Fræðslunefnd Borgarbyggðar

3. fundur

27. október 2026 kl. 15:00 - 17:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Ragnhildur Eva Jónsdóttir - formaður
Guðrún Vala Elísdóttir - varaformaður
Tinna Rut Þórarinsdóttir - aðalmaður
Sigríður Guðbjartsdóttir - aðalmaður
Inga Berta Bergsdóttir - varamaður

Starfsmenn

Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri

Á fundinum voru áheyrnafulltrúar fyrir grunnskóla: Sólrún Halla fyrir skólastjórnendur í grunnskólum, fyrir leikskóla voru Ástríður fyrir skólastjórnendur í leikskólaum, Anna Heiða fyrir starfsmenn leikskóla og Kara Laufey fyrir foreldra á leikskólum.

Áheyrnafulltrúi grunnskóla var undir liðum: 1,2,3 og 4.
Áheyrnarfulltrúar leikskóla voru undir liðum:1,2,5 og 6.


Dagskrá

1. Gjaldskrár á fjölskyldusviði 2027
2510090

Sviðsstjóri leggur fram minnisblað um gjaldskrá leikskóla. Einnig eru lagðar fram gjaldskrár fyrir 2027 sem tilheyra fræðslu- og tómstundamálum.

Sviðsstjóri leggur fram minnisblað um gjaldskrá leikskóla. Einnig eru lagðar fram gjaldskrár fyrir 2027 sem tilheyra fræðslu- og tómstundamálum.



Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað um gjaldskrá leikskóla, fræðslunefnd leggur til að tillaga 1 verði samþykkt þar sem ekki er gert ráðfyrir hækkun á leikskólagjöldum.



Fræðslunefnd samþykkir aðrar framlagðar gjaldskrár með 2,5% hækkun fyrir árið 2027.



Málinu vísað til Byggðarráðs.



Samþykkt samhljóða.



2. Fjárhagsáætlun fjölskyldusvið 2027
2610109

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir vinnu við fjárhagsáætlun 2027.

Lagt fram til kynningar.



3. Kynning á skólalóðinni á Kleppjárnsreykjum
2610189

Farið yfir framkvæmdir við skólalóð á Kleppjárnsreykjum.

Til fundarins kemur Hlynur Ólafsson og kynnir stöðuna á framkvæmdum við skólalóðina á Kleppjárnsreykjum. Ljóst er að ekki tókst að klára þær framkvæmdir á lóðinni sem átti að gera í sumar. En í haust hefur vinnan gengið vel.



4. Ályktun aðalfundar foreldrafélags GBf
2610095

Lagt fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar.



Fræðslunefnd þakkar foreldrafélaginu fyrir erindið.

Því miður tókst ekki að klára þær framkvæmdir sem áttu að gera í sumara en framkvæmdir hafa gengið ágætlega í haust.



Samþykkt samhljóða.



5. Skóladagatöl fyrir leik-, grunn- og listaskóla Borgarbyggðar
2501033

Sviðsstjóri fjölskyldusvið leggur fram uppfært skóladagatal fyrir leikskóla Borgarbyggðar 2026-2027.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram uppfært skóladagatal fyrir leikskóla.



Samþykkt samhljóða.



6. Innritun í leikskóla Borgarbyggðar 2026-2027
2610184

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað.

Lagt fram til kynningar.



7. Kynning á íþróttamiðstöðvum í Borgarbyggð
2610190

Forstöðumaður íþróttamannvirkja kemur til fundarins og kynnir starfsemina.

Til fundarins kemur Páll Guðmundur Ásgeirsson forstöðumaður íþróttamannvirkja og kynnir starfsemi íþróttamiðstöðvanna í Borgarbyggðar.



Fræðslunefnda þakkar Páli fyrir góða kynningu og óskar honum velfarnarðar í starfi.



Samþykkt samhljóða.



8. Frístundastyrkur
2010114

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað um frístundastyrk Borgarbyggðar.

Máli frestað til næsta fundar.



9. Reglur um starfsemi frístundarheimila í Borgarbyggð
2602141

Lagðar fram reglur um starfsemi frístundaheimila í Borgarbyggð.

Máli frestað til næsta fundar.



Fundi slitið - kl. 17:00