Fundargerð
Byggðarráð Borgarbyggðar
13. fundur
5. nóvember 2026 kl. 08:15 - 10:21
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Starfsmenn
Óskað var eftir að bæta inn með afbrigðum máli nr. 2601124, Viðauki við fjáhagasáætlun Borgarbyggðar 2026., verður það mál nr. 5 og máli nr. 2609031, erindi til sveitarstjórnar vegna Rammaáætlunar, verður það mál nr. 11. Varð það samþykkt samhljóða
Dagskrá
1. Gjaldskrár á fjölskyldusviði 2027
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað um gjaldskrá leikskóla, fræðslunefnd leggur til að tillaga 1 verði samþykkt þar sem ekki er gert ráðfyrir hækkun á leikskólagjöldum.
Fræðslunefnd samþykkir aðrar framlagðar gjaldskrár með 2,5% hækkun fyrir árið 2027.
Málinu vísað til Byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða."
Byggðarráð tekur undir afgreiðslu fræðslunefndar frá 27. október sl. og samþykkir að gjaldskrá leikskóla verði óbreytt fyrir árið 2027 í samræmi við tillögu 1 í framlögðu minnisblaði sviðsstjóra. Byggðarráð samþykkir jafnframt fyrir sitt leyti aðrar framlagðar gjaldskrár á sviðinu með 2,5% hækkun og vísar þeim til endanlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða
2. Samningar um samræmda móttöku flóttafólks - ósk um framlengingu samnings
Byggðarráð leggur til að ekki verði gengið til samninga nema tryggt verði afturvirkar greiðslur fyrir fjárhagsaðaroð sem veitt hefur verið til þeirra sem hafa komið í gegnum samræmda móttöku, að tveimur árum liðnum. Auk þess að breyting sé gerð á greiðslufyrirkomulagi er snýr að samningnum sjálfum, er varða hækkun greiðslsna vegna þeirra sem hafa verið lengur en 2. ár.
Byggðarráð felur sviðstjóra fjölskyldusviðs og félagsmálastjóra að vinna að málinu í takt við fyrirliggjandi bókun.
Samþykkt samhljóða.
Hlöðver Ingi Gunnarsson og Erla Björg Kristjánsdóttir víkja af fundi eftir þennan lið.
3. Fjárhagsáætlun 2027
Helstu fjárfestingar á næsta ári eru að framkvæmdir við viðbyggingu við leikskólann Ugluklett hefjast og að framkvæmdum við grunnskóla GBF á Kleppjárnsreykjum mun verða lokið árið 2027. Áframhaldandi vinna verður við gatnagerð og göngustíga ásamt fleiri verkefnum í fjárfestingaráætluninni.
Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt á milli ára 14,97%. Drögum að fjárhags- og fjárfestingaráætlun er vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn sem fer fram þann 12. nóvember næstkomandi.
Samþykkt samhljóða
4. Gjaldskrár 2027
Gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgagns og gjaldskrá vegna söfnunar og eyðingar dýraleifa helst óbreytt á milli ára.
Álagningarprósenta fasteingaskatts og lóðaleigu helst óbreytt á milli ára.
Byggðarráð vísar gjaldskrám til endanlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Lagt er til að Gjaldskrá fyrir ljósritun verði felld niður,
Gjaldskrár samþykktar með áorðnum breytingum og vísað til fullnaðarafgreiðslu sveitarstjórnar.
5. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
Heildaráhrif tillögunnar á rekstrarniðurstöðu Borgarbyggðar 2026 eru 1.3 m.kr. til tekna.
Lögð fram tillaga að viðbót í viðauka IX. Tillagan er til komin vegna áherslubreytinga á fjárfestingum á árinu 2026. Tillagan felur í sér frestun á framkvæmdum við leikskólann Uglukletti og lækkun á framkvæmdakostnaði um 920 m.kr. Enn fremur felur tillagan í sér lækkun á framkvæmdakostnaði vegna sjóvarnagarðs um 155 m.kr. Aðrar helstu breytingar eru : Vegur að Bjargi fellur út, 30 m.kr. Brattagata lækkar um 10 m.kr. á þessu ári vegna tafa við undirbúning , Vallarás hækkar um 48 m.kr. vegna safngötu og ofanvatnslausna. Kveldúlfshöfði og Fjóluklettur hækka um 34 m.kr. Leiksskólinn Klettaborg hækkar um 30 m.kr. , Brákarey uppbygging frestast og lækkar um 45 m.kr. Slökkvistöð Vallarási fellur niður ,27 m.kr. GB nýbygging lækkar um 19 m.kr. og GBF KLR hækkar um 18 m.kr. v. leiktækja og frágangs lóðar auk hönnunar á snjóbræðslu og fráveitulagna. Íþróttahús endurbætur Bgn lækkar um 22 m.kr og Íþróttahús Parkethús Bgn hækkar um 14 m.kr. vegna undirbúningsvinnu fyrir forval. Auk þess eru fleiri smærri breytinga á fjárfestingaáætlun. Alls lækkar fjárfestingaáætlun 2026 skv. tillögunni um 1.021,6 m.kr.
