Sveitarstjórn Borgarbyggðar

6. fundur

12. nóvember 2026 kl. 16:00 - 18:03

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Sigurður Guðmundsson boðaði forföll og Birgir Andrésson - varamaður sat fundinn í hans stað
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - aðalmaður
Sonja Lind Eyglóardóttir - aðalmaður
Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Þórður Brynjarsson - aðalmaður
Kristján Ágúst Magnússon - aðalmaður
Jovana Pavlovic - aðalmaður
Haukur Þór Hauksson - aðalmaður
Hermann B. Valsson - aðalmaður

Starfsmenn

Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Þórunn Unnur Birgisdóttir - lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Þórunn Unnur Birgisdóttir - lögfræðingur

Óskað var eftir því í upphafi fundar að bæta inn með afbrigðum máli nr. 2603040, Reglur um fjárhagsaðstoð. Verður það mál nr. 9 á dagskrá. Einnig er lagt til að máli nr. 2611009, erindi til eigenda af hluthafafundi Ljósleiðarans, verði frestað til næsta fundar. Var það samþykkt samhljóða.


Dagskrá

1. Fjárhagsáætlun 2027
2606271

Lögð eru fram fjárhags- og fjárfestingaráætlun Borgarbyggðar fyrir árið 2027, ásamt þriggja ára áætlun 2028 - 2030, sem vísað var til sveitarstjórnar af byggðarráði á fundi nr. 13. Til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

Sveitarstjóri kynnti tillöguna og lagði fram greinagerð



Ragnhildur Eva Jónsdóttir, sjálfstæðisflokki (D-lista) lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihluta sveitarstjórnar:



Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Borgarbyggðarlistans hefur síðustu mánuði unnið markvisst að því að stilla rekstur sveitarfélagsins af miðað við þá raunstöðu sem blasti við upphaf kjörtímabilsins í sumar. Gripið hefur verið til nauðsynlegra aðgerða til að snúa rekstrinum til betri vegar. Mikil og vönduð vinna hefur átt sér stað við gerð fjárhagsáætlunarinnar þar sem stefna og málefnasamningur meirihlutans var hafður að leiðarljósi í hvívetna.

Fjárhagsáætlunin sem hér er lögð fram til fyrri umræðu endurspeglar skýran viðsnúning frá fyrri árum. Með ábyrgri fjármálastjórn er stigið stórt skref frá hallarekstri yfir í sjálfbæran rekstrarafgang upp á 123 milljónir króna, en grunnreksturinn skilar um 1 milljarði króna fyrir afskriftir og fjármagnsliði.

Í samræmi við málefnasamning meirihlutans um sjálfbærni og ábyrga skuldastýringu er tryggt að metnaðarfull uppbygging innviða sé í fullu samræmi við skuldaþol sveitarfélagsins. Fjárfestingar ársins, upp á 919 milljónir króna, eru að mestu fjármagnaðar með öflugu sjóðstreymi frá eigin rekstri án nýrrar skuldasöfnunar, en skuldaviðmið ársins verður um 80%.

Framkvæmdum er forgangsraðað með þarfir fjölskyldna og íbúa að leiðarljósi líkt og kveðið er á um í málefnasamningi flokkanna:

Í leikskólamálum stígum við stórt skref með því að bjóða út og hefja byggingu á viðbyggingu við leikskólann Ugluklett, sem mun styðja við það markmið meirihlutans að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.

Í skólamálum ljúkum við mikilvægum framkvæmdum og skólalóð við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum, samhliða endurbótum á eldri byggingu skólans.

Í samgöngu- og umhverfismálum höldum við áfram ábyrgri gatnagerð, bætum göngu- og hjólastíga og eflum innviði sem auka öryggi og lífsgæði allra íbúa.

Þessi áætlun sýnir að meirihluti D- og A-lista stendur við fyrirheit sín um stöðugleika, faglegan og traustan rekstur og markvissa uppbyggingu til framtíðar í sameinuðu sveitarfélagi.



Til máls tóku UBK, HÞH, REJ, HBV, DS



Forseti lagði fram svohljóðandi tillögu um álagningu útsvars 2027:



Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkir að álagning útsvars á árinu 2027 verði 14,97% af tekjum

Samþykkt með 7 atkvæðum REJ, JP, BA, KÁM, HBV, SLE, DS og 2 sitja hjá HÞH og ÞB.



Samþykkt að vísa tillögu að fjárhags- og fjárfestingaráætlun til síðari umræðu í sveitarstjórn



Samþykkt samhljóða



2. Gjaldskrár 2027
2610088

Lagðar voru fram tillögur að gjaldskrám í Borgarbyggð 2027 sem hafa fengið umfjöllun í viðkomandi nefndum.

Lagðar voru fram tillögur að gjaldskrám í Borgarbyggð 2027 sem hafa fengið umfjöllun í viðkomandi nefndum.





Lögð fram tillaga um að álagning fasteignaskatts í Borgarbyggð á árinu 2027 verði



0,35% af fasteignamati skv a-lið 3. gr laga um tekjustofna sveitarfélaga

Samþykkt samhljóða



1,32% af fasteignamati skv b-lið 3. gr laga um tekjustofna sveitarfélaga

Samþykkt samhljóða



1,39% af fasteignamati skv c-lið 3. gr laga um tekjustofna sveitarfélaga

Samþykkt samhljóða





Lögð fram tillaga um að lóðaleiga í Borgarbyggð árið 2027 verði 1,5% af fasteignamati íbúðarhúsalóða og 2,00% af fasteignamati annarra lóða.

Samþykkt samhljóða





Gjaldskrá hunda og kattahalds hækkar um kr. 3000 til að mæta kostnaði af nýju kerfi.

Samþykkt samhljóða





Lagt er til að Gjaldskrá fyrir ljósritun verði felld niður.

Samþykkt samhljóða



Forseti bar upp beiðni þess að fá að bera upp allar gjaldskrá saman, eftirfarandi gjalskrár hækka um 2.5%

það var samþykkt samhljóða



Gjaldskrá safnahús, gjaldskrá og reglur fyrir gámasvæði, gjaldskrá vegna tæmingar rotþróa, gjaldskrá vatnsveitu Hraunhrepps, gjaldskrá vatnsveitu Álftaneshrepps, gjaldskrá slökkvitækjaþjónustu, gjaldskrá slökkviliðs Borgarbyggðar, gjaldskrá félagsheimila í Borgarbyggð, gjaldskrá fyrir söfnun og eyðingu dýraleifa, gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs og gjaldskrá Skipulagsfulltrúa.



Samþykkt samhljóða





Fylgiskjöl


3. Gjaldskrár á fjölskyldusviði 2027
2510090

Afgreiðsla byggðarráðs frá fundi nr. 13: Byggðarráð tekur undir afgreiðslu fræðslunefndar frá 27. október sl. og samþykkir að gjaldskrá leikskóla verði óbreytt fyrir árið 2027 í samræmi við tillögu 1 í framlögðu minnisblaði sviðsstjóra. Byggðarráð samþykkir jafnframt fyrir sitt leyti aðrar framlagðar gjaldskrár á sviðinu með 2,5% hækkun og vísar þeim til endanlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn. Samþykkt samhljóða

Forseti bar upp beiðni þess að fá að bera upp allar gjaldskrá saman,

Samþykkt samhljóða



Sveitarstjórn Borgarbyggðar staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og samþykkir að gjaldskrá leikskóla verði óbreytt fyrir árið 2027 en aðrar framlagðar gjaldskrár á fjölskyldusviði hækki um 2,5%. Það eru gjaldskrá listaskóla, gjaldskrá íþróttamiðstöðva, gjaldskrá mötuneyti grunnskóla og gjaldskrá frístundar.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


4. Þjónustustefna Borgarbyggðar 2027
2610073

Lögð er fram tillaga að þjónustustefnu Borgarbyggðar fyrir árin 2027?2030, sbr. 130. gr. a sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sem vísað var til fyrri umræðu frá 10. fundi byggðarráðs.

Lögð fram til fyrri umræðu þjónustustefna Borgarbyggðar fyrir árin 2027-2030, sbr. 130. gr. a sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Samþykkt samhljóða að vísa þjónustustefnunni til síðari umræðu í sveitarstjórn þann 10. desember nk.



