Byggðarráð Borgarbyggðar

8. fundur

17. september 2026 kl. 08:15 - 10:15

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - formaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - varaformaður
Jovana Pavlovic - áheyrnarfulltrúi
Haukur Þór Hauksson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Þórunn Unnur Birgisdóttir - Lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri

Í upphafi fundar var samþykkt að taka inn með afbrigðum 6 mál, er það mál nr. 2601229,
Fundagerðir 2026 - Hafnasamband Íslands. mál nr. 2609157, Beiðni um samstarf frá Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar, mál nr. 2311091, Vallarás - hönnun og framkvæmdir, mál nr. 2601124, Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026 og mál nr. 2601124, Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026, mál nr. 2602005, mál nr. 2601241, Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2026, Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026, mál nr. 2602034, Faxaflóahafnir fundagerðir 2026


Dagskrá

1. Fimm mánaða uppgjör Borgarbyggðar 2026
2609144

Halldóra Pálsdóttir og Haraldur Reynisson endurskoðendur KPMG koma til fundar og fara yfir fimm mánaða uppgjör sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Þá er Sigurður Kristjánsson, fjármálastjóri Borgarbyggðar viðstaddur fundinn undir þessum lið.

Byggðarráð hefur farið yfir Árshlutareikning Borgarbyggðar og Skorradalshrepps 31. maí 2026 og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Rekstrarniðurstaða A hluta Borgarbyggðar eftir fyrstu fimm mánuði ársins er neikvæð um 287 milljónir á móti 56 milljóna tapi í áætlun. Þeir liðir sem hafa mest áhrif á lakari afkomu er að framlög frá jöfnunarsjóði eru 150 milljónum undir áætlun einnig eru aðrar tekjur 135 milljónum undir áætlun, en útvarpstekjur hafa aukist um 84 milljónir. Gjöld eru undir áætlun sem nemur 53 milljónum, fjármagnskostnaður er 40 milljónum yfir áætlun. Þetta skilar því að niðurstaðan er 231 milljónum undir áætlunum. Þessi niðurstaða kallar á aukið rekstraraðhald og markvissa eftirfylgni með útgjöldum.

Byggðarráð leggur áherslu á að við áframhaldandi uppbyggingu og fjárfestingar verði gætt að ábyrgri skuldastýringu og að allar framkvæmda og rekstrarákvarðanir taki mið af fjárhagslegu bolmagni sveitarfélagsins til lengri tíma. Ráðið telur mikilvægt að gripið verði til viðeigandi aðgerða til að bæta afkomu og styrkja rekstrarstöðu sveitarfélagsins á síðari hluta ársins.



Samþykkt samhljóða.



2. Siðareglur kjörinna fulltrúa Borgarbyggðar 2026
2609052

Umfjöllun um siðareglur fyrir sveitarstjórn Borgarbyggðar sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga og lagt mat á hvort þörf sé á uppfærslu. Gildandi siðareglur voru samþykktar af sveitarstjórn í apríl 2024.

Siðareglur fyrir sveitarstjórn Borgarbyggðar kynntar í samræmi við 29. gr. sveitarstjórnarlaga. Byggðarráð samþykkir framlaðar siðareglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


3. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga 2026 ósk um upplýsingar vegna framlaga.
2605038

Jöfnunarsjóður hefur svarað fyrirspurn Borgarbyggðar vegna lækkunar framlaga. Fundað hefur verið með sjóðnum og erindi hefur verið sent umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sbr. bókun sveitarstjórnarfundar, dags. 10. september sl.

Byggðarráð lýsir yfir þungum áhyggjum af því mikla misræmi sem er á milli upphaflegs áhrifamats laga nr. 56/2025 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, sem gerði ráð fyrir 177,7 m.kr. tekjuaukningu, og þeirrar verulegu lækkunar framlaga sem nú blasir við sveitarfélaginu.



Byggðarráð telur ljóst að forsendur og útreikningar hins nýja líkans, einkum hámarksregla um fjölda byggðakjarna og breytt tímaviðmið við tekjumælingar, rýri rekstrargrundvöll víðfeðmra og fjölkjarna sveitarfélaga í andstöðu við markmið laganna. Byggðarráð áréttar erindi sveitarfélagsins til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 11. september 2026 og felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


4. Rýni á skipulags- og umhverfissviði
2609145

Lagt er fram tilboð og verkefnistillaga frá ráðgjafarfyrirtækinu Strategíu, dags. 14. september 2026, um rýni á skipulags- og umhverfissviði Borgarbyggðar. Markmið verkefnisins er að kortleggja núverandi stöðu, greina verkaskiptingu og nýtingu mannauðs og leggja fram tillögur að umbótum og rekstrarhagræðingu.

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi verkefnistillögu og áætlaðan kostnað vegna hennar að fjárhæð 1.521.600-1.902.000 kr. án vsk. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi við Strategíu og fylgja verkefninu eftir.



Samþykkt samhljóða.



5. Niðurfelling reglulegs fundar byggðarráðs
2609143

Tillaga um niðurfellingu fundar byggðarráðs þann 24.september nk.

Lagt er til að reglulegur fundur byggðarráðs sem átti að fara fram fimmtudaginn 24. september nk. falli niður vegna landsþings sambands íslenskra sveitarfélaga sem fer fram sama dag.



samþykkt samhljóða.



6. Tímasetning næsta sveitarstjórnarfundar
2305084

Næsti fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar er áætlaður 8. október næstkomandi. Gerð er tillaga að honum verði flýtt til 7. október vegna fjármálaráðstefnu sem hefst þann 8. október.

