Byggðarráð Borgarbyggðar

12. fundur

29. október 2026 kl. 08:15 - 00:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson boðaði forföll og Kristján Ágúst Magnússon - varamaður sat fundinn í hans stað
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - varaformaður
Jovana Pavlovic - áheyrnarfulltrúi
Haukur Þór Hauksson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri


Dagskrá

1. Innkaupareglur Borgarbyggðar 2026
2610123

Lögð fram drög að uppfærðum innkaupareglum. Málinu var frestað á 11. fundi byggðarráðs, dags. 15. október sl., en er nú tekið fyrir að nýju

Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að uppfærðum innkaupareglum Borgarbyggðar 2026 og vísar þeim til sveitarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu og staðfestingar með þeim breytingartillögum sem fram komu á fundinum.



Samþykkt samhljóða.



2. Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosið í nýja nefnd, Bifrastarnefnd. Málinu var frestað á 11. fundi byggðarráðs, dags. 15. október sl., en er nú tekið upp að nýju.

Með vísan til 1. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 felur byggðarráð sveitarstjóra að fullvinna framlagt erindisbréf fyrir nýja Bifrastarnefnd, þar sem kveðið er á um verksvið hennar, skipan og starfstíma. Skipunartími nefndarinnar verði til tveggja ára.



Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að stofnun nefndarinnar og erindisbréf hennar verði samþykkt og að sveitarstjórn kjósi aðal- og varamenn í nefndina.



Samþykkt samhljóða.



Bókun fulltrúa Miðflokksins:

Bókun Miðflokksins á fundi byggðarráðs 29. október 2026 vegna nefndar um Bifröst

Miðflokkurinn leggst gegn því að stofnuð verði sérstök nefnd um Bifröst. Bifröst er einn af nokkrum byggðarkjörnum í sveitarfélaginu, líkt og Varmaland, Hvanneyri, Reykholt og Kleppjárnsreykir. Þá eru almenningssamgöngur betri á Bifröst en í nokkrum þessara byggðarkjarna.

Sveitarfélagið Borgarbyggð á nánast engar eignir á Bifröst og hefur lítil áhrif á þróun svæðisins nema hvað varðar skipulagsvald. Þar eru jafnframt nánast engar stofnanir eða fyrirtæki. Háskólinn á Bifröst er þar með skráð lögheimili en hefur þar enga starfsemi, og langflestar kennitölur sem skráðar eru á Bifröst tengjast háskólanum.

Á fundi sveitarstjórnar 7. október sl. var erindisbréf nefndarinnar lagt fram. Miðflokkurinn lagði þá til að fremur yrði stofnuð nefnd um smærri byggðarkjarna í sveitarfélaginu og/eða spretthópur um málefni Bifrastar. Samkvæmt erindisbréfinu verður óskað eftir því að í samstarfsnefndinni sitji fulltrúi Háskólans á Bifröst, sem eins og fyrr segir starfar ekki á Bifröst, og fulltrúi Hollvinasamtaka Bifrastar, sem eru hollvinasamtök háskólans.

Helsti vandi Bifrastar snýr að flóttafólki frá Úkraínu sem þar býr í einangrun, hefur litla sem enga atvinnumöguleika og nær ekki að aðlagast samfélaginu. Bifröst hentar því engan veginn sem búsetuúrræði fyrir flóttafólk. Verkefni sveitarfélagsins ætti að vera að stuðla að því að flóttafólk geti flutt á svæði þar sem það finnur störf við hæfi og getur aðlagast samfélaginu, þar til það snýr aftur til síns heima.





3. Umsókn um stofnframlag frá Nemendagörðum búvísindadeildar LBHÍ
2508106

Lagt er fram erindi frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS), dags. 20.október 2026, vegna umsóknar Nemendagarða búvísindadeildar um stofnframlag til byggingar á 14 námsmannaíbúðum við Skólaflöt 9. Skilyrði fyrir úthlutun ríkisframlags er að sveitarfélagið leggi fram 12% stofnframlag.

Afgreiðslu málsins er frestað til næsta fundar og óskað eftir nánari upplýsingum um framkvæmdina og fjárhæð gatnagerða- og byggingarleyfisgjalda.



Samþykkt samhljóða.



4. Opnunartími sundlauga í Borgarbyggð
2608067

Fræðslunefnd Borgarbyggðar vísaði málinu til byggðarráðs á 2. fundi sínum, dags. 1. október 2026. Bókun fræðslunefndar ,,Fræðslunefnd leggur til að sviðsmynd tvö verði framkvæmd. Málinu er vísað til Byggðarráðs til afgreiðslu. Samþykkt samhljóða."

Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu fræðslunefndar um opnun á Kleppjárnsreykjum. Gert er ráð fyrir að viðbótar kostnaður sé 1,200.000 kr. Málinu er vísað til staðfestingar í sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða.



5. Fundagerðir Orkuveitu Reykjavíkur 2026.
2604039

Framlögð fundargerð 380.fundar stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 31.ágúst sl.

Lagt fram.

Fylgiskjöl


6. Fundagerðir 2026 - Hafnasamband Íslands.
2601229

Framlögð fundargerð 486. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 2. október 2026.

Lagt fram.

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 00:00