Samþykkt samhljóða



5. Innkaupareglur Borgarbyggðar
2610123

Afgreiðsla byggðarráðs á fundi nr. 12: Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að uppfærðum innkaupareglum Borgarbyggðar 2026 og vísar þeim til sveitarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu og staðfestingar með þeim breytingartillögum sem fram komu á fundinum. Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og samþykkir uppfærðar innkaupareglur Borgarbyggðar.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


6. Styrktarlínur og auglýsingar
2607014

Afgreiðsla byggðarráðs á fundi nr. 13: Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi uppfærðar reglur um styrktarlínur og auglýsingar 2026 fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn. Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og samþykkir fyrirliggjandi uppfærðar reglur um styrktarlínur og auglýsingar.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


7. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124

Lagðir eru fram viðaukar nr. VIII og IX við fjárhagsáætlun 2026 ásamt bókun byggðarráðs af fundi nr. 13

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkir framlagðar tillögur að viðaukum VIII og IX við fjárhagsáætlun 2026; annars vegar viðauka vegna sameiningar sveitarfélaganna með 1,3 m.kr. rekstrarbata og hins vegar viðauka vegna forgangsröðunar fjárfestinga sem lækkar fjárfestingaáætlun um 1.021,6 m.kr.



Samþykkt með 7 atkvæðum, tveir sitja hjá HÞH og ÞB

Fylgiskjöl


8. Barnaverndarþjónusta Vesturlands
2608172

Lagður er fram viðauki við samning Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar um barnaverndarþjónustu, til samþykktar. Samningur hefur verið birtur í Stjórnartíðindum með nr. 121/2024. Með viðauka þessum verða Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundafjarðarbær, Snæfellsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur aðili að samningnum. Skal samstarf aðilanna nefnt Barnaverndarþjónusta Vesturlands. Fyrir liggur samþykki allra sveitastjórna er koma að samstarfinu.

Sveitarstjórn samþykkir viðauka við samning Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar um barnaverndarþjónustu.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


9. Reglur um fjárhagsaðstoð 2026
2603040

Á 3. fundi velferðarnefndar var farið yfir breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð. Bókun velferðarnefndar var svohljóðandi: Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti framlagðar breytingar og vísar til staðfestingar sveitastjórnar. Samþykkt samhljóða.



Óskað er eftir staðfestingu sveitastjórnar.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar staðfestir afgreiðslu velferðarnefndar og samþykkir framlagðar breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð 2026.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


10. Erindi til sveitarstjórnar vegna Rammaáætlunar
2609031

Ragnhildur Eva Jónsdóttir, sjálfstæðisflokki (D) fór yfir efni málsins og las upp fyrirliggjandi umsögn sveitarfélagsins sem leggja á fram í samráðsgátt.

Að lokinni umræðu var eftirfarandi bókað:



Sveitarstjórn tekur undir bókun byggðarráðs og felur sveitarstjóra er að leggja umsögninga fram í samráðsgátt í nafni sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða



Til máls tóku REJ,HÞH,

Fylgiskjöl


11. Áskorun til ráðherra vegna Landbúnaðarháskóla Íslands
2611083

Ragnhildur Eva Jónsóttir sjálfstæðisflokki (D) leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihlutans.



Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum og mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði á fjárframlögum til Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) á Hvanneyri, sem nemur um 400 milljónum króna. Samkvæmt tillögum háskólaráðuneytisins stefnir í að LBHÍ verði eini háskólinn á landinu sem fær lægra heildarframlag úr reiknilíkani háskólanna en árið á undan.

Verði af þessum áformum fær skólinn aðeins um 75% þess rekstrarframlags sem forsendur stóðu til. Framlag ráðuneytisins myndi þá aðeins standa undir um 45% áætlaðs rekstrarkostnaðar skólans, samanborið við um tvo þriðju hluta á undanförnum árum. Þetta er grundvallarbreyting á forsendum starfseminnar sem ógnar beint tilvist og rekstrargrundvelli skólans.



Aðför að grunnrekstri skólans er með öllu óásættanleg:

Tilfærsla á rekstrarfé í framkvæmdir: Fyrirhugað er að taka 200 milljónir króna úr rekstri til að fjármagna uppbyggingu Jarðræktarmiðstöðvar. Það er ótæk ráðstöfun, enda óraunhæft að ætlast til þess að skólinn segi upp starfsfólki eða skerði námsframboð til að unnt sé að koma á fót rannsóknarinnviðum sem ríkinu ber að tryggja sérstaklega.

Skerðing innleiðingarframlags: Samhliða á að lækka innleiðingarframlag skólans um aðrar 200 milljónir króna vegna breytinga á reiknilíkani, án nauðsynlegs aðlögunartíma eða raunhæfs samráðs við stjórnendur skólans.

Friðuð mannvirki á Hvanneyri: Fjármögnunarlíkanið tekur ekki tillit til þess verulega kostnaðar og þeirra lagalegu skyldna sem hvíla á skólanum vegna umsjónar og viðhalds fjölmargra friðaðra mannvirkja á Hvanneyri.



Landbúnaðarháskóli Íslands er hornsteinn í samfélagi, atvinnulífi og menntun í Borgarbyggð og gegnir lykilhlutverki í loftslagsmálum, landbúnaði og matvælaöryggi þjóðarinnar allrar.



Sveitarstjórn Borgarbyggðar skorar á stjórnvöld og Alþingi að:



Leiðrétta fjárveitingar til LBHÍ við afgreiðslu fjárlaga og tryggja óskertan grunnrekstur skólans.

Fjármagna uppbyggingu Jarðræktarmiðstöðvar sérstaklega af hálfu ríkisins án þess að ganga á daglegan rekstur skólans.

Veita raunhæfan aðlögunartíma og hafa virkt samráð við stjórnendur skólans um breytingar á reiknilíkani háskóla.

Veita sérstakt framlag til skólans til umsjónar og varðveislu friðaðra mannvirkja á Hvanneyri.



Samþykkt samhljóða



Til máls tóku REJ, SLE





12. Farsæld barna
2611060

Sonja Lind Eyglóardóttir, Framsóknarflokki (B) leggur fram eftirfarandi bókun:

Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir miklum áhyggjum af fyrirhuguðum niðurskurði ríkisins á framlögum til framkvæmdar farsældarlaga. Með þessum áformum er ríkisstjórnin að senda röng skilaboð um forgangsröðun þegar kemur að velferð barna. Sérstaklega er áhyggjuefni sú óvissa sem þessi áform skapa um þjónustu og úrræði fyrir börn með fjölþættan vanda og miklar stuðningsþarfir. Ríkisstjórnin má ekki bregðast þessum börnum með því að draga úr fjárhagslegum stuðningi við þjónustu sem á að tryggja þeim viðeigandi úrræði og stuðning. Sveitarfélög bera ríka ábyrgð á þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra, en sú ábyrgð verður ekki uppfyllt án þess að ríkið standi við fjárhagslegar skuldbindingar sínar. Það er óásættanlegt að lögbundin þjónusta sé lögð á sveitarfélög án þess að henni fylgi fullnægjandi fjármögnun. Velferð barna á ekki að vera sparnaðarliður í ríkisfjármálum.



Samþykkt samhljóða



Til máls tóku SLE, REJ,



13. Nýr námsmatskvarði í grunnskólum
2611059

Sonja Lind Eyglóardóttir, Framsóknarflokki (B) leggur fram eftirfarandi bókun:

Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir andstöðu við þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við innleiðingu nýs námsmats af hálfu mennta- og barnamálaráðherra og hafnar innleiðingu þess á yfirstandandi skólaári. Sveitarstjórn Borgarbyggðar kallar eftir því að breytingar á námsmati verði unnar í nánu samráði við skólastjórnendur og fagfólk með faglegum undirbúningi, skýrum markmiðum og raunhæfum aðlögunartíma.



Ragnhildur Eva Jónsdóttir, lagði fram tilögu að vísa málinu inn í fræðslunefnd. Var það borið undir atkvæði og Samþykkt samhljóða



Til máls tóku SLE, REJ,



14. Opnunartími sundlauga í Borgarbyggð
2608067

Afgreiðsla byggðarráðs á fundi nr. 12: Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu fræðslunefndar um opnun á Kleppjárnsreykjum. Gert er ráð fyrir að viðbótar kostnaður sé 1,200.000 kr. Málinu er vísað til staðfestingar í sveitarstjórn. Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og samþykkir framlagða tillögu fræðslunefndar um opnun sundlaugarinnar á Kleppjárnsreykjum.



