Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum
3. fundur
5. október 2026 kl. 09:00 - 11:00
í stóra fundarsal í Ráðhúsi
Nefndarmenn
Dagný Pétursdóttir - aðalmaður
Valdimar Reynisson - aðalmaður
Friðrik Aspelund - aðalmaður
Starfsmenn
Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Íma Fönn Hlynsdóttir - verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1. Skógræktarfélag Borgarfjarðar - Vinna í Einkunnum 2026
2609319
Fulltrúi frá Skógræktarfélagi Borgarfjarðar, Pavle Estrahjer mætti til fundarins undir þessum lið og fóru yfir verkefnastöðu Skógræktarfélags Borgarfjarðar í Einkunnum.
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum þakkar Skógræktarfélagi Borgarfjarðar fyrir kynninguna á verkefnum sem voru unnin af þeim árið 2026. Farið yfir möguleg vekrefni næsta árs.
Fylgiskjöl
2. Umhirðuáætlun 2026
2610005
Farið yfir hugmyndir Skógræktarfélags Borgarfjarðar að kostnaði við gerð umhirðuáætlunar.
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum ákveður að styrkja Skógræktarfélag Borgarfjarðar til gerðar umhirðuáætlunar fyrir skóginn í samræmi við umsaminn kostnað.
3. Önnur mál Umsjónarnefndar fólkvangsins í Einkunnum
2606315
Kort af Einkunnum er tilbúið til prentunar og stefnt að því að koma kortinu upp í vor.
Farið verður í nauðsynlegt viðhald vega þegar veður og aðstæður leyfa.
Fundi slitið - kl. 11:00