Byggingarnefnd íþróttamannvirkja í Borgarnesi

2. fundur

7. október 2026 kl. 14:00 - 15:15

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Birgir Andrésson - formaður
Svana Hrönn Jóhannsdóttir - aðalmaður
Tinna Rut Þórarinsdóttir - aðalmaður
Brynja Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Jón Theódór Jónsson - aðalmaður

Starfsmenn

Hlynur Ólafsson - verkefnisstjóri
Ottó Ólsfsson - verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði: Hlynur Ólafsson - Verkefnastjóri framkvæmda


Dagskrá

1. Fjölnota íþróttahús - Knatthús
2303105

Heiðrún Ösp, Orri og Hildur frá Eflu mæta á fundinn og fara yfir stöðu verkefnisins, breytingar á rýmisgreiningu og framvindu forvalsferlisins. Jafnframt verður fjallað um næstu skref þar á meðal frágang forvalsgagna og uppfærða tímalínu verkefnisins.

Lögð var fram yfirferð á breytingum á rýmisgreiningu verkefnisins ásamt stöðu forvalsferlis. Farið var yfir helstu athugasemdir og næstu skref sem felast annars vegar í frágangi forvalshönnunargagna og hins vegar í uppfærslu á tímalínu verkefnisins.



Byggingarnefnd samþykkir að áfram verði unnið að frágangi forvalsgagna með hliðsjón af þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum. Jafnframt felur nefndin EFLU að halda áfram undirbúningi gagna fyrir útgáfu forvalsins. Uppfærð tímalína verkefnisins skal lögð fram á næsta fundi nefndarinnar áður en tekin verður ákvörðun um útgáfu forvalsgagna.



Fundi slitið - kl. 15:15