Byggðarráð samþykkir framlagðar tillögur að viðaukum VIII og XI og vísar þeim til afgreiðslu og staðfestingar í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Sigurður Kristjánsson víkur af fundi eftir þennan dagskrárlið.
6. Erindi til eigenda af hluthafafundi Ljósleiðarans
Samþykkt samhljóða.
7. Styrktarlínur og auglýsingar 2026
Samþykkt samhljóða.
8. Framvindufundir framkvæmda
Samþykkt samhljóða.
9. Erindi frá Björgunarsveitinni Brák vegna malbikunar að lóð Brákar
Byggðarráð samþykkir framlagt tilboð Borgarverks að fjárhæð kr. 4.981.500 með vsk. Stefnt sé að malbikun 11. nóvember ef veður leyfir.
Samþykkt samhljóða.
10. Umsókn um styrk - Jólaútvarp
Samþykkt samhljóða
11. Erindi til sveitarstjórnar vegna Rammaáætlunar
Með skjali þessu veitir byggðarráð Borgarbyggðar umsögn um skýrslu verkefnisstjórnar um verndar- og orkunýtingaráætlun um tillögu að flokkun sjö vindorkuverkefna sem birt hefur verið til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda.
Byggðarráð lýsir yfir afdráttarlausri andstöðu við þá tillögu verkefnisstjórnar að setja virkjunarkostinn Alviðru á Grjóthálsi í biðflokk. Í fyrri umsögn sveitarfélagsins í málinu komu skýrt fram þungar áhyggjur, efasemdir og rík áhersla á neikvæð áhrif virkjunarkostsins á landslag, náttúru og samfélag. Það er eðlilegt og rökrétt framhald af þeirri afstöðu, nú þegar niðurstöður faghópa rammaáætlunar liggja loks fyrir sem staðfesta hæsta náttúruverndargildi svæðisins af öllum metnum kostum, að byggðarráð Borgarbyggðar leggi til að virkjunarkosturinn verði færður í verndarflokk á grundvelli 6. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011.
Skipulagsvald og gildandi aðalskipulag Borgarbyggðar
Í fyrsta lagi heimilar gildandi aðalskipulag Borgarbyggðar engin vindorkuver og líta verður til viðmiða aðalskipulagsins um staðsetningu slíkra mannvirkja. Skipulagsvald er hjá sveitarfélaginu og ákvörðun um flokkun má ekki ganga gegn þeirri stefnu sem íbúar og kjörnir fulltrúar hafa mótað. Sveitarfélagið hefur áréttað að við mat á vindorkukostinum Alviðru á Grjóthálsi verði að líta til þeirra viðmiða og takmarkana sem fram koma í aðalskipulagi um staðsetningu vindorkuvera, einkum hvað varðar sjónræn áhrif, áhrif á landslag og samfélagslegan ábata.
Vindmyllur af þeirri stærðargráðu sem hér um ræðir eru sýnilegar yfir stór landsvæði og geta haft veruleg neikvæð áhrif á upplifun landslags, náttúru og útivistar langt út fyrir framkvæmdasvæðið sjálft. Slík áhrif skerða þá sérstöðu sem einkennir svæðið og liggur til grundvallar búsetu, útivist og ferðaþjónustu í héraðinu. Byggðarráð bendir á að flokkun kostsins í verndarflokk samræmist best þessum skipulagslegu forsendum og tryggir nauðsynlegan fyrirsjáanleika um landnotkun í sveitarfélaginu.
Afgerandi niðurstöður faghópa rammaáætlunar
Í öðru lagi má ráða af gögnum verkefnisstjórnar sjálfrar að sérfræðimat allra viðeigandi faghópa mælir eindregið gegn orkunýtingu á svæðinu og staðfestir ríka verndarþörf þess.
Áhrif á landslag og ásýnd eru veruleg. Faghópur 1 um náttúru og menningarminjar metur náttúruverðmæti á Alviðrusvæðinu þau mestu af þeim sjö kostum sem til umfjöllunar eru í þessum áfanga og telur áhrif á landslag mikil, enda myndi virkjunin sjást mjög víða. Þetta er í samræmi við áhyggjur sveitarfélagsins. Í samanburði við virkjunarkosti á landsvísu fær Alviðra einkunnina tíu fyrir verðmæti náttúru, sem skipar svæðinu í flokk með verðmætustu perlum íslenskrar náttúru. Jafnframt er staðfest að virkjunin myndi valda mikilli skerðingu á landslagi og sjást um stóran hluta Borgarfjarðarhéraðs.
Faghópur 2 um ferðaþjónustu, útivist og staðbundna hagsmuni metur áhrif á veiði mest við Alviðru af öllum kostunum og raðar kostinum í neðsta sæti allra kosta hvað varðar áhrif á aðra hagsmuni. Grjótháls liggur milli Norðurárdals og Þverárhlíðar og veiði í ám héraðsins er mikilvæg atvinnu- og tekjulind fyrir landeigendur og ferðaþjónustu í Borgarbyggð.
