Umhverfis- og landbúnaðarnefnd

6. fundur

18. nóvember 2026 kl. 08:00 - 17:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Þórður Brynjarsson - aðalmaður
Þorsteinn Eyþórsson - varaformaður
Kristján Ágúst Magnússon - formaður
Jón E. Einarsson - aðalmaður

Starfsmenn

Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Íma Fönn Hlynsdóttir - verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi


Dagskrá

1. Vettfangsferð um úrgangsmeðhöndlun á Suðurlandi
2610263

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd ásamt starfsfólki fór í vettfangsferð til þess að skoða úrgangsmeðhöndlun og fleira á Suðurlandi.



Heimsóttir voru;



Seyrustaðir á Flúðum,



Dýraleifabrennsla, moltugerð og nýtt fjölnota íþróttahús í Skeiða- og Gnúpverjahrepp,



Sorpustöðin Strönd á Hellu.



Markmið heimsóknar var að afla upplýsinga um starfsemi, rekstur og þróun úrgangsmála.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd þakkar gestgjöfum kærlega fyrir góðar móttökur.



2. Moltugerð Hvanneyri - Tilraunarverkefni
2610262

Kynnt er hugmynd að tilraunaverkefni á Hvanneyri sem felur í sér kaup og uppsetningu á moltugerðarvél.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkir kaup á moltugerðarvél með fyrirvara um að ásættanlegir samningar náist um rekstur vélarinnar.



3. Útboð - rotþrær 2026
2606262

Samningur um hreinsun rotþróa í Borgarbyggð rennur út um áramótin. Samningur um hreinsun rotþróa í fyrrum Skorradalshrepp er enn í gildi.

Skoðað hefur verið hvaða möguleikar standa sveitarfélaginu til boða varðandi þetta verkefni.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til við byggðaráð að segja upp samningi um hreinsun rotþróa, sem er í gildi í Skorradalshrepp, á grundvelli ráðleggingar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umhverfisfulltrúa er falið að vinna málið áfram.



Fundi slitið - kl. 17:00