Sveitarstjórn Borgarbyggðar

5. fundur

7. október 2026 kl. 16:30 - 18:45

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - aðalmaður
Sonja Lind Eyglóardóttir - aðalmaður
Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Þórður Brynjarsson - aðalmaður
Kristján Ágúst Magnússon - aðalmaður
Jovana Pavlovic - aðalmaður
Haukur Þór Hauksson - aðalmaður
Hermann B. Valsson - aðalmaður

Starfsmenn

Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri fræðslusviðs
Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórunn Unnur Birgisdóttir - Lögfræðingur

Í upphafi fundar óskaði forseti eftir því að taka inn með afbrigðum tvær fundargerðir sem koma þá inn sem dagskrárliðir 21. og 27. eru það mál nr. 2609045F, fundargerð Byggðarráðs nr. 9, verður það mál nr. 21 og mál nr. 2609040F, fundargerð fræðslunefndar nr. 2. verður mál nr. 27.

Var það samþykkt samhljóða


Dagskrá

1. Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga
2610017

Sveitarfélög sem hafa verulega beina hagsmuni af landbúnaði geta gerst stofnaðilar að samtökunum. Við mat á því skal meðal annars líta til umfangs landbúnaðarstarfsemi innan sveitarfélagsins, hlutfalls starfa í landbúnaði og tengdum greinum, sem og annarra þátta sem sýna fram á verulega hagsmuni sveitarfélagsins af málefnum landbúnaðar.

Sveitarstjórn samþykkir aðild Borgarbyggðar sem stofnaðila að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga, enda liggja fyrir verulegir hagsmunir sveitarfélagsins af landbúnaði og tengdri starfsemi. Jafnframt staðfestir sveitarstjórn þátttöku og umboð Loga Sigurðssonar, umhverfisfulltrúa Borgarbyggðar sem fulltrúa sveitarfélagsins á stofnfundi samtakanna sem haldinn var í dag, 7. október 2026.



Samþykkt samhljóða



2. Fimm mánaða uppgjör Borgarbyggðar 2026
2609144

Á fundi Byggðarráðs nr. 8 var samþykkt að vísa árshlutareikningi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps fyrir tímabilið 1. janúar til 31. maí 2026 til samþykktar í sveitarstjórn.



Rekstrarniðurstaða A hluta Borgarbyggðar eftir fyrstu fimm mánuði ársins er neikvæð um 287 milljónir á móti 56 milljóna tapi í áætlun. Þeir liðir sem hafa mest áhrif á lakari afkomu eru að framlög frá jöfnunarsjóði eru 150 milljónum undir áætlun einnig eru aðrar tekjur 135 milljónum undir áætlun, en útsvarstekjur hafa aukist um 84 milljónir. Gjöld eru undir áætlun sem nemur 53 milljónum, fjármagnskostnaður er 40 milljónum yfir áætlun. Þetta skilar því að niðurstaðan er 231 milljónum undir áætlunum. Þessi niðurstaða kallar á aukið rekstraraðhald og markvissa eftirfylgni með útgjöldum.



Byggðarráð benti á að staðan kalli á aukið aðhald og viðeigandi aðgerðir í rekstri á síðari hluta ársins.

Sveitarstjórn samþykkir árshlutareikning Borgarbyggðar og Skorradalshrepps miðað við 31. maí 2026 eins og hann liggur fyrir frá 8. fundi byggðarráðs. Með vísan til 231 m.kr. neikvæðs fráviks frá fjárhagsáætlun í A-hluta áréttar sveitarstjórn kröfu um aukið rekstraraðhald, stífa eftirfylgni með útgjöldum og ábyrga skuldastýringu á síðari hluta ársins



Til máls tóku, DS



Samþykkt samhljóða



3. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124

Á fundi Byggðarráðs nr. 8 var samþykkt tillaga að viðbót við viðauka VI. Tillagan felur í sér hækkun fjárheimildar til vaxtagjalda af skammtímaskuldum að fjárhæð 51 m.kr., vaxtagjalda af langtímaskuldum að fjárhæð 57 m.kr., verðbóta af langtímaskuldum að fjárhæð 93 m.kr og afskrifta af eignum að fjárhæð 97 m.kr. Tillagan felur einnig í sér 10,5 m.kr. hækkun fjárheimildar til hýsingar tölvukerfis en Borgarbyggð gerði nýjan samning við Advania þess efnis í júlí sl. . Ennfremur felur tillagan í sér lækkun fjárheimildar vegna fjárhagsaðstoðar, nemur sú lækkun 209,6 m.kr. Samtals leiðir viðaukinn til hækkunar á rekstrarkostnaði Borgarbyggðar 2026 um allt að 98,9 m.kr.



Tillagan felur líka í sér breytingar á tekjum. Útsvarstekjur hækki um 254 m.kr. Framlög jöfnunarsjóðs v/fasteignaskatts fellur niður , kr. 300 m.kr. Framlag jöfnunarsjóðs vegna málaefna fatlaðra hækkar um 141 m.kr. og framlög vegna sameiningar koma ný inn kr. 126 m.kr. Framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða hækkar um 46 m.kr. og framlög vegna aksturs grunnskólabarna í dreifbýli hækkar um 38 m.kr. Styrkir til sveitarfélagsins frá ríkinu vegna fjárhagsaðstoðar lækkar um 305 m.kr. Engin áhrif eru af tekjubreytingum í viðaukanum á rekstrarniðurstöðu Borgarbyggðar 2026.