Í niðurstöðu faghóps 3 um samfélagsleg áhrif raðast Alviðra jafnframt í fyrsta sæti yfir mestu neikvæðu samfélagslegu áhrifin. Faghópur 3 óskaði sérstaklega eftir mati sveitarfélagsins á framlagi Alviðru til orkuöryggis og á efnahagslegum ávinningi fyrir nærsamfélagið við vinnslu málsins. Sveitarfélagið hefur engar forsendur til að leggja jákvætt mat á þessa þætti og bendir á að engin gögn hafa verið lögð fram sem sýna fram á slíkan ávinning. Vindorka er breytileg og kallar á jöfnunarafl eða geymslu, og ekkert liggur fyrir um hvernig eða hvort tekjur eða annar ávinningur af verkefninu myndi skila sér til íbúa með tryggum hætti. Fram kemur að Alviðra hefur mest neikvæð áhrif á samstöðu í samfélaginu allra kosta, mikil andstaða ríkir í héraðinu og virkjunin myndi valda langmestu skynrænu áreiti vegna hljóðs, sjónrænna áhrifa og skuggaflökts gagnvart íbúum og nærumhverfi.
Niðurstaða allra þriggja faghópa mælir því eindregið gegn orkunýtingu á svæðinu og staðfestir ríka verndarþörf þess.
Lagarök gegn biðflokki og fyrir verndarflokki
Í fyrra erindi lagðist sveitarfélagið gegn nýtingarflokki á þessu stigi. Nú liggur fyrir mat faghópa, sem staðfestir að náttúruverðmæti á svæðinu eru þau mestu af öllum kostunum og að áhrif á landslag og veiði yrðu mikil. Að mati sveitarfélagsins er því ekki þörf á frekari rannsóknum til að komast að niðurstöðu. Biðflokkur myndi halda málinu opnu um ókomin ár og skapa viðvarandi óvissu fyrir íbúa, landeigendur og skipulagsvinnu sveitarfélagsins. Skýr niðurstaða sem fyrst er öllum fyrir bestu.
Ólögmæt beiting á biðflokki
Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 48/2011 segir berum orðum að í biðflokk falli virkjunarhugmyndir þegar talið er að frekari upplýsinga eða greininga sé þörf. Verkefnisstjórn rökstyður tillögu sína um biðflokk hins vegar með því að óljóst sé hvort unnt sé að haga framkvæmdinni þannig að um hana náist víðtækari sátt. Þetta er efnislegur og lagalegur misskilningur á hlutverki biðflokks. Fyrir liggja tæmandi og afgerandi greiningar faghópa um náttúruverðmæti, landslag, hagsmuni og samfélag. Engar frekari náttúrufræðilegar eða tæknilegar upplýsingar vantar sem gætu breytt þeirri staðreynd að svæðið er í hæsta gæðaflokki hvað varðar verndargildi. Biðflokkur er ekki lögboðin biðstofa fyrir virkjunaraðila til að reyna að knýja fram breytta afstöðu íbúa eða byggðarráðs þegar öll fagleg gögn mæla gegn virkjun.
Hætta á óafturkræfu raski í biðflokki
Byggðarráð áréttar að samkvæmt 3. mgr. 5. gr. laga nr. 48/2011 er heimilt að veita rannsóknarleyfi og framkvæma orkurannsóknir á svæðum í biðflokki. Fyrirhugað virkjunarsvæði á Grjóthálsi er viðkvæmt hálendi með hæsta náttúru- og landslagsgildi. Með því að setja kostinn í biðflokk er opnað á leyfisveitingar vegna rannsókna, svo sem slóðagerðar, borana og uppsetningar mælingamastra, sem valda óafturkræfri röskun á ómetanlegum náttúruverðmætum.
Lagaskilyrði verndarflokks eru að fullu uppfyllt
Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 48/2011 skulu virkjunarhugmyndir falla í verndarflokk ef ástæða er talin til að friðlýsa svæði að teknu tilliti til heildstæðs mats samkvæmt 4. mgr. 3. gr. laganna. Þegar virt eru samandregin gögn faghópanna um hæsta náttúrugildi, mikla skerðingu á staðbundnum hagsmunum og veiðiám, auk mestu neikvæðu samfélagsáhrifanna, er það eina lögmæta og rökrétta niðurstaðan að virkjunarhugmyndin Alviðra falli í verndarflokk.
Niðurstaða
Með vísan til framangreinds leggur Borgarbyggð til að vindorkukosturinn Alviðra verði settur í verndarflokk á grundvelli 6. gr. laga nr. 48/2011 í endanlegum tillögum verkefnisstjórnar til ráðherra.
Sveitarstjóra er falið að leggja umsögninga fram í samráðsgátt.
Samþykkt samhljóða