Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa

80. fundur

7. september 2026 kl. 11:00 - 00:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Ásgerður H Hafsteinsdóttir - verkefnisstjóri
Kara Lau Eyjólfsdóttir - verkefnisstjóri

Starfsmenn

Fundargerð ritaði: Ásgerður Hafsteinsdóttir - Verkefnastjóri


Dagskrá

1. Selásar 8 - umsókn um stofnun lóða - L178157
2508095

Lögð er fram ósk um afmörkun lóðar Selásar 8 (L178157) úr landi Munaðarness (L134915). Eitt mannvirki er skráð á lóðinni, sumarbústaður F2233470. Deiliskipulag er á svæðinu. Stærð lóðar samræmist deiliskipulagi en afmörkun lóðar samræmist ekki deiliskipulagi. Lóðin er 3.000 fm að stærð og svæðið er skilgreint frístundabyggð F56 í aðalskipulagi Borgarbyggðar.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að afmörkuð verði 3.000 fm lóð, Selásar 8,úr upprunalandinu Munaðarnes L134915 þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Lóðin fer í notkunarflokkinn Sumarbústaðaland.

Stærð lóðarinnar er í samræmi við deiliskipulag svæðisins en afmörkun samræmist ekki.

Skipulagsfulltrúi bendir á að uppfæra þarf deiliskipulag svæðisins til samræmis við afmarkanir lóða innan svæðis.



2. Gunnlaugsstaðir - Umsókn um stofnun lóða
2606072

Lögð er fram ósk um stofnun nýrrar lóðar Gunnlaugsstaðir 1 úr landi Gunnlaugsstaðir 1 (L134867) í Borgarbyggð. Engin mannvirki eru á lóðinni. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er 2.993 fm að stærð. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði L6 í aðalskipulagi Borgarbyggðar. Aðkoma nýrrar fasteignar er frá Borgarfjarðarbraut nr 50-05, Þverárhlíðarvegi nr. 522-02 og Gunnlaugsstaðavegi nr. 5263-01.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að stofnuð verði 2.993 fm lóð, Gunnlaugsstaðir 1,úr upprunalandinu Gunnlaugsstaðir L134867 þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðin fer í notkunarflokkinn íbúðarhúsalóð.

Fylgiskjöl


3. Miðháls 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2607031

Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir 39,6 m2 gestahúsi á lóðinni Miðháls 7 (187549) í landi Ánabrekku. Húsið er byggt úr timbri á steyptar undirstöður.

Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem frístundabyggð (F16). Deiliskipulag er á svæðinu.





Skipulagsfulltrúi bendir á að fyrirhuguð byggingaráform eru umfram heimildir í deiliskipulagi svæðisins. Gera þurfi breytingu á deiliskipulagi.



4. Súluklettur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2606079

Á 78. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 9. júlí 2026 var samþykkt að grenndarkynna fyrirhugað byggingarleyfi á 241,2 m² steinsteyptu íbúðarhúsi á 2 hæðum að Súlukletti 1 (L189383). Grenndarkynnt var fyrir nágrönnum sem hagsmuna eiga að gæta og óskað eftir umsögnum í gegnum skipulagsgátt. Kynningartíminn var frá 13. júlí til og með 12. ágúst 2026. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



5. Fauskás 3 - umsókn um deiliskipulag - F2334325
2407181

Skipulagsfulltrúi sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum nr. 78 þann 9. júlí 2026 að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Fossatúns. Breytingin tekur til lóðarinnar Fauskás 3 þar sem ákvæði um mænisstefnu er fellt niður. Aðrir skilmálar deiliskipulagsins haldast óbreyttir.

Kynnt var frá 13. júlí til og með 12. ágúst 2026 fyrir nágrönnum og öðrum hagsmunaaðilum í skipulagsgátt. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi.

Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.



6. Grímsstaðir - umsókn um framkvæmdarleyfi - 135927
2609033

Lögð er fram umsókn Borgarbyggðar dags. 03.09.2026 um framkvæmdaleyfi fyrir gerð malarplans undir grenndargáma fyrir sorp á landi Grímsstaða (L135927). Svæðið þjónar m.a. sumarhúsabyggð í landi Grímsstaða og er ætlað til að bæta aðgengi og umgengni við sorphirðu á svæðinu. Framkvæmdin felur í sér gerð 245 m² malarplans á svæði sem er nú þegar ógróið og hefur ekki verið nýtt til þessa. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.

Landeigandi hefur gefið samþykki sitt fyrir framkvæmdinni.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna gerðar malarplans með vísan til framlagðra gagna að undangengnu samþykki Vegagerðarinnar fyrir vegtengingu inn á plan frá Grímsstaðavegi. Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010



Fundi slitið - kl. 00:00