Sveitarstjórn staðfestir samþykkt byggðarráðs á viðbót við viðauka VI við fjárhagsáætlun 2026. Með viðaukanum eru færðar til fjárheimildir vegna breytinga á fjármagnsliðum, afskriftum, tölvuhýsingu og fjárhagsaðstoð, sem leiða til 98,9 m.kr. hækkunar rekstrarkostnaðar, auk tekjubreytinga sem hafa ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins 2026.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


4. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124

Á fundi Byggðarráðs nr. 8 var samþykkt tillaga að viðbót við viðauka VII. Tillagan felur í sér hækkun fjárheimildar til leigugjalda af eigin húsnæði alls 241,7 m.kr. Hækkunin er tilkomin vegna uppreiknings á leigu sem tekur tillit til framkvæmda á árinu 2025. Stærstu breytingarnar eru vegna Grunnskóla Borgarfjarðar 84 m.kr. og Knatthúss í Borgarnesi 124,8 m.kr. Á móti hækka húsaleigutekjur sveitarfélagsins vegna eigin húsnæðis um 222 mkr. Mismunur 19,3 m.kr. er tilkominn vegna skekkju í upphaflegri áætlun 2026 sem er hér leiðrétt. Samtals leiðir viðaukinn til hækkunar á rekstrarkostnaði Borgarbyggðar 2026 um allt að 19,3 m.kr.

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu byggðarráðs á viðbót við viðauka VII við fjárhagsáætlun 2026. Með viðaukanum eru innbyrðis leigugjöld og leigutekjur af eigin húsnæði uppfærð vegna framkvæmda á árinu 2025, auk þess sem gerð er leiðrétting á 19,3 m.kr. skekkju í upphaflegri áætlun, sem leiðir til samsvarandi hækkunar á rekstrarkostnaði ársins 2026.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


5. Siðareglur kjörinna fulltrúa Borgarbyggðar 2026
2609052

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 8: Siðareglur fyrir sveitarstjórn Borgarbyggðar kynntar í samræmi við 29. gr. sveitarstjórnarlaga. Byggðarráð samþykkir framlaðar siðareglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir framlagðar siðareglur fyrir sveitarstjórn Borgarbyggðar í samræmi við 29. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Sveitarstjóra er falið að senda reglurnar ráðuneytinu til staðfestingar og birta á vef sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


6. Vallarás - hönnun og framkvæmdir
2311091

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 8 "Lagt fram minnisblað starfsmanns, dags. 16. september 2026, yfirlit Verkís hf., dags. 26. ágúst 2026, og samkomulag við Veitur ohf., dags. 31. ágúst 2026, um færslu lagna vegna framkvæmda við Vallarás 8-10 og safngötu. Hlynur Ólafsson og Ottó Ólafsson koma til fundar og fara yfir minnisblöðin. Byggðarráð þakkar fyrir góða yfirferð.



Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagt samkomulag við Veitur ohf. og felur sveitarstjóra undirritun þess með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.



Byggðarráð vekur athygli á því að heildarkostnaður framkvæmdarinnar fer fram úr samþykktri áætlun. Þar sem lokafrágangsreikningar liggja ekki endanlega fyrir felur byggðarráð sveitarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 jafnskjótt og endanlegt lokauppgjör liggur fyrir.



Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn samþykkir samkomulag við Veitur ohf. um færslu lagna við Vallarás 8-10 og safngötu og heimilar sveitarstjóra undirritun þess. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna framkvæmdarinnar jafnskjótt og lokauppgjör liggur fyrir.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


7. Fjallskil 2026 - Fjallskilanefnd Rausgilsréttar
2609091

Afgreiðsla frá fundi fjallskilanefndar Rauðsgilsréttar nr. 2: "Fjárgjöld kr. 850,- á kind. Dagsverk metið á kr. 21.000,- og fæðiskostnaður kr. 10.000,-

Breitingar milli ára:

Heiðarleit 1 færð frá Brekkukoti yfir á Skáney.

Heiðaleit 1 færð frá Deildartungu yfir á Hofsstaði."

Sveitarstjórn samþykkir álögð fjallskil. Fjárgjöld kr. 850,- á kind. Dagsverk metið á kr. 21.000,- og fæðiskostnaður kr. 10.000,-



Samþykkt samhljóða



8. Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosið í nýja nefnd, Bifrastarnefnd

Tillaga frá Davíð Sigðurðssonar, Lagt er til að málinu sé vísað til Byggðarráðs



Tillagan var samþykkt samhljóða



Til máls tóku, HÞH, SLE, SG, UBK, DS, HBV, JP



Forseti sveitarstjórnar óskaði eftir því að Sigurður Guðmundsson varaforseti sveitarstjórnar myndi taka við fundarstjórn





9. Reglur og gjaldskrár í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
2606048

Fyrir liggur bókun fræðslunefndar að reglum og gjaldskrám, unnar í kjölfar bókunar sveitarstjórnar á fundi nr. 1. þann 4. júní 2006 á grundvelli 1. mgr. 126. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Lögð er fram afgreiðsla af 1. fundi fræðslunefndar frá 18. ágúst 2026, þar sem eftirfarandi reglur og gjaldskrár voru samþykktar samhljóða:



Gjaldskrá fyrir mötuneyti í grunnskólum Borgarfjarðar

Gjaldskrá íþróttamiðstöðva í Borgarbyggð 2026

Gjaldskrá leikskóla Borgarbyggðar

Gjaldskrá fyrir frístundastarf í Borgarbyggð

Gjaldskrá Listaskóla Borgarfjarðar

Reglur um frístundastyrk fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð

Skólastefna Borgarbyggðar

Verklagsreglur fyrir leikskóla Borgarbyggðar

Reglur Borgarbyggðar um skólaakstur í grunnskóla

Með vísan til bókunar á 1.fundi sveitarstjórnar þann 4. júní og í samræmi við samhljóða afgreiðslu 1. fundar fræðslunefndar frá 18. ágúst 2026 staðfestir og samþykkir sveitarstjórn framlagðar reglur og gjaldskrár á sviði fræðslumála fyrir hið sameinaða sveitarfélag sbr. 1. mgr. 126. gr. og 7. tölul. 1. mgr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Jafnframt felur sveitarstjórn fræðslunefnd að vinna að heildarendurskoðun og uppfærslu gjaldskránna í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar og leggja nýjar tillögur fyrir sveitarstjórn til samþykktar.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


10. Reglur og gjaldskrár í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
2606048

Fyrir liggur bókun velferðanefndar að reglum og gjaldskrám, unnar í kjölfar bókunar sveitarstjórnar á fundi nr. 1. þann 4. júní 2006 á grundvelli 1. mgr. 126. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Lögð er fram afgreiðsla af 1. fundi velferðanefndar frá 18. ágúst 2026, þar sem eftirfarandi reglur og gjaldskrár voru lagðar fram til kynningar:

Gjaldskrá fyrir Fjölskyldusvið Borgarbyggðar

Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks

Reglur um akstursþjónustu eldri borgara

Reglur um styrki til náms-, verkfæra- og tækjakaupa

Reglur um stuðnings- og stoðþjónustu hjá Borgarbyggð

Reglur um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra

Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning

Reglur um úthlutun félagslegra ibúða

Reglur Borgarbyggdar um veitingu fjárstyrks vegna lögmannstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002

Reglur Borgarbyggðar um fjárhagsaðstoð

Með vísan til bókunar á 1.fundi sveitarstjórnar þann 4. júní, og að lokinni yfirferð á 1. fundi velferðarnefndar frá 18. ágúst 2026, staðfestir og samþykkir sveitarstjórn framlagðar reglur og gjaldskrár á sviði fræðslumála fyrir hið sameinaða sveitarfélag, sbr. 1. mgr. 126. gr. og 7. tölul. 1. mgr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Jafnframt felur sveitarstjórn velferðarnefnd að vinna að heildarendurskoðun og uppfærslu gjaldskránna í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar og leggja nýjar tillögur fyrir sveitarstjórn til samþykktar.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


11. Erindisbréf fyrir fulltrúa í raflínunefnd
2610028

Miðflokkurinn leggur til að fulltrúi Borgarbyggðar í raflínunefnd fái erindisbréf frá Sveitarstjórn Borgarbyggðar. Flutningsmaður Þórður Brynjarsson

Lagt er til tillögunni verði vísað til byggðarráðs til frekari umfjöllunar.





Til máls tóku, ÞB, SG, HÞH, DS



Samþykkt samhljóða



12. Starfshópur um rekstur og umbætur
2610029

Miðflokkurinn leggur til að þverpólitísk nefnd sveitarstjórnarmanna verði skipuð til að fara yfir rekstur sveitarfélagsins og gera tillögu að umbótum í rekstri sveitarfélagsins. Flutningsmaður Haukur Þór Hauksson.

Sveitarstjórn samþykkir tillögu Sigurðar Guðmundassonar um að vísa tillögu Miðflokksins til byggðarráð til nánari útfærslu á verkefnalýsingu, skipan vinnuhóps og tímaramma og að byggðarráð leggi tilöguna fyrir næsta sveitarstjórnarfund.



Til máls tóku, HÞH, SG



Samþykkt samhljóða





13. Málefni Brákareyjar
2610031

Framtíð Brákareyjar í samræmi við málefnasamning Sjálfstæðisflokksins og Borgarbyggðarlistans.



Til máls tóku, SLE, SG, HBV, DS



14. Umsókn um deiliskipulag - Lambalækjarflöt
2607036

Afgreiðsla 3. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður var fram uppdráttur dags. 31.08.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður var fram uppdráttur dags. 31.08.2026.

Í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 er svæðið skilgreint sem landbúnaðarland en verður skilgreint sem frístundabyggð í endurskoðun aðalskipulags.

Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Samþykkt samhljóða



Til máls tók, HBV

Fylgiskjöl


15. Brekkukot - umsókn um deiliskipulag - L134386
2603029

Afgreiðsla 3. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Brekkukot (L134386). Lagður er fram uppdráttur og greinargerð dags. 28.05.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður er fram uppdráttur dags. 28.05.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Sveitarstjórn áréttar að á auglýsingatíma verði sérstaklega óskað eftir umsögnum Vegagerðarinnar og leitað samráðs við aðliggjandi landeigendur m.a. vegna aðkomu að Felli og Hlíðarkletti, með það að markmiði að tryggja aðkomu og umferðaröryggi til frambúðar áður en kemur að endanlegri afgreiðslu skipulagsins.



