Fundargerð
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar
2. fundur
4. september 2026 kl. 08:30 - 11:00
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Erindisbréf - Skipulags og byggingarnefnd
Samþykkt samhljóða.
2. Aðalskipulag - Endurskoðun vegna sameiningar sveitarfélaga
Nefndin lítur þannig á að við sameiningu sveitarfélaganna hafi orðið til ný stjórnsýslueining sem þarfnast sameiginlegrar og heildstæðrar stefnu um þróun byggðar og landnýtingar í nýstofnuðu sveitarfélagi. Núgildandi aðalskipulög voru unnin á mismunandi tímum, byggð á ólíkum forsendum og taka hvort um sig aðeins til þess landsvæðis sem tilheyrði fyrrum sveitarfélögum.
Jafnframt leggur skipulags- og byggingarnefnd til við sveitarstjórn að skipa vinnuhóp aðalskipulags með þátttöku kjörinna fulltrúa frá ólíkum svæðum sveitarfélagsins sem vinnur að heildstæðri stefnumörkun fyrir nýstofnað sveitarfélag.
Samþykkt samhljóða.
3. Fyrirspurn um skipulagsmál
Reynt verður eftir fremsta megni að fylgja núverandi legu lagna RARIKS og Veitna. Með því er ekki verið að raska nýjum svæðum.
Meðfylgjandi er loftmynd af þeirri leið sem plægð verður.
Bent er á að ef framkvæmdin snertir svæði sem njóta verndar samkvæmt lögum þarf að fara með málið samkvæmt þeim reglum sem um slík svæði gilda.
Samþykkt samhljóða.
4. Granastaðir - Umsókn um framkvæmdaleyfi
Fyrirhuguð framkvæmd felst í flutningi og útlagningar á jarðvegs/fyllingarefnis á afmörkuð svæði við Granastaði. Markmið framkvæmdarinnar er að hækka og jafna land, bæta aðstæður á svæðinu og undirbúa það fyrir uppbyggingu á tjaldsvæði. Fyllingarefni verður flutt á svæðið með vörubílum og jafnað út með vinnuvélum. Framkvæmdinni verður hagað þannig að rask verði takmarkað við skilgreint framkvæmdarsvæði og að afrennsli og aðliggjandi svæði verði fyrir sem minnstum áhrifum.
Samþykkt samhljóða.
5. Skorradalsvatn Kirkjuvaðstangi - umsókn um framkvæmdarleyfi - 134057
Samþykkt samhljóða.
6. Umsókn um deiliskipulag - Dagverðarnes 62-65, svæði 8
"Málinu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar þar sem farið var fram á lagfæringar á deiliskipulagstillögu skv. ábendingum nefndarinnar. Tillaga er aftur lögð fram til afgreiðslu, að beiðni landeiganda Dagverðarness. Um er að ræða 6,4 ha svæði fyrir neðan Skorradalsveg (508). Ekki er þörf á lýsingu skipulagsverkefnis þar sem allar megin forsendur deiliskipulags liggja fyrir í Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 og er í samræmi við stefnu aðalskipulagsins.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja deiliskipulag frístundalóða Dagverðarness 62, 63, 64 og 65 á svæði 8 til auglýsingar sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram."
Málið var ekki tekið til meðferðar hjá Hreppsnefnd Skorradalshrepps.
Samþykkt samhljóða.
7. Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Galtarholt
Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir 54,3 m2 frístundahúsi á einni hæð í Galtarholti 1 land (L191462). Lóðin er 30,4 ha og er þar fyrir 15 m2 geymsla, 10 m2 smáhýsi og 20 feta gámur/verkfærageymsla sem til stendur að klæða að utan með panel. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er skilgreind sem landbúnaðarland í flokki II í aðalskipulagi.
Í ljósi þess felur nefndin byggingafulltrúa að yfirfara þær byggingar sem fyrir eru á jörðinni áður en byggingaleyfi er veitt.
Samþykkt samhljóða.
