Byggðarráð Borgarbyggðar

7. fundur

3. september 2026 kl. 08:15 - 09:45

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - formaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - varaformaður
Jovana Pavlovic - áheyrnarfulltrúi
Haukur Þór Hauksson boðaði forföll og Þórður Brynjarsson - áheyrnarfulltrúi sat fundinn í hans stað

Starfsmenn

Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Þórunn Unnur Birgisdóttir - Lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Þórunn Unnur Birgisdóttir - lögfræðingur

Í upphafi fundar var samþykkt samhljóða að mál nr. 2607084 Umferðaröryggi í Kveldúlfsgötu, mál nr. 2605049 Endurbætur á Melabraut á Hvanneyri, mál nr. 2608259 Fjölnota íþróttahús, mál nr. 2609001 Yfirfrærsla veitunnar til notenda, mál nr. 2609024 Beiðni um niðurfellingu á leigu í Þinghamri og mál nr. 2609017 Beiðni um styrk - Landbúnaðarsafn Íslands yrði tekið inn með afbrigðum.


Dagskrá

1. Skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni
2501058

Lagt fram minnisblað um skammtímadvöl fyrir fötluð börn. Minnisblaðið er unnið sameiginlega af stjórnendum í Velferðarþjónustu á Vesturlandi eftir fundi með sveitarstjórum allra sveitarfélaga á Vesturlandi. Hlöðver Ingi Gunnarsson kemur til fundarins og fer yfir minnisblað.

Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að kostnaðarskiptingu vegna Holts. Vonir standa til að starfsemin geti hafið störf fljótlega eftir áramót.



Byggðarráð fagnar því að verkefnið sé að verða að veruleika og telur það mikið framfaraskref í þjónustu við börn með fatlanir og fjölskyldur þeirra.



Málinu vísað áfram til sveitarstjórnar til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða



2. Staða framkvæmda 2026
2606153

Hlynur Ólafsson verkefnastjóri framkvæmda, Ottó Ólafsson verkefnsastjóri og Guðný Elíasdóttir sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs mæta á fundinn undir þessum lið og fara yfir stöðu framkvæmda sveitarfélagsins m.a. á Kleppjárnsreykjum, Fjólukletti o.fl.

Byggðarráð þakkar þeim Hlyni Ólafssyni og Ottó Ólafssyni fyrir góða yfirferð.



3. Umferðaröryggi í Kveldúlfsgötu
2607084

Yfirferð á tilboði vegna umferðaröryggis við Kveldúlfsgötu. Hlynur Ólafsson verkefnastjóri framkvæmda, Ottó Ólafsson verkefnsastjóri og Guðný Elíasdóttir sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs mæta á fundinn undir þessum lið

Sundurliðuð kostnaðaráætlun, verklýsing og gögn er varða umferðaöryggi framlögð og byggðarráð felur sveitarstjóra að taka tilboði Sigurgarða. Sveitarstjóra falið að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun þar sem gerð er grein fyrir tilfærslu á milli liða.



Samþykkt samhljóða.



4. Ráðning skipulagsfulltrúa
2608257

Guðný Elíasdóttir, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fór yfir stöðu ráðningamála.

Byggðarráð þakkar fyrir upplýsingarnar



5. Endurbætur á Melabraut á Hvanneyri
2605049

Yfirferð á verksamning vegna yfirborðsfrágangs á Melabraut. Hlynur Ólafsson verkefnastjóri framkvæmda, Ottó Ólafsson verkefnsastjóri og Guðný Elíasdóttir sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs mæta á fundinn undir þessum lið.

Framlagður verksamning við Borgarverk vegna Melabrautar byggðarráð felur sveitarstjóra að rita undir verksamninginn.



Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta gera viðauka vegna kostnaðar við verkið.



Samþykkt samhljóða.





6. Fjölnota íþróttahús
2608259

Lagt fram minnisblað um rekstur og opnunartíma Hlöðunnar, fjölnota íþróttahúss. Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðstjóri fjölskyldusviðs mætir til fundarins undir þessum lið.

Lagt er til að fjölnota íþróttahúsið, Hlaðan, sé opinn frá 6:00 til 21:30 á virkum dögum en 9:00 til 17:30 um helgar.



Lagt er til að ganga til samninga við Sólar ehf um þrif á húsnæðinu eins og aðrar stofnanir í Borgarbyggð.



Samþykkt samhljóða.



7. Yfirfrærsla veitunnar til notenda
2609001

Yfirfærsla á hlut Borgarbyggðar yfir til notenda veitunnar.

Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að selja hlut Borgarbyggðar í vatnsveitu Hraunhrepps til óstofnaðs einkahlutafélags í eigu notenda. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.



Samþykkt samhljóða



8. Beiðni um niðurfellingu á leigu í Þinghamri
2609024

Leikfélag Stafholtstungna óskar eftir niðurfellingu á leigu fyrir afnot af Þinghamri á æfingatímabili, en félagið greiði leigu fyrir afnot vegna sýninga.

Byggðarráð samþykkir að fella niður leigu vegna afnota af Þinghamri.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


9. Beiðni um styrk - Landbúnaðarsafn Íslands
2609017

Framlögð beiðni Landbúnaðarsafns Íslands á Hvanneyri um styrk

Framlög beiðni Landbúnaðarsafns Íslands um styrk. Byggðarráð vísar erindinu til umræðu við fjárhagsáætlunargerð ársins 2027.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 09:45