Samþykkt samhljóða



Til máls tók HBV

Fylgiskjöl


16. Helgastaðaland - umsókn um stofnun lóða - 135999
2604003

Afgreiðsla 3. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun lóðarinnar Helgastaðaland (L136000) úr 2.500 fm í 9.050 fm þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti breytta afmörkun lóðarinnar Helgastaðaland (L136000) úr 2.500 fm í 9.050 fm þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


17. Indriðastaðir Dyrholt - Umsókn um stofnun lóða
2608249

Afgreiðsla 3. fundar skipulags- og byggingarnefndar:



"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðanna

Indriðastaðir - Dyrholt 1, stærð: 5.352 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 3, stærð: 5.352 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 5, stærð: 5.352 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 7, stærð: 5.352 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 9, stærð: 6.008 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 11, stærð: 6.000 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 13, stærð: 6.000 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 15, stærð: 6.000 fm úr upprunalandinu Indriðastaðir - Dyrholt (L197707) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Ný stofnaðar lóðir fara í notkunarflokkinn sumarbústaðalóðir en Indriðastaðir - Dyrholt fer í notkunarflokkinn annað land.

Samþykkt samhljóða "

Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti stofnun lóðanna:

Indriðastaðir - Dyrholt 1, stærð: 5.352 fm Indriðastaðir - Dyrholt 3, stærð: 5.352 fm Indriðastaðir - Dyrholt 5, stærð: 5.352 fm Indriðastaðir - Dyrholt 7, stærð: 5.352 fm Indriðastaðir - Dyrholt 9, stærð: 6.008 fm Indriðastaðir - Dyrholt 11, stærð: 6.000 fm Indriðastaðir - Dyrholt 13, stærð: 6.000 fm Indriðastaðir - Dyrholt 15, stærð: 6.000 fm úr upprunalandinu Indriðastaðir - Dyrholt (L197707) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Ný stofnaðar lóðir fara í notkunarflokkinn sumarbústaðalóðir en Indriðastaðir - Dyrholt fer í notkunarflokkinn annað land.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


18. Langholt og Stafholtsey - Merkjalýsing landamerkja
2609224

Afgreiðsla 3. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfesta fyrir sitt leyti ofangreind landamerki þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir framlagða merkjalýsingu landmerkja á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024 þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá Húsnæðis og mannvirkjastofnunar og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


19. Starfsmannamál 2026
2606026

Framlögð afgreiðsla af 8. fundi Byggðarráðs dags. 17.september 2026 sem færð var í trúnaðarbók. Hún var samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.

Afgreiðsla færð í trúnaðarbók



20. Byggðarráð Borgarbyggðar - 8
2609020F

Fundargerðin framlögð

Fundargerð framlögð

20.1
2609144
Fimm mánaða uppgjör Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Byggðarráð hefur farið yfir Árshlutareikning Borgarbyggðar og Skorradalshrepps 31. maí 2026 og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Rekstrarniðurstaða A hluta Borgarbyggðar eftir fyrstu fimm mánuði ársins er neikvæð um 287 milljónir á móti 56 milljóna tapi í áætlun. Þeir liðir sem hafa mest áhrif á lakari afkomu er að framlög frá jöfnunarsjóði eru 150 milljónum undir áætlun einnig eru aðrar tekjur 135 milljónum undir áætlun, en útvarpstekjur hafa aukist um 84 milljónir. Gjöld eru undir áætlun sem nemur 53 milljónum, fjármagnskostnaður er 40 milljónum yfir áætlun. Þetta skilar því að niðurstaðan er 231 milljónum undir áætlunum. Þessi niðurstaða kallar á aukið rekstraraðhald og markvissa eftirfylgni með útgjöldum. Byggðarráð leggur áherslu á að við áframhaldandi uppbyggingu og fjárfestingar verði gætt að ábyrgri skuldastýringu og að allar framkvæmda og rekstrarákvarðanir taki mið af fjárhagslegu bolmagni sveitarfélagsins til lengri tíma. Ráðið telur mikilvægt að gripið verði til viðeigandi aðgerða til að bæta afkomu og styrkja rekstrarstöðu sveitarfélagsins á síðari hluta ársins.Samþykkt samhljóða.

20.2
2601124
Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Lögð fram tillaga að viðbót við viðauka VII. Tillagan felur í sér hækkun fjárheimildar til leigugjalda af eigin húsnæði alls 241,7 m.kr. Hækkunin er tilkomin vegna uppreiknings á leigu sem tekur tillit til framkvæmda á árinu 2025. Stærstu breytingarnar eru vegna Grunnskóla Borgarfjarðar 84 m.kr. og Knatthúss í Borgarnesi 124,8 m.kr. Á móti hækka húsaleigutekjur sveitarfélagsins vegna eigin húsnæðis um 222 mkr. Mismunur 19,3 m.kr. er tilkominn vegna skekkju í upphaflegri áætlun 2026 sem er hér leiðrétt. Samtals leiðir viðaukinn til hækkunar á rekstrarkostnaði Borgarbyggðar 2026 um allt að 19,3 m.kr. Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.

20.3
2601241
Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Lögð fram til kynningar endanleg lánsskjöl vegna láns hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð samtals kr. 600.000.000,-, sem samþykkt voru á 4. fundi sveitarstjórnar þann 10. september sl.Lagt fram til kynningar

20.4
2601229
Fundagerðir 2026 - Hafnasamband Íslands.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Fundargerð framlögð

20.5
2602005
Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Fundargerð framlögð

20.6
2602034
Faxaflóahafnir fundagerðir 2026.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Fundargerð framlögð

20.7
2609052
Siðareglur kjörinna fulltrúa Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Siðareglur fyrir sveitarstjórn Borgarbyggðar kynntar í samræmi við 29. gr. sveitarstjórnarlaga. Byggðarráð samþykkir framlaðar siðareglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.

