Ungmennaráð Borgarbyggðar

6. fundur

20. október 2026 kl. 15:30 - 16:45

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Hrafnhildur Ósk Orradóttir - varaformaður
Hallgrímur Vigfússon - aðalmaður
Stefán Jósef Hafdísarson - aðalmaður
Steinunn Vár Þórðardóttir - aðalmaður
Ólöf Sesselja Kristófersdóttir - formaður
Ísak Daði Eðvarðsson - aðalmaður

Starfsmenn

Sonja Lind Eyglóardóttir - starfsmaður
Fundargerð ritaði: Sonja Lind Eyglóardóttir - Íþrótta og tómstundafulltrúi


Dagskrá

1. Ungmennaþing 2027
2610245

Undirbúningur fyrir Ungmennaþing Borgarbyggðar 2027.

Ungmennaráð leggur til að Ungmennaþingið verði haldið í samvinnu við grunnskóla Borgarbyggðar á skólatíma. Þingið verði í MB fimmtudaginn 21. jan og 22. jan í grunnskólum. Starfsmanni falið að hafa samband við skólastjórnendur til þess að athuga hvort þessar dagsetningar henti.



2. Áhrifadagar ungmenna á Akureyri
2610246

Hrafnhildur Ósk Orradóttir, Ólöf Sesselja Kristófersdóttir, Ísak Daði Eðvarðsson taka þátt í Áhrifadögum ungmenna á Akureyri 28-29. Akureyri sem haldið er á vegum Unicef.



3. Ungmennahús
2610247

Ungmennaráð leggur til að endurvekja Mími ungmennahús.

Lagt er til að kanna hvort hægt sé að hefja starfsemina í Óðal einu sinni í viku. Starfsmanni falið að heyra í forstöðumanni Félagsmiðstöðvarinnar Óðals og kanna hvort hægt sé að fá aðgang fyrir Mími í Óðal á miðvikudögum í vetur, einnig kanna hvort hægt sé að tryggja fjárveitingu í fjárhagsáætlun fyrir ungmennahús fyrir árið 2027.



4. Opnun í íþróttahúsinu á Kleppjárnsreykjum
2610248

Opnir tímar í íþróttasal á Kleppjárnsreykjum og Varmalandi.

Ungmennaráð óskar eftir að íþróttasalurinn á Kleppjárnsreykjum og á Varmalandi séu opnir á fimmtudagskvöldum fyrir opna tíma. Þannig að ungmenni geti komið saman í heilsueflandi umhverfi.



5. Hópefli
2610249

Hópefli fyrir nýtt ungmennaráð

Ungmennaráð leggur til að bjóða varamönnum í ungmennaráði með í hópeflisferð. Ólöf Sesselja ætlar að hafa sambandi og kanna með að fá að mæta í Gísla Martein. Sníða svo dagskrá í kringum þá dagsetningu.



6. Kynning á íslensku æskulýðsrannsókninni
2610250

Ungmennaráð fékk kynningu á niðurstöðum á Íslensku æskulýðsrannsókninni 2026

Ungmennaráð hvetur foreldra til að vera meira vakandi um samfélagsmiðlanotkun barna sinna. Foreldrar þurfa að sækja sér fræðslu um samfélagsmiðla og hætturnar sem þar liggja. Þá vill Ungmennaráð leggja áherslu á forvarnir þegar kemur að orkudrykkjanotkun og nikotín.

Ungmennaráð hvetur foreldra í Borgarbyggð til þess að taka meira þátt í uppeldishlutverki barna sinna og sinni sjálfboðaliðastarfi í íþróttahreyfingunni. Ungmennaráð vill innleiða jafningjafræðslu í forvörnum.



7. Aðgengi að nikotínvörum og koffein drykkjum í verslunum.
2610251

Ungmennaráð tekur undir áhyggjur síðasta ungmennaráðs Borgarbyggðar varðandi aðgengi ungmenna að nikotínvörum og koffein drykkjum í verslunum.

Ungmennaráð lýsir áhyggjum sínum yfir aðgengi ungmenna að nikótínvörum og koffeindrykkjum í verslunum sveitarfélagsins. Ungmenni sem vinna í afgreiðslu verða fyrir þrýstingi að láta undan að afgreiða þessar vörur og það er ótækt að setja ábyrgð á ungmenni með þessum hætti.

Ungmennaráð vill efla forvarnarstarfsemi í sveitarfélaginu og óskar eftir að forvarnarteymi Borgarbyggðar hafi milligöngu um fundi með verslunarstjórum til þess að ræða þessi mál. Brýnt er að tekið sé fyrir að ungmenni séu sett í þá aðstöðu að taka ákvörðun um að afgreiða þessar vörur. Mikilvægt er að komið sé á virku eftirliti með sölu á þessum vörum.



Fundi slitið - kl. 16:45