8. Brekkuland/Skáli 134775 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu sem tengir saman tvo sumarbústaði og breyta húsinu í einbýlishús á lóðinni Vanaheim í Borgarbyggð (L237771). Húsið verður alls 190 m². Einnig er sótt um að byggja 88 m² bílskúr sunnan við einbýlishúsið. Byggingarmagn verður í heild 278 m². Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði þar sem heimilt er að vera með fasta búsetu. Frekari uppbygging er heimil.
Nefndin bendir á að deiliskipuleggja þurfi svæðið áður en af frekari uppbyggingu verður.
Samþykkt samhljóða.
9. Fyrirspurn um skipulagsmál - Trönubakki 1
Svæðið er skilgreint sem frístundabyggð í aðalskipulagi. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.
Á loftmynd sem fylgir af fyrirhugaðri staðsetningu bílgeymslunnar er ljóst að hún er nær lóðamörkum en 10m.
Að mati nefndarinnar þarf að vinna nýtt deiliskipulag fyrir svæðið í heild þannig að unnt sé að meta áhrif breytinganna á landnotkun, byggðarmynstur, innviði, umferð, þjónustu og umhverfi áður en afstaða er tekin til frekari uppbyggingar.
Samþykkt samhljóða.
10. Stráskógarbyggð 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við sumarhús að Stráskógarbyggð 1 (L135125) í landi Stóra-fjalls og Túns í Borgarbyggð. Á lóðinni er 27,6 m² sumarhús og er sótt um byggingarleyfi fyrir 113,8 m² viðbyggingu. Sumarhúsið verður eftir stækkun 141,4 m². Deiliskipulag er á svæðinu þar sem heimiluð eru 40-50 m² sumarhús með allt að 10 m² útigeymslu. Hús stærri en 60 m² séu ekki leyfð. Svæðið er skilgreint sem frístundabyggð í aðalskipulagi.
Deiliskipulagið sem í gildi er á svæðinu er að mati nefndar orðið úrelt og fer fram á að landeigandi uppfæri skipulag svæðisins.
Samþykkt samhljóða.
11. Sólbakki 11 - Umsókn um stöðuleyfi
Lögð er inn umsókn um stöðuleyfi fyrir bráðabirgðar geymslu. Um er að ræða gámatjald sem fest er á milli tveggja gáma. Ætlunin er að setja upp þetta tjald norðan við húsið að Sólbakka 11 (L135803). Mun það ná allt að 15 metrum frá húsinu og verður þá minnst 5 - 6 metrar að lóðarmörkum næstu lóðar. Fyrir á lóðinni er 548 m² iðnaðarhús. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er skilgreind sem iðnaðar- og athafnalóð og er svæðið skilgreint sem iðnaðarsvæði í aðalskipulagi.
Samþykkt samhljóða.
12. Erindi til sveitarstjórnar vegna Rammaáætlunar
Samþykkt samhljóða.
13. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 79
13.1
Skipulagsfulltrúi vísar málinu til skipulags- og byggingarnefndar.
13.2
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.Í framkvæmdaleyfi verða settir skilmálar sem m.a. byggja á þeim ábendingum sem bárust frá umsagnaraðilum á kynningartíma.
13.3
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
13.4
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar telur ekki þörf á að grenndarkynna deiliskipulagsbreytinguna að nýju þar sem leiðréttingarnar eru það óverulegar að þær hafi ekki áhrif á yfirstandandi ferli.
14. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 262
14.1
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
14.2
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd
14.3
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
14.4
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
14.5
Erindinu er vísað til skipulagsfulltrá til umsagnar.
14.6
Erindið er samþykkt
15. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 263
15.1
Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Erindið þarf að grenndarkynnaByggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
15.2
Mannvirkið á að vera 10 metrum frá lóðamörkum samkvæmt gildandi deiliskipulagi á svæðinu.Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdrættir verði uppfærðir með tilliti til fjarlægðar frá lóðamörkum og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
15.3
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
15.4
Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Erindið þarf að grenndarkynnaByggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
15.5