Samþykkt samhljóða



Til máls tóku REJ, HBV



15. Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Lögð er fram afgreiðsla byggðarráðs frá fundi nr. 12, þar sem vísað er til 1. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og lagt til við sveitarstjórn að stofnun nýrrar Bifrastarnefndar og framlagt erindisbréf hennar verði samþykkt, með skipunartíma til tveggja ára, ásamt því að sveitarstjórn kjósi aðal- og varamenn í nefndina. Jafnframt liggur fyrir bókun fulltrúa Miðflokksins frá fundi byggðarráðs.



Sveitarstjórn samþykkir stofnun Bifrastarnefndar og framlagt erindisbréf hennar til tveggja ára, í samræmi við tillögu byggðarráðs.



Til máls tóku ÞB, SLE, UBK,



Samþykkt með 5 atkvæðum BA, REJ, KÁM, JP og HBV gegn 2 atkvæðum á móti ÞB og HÞH, Tveir sitja hjá SLE, DS



Sveitarstjórn kýs eftirtalda fulltrúa í Bifrastarnefnd til tveggja ára:



Aðalmenn:

1.
Bjarki Þór Grönfeldt, formaður

2.
Jovana Pavlovic

3.
Jóhanna Möller

4.
Vilhjálmur Egilsson fyrir hönd Háskólans á Bifröst

5.
Jónas Guðmundsson fyrir hönd Hollvinasamtakanna

Varamenn:

1.
Guðrún Vala Elísdóttir

2.
Hermann B. Valsson

3.
Sigurður Guðmundsson



Samþykkt með 5 atkvæðum BA, REJ, KÁM, JP og HBV, fjórir sitja hjá SLE, DS, ÞB, HÞH

Fylgiskjöl


16. Beiðni um samstarf frá Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar
2609157

Afgreiðsla byggðarráðs frá fundi nr. 10: Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samningurinn verði samþykktur og að sveitarstjóra verði veitt umboð til undirritunar hans fyrir hönd sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða

Sveitarstjórn samþykkir samninginn við Krabbameinsfélag Borgarfjarðar og veitir sveitarstjóra umboð til undirritunar hans fyrir hönd sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða



17. Ósk um stuðning við umsókn um Unglingalandsmót UMFÍ 2027
2610027

Afgreiðsla byggðarráðs frá fundi nr. 10: Byggðaráð Borgarbyggðar þakkir fyrir erindi UMSB um að halda Landsmót UMFÍ 2027 í Borgarbyggð. Það er ánægjulegt að UMSB og aðildarfélög þess hafi áhuga á að halda Landsmót UMFÍ 2027. Landsmót UMFÍ hefur nokkrum sinnum verið haldið í Borgarbyggði með góðum árangri. Landsmót UMFÍ byggja á mikilli þáttöku sjálfboðaliða og góðri samvinnu félaga á því svæði sem landsmótið er haldið. Jafnframt er mótið tækifæri til tekjuöflunar fyrir félögin sem taka þátt. Byggðaráð Borgarbyggðar fagnar því og styður umsókn UMSB um að halda Landsmót UMFÍ 2027. Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og samþykkir að veita fullan stuðning við UMSB um að halda Unglingalandsmót UMFÍ 2027 í Borgarbyggð.



Samþykkt samhljóða





Til máls tóku KÁM, HBV,

Fylgiskjöl


18. Erindi til eigenda af hluthafafundi Ljósleiðarans
2611009

Afgreiðsla byggðarráðs frá fundi nr. 13: Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir fyrirliggjandi erindi Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 26. október 2026. Málinu er vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar. Samþykkt samhljóða.

Máli frestað til næsta sveitarstjórnarfundar þann 10. desember nk.



19. Brákarbraut 27 - Umsókn um breytta afmörkun lóðar
2611014

Afgreiðsla 4. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir breytta afmörkun lóðarinnar Brákarbraut 27 (L191759) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða



20. Ferjubakki 2 - umsókn um breytingu á landheiti - L135030
2610004

Afgreiðsla 4. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að nýtt heiti á landareign verði Solveigarblettur (L135030).

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir breytt landheiti fyrir Ferjubakka 2(L135030) í Solveigarblettur.



Samþykkt samhljóða



21. Egilsholt 1 - Umsókn um stofnun lóða
2603141

Afgreiðsla 4. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun á lóðinni Egilsholt 1 (L203011) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir breytta stærð og afmörkun lóðarinnar Egilsholt 1 (L203011) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


22. Egilsholt 2a og 2b - Umsókn um stofnun lóða
2602065

Afgreiðsla 4. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun sem samræmist núgildandi deiliskipulagi á svæðinu þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að nýtt heiti á landareign verði Egilsholt 2b (L194035).

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir breytta stærð og afmörkun lóðanna Egilsholt 2a (L198242) og Bjargsland lóð(L194035) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn samþykkir einnig breytingu á landheitinu Bjargsland lóð (L194035) Í Egilsholt 2b.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


23. Litla-Fjallsland - Umsókn um stofnun lóða
2608250

Afgreiðsla 4. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja merkjalýsingu lóðarinnar Litla-Fjallsland 2 (L135067) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að nýtt heiti á landareign verði Litla-Fjallsland 2 (L135067).

Samþykkt samhljóða. "

Sveitarstjórn samþykkir afmörkun lóðarinnar Litla-Fjallsland 2 (L135067) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn samþykkir einnig að nýtt heiti lóðarinnar verði Litla-Fjallsland 2 (L135067)



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


24. Breyting á landnotkun - Hvítárvellir (133886) - Efnistökusvæði
2604243

Afgreiðsla 4. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir sitt leyti. Breytingartillagan tekur til um 2 ha svæði í Selholti á Heggstaðanesi skammt vestan Grímsár í landi Hvítárvalla.

Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn samþykkir breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tilgangur breytingarinnar er að breyta landnotkun svæðisins úr landbúnaðarlandi í efnistökusvæði og er markmið breytingarinnar að heimila allt að 35.000 m3 efnistöku á um 2 ha svæði í Selholti á Heggstaðanesi skammt vestan Grímsár í landi Hvítárvalla.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


25. Byggðarráð Borgarbyggðar - 10
2610010F

Fundargerð framlögð

25.1
2610073
Þjónustustefna Borgarbyggðar 2027
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Fyrstu drög að þjónustustefnu lögð fram. Stefnan mun verða kynnt fyrir íbúum dagana 2.-4. nóvember ásamt því verður óskað eftir ábendingum frá íbúum og á heimasíðu sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.

25.2
2610071
Til umsagnar 156. mál frá nefnda- og greiningarsviði skrifstofu Alþingis
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

25.3
2602005
Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Fundargerð framlögð

25.4
2602034
Faxaflóahafnir fundagerðir 2026.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Fundargerð framlögð

25.5
2602143
Fundagerðir Heilbrigðisnefndar Vesturlands 2026.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Fundargerð framlögð

25.6
2602005
Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Fundargerð framlögð

25.7
2609183
PISA 2026 niðurstöður
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Lagt fram til kynningar

25.8
2609157
Beiðni um samstarf frá Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samningurinn verði samþykktur og að sveitarstjóra verði veitt umboð til undirritunar hans fyrir hönd sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða

25.9
2610029
Starfshópur um rekstur og umbætur
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Byggðaráð Borgarbyggðar þakkar fulltúum Miðflokksins fyrir góða tillögu um starfshóp um rekstur og umbætur í Borgarbyggð. Byggðaráð fer með og ber ábyrgð á rekstri og fjármálum sveitarfélagsins og þar með er það verkefni þess að rýna reksturinn og gera tillögur að hagræðingu ef ástæða er til. Byggðaráð tekur undir nauðsyn þess að rýna með markvissum hætti rekstur sveitarfélagsins og telur ekki ástæðu til að stofna sérstök nefnd um rekstur og umbætur að svo komnu máli, en leggur til að þeir áherslupunktar sem koma fram í tíllögu Miðflokksins verði teknir til sérstakar skoðunar á næsta ári.Samþykkt samhljóða

25.10
2610028
Erindisbréf fyrir fulltrúa í raflínunefnd
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Byggðarráð Borgarbyggðar ítrekar að hérað okkar byggir á landbúnaði, náttúrufegurð, laxveiði. iðnaði og þjónustu sem á allt sitt undir hreinni ímynd héraðsins og sjónrænni upplifun. Því er mikilvægt að Landsnet vandi mjög til verka og nái sem víðtækastri sátt og sanngjörnum samningum um línuleiðina við nærumhverfið og endurgjald verði sanngjarnt til landeiganda. Byggðarráð lýsir yfir fullu trausti til fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd og hvetur hana til að leggja áherslu á þessa afstöðu byggðarráðs í störfum sínum í nefndinni.Samþykkt samhljóða

25.11
2610018
Beiðni um skráningu lögheimilis í frístundabyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Byggðarráð Borgarbyggðar bendir á að skráning lögheimilis lýtur lögum um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018 og ákvæðum skipulagslaga um landnotkun. Þar sem gildandi skipulag gerir ekki ráð fyrir heilsársbúsetu á umræddu svæði hafnar byggðarráð beiðninni á þessu stigi.Samþykkt samhljóða.

