Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum

2. fundur

26. ágúst 2026 kl. 09:00 - 11:00

í stóra fundarsal í Ráðhúsi


Nefndarmenn

Dagný Pétursdóttir - aðalmaður
Valdimar Reynisson - aðalmaður
Friðrik Aspelund - aðalmaður

Starfsmenn

Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi


Dagskrá

1. Verkáætlun umsjónanefndar
2608234

Farið yfir verkáætlun síðasta kjörtímabils og hugmyndir að áætlun þessa kjörtímabils settar niður.

Umsjónanefnd fólkvangsins í Einkunnum felur umhverfisfulltrúa að vinna áætlun þessa kjörtímabils áfram í samræmi við umræður á fundinum. Stefnt að því að klára áætluninna fyrir næsta fund og birta.

Fylgiskjöl


2. Einkunnir - Staða fjárhagsliða 2026 og undirbúningur fjárhagsáætlunar
2608236

Farið yfir fjárhag nefndarinnar og rætt um fjárhagsáætlun næsta árs.

Umsjónanefnd fólkvangsins í Einkunnum óskar eftir að fá fund með byggðaráði í tengslum við vinnu við fjárhags- og fjárfestingaráætlun næsta árs.



3. Einkunnir - staða verkefna 2026
2608237

Farið yfir þau verkefni sem verða unninn á þessu ári.

Nefndin ákveður að bera ofan í og hefla veginn upp í Einkunnir og fá möl í útskot við veginn upp í Einkunnir.

Stefnt að því að fá Skógræktarfélag Borgarfjarðar í gerð umhirðuáætlun fyrir skóginn.

Ákveðið að endurnýja hengirúm í kyrrðarlundi skógarins.



Fundi slitið - kl. 11:00