Byggðarráð Borgarbyggðar

15. fundur

26. nóvember 2026 kl. 08:15 - 11:31

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - formaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - varaformaður
Jovana Pavlovic - áheyrnarfulltrúi
Haukur Þór Hauksson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Þórunn Unnur Birgisdóttir - Lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Þórunn Unnur Birgisdóttir - lögfræðingur


Dagskrá

1. Brunavarnaráætlun Borgarbyggðar 2026
2611207

Slökkviliðsstjóri mætti til fundarins undir þessum lið og fór yfir framlögð drög að brunavarnaráætlun Borgarbyggðar.

Slökkvilið Borgarbyggðar hefur verið byggt upp að metnaði seinustu ár og er komið á allt annan stað heldur en fyrir nokkrum árum. Uppbyggingu slökkviliðs Borgarbyggðar hafa fylgt vaxtaverkir sem koma meðal annars fram í mikilli hækkun á kostnaði við Brunamál. Eldvarnaraætlun sem hér er lögð fram kallar á enn meiri kostnað og fjárfestingar á næstu árum. Borgarbyggð er víðfeðmt og frekar fámennt sveitarfélag með dreifða byggð og takmarkaða tekjustofna sem þarf að nýta vel og mikilvægt að sníða sér stakk eftir vexti. Núverandi fjárhagsrammi fyrir árið 2027 fyrir Brunamál er 2,54% af skatttekjum það er mun hærra hlutfall en kostnaður er í nágranna sveitarfélögunum Akranesi og Hvalfjarðarsveit sem eru með kostnað við Brunamál upp á 1,8% af skatttekjum sveitarfélaganna. Í ljósi þessa óskar Byggðaráð Borgarbyggðar eftir því að unnin verði greining á því hvernig staða Brunamála verði í Borgarbyggð ef 2% af skatttekjum færi í rekstur málaflokksins. Ef niðurstaðan af þeirri skoðun er ásættanleg þá skapar það möguleika fyrir sveitarfélagið að endurnýja búnað Slökkviliðs Borgarbyggðar.



Byggðarráð vísar brunavarnaráætlunninni til samráðshóp sem var skipaður á fundi Byggðarráðs á nr. 14.



Samþykkt samhljóða.



2. Kynning vegna Uxahryggjavegar
2611149

Stefán Broddi Guðjónsson kemur til fundar og kynnir þá vinnu sem hann hefur lagt í við skoðun þess kost setja vegagerð við Uxahryggi í einkaframkvæmd.

Byggðarráð þakkar Stefáni fyrir mjög góða kynningu og frumkvæði af því að skoða möguleika á að setja framkvæmdir við Uxahryggjarleið í einkaframkvæmd. Uxahryggir er lykil framkvæmd í að tengja Vesturland við Suðurland sem skapar mikla möguleika fyrir ferðaþjónustuna um allt Vesturland og Suðurland. Með bættum vegi um Uxahryggi munu opnast möguleikar á betri dreifingu ferðamanna um svæðið. Einnig er þetta gríðaleg samgöngubót fyrir íbúa landshlutanna.

Byggðarráð tekur heilshugar undir þá hugmynd að setja Uxahryggjaveg í einkaframkvæmd enda myndi það flýta framkvæmdum við þann veg umtalsvert miðað við áform í samgönguáætlun.

Byggðaráð hvetur Stefán Brodda til að halda áfram vinnu við að kynna þennan kost fyrir sem flestum aðilum.



Samþykkt samhljóða.



3. Kynning frá Orkuveitunni
2611197

Fulltrúar Orkuveitunnar sátu fundinn undir þessum lið og kynntu starfsemi og áform fyrirtækisins. Byggðarráð þakkar fyrir greinargóða kynningu.



4. Menningarsjóður
2611041

Frestað til næsta fundar



5. Moltugerð Hvanneyri - Tilraunarverkefni
2610262

Á fundi nr. 6 hjá umhverfis- og landbúnaðarnefnd var kynnt hugmynd að tilraunaverkefni á Hvanneyri sem felur í sér kaup og uppsetningu á moltugerðarvél.



Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkir kaup á moltugerðarvél, með fyrirvara um að ásættanlegir samningar náist um rekstur hennar.

Byggðarráð samþykkir kaup á moltugerðarvél að fjárhæð kr. 5.600.000,- Fjárveiting liggur fyrir innan gildandi fjárhagsáætlunar og verður mætt með millifærslu milli fjárhagsliða. Sveitarstjóra er falið að ganga frá og undirrita kaupsamning, vinna viðauka við fjárhagsáætlun til staðfestingar í sveitarstjórn ef tekst að ljúka samningagerð við LBHÍ um rekstur vélarinnar á Hvanneyri.



Samþykkt samhljóða



6. Útboð - rotþrær 2026
2606262

Samningur um hreinsun rotþróa í Borgarbyggð rennur út um áramótin. Samningur um hreinsun rotþróa í fyrrum Skorradalshrepp er enn í gildi.