25.12
2610016
Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Grenjavegar (5374-01) af vegaskrá
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka afstöðu til þeirra raka sem búa að baki fyrirhugaðri ákvörðun Vegagerðarinnar, svo sem m.t.t. búsetu og atvinnustarfsemi, og koma þeirri afstöðu á framfæri við Vegagerðina.Samþykkt samhljóða

25.13
2610088
Gjaldskrár 2027
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Lögð fram drög að uppfærðri gjaldskrá félagsheimila fyrir árið 2027. Í drögunum er gert ráð fyrir almennri 2,5% hækkun á gjaldskrárliðum í samræmi við forsendur fjárhagsáætlunar, auk þess sem gerðar eru breytingar á ákvæðum um afnot og frágang.Byggðarráð felur sveitarstjóra að klára að fullvinna gjaldskránna.Samþykkt samhljóða

25.14
2610027
Ósk um stuðning við umsókn um Unglingalandsmót UMFÍ 2027
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Byggðaráð Borgarbyggðar þakkir fyrir erindi UMSB um að halda Landsmót UMFÍ 2027 í Borgarbyggð. Það er ánægjulegt að UMSB og aðildarfélög þess hafi áhuga á að halda Landsmót UMFÍ 2027. Landsmót UMFÍ hefur nokkrum sinnum verið haldið í Borgarbyggði með góðum árangri. Landsmót UMFÍ byggja á mikilli þáttöku sjálfboðaliða og góðri samvinnu félaga á því svæði sem landsmótið er haldið. Jafnframt er mótið tækifæri til tekjuöflunar fyrir félögin sem taka þátt. Byggðaráð Borgarbyggðar fagnar því og styður umsókn UMSB um að halda Landsmót UMFÍ 2027.Samþykkt samhljóða

25.15
2610072
Félagsfundur Veiðifélags Hítarár
Byggðarráð Borgarbyggðar - 10

Byggðarráð tilnefnir Kristján Ágúst Magnússon og Jóhannes Jónasson sem fulltrúa Borgarbyggðar á fundinn.Samþykkt samhljóða



26. Byggðarráð Borgarbyggðar - 11
2610021F

Fundargerð framlögð

26.1
2609318
Frumvarpsdrög og drög að samþykktum- Kynningaráætlun
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Byggðarráð þakkar fulltrúum Orkuveitu Reykjavíkur fyrir kynninguna.

26.2
2602005
Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Fundargerð framlögð

26.3
2610124
Til umsagnar 202. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Framlagt

26.4
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Framlagt

26.5
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Framlagt

26.6
2610143
Erindi frá Landbúnaðarsafni Íslands
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Byggðarráð þakkar Ragnhildi Helgu Jónsdóttur safnstjóra og Önnu Heiðu Baldursdóttur greinargóða kynningu á starfsemi og stöðu Landbúnaðarsafns Íslands. Byggðarráð áréttar mikilvægi safnsins sem menningar- og fræðslustofnunar og fagnar því öfluga samstarfi sem átt hefur sér stað.Byggðarráð vísaði beiðni safnsins á 7. fundi Byggðarráðs til umræðu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027, sú vinna er í gangi.Samþykkt samhljóða

26.7
2610145
Ósk um samstarf vegna ráðstefnu um skapandi atvinnulíf
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Byggðarráð staðfestir undirritun viljayfirlýsingarinnar og fagnar framkomnum áformum. Lögð er áhersla á að yfirlýsingin felur ekki í sér bindandi fjárhagslegar skuldbindingar fyrir sveitarfélagið á þessu stigi, en slíkar ákvarðanir skulu koma til sérstakrar umfjöllunar og samþykktar í byggðarráði eftir því sem verkefninu vindur fram.Samþykkt samhljóða

26.8
2610144
Beiðni um skriflegt umboð vegna umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Byggðarráð þakkar Hollvinasamtökum Borgarness fyrir framtakssemi við eflingu ferðamannastaða í Borgarnesi og samþykkir að veita stuðningsyfirlýsingu vegna umsóknanna. Lögð er áhersla á að útgáfa stuðningsyfirlýsingar felur ekki í sér fyrirfram samþykki á fjárhagslegu mótframlagi sveitarfélagsins, en slíkt kemur til sérstakrar umfjöllunar við afgreiðslu úthlutana úr sjóðnum og gerð fjárhagsáætlunar.Samþykkt samhljóða

26.9
2606304
Fjárhagsaðstoð í sveitarfélaginu
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Erindi framlagt

26.10
2606011
Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Málinu er frestað til næsta fundar

26.11
2510327
Brattagata - Gatnaframkvæmdir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Byggðarráð samþykkir að ráðist verði í snjóbræðslu í Bröttugötu sem aukaverk við gildandi verksamning um endurnýjun gatnagerðar og veitulagna, á grundvelli framlagðrar verklýsingar og fyrirliggjandi kostnaðaráætlunar að fjárhæð kr. 19.968.590Þar sem aukaverkið rúmast ekki innan samþykktrar fjárhagsáætlunar ársins 2026 felur byggðarráð sveitarstjóra að vinna tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun vegna framkvæmdarinnar og leggja fyrir byggðarráð.Gengið verði frá viðauka við verksamning við aðalverktaka samhliða eða að lokinni samþykkt byggðarráðs á viðauka við fjárhagsáætlun.Samþykkt með tveimur atkvæðum, KÁM og SG, einn á móti SLEE

26.12
2610123
Innkaupareglur Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Lagt fram til kynningar

26.13
2610175
Umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða og skráning í áfangastaðaáætlun vesturlands.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 11

Byggðarráð Borgarbyggðar tekur jákvætt í erindið og lýsir yfir stuðningi við umsókn um styrk í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða til frumhönnunar á göngustíg í landi Bjargs og Bjargs 2. Byggðarráð samþykkir að verkefnið verði skráð í Áfangastaðaáætlun Vesturlands og felur sveitarstjóra að undirrita nauðsynleg fylgigögn vegna umsóknarinnar fyrir hönd sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða



27. Byggðarráð Borgarbyggðar - 12
2610031F

Fundargerð framlögð

27.1
2610123
Innkaupareglur Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 12

Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að uppfærðum innkaupareglum Borgarbyggðar 2026 og vísar þeim til sveitarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu og staðfestingar með þeim breytingartillögum sem fram komu á fundinum. Samþykkt samhljóða.

27.2
2606011
Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
Byggðarráð Borgarbyggðar - 12