Byggðarráð samþykkir að næsti fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar fari fram 7. október næstkomandi og hefjist kl. 16.30.



Samþykkt samhljóða.



7. Beiðni um samstarf frá Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar
2609157

Lagt fram erindi Krabbameinsfélags Borgarfjarðar þar sem óskað er eftir samstarfi.

Byggðarráð þakkar Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar fyrir ómetanlegt framlag til samfélagsins og tekur jákvætt í erindið, sem styður vel við markmið sveitarfélagsins sem heilsueflandi samfélags.



Byggðarráð felur sveitarstjóra að leggja fram tillögu að samningi við krabbameinsfélagið og leggja fyrir aftur.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


8. Vallarás - hönnun og framkvæmdir
2311091

Framlagt minnisblað vegna gatnaframkvæmda við Vallarás, kostnaðaryfirlit vegna safngötu.

Lagt fram minnisblað starfsmanns, dags. 16. september 2026, yfirlit Verkís hf., dags. 26. ágúst 2026, og samkomulag við Veitur ohf., dags. 31. ágúst 2026, um færslu lagna vegna framkvæmda við Vallarás 8-10 og safngötu. Hlynur Ólafsson og Ottó Ólafsson koma til fundar og fara yfir minnisblöðin. Byggðarráð þakkar fyrir góða yfirferð.



Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagt samkomulag við Veitur ohf. og felur sveitarstjóra undirritun þess með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.



Byggðarráð vekur athygli á því að heildarkostnaður framkvæmdarinnar fer fram úr samþykktri áætlun. Þar sem lokafrágangsreikningar liggja ekki endanlega fyrir felur byggðarráð sveitarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 jafnskjótt og endanlegt lokauppgjör liggur fyrir.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


9. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124

Lögð fram tilllaga að viðbót við viðauka VI við fjárhagsáætlun 2026.

Lögð fram tillaga að viðbót við viðauka VI. Tillagan felur í sér hækkun fjárheimildar til vaxtagjalda af skammtímaskuldum að fjárhæð 51 m.kr., vaxtagjalda af langtímaskuldum að fjárhæð 57 m.kr., verðbóta af langtímaskuldum að fjárhæð 93 m.kr og afskrifta af eignum að fjárhæð 97 m.kr. Tillagan felur einnig í sér 10,5 m.kr. hækkun fjárheimildar til hýsingar tölvukerfis en Borgarbyggð gerði nýjan samning við Advania þess efnis í júlí sl. . Ennfremur felur tillagan í sér lækkun fjárheimildar vegna fjárhagsaðstoðar, nemur sú lækkun 209,6 m.kr. Samtals leiðir viðaukinn til hækkunar á rekstrarkostnaði Borgarbyggðar 2026 um allt að 98,9 m.kr.



Tillagan felur líka í sér breytingar á tekjum. Útsvarstekjur hækki um 254 m.kr. Framlög jöfnunarsjóðs v/fasteignaskatts fellur niður , kr. 300 m.kr. Framlag jöfnunarsjóðs vegna málaefna fatlaðra hækkar um 141 m.kr. og framlög vegna sameiningar koma ný inn kr. 126 m.kr. Framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða hækkar um 46 m.kr. og framlög vegna aksturs grunnskólabarna í dreifbýli hækkar um 38 m.kr. Styrkir til sveitarfélagsins frá ríkinu vegna fjárhagsaðstoðar lækkar um 305 m.kr. Engin áhrif eru af tekjubreytingum í viðaukanum á rekstrarniðurstöðu Borgarbyggðar 2026.



Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.



10. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124

Lögð fram tilllaga að viðbót við viðauka VII við fjárhagsáætlun 2026.

Lögð fram tillaga að viðbót við viðauka VII. Tillagan felur í sér hækkun fjárheimildar til leigugjalda af eigin húsnæði alls 241,7 m.kr. Hækkunin er tilkomin vegna uppreiknings á leigu sem tekur tillit til framkvæmda á árinu 2025. Stærstu breytingarnar eru vegna Grunnskóla Borgarfjarðar 84 m.kr. og Knatthúss í Borgarnesi 124,8 m.kr. Á móti hækka húsaleigutekjur sveitarfélagsins vegna eigin húsnæðis um 222 mkr. Mismunur 19,3 m.kr. er tilkominn vegna skekkju í upphaflegri áætlun 2026 sem er hér leiðrétt. Samtals leiðir viðaukinn til hækkunar á rekstrarkostnaði Borgarbyggðar 2026 um allt að 19,3 m.kr.



Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.



11. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2026
2601241

Lánasamningar lagðir fram til kynningar

Lögð fram til kynningar endanleg lánsskjöl vegna láns hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð samtals kr. 600.000.000,-, sem samþykkt voru á 4. fundi sveitarstjórnar þann 10. september sl.



Lagt fram til kynningar

Fylgiskjöl


12. Fundagerðir 2026 - Hafnasamband Íslands.
2601229

Framlögð fundargerð 485. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 7. september 2026.

Fundargerð framlögð

Fylgiskjöl


13. Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
2602005

Fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambandsins frá 28. ágúst 2026 lögð fram til kynningar.

Fundargerð framlögð

Fylgiskjöl


14. Faxaflóahafnir fundagerðir 2026.
2602034

Frammlögð fundagerð 270. fundar stjórnar faxaflóahafnar sem haldinn var 29.ágúst sl.

Fundargerð framlögð

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 10:15