Byggðarráð Borgarbyggðar

11. fundur

22. október 2026 kl. 08:15 - 10:47

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson boðaði forföll og Sonja Lind Eyglóardóttir - varamaður sat fundinn í hans stað
Sigurður Guðmundsson - formaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir boðaði forföll og Kristján Ágúst Magnússon - varamaður sat fundinn í hans stað
Jovana Pavlovic - áheyrnarfulltrúi
Haukur Þór Hauksson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Þórunn Unnur Birgisdóttir - Lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Þórunn Unnur Birgisdóttir - lögfræðingur

Í upphafi fundar er samþykkt samhljóða að taka inn með afbrigðum, mál nr. 2610175, Umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða og skráning í áfangastaðaáætlun vesturlands, verður það mál nr. 9 á dagskrá.


Dagskrá

1. Frumvarpsdrög og drög að samþykktum- Kynningaráætlun
2609318

Fulltrúar frá Orkuveitu Reykjavíkur mæta og kynna frumvarpsdrög og drög að samþykktum í tengslum við eigendanefnd o.fl.

Byggðarráð þakkar fulltrúum Orkuveitu Reykjavíkur fyrir kynninguna.





2. Erindi frá Landbúnaðarsafni Íslands
2610143

Fulltrúar frá Landbúnaðarsafni Íslands mæta og gera grein fyrir sjónarmiðum safnsins er varða framtíðartækifæri sveitarfélagsins.

Byggðarráð þakkar Ragnhildi Helgu Jónsdóttur safnstjóra og Önnu Heiðu Baldursdóttur greinargóða kynningu á starfsemi og stöðu Landbúnaðarsafns Íslands. Byggðarráð áréttar mikilvægi safnsins sem menningar- og fræðslustofnunar og fagnar því öfluga samstarfi sem átt hefur sér stað.



Byggðarráð vísaði beiðni safnsins á 7. fundi Byggðarráðs til umræðu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027, sú vinna er í gangi.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


3. Ósk um samstarf vegna ráðstefnu um skapandi atvinnulíf
2610145

Lögð fram beiðni um viljayfirlýsingu vegna samstarfs

Byggðarráð staðfestir undirritun viljayfirlýsingarinnar og fagnar framkomnum áformum. Lögð er áhersla á að yfirlýsingin felur ekki í sér bindandi fjárhagslegar skuldbindingar fyrir sveitarfélagið á þessu stigi, en slíkar ákvarðanir skulu koma til sérstakrar umfjöllunar og samþykktar í byggðarráði eftir því sem verkefninu vindur fram.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


4. Beiðni um skriflegt umboð vegna umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
2610144

Fyrir liggur erindi frá Hollvinasamtökum Borgarness varðandi fyrirhugaðar umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða til uppbyggingar og þróunar á ferðamannastöðum í Borgarnesi. Óska samtökin eftir samstarfi við sveitarfélagið um forgangsröðun verkefna og útgáfu stuðningsyfirlýsingar eða umboðs sem fylgi umsóknunum.

Byggðarráð þakkar Hollvinasamtökum Borgarness fyrir framtakssemi við eflingu ferðamannastaða í Borgarnesi og samþykkir að veita stuðningsyfirlýsingu vegna umsóknanna. Lögð er áhersla á að útgáfa stuðningsyfirlýsingar felur ekki í sér fyrirfram samþykki á fjárhagslegu mótframlagi sveitarfélagsins, en slíkt kemur til sérstakrar umfjöllunar við afgreiðslu úthlutana úr sjóðnum og gerð fjárhagsáætlunar.



Samþykkt samhljóða



5. Fjárhagsaðstoð í sveitarfélaginu
2606304

Framlagt minnisblað um framfærslu eldra flóttafólks frá Úkraínu og stöðvun endurgreiðslna ríkissjóðs til sveitarfélaga samkvæmt lögum nr. 40/1991.

Erindi framlagt



6. Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Á fundi sveitarstjórnar nr.5, þann 7. október sl. var tekið fyrir mál undir heitinu Kosið í nýja nefnd, Bifrastarnefnd?. Davíð Sigurðsson lagði fram svohljóðandi tillögu: Lagt er til að málinu sé vísað til byggðarráðs.



Var tillagan samþykkt samhljóða í sveitarstjórn. Málið er hér lagt fyrir byggðarráð til umfjöllunar og afgreiðslu.

Málinu er frestað til næsta fundar



7. Brattagata - Gatnaframkvæmdir
2510327

Yfirferð á uppfærðum útboðsgögnum fyrir snjóbræðslu í Bröttugötu

Byggðarráð samþykkir að ráðist verði í snjóbræðslu í Bröttugötu sem aukaverk við gildandi verksamning um endurnýjun gatnagerðar og veitulagna, á grundvelli framlagðrar verklýsingar og fyrirliggjandi kostnaðaráætlunar að fjárhæð kr. 19.968.590

Þar sem aukaverkið rúmast ekki innan samþykktrar fjárhagsáætlunar ársins 2026 felur byggðarráð sveitarstjóra að vinna tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun vegna framkvæmdarinnar og leggja fyrir byggðarráð.

Gengið verði frá viðauka við verksamning við aðalverktaka samhliða eða að lokinni samþykkt byggðarráðs á viðauka við fjárhagsáætlun.



Samþykkt með tveimur atkvæðum, KÁM og SG, einn á móti SLEE



8. Innkaupareglur Borgarbyggðar 2026
2610123

Lögð fram drög að uppfærðum innkaupareglum

Lagt fram til kynningar



9. Umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða og skráning í áfangastaðaáætlun vesturlands.
2610175

Lagt er fram erindi vegna fyrirhugaðrar umsóknar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða um styrk til frumhönnunar á göngustíg í landi Bjargs og Bjargs 2. Óskað er eftir undirritun sveitarstjóra á fylgiskjali umsóknarinnar, sem og staðfestingu á því að verkefnið verði skráð í Áfangastaðaáætlun Vesturlands í samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands.



Byggðarráð Borgarbyggðar tekur jákvætt í erindið og lýsir yfir stuðningi við umsókn um styrk í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða til frumhönnunar á göngustíg í landi Bjargs og Bjargs 2. Byggðarráð samþykkir að verkefnið verði skráð í Áfangastaðaáætlun Vesturlands og felur sveitarstjóra að undirrita nauðsynleg fylgigögn vegna umsóknarinnar fyrir hönd sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða



10. Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
2602005

Framlögð fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambandsins frá 8. október 2026.

Fundargerð framlögð

Fylgiskjöl


11. Til umsagnar 202. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
2610124

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 202. mál - Loftslagslög

Framlagt



12. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 59. máli, frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).

Framlagt

Fylgiskjöl


13. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 88. mál, tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.

Framlagt

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 10:47