að borða og fylgjast með hegðun þeirra bæði í gegnum smásjá og með stækkunarglerjum. Þetta hefur vakið mikla forvitni og áhuga — og bæði börn og starfsfólk hafa haft einstaklega gaman af þessari heimsókn.

Fyrir þá sem vilja fylgjast nánar með maurunum má sjá meira um verkefnið á Instagram-síðunni @islenskirmaurar.

 

 

 

Tengdar fréttir