Tillaga aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037

Tillaga aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037

í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga á endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10. apríl 2025 að auglýsa tillögu á endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037.

Aðalskipulag er stefna sveitarfélags um landnotkun, náttúruvernd og þróun byggðar í öllu sveitarfélaginu. Það nær til alls lands innan marka sveitarfélagsins. Skipulagsmörk miða við sveitarfélagsmörk á landi og 115 metra utan við stórstraumsfjöruborð á sjó í samræmi við skilgreiningu staðarmarka sveitarfélaga í sveitarstjórnarlögum og jarðlögum. Samkvæmt skipulagsreglugerð er aðalskipulagi ætlað að stuðla að markvissri þróun þar sem tekið er tillit til heildarhagsmuna, miðla málum milli ólíkra hagsmuna íbúa og stuðla að öryggi almennings og lífsgæðum.

Borgarbyggð setur hér fram tillögu að endurskoðun aðalskipulags sem nær yfir allt land innan sveitarfélagsins Borgarbyggð. Nýtt aðalskipulag er til 12 ára og nefnist það Aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037.

Tillagan er aðgengileg í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 242/2023 og á heimasíðu sveitarfélagsins, smellt er á hnappinn Endurskoðun aðalskipulags á forsíðu.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingar við auglýsta tillögu og er frestur til að skila inn ábendingum til og 28. ágúst 2025. Ábendingum skal skila inn í rafræna skipulagsgátt Skipulagsstofnunar

 


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 24. júní, 2025.