Með vísan til 1. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 felur byggðarráð sveitarstjóra að fullvinna framlagt erindisbréf fyrir nýja Bifrastarnefnd, þar sem kveðið er á um verksvið hennar, skipan og starfstíma. Skipunartími nefndarinnar verði til tveggja ára. Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að stofnun nefndarinnar og erindisbréf hennar verði samþykkt og að sveitarstjórn kjósi aðal- og varamenn í nefndina.Samþykkt samhljóða. Bókun fulltrúa Miðflokksins: Bókun Miðflokksins á fundi byggðarráðs 29. október 2026 vegna nefndar um BifröstMiðflokkurinn leggst gegn því að stofnuð verði sérstök nefnd um Bifröst. Bifröst er einn af nokkrum byggðarkjörnum í sveitarfélaginu, líkt og Varmaland, Hvanneyri, Reykholt og Kleppjárnsreykir. Þá eru almenningssamgöngur betri á Bifröst en í nokkrum þessara byggðarkjarna.Sveitarfélagið Borgarbyggð á nánast engar eignir á Bifröst og hefur lítil áhrif á þróun svæðisins nema hvað varðar skipulagsvald. Þar eru jafnframt nánast engar stofnanir eða fyrirtæki. Háskólinn á Bifröst er þar með skráð lögheimili en hefur þar enga starfsemi, og langflestar kennitölur sem skráðar eru á Bifröst tengjast háskólanum.Á fundi sveitarstjórnar 7. október sl. var erindisbréf nefndarinnar lagt fram. Miðflokkurinn lagði þá til að fremur yrði stofnuð nefnd um smærri byggðarkjarna í sveitarfélaginu og/eða spretthópur um málefni Bifrastar. Samkvæmt erindisbréfinu verður óskað eftir því að í samstarfsnefndinni sitji fulltrúi Háskólans á Bifröst, sem eins og fyrr segir starfar ekki á Bifröst, og fulltrúi Hollvinasamtaka Bifrastar, sem eru hollvinasamtök háskólans.Helsti vandi Bifrastar snýr að flóttafólki frá Úkraínu sem þar býr í einangrun, hefur litla sem enga atvinnumöguleika og nær ekki að aðlagast samfélaginu. Bifröst hentar því engan veginn sem búsetuúrræði fyrir flóttafólk. Verkefni sveitarfélagsins ætti að vera að stuðla að því að flóttafólk geti flutt á svæði þar sem það finnur störf við hæfi og getur aðlagast samfélaginu, þar til það snýr aftur til síns heima.

27.3
2508106
Umsókn um stofnframlag frá Nemendagörðum búvísindadeildar LBHÍ
Byggðarráð Borgarbyggðar - 12

Afgreiðslu málsins er frestað til næsta fundar og óskað eftir nánari upplýsingum um framkvæmdina og fjárhæð gatnagerða- og byggingarleyfisgjalda. Samþykkt samhljóða.

27.4
2608067
Opnunartími sundlauga í Borgarbyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 12

Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu fræðslunefndar um opnun á Kleppjárnsreykjum. Gert er ráð fyrir að viðbótar kostnaður sé 1,200.000 kr. Málinu er vísað til staðfestingar í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

27.5
2604039
Fundagerðir Orkuveitu Reykjavíkur 2026.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 12

Lagt fram.

27.6
2601229
Fundagerðir 2026 - Hafnasamband Íslands.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 12

Lagt fram.



28. Byggðarráð Borgarbyggðar - 13
2611001F

Fundargerð framlögð

28.1
2510090
Gjaldskrár á fjölskyldusviði 2027
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðstjóri fjölskyldusviðs mætir til fundar og fer yfir framlagt minnisblað. Byggðarráð tekur undir afgreiðslu fræðslunefndar frá 27. október sl. og samþykkir að gjaldskrá leikskóla verði óbreytt fyrir árið 2027 í samræmi við tillögu 1 í framlögðu minnisblaði sviðsstjóra. Byggðarráð samþykkir jafnframt fyrir sitt leyti aðrar framlagðar gjaldskrár á sviðinu með 2,5% hækkun og vísar þeim til endanlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða

28.2
2610235
Umsókn um styrk - Jólaútvarp
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Jólaútvarpið er mikilvægur viðburður á jólunum. Byggðarráð fagnað erindinu. Byggðarráð samþykkir að veita Nemendafélagi GB styrk vegna jólaútvarps að fjárhæð kr. 400.000 og felur sveitarstjóra afgreiðslu málsins.Samþykkt samhljóða

28.3
2609031
Erindi til sveitarstjórnar vegna Rammaáætlunar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Umsögn um tillögu að flokkun sjö vindorkuverkefna, virkjunarkosturinn AlviðraMeð skjali þessu veitir byggðarráð Borgarbyggðar umsögn um skýrslu verkefnisstjórnar um verndar- og orkunýtingaráætlun um tillögu að flokkun sjö vindorkuverkefna sem birt hefur verið til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda.Byggðarráð lýsir yfir afdráttarlausri andstöðu við þá tillögu verkefnisstjórnar að setja virkjunarkostinn Alviðru á Grjóthálsi í biðflokk. Í fyrri umsögn sveitarfélagsins í málinu komu skýrt fram þungar áhyggjur, efasemdir og rík áhersla á neikvæð áhrif virkjunarkostsins á landslag, náttúru og samfélag. Það er eðlilegt og rökrétt framhald af þeirri afstöðu, nú þegar niðurstöður faghópa rammaáætlunar liggja loks fyrir sem staðfesta hæsta náttúruverndargildi svæðisins af öllum metnum kostum, að byggðarráð Borgarbyggðar leggi til að virkjunarkosturinn verði færður í verndarflokk á grundvelli 6. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011.Skipulagsvald og gildandi aðalskipulag BorgarbyggðarÍ fyrsta lagi heimilar gildandi aðalskipulag Borgarbyggðar engin vindorkuver og líta verður til viðmiða aðalskipulagsins um staðsetningu slíkra mannvirkja. Skipulagsvald er hjá sveitarfélaginu og ákvörðun um flokkun má ekki ganga gegn þeirri stefnu sem íbúar og kjörnir fulltrúar hafa mótað. Sveitarfélagið hefur áréttað að við mat á vindorkukostinum Alviðru á Grjóthálsi verði að líta til þeirra viðmiða og takmarkana sem fram koma í aðalskipulagi um staðsetningu vindorkuvera, einkum hvað varðar sjónræn áhrif, áhrif á landslag og samfélagslegan ábata.Vindmyllur af þeirri stærðargráðu sem hér um ræðir eru sýnilegar yfir stór landsvæði og geta haft veruleg neikvæð áhrif á upplifun landslags, náttúru og útivistar langt út fyrir framkvæmdasvæðið sjálft. Slík áhrif skerða þá sérstöðu sem einkennir svæðið og liggur til grundvallar búsetu, útivist og ferðaþjónustu í héraðinu. Byggðarráð bendir á að flokkun kostsins í verndarflokk samræmist best þessum skipulagslegu forsendum og tryggir nauðsynlegan fyrirsjáanleika um landnotkun í sveitarfélaginu.Afgerandi niðurstöður faghópa rammaáætlunarÍ öðru lagi má ráða af gögnum verkefnisstjórnar sjálfrar að sérfræðimat allra viðeigandi faghópa mælir eindregið gegn orkunýtingu á svæðinu og staðfestir ríka verndarþörf þess.Áhrif á landslag og ásýnd eru veruleg. Faghópur 1 um náttúru og menningarminjar metur náttúruverðmæti á Alviðrusvæðinu þau mestu af þeim sjö kostum sem til umfjöllunar eru í þessum áfanga og telur áhrif á landslag mikil, enda myndi virkjunin sjást mjög víða. Þetta er í samræmi við áhyggjur sveitarfélagsins. Í samanburði við virkjunarkosti á landsvísu fær Alviðra einkunnina tíu fyrir verðmæti náttúru, sem skipar svæðinu í flokk með verðmætustu perlum íslenskrar náttúru. Jafnframt er staðfest að virkjunin myndi valda mikilli skerðingu á landslagi og sjást um stóran hluta Borgarfjarðarhéraðs.Faghópur 2 um ferðaþjónustu, útivist og staðbundna hagsmuni metur áhrif á veiði mest við Alviðru af öllum kostunum og raðar kostinum í neðsta sæti allra kosta hvað varðar áhrif á aðra hagsmuni. Grjótháls liggur milli Norðurárdals og Þverárhlíðar og veiði í ám héraðsins er mikilvæg atvinnu- og tekjulind fyrir landeigendur og ferðaþjónustu í Borgarbyggð.Í niðurstöðu faghóps 3 um samfélagsleg áhrif raðast Alviðra jafnframt í fyrsta sæti yfir mestu neikvæðu samfélagslegu áhrifin. Faghópur 3 óskaði sérstaklega eftir mati sveitarfélagsins á framlagi Alviðru til orkuöryggis og á efnahagslegum ávinningi fyrir nærsamfélagið við vinnslu málsins. Sveitarfélagið hefur engar forsendur til að leggja jákvætt mat á þessa þætti og bendir á að engin gögn hafa verið lögð fram sem sýna fram á slíkan ávinning. Vindorka er breytileg og kallar á jöfnunarafl eða geymslu, og ekkert liggur fyrir um hvernig eða hvort tekjur eða annar ávinningur af verkefninu myndi skila sér til íbúa með tryggum hætti. Fram kemur að Alviðra hefur mest neikvæð áhrif á samstöðu í samfélaginu allra kosta, mikil andstaða ríkir í héraðinu og virkjunin myndi valda langmestu skynrænu áreiti vegna hljóðs, sjónrænna áhrifa og skuggaflökts gagnvart íbúum og nærumhverfi.Niðurstaða allra þriggja faghópa mælir því eindregið gegn orkunýtingu á svæðinu og staðfestir ríka verndarþörf þess. Lagarök gegn biðflokki og fyrir verndarflokkiÍ fyrra erindi lagðist sveitarfélagið gegn nýtingarflokki á þessu stigi. Nú liggur fyrir mat faghópa, sem staðfestir að náttúruverðmæti á svæðinu eru þau mestu af öllum kostunum og að áhrif á landslag og veiði yrðu mikil. Að mati sveitarfélagsins er því ekki þörf á frekari rannsóknum til að komast að niðurstöðu. Biðflokkur myndi halda málinu opnu um ókomin ár og skapa viðvarandi óvissu fyrir íbúa, landeigendur og skipulagsvinnu sveitarfélagsins. Skýr niðurstaða sem fyrst er öllum fyrir bestu.Ólögmæt beiting á biðflokkiÍ 1. mgr. 5. gr. laga nr. 48/2011 segir berum orðum að í biðflokk falli virkjunarhugmyndir þegar talið er að frekari upplýsinga eða greininga sé þörf. Verkefnisstjórn rökstyður tillögu sína um biðflokk hins vegar með því að óljóst sé hvort unnt sé að haga framkvæmdinni þannig að um hana náist víðtækari sátt. Þetta er efnislegur og lagalegur misskilningur á hlutverki biðflokks. Fyrir liggja tæmandi og afgerandi greiningar faghópa um náttúruverðmæti, landslag, hagsmuni og samfélag. Engar frekari náttúrufræðilegar eða tæknilegar upplýsingar vantar sem gætu breytt þeirri staðreynd að svæðið er í hæsta gæðaflokki hvað varðar verndargildi. Biðflokkur er ekki lögboðin biðstofa fyrir virkjunaraðila til að reyna að knýja fram breytta afstöðu íbúa eða byggðarráðs þegar öll fagleg gögn mæla gegn virkjun.Hætta á óafturkræfu raski í biðflokkiByggðarráð áréttar að samkvæmt 3. mgr. 5. gr. laga nr. 48/2011 er heimilt að veita rannsóknarleyfi og framkvæma orkurannsóknir á svæðum í biðflokki. Fyrirhugað virkjunarsvæði á Grjóthálsi er viðkvæmt hálendi með hæsta náttúru- og landslagsgildi. Með því að setja kostinn í biðflokk er opnað á leyfisveitingar vegna rannsókna, svo sem slóðagerðar, borana og uppsetningar mælingamastra, sem valda óafturkræfri röskun á ómetanlegum náttúruverðmætum.Lagaskilyrði verndarflokks eru að fullu uppfylltSamkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 48/2011 skulu virkjunarhugmyndir falla í verndarflokk ef ástæða er talin til að friðlýsa svæði að teknu tilliti til heildstæðs mats samkvæmt 4. mgr. 3. gr. laganna. Þegar virt eru samandregin gögn faghópanna um hæsta náttúrugildi, mikla skerðingu á staðbundnum hagsmunum og veiðiám, auk mestu neikvæðu samfélagsáhrifanna, er það eina lögmæta og rökrétta niðurstaðan að virkjunarhugmyndin Alviðra falli í verndarflokk. Niðurstaða Með vísan til framangreinds leggur Borgarbyggð til að vindorkukosturinn Alviðra verði settur í verndarflokk á grundvelli 6. gr. laga nr. 48/2011 í endanlegum tillögum verkefnisstjórnar til ráðherra.Sveitarstjóra er falið að leggja umsögninga fram í samráðsgátt. Samþykkt samhljóða