20.8
2605038
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga 2026 ósk um upplýsingar vegna framlaga.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Byggðarráð lýsir yfir þungum áhyggjum af því mikla misræmi sem er á milli upphaflegs áhrifamats laga nr. 56/2025 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, sem gerði ráð fyrir 177,7 m.kr. tekjuaukningu, og þeirrar verulegu lækkunar framlaga sem nú blasir við sveitarfélaginu.Byggðarráð telur ljóst að forsendur og útreikningar hins nýja líkans, einkum hámarksregla um fjölda byggðakjarna og breytt tímaviðmið við tekjumælingar, rýri rekstrargrundvöll víðfeðmra og fjölkjarna sveitarfélaga í andstöðu við markmið laganna. Byggðarráð áréttar erindi sveitarfélagsins til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 11. september 2026 og felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir.Samþykkt samhljóða

20.9
2609145
Rýni á skipulags- og umhverfissviði
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi verkefnistillögu og áætlaðan kostnað vegna hennar að fjárhæð 1.521.600-1.902.000 kr. án vsk. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi við Strategíu og fylgja verkefninu eftir.Samþykkt samhljóða.

20.10
2609143
Niðurfelling reglulegs fundar byggðarráðs
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Lagt er til að reglulegur fundur byggðarráðs sem átti að fara fram fimmtudaginn 24. september nk. falli niður vegna landsþings sambands íslenskra sveitarfélaga sem fer fram sama dag. samþykkt samhljóða.

20.11
2305084
Tímasetning næsta sveitarstjórnarfundar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Byggðarráð samþykkir að næsti fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar fari fram 7. október næstkomandi og hefjist kl. 16.30.Samþykkt samhljóða.

20.12
2609157
Beiðni um samstarf frá Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Byggðarráð þakkar Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar fyrir ómetanlegt framlag til samfélagsins og tekur jákvætt í erindið, sem styður vel við markmið sveitarfélagsins sem heilsueflandi samfélags. Byggðarráð felur sveitarstjóra að leggja fram tillögu að samningi við krabbameinsfélagið og leggja fyrir aftur. Samþykkt samhljóða.

20.13
2311091
Vallarás - hönnun og framkvæmdir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Lagt fram minnisblað starfsmanns, dags. 16. september 2026, yfirlit Verkís hf., dags. 26. ágúst 2026, og samkomulag við Veitur ohf., dags. 31. ágúst 2026, um færslu lagna vegna framkvæmda við Vallarás 8-10 og safngötu. Hlynur Ólafsson og Ottó Ólafsson koma til fundar og fara yfir minnisblöðin. Byggðarráð þakkar fyrir góða yfirferð.Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagt samkomulag við Veitur ohf. og felur sveitarstjóra undirritun þess með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. Byggðarráð vekur athygli á því að heildarkostnaður framkvæmdarinnar fer fram úr samþykktri áætlun. Þar sem lokafrágangsreikningar liggja ekki endanlega fyrir felur byggðarráð sveitarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 jafnskjótt og endanlegt lokauppgjör liggur fyrir.Samþykkt samhljóða

20.14
2601124
Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 8

Lögð fram tillaga að viðbót við viðauka VI. Tillagan felur í sér hækkun fjárheimildar til vaxtagjalda af skammtímaskuldum að fjárhæð 51 m.kr., vaxtagjalda af langtímaskuldum að fjárhæð 57 m.kr., verðbóta af langtímaskuldum að fjárhæð 93 m.kr og afskrifta af eignum að fjárhæð 97 m.kr. Tillagan felur einnig í sér 10,5 m.kr. hækkun fjárheimildar til hýsingar tölvukerfis en Borgarbyggð gerði nýjan samning við Advania þess efnis í júlí sl. . Ennfremur felur tillagan í sér lækkun fjárheimildar vegna fjárhagsaðstoðar, nemur sú lækkun 209,6 m.kr. Samtals leiðir viðaukinn til hækkunar á rekstrarkostnaði Borgarbyggðar 2026 um allt að 98,9 m.kr. Tillagan felur líka í sér breytingar á tekjum. Útsvarstekjur hækki um 254 m.kr. Framlög jöfnunarsjóðs v/fasteignaskatts fellur niður , kr. 300 m.kr. Framlag jöfnunarsjóðs vegna málaefna fatlaðra hækkar um 141 m.kr. og framlög vegna sameiningar koma ný inn kr. 126 m.kr. Framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða hækkar um 46 m.kr. og framlög vegna aksturs grunnskólabarna í dreifbýli hækkar um 38 m.kr. Styrkir til sveitarfélagsins frá ríkinu vegna fjárhagsaðstoðar lækkar um 305 m.kr. Engin áhrif eru af tekjubreytingum í viðaukanum á rekstrarniðurstöðu Borgarbyggðar 2026.Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.



21. Byggðarráð Borgarbyggðar - 9
2609045F

Fundargerðin framlögð

Fundargerð framlögð

21.1
2606271
Fjárhagsáætlun 2027
Byggðarráð Borgarbyggðar - 9

Byggðarráð þakkar Sigurði Kristjánssyni fjármálastjóra fyrir yfirferðina og greinargóða kynningu á stöðu vinnu við fjárhagsáætlun 2027.Með vísan til nýsamþykktrar ályktunar landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 25. september sl, lýsir byggðarráð yfir vilja sínum til að taka virkan þátt í að stuðla að efnahagslegum stöðugleika, lækkun verðbólgu og vaxta. Í samræmi við ályktunina samþykkir byggðarráð að við gerð fjárhagsáætlunar 2027 verði almennum hækkunum á gjaldskrám sveitarfélagsins haldið innan 2,5% ramma að því gefnu að ríkið geri slíkt hið sama.Byggðarráð tekur heils hugar undir áherslur landsþingsins um nauðsyn þess að ríkisvaldið og stofnanir þess sýni sams konar samfélagslega ábyrgð og takmarki hækkanir á eigin gjaldskrám og álögum sem snerta heimilin. Þá áréttar ráðið mikilvægi þess að ríkið tryggi fulla og raunhæfa fjármögnun allra lögbundinna verkefna og nýrra skyldna sem sveitarfélögum eru lagðar á herðar.Byggðarráð felur fjármálastjóra og sviðsstjórum að haga áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2027 í samræmi við framangreind viðmið.Samþykkt samhljóða.