Skoðað hefur verið hvaða möguleikar standa sveitarfélaginu til boða varðandi þetta verkefni.



Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til við byggðarráð að segja upp samningi um hreinsun rotþróa, sem er í gildi í Skorradalshrepp, á grundvelli ráðleggingar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Byggðarráð samþykkir tillögu nefndarinnar fyrir sittleyti og leggur til við sveitarstjórn að fela sveitarstjóra að segja samningnum upp.





Samþykkt samhljóða.



7. Rennslismælingar fyri vatnsöflun Vatnsveitu Varmalands
2609303

Á fundi nr. 6 hjá umhverfis- og landbúnaðarnefnd var farið yfir minnisblað frá Verkís um mögulega vatnsöflun fyrir Vatnsveitu Varmalands. Málinu var vísað til vinnu við fjárfestinga- og fjárhagsáætlun.

Byggðarráð tekur undir bókun umhverfis- og landbúnaðarnefndar um að leggja nýja lögn frá núverandi Grábrókarveitu við þjóðveg 1 til Varmalands til frekari úrvinnslu við gerð fjárhags- og fjárfestingaráætlunar þar sem verður tekin ákvörðun um fjármagn til verkefnisins.





Samþykkt samhljóða.





8. Gott að eldast
2311278

Á fyrsta fundi velferðarnefndar var eftirfarandi bókun gerð: "Velferðarnefnd veitir félagsmálastjóra umboð til að undirbúa ákveðnar breytingar er fela í sér aukna samvinnu við Brákarhlíð. Eru slíkar breytingar í takt við hugmyndafræðina sem er að baki Gott að eldast, auk þess sem slíkt mun auka hagræðingu innan málaflokksins." Á fjórða fundi velferðarnefndar var kynnt hvar málið var statt og er kynnt bókun frá þeim fundi: "Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að félagsmálastjóri leiði áframhaldandi vinnu við að efla félagsstarf aldraðra í samvinnu við Brákarhlíð. Þar sem næstu skref hafa með fjármagn sveitarfélagsins að gera er lagt til að málið verði kynnt fyrir Byggðarráð. Samþykkt samhljóða."

Byggðarráð tekur undir með velferðarnefnd og telur mikilvægt að félagsstarf aldraðra verði eflt í samstarfi við Brákahlíð. Byggðarráð veitir því félagsmálastjóra heimild til að gera viðeigandi ráðstafanir svo þær hugmyndir sem unnið er að fái framgöngu, að því gefnu að slíkar breytingar rúmist að mestu innan fjárhagsramma fyrir árið 2027. Byggðaráð vísar málinu inn í fjárhagsáælunarvinnu.







Samþykkt samhljóða.





9. Niðurfelling reglulegs fundar byggðarráðs
2609143

Tillaga um niðurgellingu funda byggðarráðs þann 24 og 31. desember nk.

Lögð er fram tillaga um að fella niður reglulega fundi byggðarráðs þann 24. og 31. desember nk. Ef þörf þykir er sveitarsjtóra falið að boða til auka fundar.



Byggðarráð samþykkir niðurfellingu funda fyrir sitt leyti og vísar til sveitarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu og staðfestingar



Samþykkt samhljóða.



10. Gervigreindarstefna Borgarbyggðar
2611118

Framlögð uppfærð grevigreindarstefna

Lögð fram drög að nýrri gervigreindarstefnu fyrir Borgarbyggð. Markmið stefnunnar er að tryggja ábyrga og lögmæta nýtingu gervigreindar í starfsemi sveitarfélagsins, með áherslu á vandaða stjórnsýsluhætti, persónuvernd og upplýsingaöryggi.



Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi gervigreindarstefnu fyrir sitt leyti og vísar henni til sveitarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu og staðfestingar.



Samþykkt samhljóða.



11. Öryggisstefna Borgarbyggðar
2504258

Lögð fram drög að nýrri öryggisstefnu Borgarbyggðar. Stefnan tekur til allrar starfsemi sveitarfélagsins.

Byggðarráð samþykkir framlagða öryggisstefnu Borgarbyggðar.



Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi öryggisstefnu fyrir sitt leyti og vísar henni til sveitarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu og staðfestingar



Samþykkt samhljóða.



12. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170

Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 285. mál. Aðgangur barna að samfélagsmiðlum

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl


13. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 313. mál Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl


14. Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
2602005

Framlögð fundargerð 1006. fundar stjórnar Sambandsins frá 13. nóvember 2026.

Lagt fram til kynningar

Fylgiskjöl


15. Fundagerðir Orkuveitu Reykjavíkur 2026.
2604039

Framlögð fundargerð frá 381. fundi stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.28. september 2026

Lagt fram til kynningar

Fylgiskjöl


16. Fundagerðir Heilbrigðisnefndar Vesturlands 2026.
2602143

Framlögð er fundargerð 205. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands. Sem haldinn var 12. nóvember 2026

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl


17. Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2025
2611144

Ársskýrsla framlögð

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 11:31