Dagskrá
1. Krafa um greiðslu skaðabóta vegna ólokinna gatnagerða Melabraut 4a,4b.
2611117
Framlögð krafa um greiðslu skaðabóta. Guðný Elíasdóttir sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætir til fundar undir þessum lið.
Byggðarráð hafnar viðurkenningu á bótaskyldu og greiðslu skaðabóta samkvæmt framlögðu erindi.
Sveitarstjóra er falið að svara erindinu og vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Samþykkt samhljóða.
2. Vatnsból í landi Varmalækjar
2505249
Samningur kynntur og lagður fyrir
Byggðarráð Borgarbyggðar leggur ríka áherslu á að tryggja áframhaldandi afhendingaröryggi neyslu- og slökkvivatns frá Vatnsveitu Bæjarsveitar vegna samnings um vatnsból á landi Varmalækjar, sem rennur út 31. desember 2026.
Byggðarráð telur sveitarfélagið hafa uppfyllt rannsóknarskyldur 6. gr. samningsins með heildstæðri úttekt í Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025?2037, sem kynnt hefur verið landeiganda.
Byggðarráð samþykkir framlögð drög að nýjum samningi og felur sveitarstjóra að eiga viðræður við landeiganda um að ljúka samningum fyrir áramót.
Samþykkt samhljóða
3. Ósk um fund með sveitarstjórn Borgarbyggðar
2610265
Fulltrúar frá Ungmennafélags Skallagríms mæta til fundar undir þessum lið.
Byggðarráð þakkar Sigríði Bjarnadóttur fyrir góða kynningu fyrir hönd Ungmennafélags Skallagríms
4. Umsókn um stofnframlag frá Nemendagörðum búvísindadeildar LBHÍ
2508106
Framlögð er beiðni um Stofnframlag vegna nýbyggingar á Skólaflöt 9, Hvanneyri frá Nemendagörðum búvísindadeildar
Byggðarráð fagnar áformum Landbúnaðarháskóla Íslands um uppbyggingu nemendagarða á Hvanneyri og undirstrikar mikilvægi verkefnisins fyrir skólastarfið og samfélagið í heild.
Með hliðsjón af því að fyrir liggur á Alþingi frumvarp til laga, sem gerir ráð fyrir að ríkissjóður standi að fullu undir stofnframlögum til framkvæmda af þessu tagi á tímabilinu frá nóvember 2026 til desember 2027, hafnar byggðarráð beiðni um stofnframlag sveitarfélagsins að svo stöddu.
Ákvörðun þessi er tekin með þeim skýra fyrirvara að nái framangreint frumvarp ekki fram að ganga á Alþingi mun byggðarráð endurskoða afstöðu sína með tilliti til aðkomu Borgarbyggðar að verkefninu.
Samþykkt samhljóða
Fylgiskjöl
5. Gervigreindarstefna Borgarbyggðar
2611118
Framlögð ný stefna, gerivgreindarstefna
Lagt lagt fram til kynningar
Sveitarstjóra er falið að vinna stefnuna áfram og leggja aftur fyrir næsta fund byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða.
Haukur Þór Haukson vék af fundir eftir þennan dagskrárlið.
6. Gjaldskrár 2027
2610088
Framlagðar gjaldskrár
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðaa gjaldskrár vegna starfsemi Borgarbyggðar fyrir árið 2027, gjaldskrá hækki ekki umfram 2.5% þ.e. byggingaleyfis og þjónustugjalda.
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá gatnagerðargjalda fyrir árið 2027 sem tekur breytingum í samræmi við lögmælta uppfærslu vísitölu byggingarkostnaðar, sbr. 4. gr. laga nr. 153/2006.
Gjaldskrár samþykktar með áorðnum breytingum og vísað til fullnaðarafgreiðslu sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
7. Melabraut 2b - Umsókn um lóð
2611045
Framlögð umsókn um lóðina Melabraut 2B á Hvanneyri.
Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Melabraut 2B á Hvanneyri til HIG húsasmíði ehf.
Samþykkt samhljóða.
8. Verklagsreglur slökkvilið
2611128
Framlögð verklagsregla fyrir slökkvilið
Lagt er til að haldnir verði reglulegir samráðs- og stöðufundir sveitarstjóra, fjármálastjóra og slökkviliðsstjóra með það að markmiði að tryggja virkt, reglubundið og formlegt samráð milli yfirstjórnar Borgarbyggðar og slökkviliðsstjóra um fjárhagsleg og stjórnsýsluleg málefni slökkviliðsins, í samræmi við meðfylgjandi verklagsreglur. Jafnframt felur byggðarráð sveitarstjóra og slökkviliðsstjóra að innleiða þetta nýja verklag. Samhliða verður fagráð Slökkviliðs Borgarbyggðar lagt niður í núverandi mynd.
Samþykkt samhljóða
9. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 313. mál. Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041.
Lagt fram
Fylgiskjöl
10. Nýr rammasamningur um höfundaréttargjöld vegna tónflutnings sveitarfélaga
2611046
Lagður fram nýr rammasamningur til kynningar.
Lagt fram
Fylgiskjöl