21.2
2604039
Fundagerðir Orkuveitu Reykjavíkur 2026.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 9

Fundargerðir framlagðar

21.3
2609142
Uppbyggingin innviða
Byggðarráð Borgarbyggðar - 9

Byggðarráð fagnar frumkvæði Veitna að samtali um framtíðaruppbyggingu veitukerfa og innviða. Byggðarráð leggur áherslu á mikilvægi þess að tryggja rekstar- og afhendingaröryggi og innviðafjárfestingar sem styðja við vöxt sveitarfélagsins og atvinnulífs.Byggðarráð þakkar mjög góða yfirferð um framtíðauppbyggingaráform Veitna.

21.4
2610001
Áform um breytingu á skipan löggæsluembætta á landinu
Byggðarráð Borgarbyggðar - 9

Byggðarráð Borgarbyggðar mótmælir harðlega og ótvírætt áformum dómsmálaráðherra um að leggja niður embætti lögreglustjórans á Vesturlandi og sameina það embættum lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra og Vestfjörðum. Áformin ganga þvert gegn hagsmunum íbúa á Vesturlandi og fela í sér enn eitt skrefið í átt til miðstýringar þar sem ákvörðunarvald er fært burt frá því fólki sem það varðar.Löggæsla er eitt af grunnhlutverkum ríkisins. Íbúar landsbyggðarinnar greiða sína skatta til jafns við aðra landsmenn og eiga skýlausan rétt á því að ríkið sinni þessu kjarnaverkefni af festu og í nálægð við þá. Hið nýja embætti næði yfir stóran hluta landsins, frá Vesturlandi um Vestfirði og allt Norðurland. Vesturland á fátt sameiginlegt með því svæði hvað varðar samgöngur, þjónustusókn og samstarf. Stærra bákn er ekki sama og betri þjónusta. Engin rök hafa verið færð fyrir því að löggæsla á Vesturlandi verði betri með því að stýra henni frá Akureyri eða að löggæsla á Norðurlandi verði betri ef henni verður stýrt frá Ísafirði.Fullyrðingar um að starfsstöðvum fækki ekki og að aðstoðarlögreglustjórar verði í hverju umdæmi eru haldlitlar. Aðstoðarlögreglustjóri fer ekki með það vald sem lögreglustjóri hefur. Forgangsröðun, fjárveitingar og stefnumótun færast fjær íbúum, og reynslan af sameiningum ríkisstofnana sýnir að þegar yfirstjórn flyst burt fylgja störf og þjónusta á eftir. Íbúar á Vesturlandi hafa séð þá þróun áður og láta ekki bjóða sér hana aftur.Byggðarráð krefst þess að lagt verði fram raunhæft mat á kostnaði og ávinningi breytinganna. Hagræðing sem byggist á því að flytja vald frá landsbyggðinni án þess að sýnt sé fram á betri þjónustu eða betri nýtingu almannafjár er engin hagræðing.Byggðarráð krefst þess að dómsmálaráðherra falli frá áformum um að færa yfirstjórn löggæslu á Vesturlandi úr landshlutanum og hafi raunverulegt samráð við sveitarfélög á Vesturlandi áður en lengra er haldið.Samþykkt samhljóða

21.5
2606026
Starfsmannamál 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 9

Bókað var í trúnaðarbók

21.6
2609200
Beiðni um tilnefningu í starfshóp um framfærslu aldraðs flóttafólks frá Úkraínu.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 9

Byggðarráð samþykkir að tilnefna Unni Brá Konráðsdóttur sem aðalfulltrúa Borgarbyggðar í starfshópinn og Hlöðver Inga Gunnarsson til vara, með vísan til 2. mgr. 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.Sveitarstjóra er falið að koma tilnefningunni á framfæri við ráðuneytið ásamt umbeðnum upplýsingum.Samþykkt samhljóða

21.7
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 9

Byggðarráð felur sveitarstjóra að fara yfir efni frumvarpsins, meta áhrif þess á hagsmuni sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða

21.8
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 9

Lagt fram

21.9
2609229
Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Varmalækjarvegar af vegaskrá
Byggðarráð Borgarbyggðar - 9

Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka afstöðu til þeirra raka sem búa að baki fyrirhugaðri ákvörðun Vegagerðarinnar, svo sem m.t.t. búsetu og atvinnustarfsemi, og koma þeirri afstöðu á framfæri við Vegagerðina. Samþykkt samhljóða

21.10
2609304
Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Bjarnastaðaveg (5209-01) st. 30-140 af vegaskrá
Byggðarráð Borgarbyggðar - 9

Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka afstöðu til þeirra raka sem búa að baki fyrirhugaðri ákvörðun Vegagerðarinnar, svo sem m.t.t. búsetu og atvinnustarfsemi, og koma þeirri afstöðu á framfæri við Vegagerðina.Samþykkt samhljóða.



