Fræðslunefnd Borgarbyggðar

2. fundur

1. október 2026 kl. 15:00 - 17:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Ragnhildur Eva Jónsdóttir - formaður
Guðrún Vala Elísdóttir - varaformaður
Guðdís Jónsdóttir - aðalmaður
Tinna Rut Þórarinsdóttir - aðalmaður
Sigríður Guðbjartsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri


Dagskrá

1. Móttaka nýrra nefndarmanna
2608066

Kynning á hlutverkum nefndarmanna í fræðslunefnd.

Lagt fram til kynningar.





2. Nemendatölur í leik-og grunnskólum Borgarbyggðar
2609266

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir nemendatölur fyrir leik- og grunnskóla í Borgarbyggð

Lagt fram til kynningar.



3. Kynning frá Grunnskólanum í Borgarnesi
2609287

Sólrun Halla Bjarnadóttir skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi kynnir starf skólans í vetur.

Fræðslunefnd þakkar Sólrúnu Höllu fyrir góða kynningu og óskar henni velfarðnaðar í starfi.



Samþykkt samhljóða.



4. Ósk um auka starfsmannafundi
2608256

Lagt fram erindi til fræðslunefndar frá Klettaborg og Andabæ.

Fræðslunefnd samþykkir framlagða tillögu frá Klettaborg og Andabæ.



Samþykkt samhljóða.



5. Samnigur við Námfús
2607034

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnir nýtt námskerfi í leikskólum Borgarbyggðar.

Lagt fram til kynningar.



6. Tómstundaakstur og æfingatímar
2608159

Lagt fram erindi frá knattspyrnudeild Skallagríms.

Fræðslunefnda þakkar Knattspyrnudeild Skallagríms fyrir erindið. Því miður er ekki hægt að samþykkja erindið að svo stöddu því það rúmast ekki innan þeirra fjárheimilda sem sveitarfélagið hefur í núverandi fjárhagsáætlun. Fræðslunefnd leggur því frekar til að skoðað verði leiðir í vetur til að breyta stundatöflum þannig að hægt sé að minnka biðtíma barna eftir fótboltaæfingum. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs er falið að kanna málið áfram.



Samþykkt samhljóða.



Guðrún Vala sat hjá undir þessum lið.



7. Opnunartími sundlauga í Borgarbyggð
2608067

Sviðssstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað.



Fræðslunefnd leggur til að sviðsmynd tvö verði framkvæmd.



Málinu er vísað til Byggðarráðs til afgreiðslu.



Samþykkt samhljóða.



8. Gjaldskrár á fjölskyldusviði 2026
2510090

Lagðar fram til kynningar gjaldskrár á fjölskyldusviði.

Sveitarfélagið hefur lagt til að hækkun á gjaldskrá verði hófsöm. Fræðslunefnd felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að kanna hvaða áhrif það hefði að hækka ekki gjaldskrár fyrir leikskóla fyrir 2027.



Samþykkt samhljóð.



9. Skóladagatöl fyrir leik-, grunn- og listaskóla Borgarbyggðar
2501033

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað. Lagt er til að gera breytingu á skóladagatali leikskóla þannig að dagarnir 21.-23.desember verði ekki lengur skráningadagar heldur venjulegir skóladagar. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að gera breytingu á verklagsreglum leikskóla og leggja fyrir næsta fund fræðslunefndar.

Samþykkt er ný útgáfa að skóladagatali leikskóla.



Samþykkt samhljóða.



Fundi slitið - kl. 17:00