Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa

82. fundur

12. október 2026 kl. 14:00 - 15:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Ásgerður H Hafsteinsdóttir - skipulagsfulltrúi
Elfar Már Ólafsson - verkefnisstjóri
Kara Lau Eyjólfsdóttir - verkefnisstjóri

Starfsmenn

Fundargerð ritaði: Ásgerður Hafsteinsdóttir - Skipulagsfulltrúi


Dagskrá

1. Laugarmelur - Umsókn um stofnun lóða
2606070

Lögð er fram ósk um staðfest merki, stærð og lögun á Laugarmel (L134665). Á lóðinni eru tveir matshlutar með hvoru sínu fasteignanúmeri, F2108684 einbýlishús og F2108683 jarðhiti. Lóðin er í notkunarflokki íbúðarhúsalóð. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Stærð lóðar breytist úr 0 ha í 1,9 ha. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037. Aðkoma fasteignar er frá Hvítársíðuvegi nr. 523.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að lóðin verði afmörkuð og breytt stærð lóðar Laugarmelur (L134665) úr 0 ha í 1,9 ha þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.



2. Staðarhraun Fjarskipti - Umsókn um stofnun lóða
2610078

Lögð er fram ósk um stofnun nýrrar lóðar Staðarhraun fjarskipti úr landi Staðarhrauns (L136029) í Borgarbyggð. Á lóðinni er fjarskiptamastur. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Svæðið er skilgreint sem Landbúnaðarland í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037. Lóðin er 100 fm að stærð og minnkar upprunaland sem því nemur en stærð þess er óskráð. Aðkoma að lóðinni er frá Hítardalsvegi (359).

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að stofnuð verði 100 fm lóð, Staðarhraun fjarskipti,úr upprunalandinu Staðarhraun (L136029) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS, skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins ásamt samþykki landeiganda. Lóðin fer í notkunarflokkinn lóð.



3. Kveldúlfsgata - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir umbætur á umferðaröryggi og aðgengi við Kveldúlfsgötu
2610079

Lögð er fram umsókn Borgarbyggðar dags. 12.10.2026 um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda sem miða að auknu umferðaröryggi, skýrari afmörkun bílastæða og bættu aðgengi við Kveldúlfsgötu í Borgarnesi. Framkvæmdin felur meðal annars í sér gerð nýrra gangstétta, endurbætur á gönguþverunum, lagfæringar á yfirborði og uppsetningu öryggisgirðingar við opið leiksvæði.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda er miða að auknu umferðaröryggi, skýrari afmörkun bílastæða og bættu aðgengi við Kveldúlfsgötu í Borgarnesi.

Skipulagsfulltrúi metur framkvæmdina svo að með tilliti til umferðargreiningar og ábendinga íbúa sé framkvæmdin aðkallandi til að bæta umferðaröryggi á svæðinu.

Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010



4. Melabraut - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gatnaframkvæmdir
2610081

Lögð er fram umsókn Borgarbyggðar dags. 12.10.2026 um framkvæmdaleyfi vegna gatnaframkvæmda á Melabraut á Hvanneyri. Framkvæmdin felur í sér gatnagerð ásamt uppsetningu götulýsingar.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna gatnaframkvæmda og uppsetningu götulýsingar. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010



5. Sjóvarnagarðar - umsókn um framkvæmdaleyfi
2504004

Lögð er fram beiðni um endurnýjun framkvæmdaleyfis vegna sjóvarna við íþróttasvæðið í Borgarnesi. Markmið framkvæmdarinnar er að tryggja vernd svæðisins og þeirra mannvirkja sem þar standa gegn ágangi sjávar. Upprunalegt framkvæmdaleyfi var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa nr. 54 þann 29. apríl 2025.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir endurnýjun framkvæmdaleyfis vegna gerðar sjóvarna við íþróttasvæðið í Borgarnesi. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010



Fundi slitið - kl. 15:00