22. Fjallskilanefnd Þverárréttar - 2
2609002F

Fundargerð framlögð

fundargerð

22.1
2606158
Fjallskilaseðill 2026
Fjallskilanefnd Þverárréttar - 2

Heildar kostnaður við smölun og réttir er 4.849.250,- Sem gerir 850 krónur pr. kindHeildar fjallskil verða gerð upp í nóvember.

22.2
2609015
Þróun kostnaðar hjá fjallskilasjóði Þverárréttar
Fjallskilanefnd Þverárréttar - 2

Nefndin sammælist um að fá áheyrn Byggðarráðs fljótlega eftir sumarfrí og ræða málefni upprekstrarfélagsins.



23. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3
2609041F

Fundargerðin framlögð



Fundargerð framlögð



Til máls tók HBV

23.1
2609224
Langholt og Stafholtsey - Merkjalýsing landamerkja
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfesta fyrir sitt leyti ofangreind landamerki þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.

23.2
2607152
Fyrirspurn um skipulagsmál
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna plægingar jarðstrengja í jörðu innan friðlands Andakíls á grundvelli framlagðra gagna þegar heimild Umhverfisstofnunar fyrir framkvæmdinni liggur fyrir. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010 þegar samþykki landeiganda þeirra jarða sem framkvæmdin nær yfir liggur fyrir.Samþykkt samhljóða.

23.3
2511318
Fyrirspurn um skipulagsmál
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna plægingar jarðstrengja í jörðu innan friðlands Andakíls á grundvelli framlagðra gagna þegar samþykki landeiganda þeirra jarða sem framkvæmdin nær yfir liggur fyrir. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.Samþykkt samhljóða.

23.4
2609006F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 80
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

23.5
2609048F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 81
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

23.6
2609042F
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 264
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

23.7
2608249
Indriðastaðir Dyrholt - Umsókn um stofnun lóða
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðanna Indriðastaðir - Dyrholt 1, stærð: 5.352 fmIndriðastaðir - Dyrholt 3, stærð: 5.352 fmIndriðastaðir - Dyrholt 5, stærð: 5.352 fmIndriðastaðir - Dyrholt 7, stærð: 5.352 fmIndriðastaðir - Dyrholt 9, stærð: 6.008 fmIndriðastaðir - Dyrholt 11, stærð: 6.000 fmIndriðastaðir - Dyrholt 13, stærð: 6.000 fmIndriðastaðir - Dyrholt 15, stærð: 6.000 fm úr upprunalandinu Indriðastaðir - Dyrholt (L197707) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.Ný stofnaðar lóðir fara í notkunarflokkinn sumarbústaðalóðir en Indriðastaðir - Dyrholt fer í notkunarflokkinn annað land.Samþykkt samhljóða

23.8
2606076
Hvítárholt 3 - Umsókn um stofnun lóða
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

Samkvæmt landbúnaðarkafla aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037 er unnt að heimila þrjár byggingarlóðir samtals fyrir íbúðarhús eða frístundahús á hverri bújörð án deiliskipulags. Ef jörð er skipt fylgja ekki þessar heimildir, nema jarðarhlutar séu að lágmarki 20 ha hvor/hver og neðan 300 m.y.s.Hvítárholt 2 er stofnað úr jörðinni Hvítárholt og er 19,7 ha. Þ.a.l fylgja heimildir um byggingarlóðir Hvítárholts ekki. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að gert verði deiliskipulag á svæðinu.Samþykkt samhljóða.

23.9
2604003
Helgastaðaland - umsókn um stofnun lóða - 135999
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun lóðarinnar Helgastaðaland (L136000) úr 2.500 fm í 9.050 fm þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða.

23.10
2603029
Brekkukot - umsókn um deiliskipulag - L134386
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Brekkukot (L134386). Lagður er fram uppdráttur og greinargerð dags. 28.05.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða.

23.11
2607036
Umsókn um deiliskipulag - Lambalækjarflöt
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður var fram uppdráttur dags. 31.08.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða.

23.12
2609306
Fyrirspurn um skipulagsmál
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í hugmyndir landeigenda og felur skipulagsfulltrúa að vera í sambandi við landeigendur um næstu skref.Samþykkt samhljóða.

23.13
2608061
Skorradalsvatn Kirkjuvaðstangi - umskn um framkvmdarleyfi - 134057
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að fallið verði frá fyrri bókun um að gefa skuli út framkvæmdaleyfi fyrir könnunarskurðum en bendir á að ef fara á í gerð fiskvegar á sama svæði skuli sækja um framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða.

23.14
2609313
Ákvörðun um stöðvun framkvæmda
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3

Skipulags- og byggingarnefnd staðfestir ákvörðun skipulagsfulltrúa um að stöðva framkvæmdir sem hafnar eruán framkvæmdaleyfis skv. 5. mgr. 6. gr. samþykktar um stjórn Borgarbyggðar.Samþykkt samhljóða.



24. Fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar - 1
2609015F

Fundargerðin framlögð

Fundargerð framlögð

24.1
2609090
Verkaskipting fjallskilanefndar Rauðsgilsréttar
Fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar - 1

Verða eftirfarandi:Ingimundur Jónsson formaðurÍris Þ. Ármannsdóttir ritariKolberinn Magnússon



25. Fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar - 2
2609016F

Fundargerðin framlögð

Fundargerð framlögð

25.1
2609091
Fjallskil 2026 - Fjallskilanefnd Rausgilsréttar
Fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar - 2

Fjárgjöld kr. 850,- á kind. Dagsverk metið á kr. 21.000,- og fæðiskostnaður kr. 10.000,-Breitingar milli ára:Heiðarleit 1 færð frá Brekkukoti yfir á Skáney.Heiðaleit 1 færð frá Deildartungu yfir á Hofsstaði.



26. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 2
2609035F

Fundargerð 2. fundar velferðarnefndar lögð fram til staðfestingar.

Fundargerð framlögð



Til máls tók REJ

26.1
2601286
Trúnaðarbók 2026
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 2

Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins

26.2
2509076
Farsældarráð Vesturlands
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 2

Velferðarnefnd leggur til að Ragnhildur Eva Jónsdóttir og Sonja Lind Eyglóardóttir séu tilnefndar sem aðalmenn og Svana Hrönn Jóhannsdóttir og Tinna Rut Þórarinsdóttir séu tilnefndar sem varamenn í Farsældarráð Vesturlands. Lagt er til að Erla Björg Kristjánsdóttir, félagsmálastjóri komi inn sem starfsmaður á vegum sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða. Velferðarnefnd vísar erindi til sveitastjórnar til staðfestingar.

26.3
2303023
Samræmd móttaka flóttafólks
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 2

Velferðarnefnd þakkar fyrir góða yfirferð á málaflokknum í sveitarfélaginu.

26.4
2609150
Samningar um samræmda móttöku flóttafólks - ósk um framlengingu samnings
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 2

Velferðarnefnd leggur til að ekki verði gengið til samninga nema tryggt verði afturvirkar greiðslur fyrir fjárhagsaðstoð sem veitt hefur verið til þeirra sem hafa komið í gegnum samræmda móttöku, að tveimur árum liðnum. Auk þess að breyting sé gerð á greiðslufyrirkomulagi er snýr að samningnum sjálfum, er varðar hækkun greiðslna vegna þeirra sem hafa verið lengur en 2 ár.

26.5
2606323
Stöðugildi á fjölskyldusviði 2027
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 2

Máli er frestað fram á næsta fund velferðarnefnar.

26.6
2608172
Barnaverndarþjónusta Vesturlands
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 2

Borgarbyggð fagnar því að Dalabyggð hafi sýnt því áhuga á að koma í Barnaverndarþjónustu Vesturlands. Velferðarnefnd leggur áherslu á að samningurinn feli ekki í sér viðbótarkostnað fyrir Borgarbyggð og það sé skýrt að Dalabyggð komi inn í samstarfið á sama grunni og önnur sveitarfélög. Því er ekki veitt umboð til að semja á öðrum grunni. Lögð er áhersla á að lágmarkskostnaður sem Dalabyggð þarf að greiða er óumsemjanlegur enda þykir ljóst að aukið álag fylgi því að vera leiðandi sveitarfélag í barnaverndarþjónustu. Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagt tilboð.



27. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 2
2609040F

Fundargerðin framlögð

Fundagerð framlögð



Til máls tók REJ

27.1
2608066
Móttaka nýrra nefndarmanna
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 2

Lagt fram til kynningar.

27.2
2609266
Nemendatölur í leik-og grunnskólum Borgarbyggðar
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 2

Lagt fram til kynningar.

27.3
2609287
Kynning frá Grunnskólanum í Borgarnesi
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 2

Fræðslunefnd þakkar Sólrúnu Höllu fyrir góða kynningu og óskar henni velfarðnaðar í starfi. Samþykkt samhljóða.

27.4
2608256
Ósk um auka starfsmannafundi
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 2

Fræðslunefnd samþykkir framlagða tillögu frá Klettaborg og Andabæ. Samþykkt samhljóða.

27.5
2607034
Samnigur við Námfús
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 2

Lagt fram til kynningar.

27.6
2608159
Tómstundaakstur og æfingatímar
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 2

Fræðslunefnda þakkar Knattspyrnudeild Skallagríms fyrir erindið. Því miður er ekki hægt að samþykkja erindið að svo stöddu því það rúmast ekki innan þeirra fjárheimilda sem sveitarfélagið hefur í núverandi fjárhagsáætlun. Fræðslunefnd leggur því frekar til að skoðað verði leiðir í vetur til að breyta stundatöflum þannig að hægt sé að minnka biðtíma barna eftir fótboltaæfingum. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs er falið að kanna málið áfram. Samþykkt samhljóða.Guðrún Vala sat hjá undir þessum lið.

27.7
2608067
Opnunartími sundlauga í Borgarbyggð
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 2

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað. Fræðslunefnd leggur til að sviðsmynd tvö verði framkvæmd. Málinu er vísað til Byggðarráðs til afgreiðslu.Samþykkt samhljóða.

27.8
2510090
Gjaldskrár á fjölskyldusviði 2026
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 2

Sveitarfélagið hefur lagt til að hækkun á gjaldskrá verði hófsöm. Fræðslunefnd felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að kanna hvaða áhrif það hefði að hækka ekki gjaldskrár fyrir leikskóla fyrir 2027. Samþykkt samhljóð.

27.9
2501033
Skóladagatöl fyrir leik-, grunn- og listaskóla Borgarbyggðar
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 2

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað. Lagt er til að gera breytingu á skóladagatali leikskóla þannig að dagarnir 21.-23.desember verði ekki lengur skráningadagar heldur venjulegir skóladagar. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að gera breytingu á verklagsreglum leikskóla og leggja fyrir næsta fund fræðslunefndar.Samþykkt er ný útgáfa að skóladagatali leikskóla.Samþykkt samhljóða.



Fundi slitið - kl. 18:45