28.4
2601229
Fundagerðir 2026 - Hafnasamband Íslands.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Fundargerð framlögð

28.5
2602034
Faxaflóahafnir fundagerðir 2026.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Fundargerð framlögð

28.6
2609150
Samningar um samræmda móttöku flóttafólks - ósk um framlengingu samnings
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Erla Björg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri mætir til fundar, fer hún ásamt Hlöðveri Inga Gunnarssyni yfir framlögð gögn. Byggðarráð leggur til að ekki verði gengið til samninga nema tryggt verði afturvirkar greiðslur fyrir fjárhagsaðaroð sem veitt hefur verið til þeirra sem hafa komið í gegnum samræmda móttöku, að tveimur árum liðnum. Auk þess að breyting sé gerð á greiðslufyrirkomulagi er snýr að samningnum sjálfum, er varða hækkun greiðslsna vegna þeirra sem hafa verið lengur en 2. ár. Byggðarráð felur sviðstjóra fjölskyldusviðs og félagsmálastjóra að vinna að málinu í takt við fyrirliggjandi bókun. Samþykkt samhljóða.Hlöðver Ingi Gunnarsson og Erla Björg Kristjánsdóttir víkja af fundi eftir þennan lið.

28.7
2606271
Fjárhagsáætlun 2027
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Fjárhagsáætlun 2027 ásamt þriggja ára áætlun til 2030 lögð fram. Áætlunin gerir ráð fyrir að tekjur verði 8,4 milljarðar og og rekstrargjöld verði 7,4 milljarðar, Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði verði 1 milljarður. Afskriftir verði 375 milljónir og fjármagnsliðir verði 475 milljónir. Rekstrarniðurstaða er áætluð 106 milljónir í afgang. Það er viðsnúningur uppá 236 milljónir frá 2025 og 116 milljónir miðað við útkomuspá 2026. Handbært fé frá rekstri er áætlað 796 milljónir, fjárfestingaráætlun gerir ráð fyrir fjárfestingum uppá 919 milljónir. Afborganir lána eru 335 milljónir og ný lántaka er áætluð 360 milljónir. Fjárfestingar ársins eru að mestu fjármagnaðar með fjármagni frá rekstri sveitarfélagsins. Helstu fjárfestingar á næsta ári eru að framkvæmdir við viðbyggingu við leikskólann Ugluklett hefjast og að framkvæmdum við grunnskóla GBF á Kleppjárnsreykjum mun verða lokið árið 2027. Áframhaldandi vinna verður við gatnagerð og göngustíga ásamt fleiri verkefnum í fjárfestingaráætluninni. Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt á milli ára 14,97%. Drögum að fjárhags- og fjárfestingaráætlun er vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn sem fer fram þann 12. nóvember næstkomandi.Samþykkt samhljóða

28.8
2610088
Gjaldskrár 2027
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar gjaldskrár vegna starfsemi Borgarbyggðar fyrir árið 2027, gjaldskrár hækka ekki umfram 2.5% þ.e. gjaldskrá safnahús, gjaldskrá og reglur fyrir gámasvæði, gjaldskrá vegna tæmingar rotþróa, gjaldskrá vatnsveitu Hraunhrepps, gjaldskrá vatnsveitu Álftaneshrepps, gjaldskrá Hjálmakletts, gjaldskrá slökkvitækjaþjónustu, gjaldskrá slökkviliðs Borgarbyggðar, og gjaldskrá Skipulagsfulltrúa. Gjaldskrá hunda og kattahalds hækkar um kr. 3000 til að mæta kostnaði af nýju kerfi. Lagt er til að Gjaldskrá fyrir ljósritun verði felld niður.Gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgagns og gjaldskrá vegna söfnunar og eyðingar dýraleifa helst óbreytt á milli ára.Álagningarprósenta fasteingaskatts og lóðaleigu helst óbreytt á milli ára. Gjaldskrár samþykktar með áorðnum breytingum og vísað til fullnaðarafgreiðslu sveitarstjórnar.Samþykkt samhljóða.

