Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa
83. fundur
10. nóvember 2026 kl. 11:00 - 11:30
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Ásgerður H Hafsteinsdóttir - skipulagsfulltrúi
Elfar Már Ólafsson - verkefnisstjóri
Íma Fönn Hlynsdóttir - verkefnisstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði: Ásgerður Hafsteinsdóttir - Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1. Fyrirspurn um skipulagsmál
2609255
Lögð er fram umsókn Borgarbyggðar dags. 24.09.2026 um framkvæmdaleyfi vegna hækkunar á göngustíg á milli Borgarbrautar og Egilsholts. Stígurinn verður hækkaður um 80-120cm og breikkaður í 180-200 cm til að bæta aðgengi og öryggi vegfarenda.
Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, metur að umrædd framkvæmd falli ekki undir reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 þar sem einungis er verið að bæta aðgengi og öryggi. Heimild til framkvæmdar verður send málsaðilum þar sem m.a koma fram leiðbeiningar skipulagsfulltrúa.
2. Mófellsstaðir - umsókn um framkvæmdarleyfi - L220027
2609305
Lögð er fram umsókn Veitna um endurnýju hitaveitulagna, um 800 metra, frá veginum inn að Indriðastaðahlíð vestur fyrir landamörk Mófellsstaða og Mófellsstaðakots.
Um er að ræða einfalt kerfi. Ný lögn verður DN100/Ø200 foreinangruð lögn frá tengingu við Indriðastaðahlíðarvegi og vestur fyrir Kaldá. Þaðan verður lögnin DN80/Ø160 að verkmörkum 1. áfanga. Lagnalegan þverar ánna Kaldá og þarf að leggja lagnir skv. skurðsniðum í hlífðarrörum. Einnig þarf að gera ráðstafanir og nota hlífðarör þar sem minni vatnsfarvegir eru þveraðir, eins og læki og skurði.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að taka til afgreiðslu framkvæmdaleyfi fyrir endurnýju hitaveitulagna, um 800 metra, frá veginum inn að Indriðastaðahlíð vestur fyrir landamörk Mófellsstaða og Mófellsstaðakots. Framkvæmdin er háð samþykki landeigenda.
3. Brekkuland/Skáli 134775 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
2304089
Á 78. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 9. júlí 2026 var ákveðið að vísa grenndarkynningu til samþykktar Skipulags- og byggingarnefndar. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti svo á 2. fundi nefndarinnar að grenndarkynna fyrirhugað byggingarleyfi fyrir viðbyggingu sem tengir saman tvo sumarbústaði og breyta húsinu í einbýlishús á lóðinni Vanaheim í Borgarbyggð (L237771). Húsið verður alls 190 m². Einnig er sótt um að byggja 88 m² bílskúr sunnan við einbýlishúsið. Byggingarmagn verður í heild 278 m².
Grenndarkynnt var fyrir nágrönnum sem hagsmuna eiga að gæta og óskað eftir umsögnum í gegnum skipulagsgátt. Kynningartíminn var frá 24. september til og með 22. október 2026. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fundi slitið - kl. 11:30