Umhverfis- og landbúnaðarnefnd

3. fundur

1. september 2026 kl. 08:30 - 15:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Þórður Brynjarsson - aðalmaður
Þorsteinn Eyþórsson - varaformaður
Kristján Ágúst Magnússon - formaður
Jón E. Einarsson - aðalmaður

Starfsmenn

Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi


Dagskrá

1. Umhverfisviðurkenningar 2026
2606217

Farið yfir innsendar tillögur og þeir staðir skoðaðir.

Niðurstöður verða kynntar á fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar í október og verða þá verlaun afhent.



2. Sorpmál 2026
2606216

Farið yfir frekari gögn um bæði möguleika á gámaplönum í dreifbýli sveitarfélagsins og förgun dýraleifa.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að senda inn erindi til Sorpurðunar Vesturlands um mögulegt svæði undir gámaplan að Fíflholtum. Umhverfisfulltrúa er einnig falið að kanna hvaða möguleikar eru fyrir hendi gagnvart svæði í uppsveitum Borgarfjarðar.

Nefndin stefnir á ferð í Skeiða- og Gnúpverjahrepp að skoða nýja brennslu fyrir dýraleifar sem tekinn var í notkun nýlega.



3. Rúlluplast 2026
2602013

Farið yfir stöðu mála gagnvart söfnun á rúlluplasti og rætt um hvernig haga skuli þessum málum áfram.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til að haldið verði óbreyttu fyrirkomulagi á söfnun rúlluplast að svo stöddu.



4. Málefni Fjallskilanefndar Þverárréttar
2608071

Fulltrúar fjallskilanefndar Þverárréttar fóru á fund byggðaráðs. Byggðaráð bókaði eftirfarandi;

"Byggðarráð þakkar fulltrúum Fjallskilanefndar Þverrárréttar fyrir erindið.



Byggðarráð tekur undir að mikilvægt sé að fara vel yfir þessi mál og vísar erindinu til frekari umfjöllunar í umhverfis og landbúnaðarnefnd."

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd þakkar fjallskilanefndar Þverárréttar fyrir erindið. Nefndin leggur til að erindið sem snýr að endurbyggingu hesthús í Gilsbakkaseli verði tekið til umfjöllunar við gerð fjárfestingaráætlunar. Einnig telur nefndin brýnt að fjárhagsstaða fjallskiladeilda verði tekin til skoðunar við gerð fjárhagsáætlana fyrir næsta ár.



Fundi slitið - kl. 15:00