28.9
2601124
Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Lögð fram tillaga að viðbót við viðauka VII. Tillagan er til komin vegna sameiningar Borgarbyggðar og Skorradalshrepps á árinu 2026. Tillagan felur í sér hækkun tekna, þ.e. fasteignaskatts, útsvars og annarra tekna um 136.3 m.kr., ásamt hækkun fjárheimildar til launa , annars rekstrarkostnaður og fjármagnskostnaðar að fjárhæð 105.9 m.kr. Tillagan felur einnig í sér lækkun tekna hjá Borgarbyggð uppá 29 m.kr vegna áætlaðra greiðslna Skorradalshrepps fyrir aðkeypta þjónustu á árinu sem fellur niður. Heildaráhrif breytinganna er 1,3 m.kr til tekna sem er niðurstaða rekstraráætlunar Skorradalshrepps fyrir árið 2026. Tillagan felur líka í sér lækkun launaáætlunar á deild 27011 Óreglulegar tekjur og gjöld uppá kr 31.3 m.kr. Skv. breytingu á reglugerð hefur málaflokkur 27 verið lagður niður á árinu 2026 og því þarf að færa þessa áætlun á aðrar deildir. Tillagan felur því í sér á móti hækkun á launaáætlun fyrir deild 21410 Skrifstofur uppá 10.4 m.kr. , hækkun fyrir deild 07210 Slökkvilið Borgarbyggðar uppá kr. 10,4 m.kr og hækkun fyrir deild 04280 Frístund uppá kr. 10.4 m.kr. , heildaráhrif á rekstrarniðurstoðu eru engin.Heildaráhrif tillögunnar á rekstrarniðurstöðu Borgarbyggðar 2026 eru 1.3 m.kr. til tekna. Lögð fram tillaga að viðbót í viðauka IX. Tillagan er til komin vegna áherslubreytinga á fjárfestingum á árinu 2026. Tillagan felur í sér frestun á framkvæmdum við leikskólann Uglukletti og lækkun á framkvæmdakostnaði um 920 m.kr. Enn fremur felur tillagan í sér lækkun á framkvæmdakostnaði vegna sjóvarnagarðs um 155 m.kr. Aðrar helstu breytingar eru : Vegur að Bjargi fellur út, 30 m.kr. Brattagata lækkar um 10 m.kr. á þessu ári vegna tafa við undirbúning , Vallarás hækkar um 48 m.kr. vegna safngötu og ofanvatnslausna. Kveldúlfshöfði og Fjóluklettur hækka um 34 m.kr. Leiksskólinn Klettaborg hækkar um 30 m.kr. , Brákarey uppbygging frestast og lækkar um 45 m.kr. Slökkvistöð Vallarási fellur niður ,27 m.kr. GB nýbygging lækkar um 19 m.kr. og GBF KLR hækkar um 18 m.kr. v. leiktækja og frágangs lóðar auk hönnunar á snjóbræðslu og fráveitulagna. Íþróttahús endurbætur Bgn lækkar um 22 m.kr og Íþróttahús Parkethús Bgn hækkar um 14 m.kr. vegna undirbúningsvinnu fyrir forval. Auk þess eru fleiri smærri breytinga á fjárfestingaáætlun. Alls lækkar fjárfestingaáætlun 2026 skv. tillögunni um 1.021,6 m.kr.Byggðarráð samþykkir framlagðar tillögur að viðaukum VIII og XI og vísar þeim til afgreiðslu og staðfestingar í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.Sigurður Kristjánsson víkur af fundi eftir þennan dagskrárlið.

28.10
2611009
Erindi til eigenda af hluthafafundi Ljósleiðarans
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir fyrirliggjandi erindi Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 26. október 2026. Málinu er vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.Samþykkt samhljóða.

28.11
2607014
Styrktarlínur og auglýsingar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi uppfærðar reglur um styrktarlínur og auglýsingar 2026 fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

28.12
2611024
Framvindufundir framkvæmda
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Byggðarráð samþykkir að komið verði á föstum samráðsfundum sveitarstjóra, fjármálastjóra, sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og verkefnastjóra nýframkvæmda og viðhalds, sem haldnir verði að lágmarki mánaðarlega. Markmiðið er að styrkja eftirfylgni með verkefnastöðu, raunútgjöldum og viðbótarverkum í samræmi við kröfur um ábyrga fjármálastjórn, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011Samþykkt samhljóða.

28.13
2611015
Erindi frá Björgunarsveitinni Brák vegna malbikunar að lóð Brákar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 13

Lagt fram erindi Björgunarsveitarinnar Brákar dags. 28. október 2026 varðandi malbikun á Fitjum, ásamt minnisblaði starfsmanns dags. 3. nóvember 2026 og tilboði frá Borgarverki í yfirborðsfrágang, fyllingu, burðarlag og malbikun að fjárhæð kr. 4.981.500 með vsk.Byggðarráð samþykkir framlagt tilboð Borgarverks að fjárhæð kr. 4.981.500 með vsk. Stefnt sé að malbikun 11. nóvember ef veður leyfir. Samþykkt samhljóða.



29. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 3
2610028F

Fundargerð framlögð



Til máls tók REJ

29.1
2510090
Gjaldskrár á fjölskyldusviði 2027
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 3

Sviðsstjóri leggur fram minnisblað um gjaldskrá leikskóla. Einnig eru lagðar fram gjaldskrár fyrir 2027 sem tilheyra fræðslu- og tómstundamálum.Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað um gjaldskrá leikskóla, fræðslunefnd leggur til að tillaga 1 verði samþykkt þar sem ekki er gert ráðfyrir hækkun á leikskólagjöldum.Fræðslunefnd samþykkir aðrar framlagðar gjaldskrár með 2,5% hækkun fyrir árið 2027. Málinu vísað til Byggðarráðs.Samþykkt samhljóða.

29.2
2610109
Fjárhagsáætlun fjölskyldusvið 2027
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 3

Lagt fram til kynningar.

29.3
2610189
Kynning á skólalóðinni á Kleppjárnsreykjum
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 3

Til fundarins kemur Hlynur Ólafsson og kynnir stöðuna á framkvæmdum við skólalóðina á Kleppjárnsreykjum. Ljóst er að ekki tókst að klára þær framkvæmdir á lóðinni sem átti að gera í sumar. En í haust hefur vinnan gengið vel.

29.4
2610095
Ályktun aðalfundar foreldrafélags GBf
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 3

Lagt fram til kynningar.Fræðslunefnd þakkar foreldrafélaginu fyrir erindið. Því miður tókst ekki að klára þær framkvæmdir sem áttu að gera í sumara en framkvæmdir hafa gengið ágætlega í haust.Samþykkt samhljóða.

29.5
2501033
Skóladagatöl fyrir leik-, grunn- og listaskóla Borgarbyggðar
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 3

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram uppfært skóladagatal fyrir leikskóla.Samþykkt samhljóða.

29.6
2610184
Innritun í leikskóla Borgarbyggðar 2026-2027
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 3

Lagt fram til kynningar.

29.7
2610190
Kynning á íþróttamiðstöðvum í Borgarbyggð
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 3

Til fundarins kemur Páll Guðmundur Ásgeirsson forstöðumaður íþróttamannvirkja og kynnir starfsemi íþróttamiðstöðvanna í Borgarbyggðar.Fræðslunefnda þakkar Páli fyrir góða kynningu og óskar honum velfarnarðar í starfi.Samþykkt samhljóða.

29.8
2010114
Frístundastyrkur
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 3

Máli frestað til næsta fundar.

29.9
2602141
Reglur um starfsemi frístundarheimila í Borgarbyggð
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 3

Máli frestað til næsta fundar.



30. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 3
2610015F

Fundargerð framlögð



Til máls tók REJ

30.1
2603040
Reglur um fjárhagsaðstoð 2026
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 3

Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti framlagðar breytingar og vísar til staðfestingar sveitastjórnar. Samþykkt samhljóða.

30.2
2610106
BEAM Notes
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 3

Öllum sveitarfélögum á Vesturlandi býðst að taka þátt í Pilot verkefni sem felur í sér innleiðingu á þessari lausn. Mosfellsbær hefur nú þegar gert samning við Beam og hefur hafið innleiðingu verkfærisins. Sviðsstjóri velferðarsviðs Mosfellsbæjar gefur verkfærinu góð meðmæli og merkir strax ávinning í þjónustunni. Velferðarnefnd styður heilshugar við innleiðingu á gervigreind í velferðarþjónustu í Borgarbyggð. Um er að ræða aukið gegnsæi fyrir notendur, hagræðingu, tímasparnað og öryggissjónarmið fyrir notendur og starfsmenn. Samþykk samhljóða.



31. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4
2610033F

Fundargerð framlögð



Til máls tók HBV

31.1
2604243
Breyting á landnotkun - Hvítárvellir (133886) - Efnistökusvæði
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir sitt leyti. Breytingartillagan tekur til um 2 ha svæði í Selholti á Heggstaðanesi skammt vestan Grímsár í landi Hvítárvalla.Samþykkt samhljóða

31.2
2603141
Egilsholt 1 - Umsókn um stofnun lóða
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun á lóðinni Egilsholt 1 (L203011) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.

