Fundargerð
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
264. fundur
25. september 2026 kl. 09:00 - 10:00
á skrifstofu byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Stóraborg 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir gestahúsi á einni hæð. Stærð: 34.4m2, mhl-02. Húsið er byggt úr timbri á steyptar undirstöður.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Ívar Hauksson.
Sækja þarf um breytingu á deiliskipulagi.
2. Fauskás 3 L205405 - Umsókn um byggingarleyfi_frístundahús
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir frístundahúsi. Stærð 52m2, mhl-01. Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Emil Þór Guðmundsson
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
3. Indriðastaðir 27 - Umsókn um stöðuleyfi
Erindi: Sótt er um stöðuleyfi fyrir 10 ft. gámi. Gámurinn verður staðsettur á lóðinni Indriðastaðir 27
Fyrirhuguð notkun: Geymsla
4. Hvanneyri fráveitustöð - Umsókn um stöðuleyfi
Erindi: Sótt er um stöðuleyfi fyrir 10 ft.gámi.
Fyrirhuguð notkun: Gámurinn er hugsaður til að hýsa svokallaða ECA lausn sem er saltvatnsupplausn sem fer í gegnum rafgreiningu og er blandað við fráveituvatnið sem gerir það að verkum að gerlamagn í fráveituvatninu minnkar til muna.
Gámurinn er staðsettur við hlið stjórnstöðvar á lóð (L215351).
5. Digranesgata 6 - Umsókn um stöðuleyfi
Erindi: Sótt er um stöðuleyfi fyrir matarvagni sem verður staðsettur á lóðinni Digranesgata 6. Fyrir liggur samþykki lóðarhafa.
Tryggja þarf að matarvagnin sé innan lóðar Digranesgötu 6 í samráði við lóðarhafa og hafi ekki áhrif á núverandi umferð innan svæðisins.
Málsaðili þarf að tryggja að vagninn sé tryggilega frágenginn með tilliti til veðurs og vinda.