Umhverfis- og landbúnaðarnefnd

5. fundur

21. október 2026 kl. 08:30 - 11:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Kristján Ágúst Magnússon - formaður
Jón E. Einarsson - aðalmaður
Brynja Þorsteinsdóttir - varamaður
Helgi Már Ólafsson - varamaður

Starfsmenn

Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Íma Fönn Hlynsdóttir - verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi


Dagskrá

1. Fjárhagsáætlun 2027 - umhhverfis- og landbúnaðarnefnd
2610131

Umhverfisfulltrúi fer yfir tillögu að fjárhagsáætlun næsta árs sem heyra undir nefndina.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd hvetur sveitastjórn til þess að skoða að alvöru í tengslum við fjárfestingaráæltun kaup á bíl til rotþróarhreinsunar í samvinnu við önnur sveitafélög.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur starfsmanni að vinna fjárhagsáætlun áfram í samræmi við umræður á fundinum.



2. Gjaldskrár og samþykktir 2027 - Umhverfis- og landbúnaðarnefnd
2610132

Yfirferð nefndar á gjaldskrám og samþykktum sem falla undir verksvið nefndarinnar.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd fór yfir gjaldskrár og samþykktir sem heyra undir nefndina. Nefndin leggur til að gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs verði haldið óbreytt milli ára annað árið í röð. Góður árangur íbúa í aukinni flokkun endurvinnanlegs efnis skilar þeim árangri. Aðrar gjaldskrár hækka um 2,5% og gjald fyrir hunda og kattahald hækkar um 3000 kr. með innleiðingu nýs kerfis í bætri skráningu gæludýra.



Fundi slitið - kl. 11:00