31.3
2610004
Ferjubakki 2 - umsókn um breytingu á landheiti - L135030
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að nýtt heiti á landareign verði Solveigarblettur (L135030).Samþykkt samhljóða.

31.4
2611014
Brákarbraut 27 - Umsókn um breytta afmörkun lóðar
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.

31.5
2610008F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 82
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

31.6
2610011F
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 265
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

31.7
2602060
Efra-Nes - umsókn um deiliskipulag - L134858
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

Skipulags- og byggingarnefnd frestar málinu og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari upplýsingum í samræmi við umræður á fundinum.Samþykkt samhljóða.

31.8
2603171
Brenna - umsókn um framkvæmdaleyfi - 134329 - skógrækt
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna skógræktar í landi Brennu með vísan til framlagðra gagna. Nefndin bendir á að ekki skuli hefja gróðursetningu á því svæði sem í dag er frístundabyggð fyrr en nýtt aðalskipulag Borgarbyggðar hefur tekið gildi. Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.Samþykkt samhljóða.

31.9
2608119
Varmalækur L133917 - Fyrirpurn um skipulagsmál
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í frekari skógrækt á svæðinu en kallar eftir skýrari framtíðarsýn um nýtingu svæðisins til skógræktar með tilliti til þeirra takmarkana sem á jörðinni eru. Skipulagsfulltrúi óskaði eftir áliti HEV um skógrækt á fjarsvæði vatnsverndar og metur HEV það svo að rétt sé að halda núverandi afmörkun vatnsverndarsvæðisins óbreyttri, nema fyrir liggi sérstakar vatnafræðilegar forsendur fyrir breytingu hennar. Heimild til skógræktar innan fjarsvæðis ætti að byggjast á mati á áhættu fyrir vatnsbólið og vera bundin skýrum skilyrðum um tegundaval, framkvæmdir og langtímavernd vatnsauðlindarinnar.Með hliðsjón af framangreindu leggur HEV til að ákvörðun um skógrækt á fjarsvæðinu verði frestað þar til fullnægjandi upplýsingar liggja fyrir til að meta hvaða hlutar þess, ef einhverjir, henta til skógræktar.Samþykkt samhljóða.

31.10
2609031
Erindi til sveitarstjórnar vegna Rammaáætlunar
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

Skipulags- og byggingarnefnd lýsir yfir afdráttarlausri andstöðu við þá tillögu verkefnisstjórnar að setja virkjunarkostinn Alviðru á Grjóthálsi í biðflokk og tekur undir bókun Byggðarráðs um málið á fundi nr. 13 þann 5. nóvember sl. Samþykkt samhljóða.

31.11
2609323
Galtarholt 1 land - umsókn um breytingu á landheiti - 191461
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

Skipulags- og byggingarnefnd hafnar breytingunni. Nefndin telur ekki forsendu til að samþykkja landheitið Galtarholt þar sem fyrir eru skráð landheitin Galtarholt 1, Galtarholt 2 og Galtarholt 3. Nefndin telur að fyrirhugað heiti geti valdið ruglingi við skráningu fasteigna og staðsetningu eigna. Nefndin leggur því til að valið verði annað heiti sem aðgreinir fasteignina með skýrari hætti frá fyrirliggjandi landheitum.Samþykkt samhljóða.

31.12
2608250
Litla-Fjallsland - Umsókn um stofnun lóða
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja merkjalýsingu lóðarinnar Litla-Fjallsland 2 (L135067) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að nýtt heiti á landareign verði Litla-Fjallsland 2 (L135067).Samþykkt samhljóða.

31.13
2602065
Egilsholt 2a og 2b - Umsókn um stofnun lóða
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 4

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun sem samræmist núgildandi deiliskipulagi á svæðinu þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að nýtt heiti á landareign verði Egilsholt 2b (L194035).Samþykkt samhljóða.



32. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 4
2609034F

Fundargerð framlögð



Til máls tóku KÁM og DS



32.1
2606217
Umhverfisviðurkenningar 2026
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 4

Snyrtilegt bændabýli 2026: StaðarhúsFalleg lóð við íbúðarhúsnæði: Hálsar í SkorradalSnyrtileg lóð við atvinnuhúsnæði: GleymméreiSérstök viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi: Ytri SkeljabrekkaSamfélagsviðurkenning umhverfis-og landbúnaðarnefndar: Gísli Einarsson

32.2
2602275
Hreinsunarátök 2026
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 4

Í samræmi við afgreiðslu á 3. fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar fór fram verðfyrirspurn um söfnun brotajárns. 3 tilboð bárust. Hagstæðasta tilboðið barst frá Hringrás. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til við byggðarráð að fela starfsmanni að ganga til samninga við Hringrás, að uppfylltum skilmálum, á grundvelli þess.Áætlað er að söfnunin fari fram undir lok október og nóvember.

32.3
2505100
Netalagnir við Borgarnes
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 4

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd hefur farið yfir fyrirliggjandi gögn, minnisblað starfsmanns og lögfræðings, og svarbréf atvinnuvegaráðuneytisins dags. 29. maí 2026 varðandi réttarstöðu netalagna í Borgarnesi. Með vísan til skýrra ákvæða samnings um netalögn nr. 9 frá 14. maí 2012 um óframseljanleika nýtingarréttar, og álits atvinnuvegaráðuneytisins um að óheimilt sé að skilja netaveiðirétt frá fasteign án undanþágu ráðherra skv. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði, hafnar nefndin ósk um beint framsal eða yfirtöku nýs aðila á samningi um lögnina. Með vísan til endurskoðunarákvæðis samninganna frá 2012, þeirrar réttaróvissu sem ríkir um heimild til aðskilnaðar netaveiðiréttinda án ráðherraundanþágu, og með hliðsjón af sjónarmiðum um fiskvernd og jafnræði, samþykkir nefndin að sækja um undanþágu ráðherra fyrir veiðum.

32.4
2609221
Umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2026
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 4

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur starfsmanni að vinna málið áfram í samræmi við hugmyndir nefndarinnar og senda inn umsóknir.

32.5
2609303
Rennslismælingar fyri vatnsöflun Vatnsveitu Varmalands
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 4

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd vísar málinu til vinnu við fjárfestingar- og fjárhagsáætlun.

32.6
2609248
Hundagerði í Borgarnesi
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 4

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram.



33. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 5
2610020F

Fundargerð framlögð



33.1
2610131
Fjárhagsáætlun 2027 - umhhverfis- og landbúnaðarnefnd
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 5

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd hvetur sveitastjórn til þess að skoða að alvöru í tengslum við fjárfestingaráæltun kaup á bíl til rotþróarhreinsunar í samvinnu við önnur sveitafélög.Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur starfsmanni að vinna fjárhagsáætlun áfram í samræmi við umræður á fundinum.

33.2
2610132
Gjaldskrár og samþykktir 2027 - Umhverfis- og landbúnaðarnefnd
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 5

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd fór yfir gjaldskrár og samþykktir sem heyra undir nefndina. Nefndin leggur til að gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs verði haldið óbreytt milli ára annað árið í röð. Góður árangur íbúa í aukinni flokkun endurvinnanlegs efnis skilar þeim árangri. Aðrar gjaldskrár hækka um 2,5% og gjald fyrir hunda og kattahald hækkar um 3000 kr. með innleiðingu nýs kerfis í bætri skráningu gæludýra.



34. Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 3
2609032F

Fundargerð framlögð





34.1
2609319
Skógræktarfélag Borgarfjarðar - Vinna í Einkunnum 2026
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 3

Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum þakkar Skógræktarfélagi Borgarfjarðar fyrir kynninguna á verkefnum sem voru unnin af þeim árið 2026. Farið yfir möguleg vekrefni næsta árs.

34.2
2610005
Umhirðuáætlun 2026
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 3

Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum ákveður að styrkja Skógræktarfélag Borgarfjarðar til gerðar umhirðuáætlunar fyrir skóginn í samræmi við umsaminn kostnað.

34.3
2606315
Önnur mál Umsjónarnefndar fólkvangsins í Einkunnum
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 3

Kort af Einkunnum er tilbúið til prentunar og stefnt að því að koma kortinu upp í vor.Farið verður í nauðsynlegt viðhald vega þegar veður og aðstæður leyfa.



Fundi slitið - kl. 18:03