Velferðarnefnd Borgarbyggðar

1. fundur

18. ágúst 2026 kl. 15:00 - 16:30

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Ragnhildur Eva Jónsdóttir - formaður
Hákon Konráðsson - varaformaður
Svana Hrönn Jóhannsdóttir - aðalmaður
Sonja Lind Eyglóardóttir - aðalmaður
Tinna Rut Þórarinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

Erla Björg Kristjánsdóttir - félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði: Erla Björg Kristjánsdóttir - félagsmálastjóri


Dagskrá

1. Trúnaðarbók 2026
2601286

Lagðar fram afgreiðslur starfsmanna frá síðasta fundi og afgreiddar umsóknir um fjárhagsstyrk.

Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins


Klara Ósk Kristinsdóttir, verkefnastjóri félagsþjónustu sat undir þessum lið.

2. Reglur og gjaldskrár í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
2606048

Lagðar fram reglur og gjaldskrár í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorrdalshrepps.

Lagt fram til kynningar.



3. Fjölskyldunefnd Borgarbyggðar
2409326

Kynning á nýju erindisbréfi fyrir fjölskyldunefnd Borgarbyggðar.

Lagt fram til kynningar nýtt erindisbréf fjölskyldunefndar Borgarbyggðar.



4. Gott að eldast
2311278

Frá því að samstarfsverkefið Gott að eldast hófst, hefur m.a. verið stofnað MOMA teymi, sem er móttöku og matsteymi Borgarbyggðar, Brákarhlíðar og HVE. Markmið er að auka og bæta þjónustu við íbúa sveitarfélaga og tryggja að rétt þjónusta sé veitt af réttum aðilum á réttum tíma. Auk þess að samþætta þjónustu þessara þjónustuaðila og tryggja samvinnu á milli kerfa.



Hluti af verkefninu Gott að eldast er að draga úr félagslegri einangrun. Á síðasta fundi velferðarnefndar var fjallað um að tengiráðgjafi væri nú hættur störfum og ennþá er beðið eftir því að fá niðurstöður úr könnun, þar sem snéri að högum og líðan eldri borgarar í Borgarbyggð.



Samtal hefur átt sér stað við Brákahlíð sem snýr m.a. að aukinni samvinnu í málaflokknum. Ákveðnir möguleikar til aukinnar þjónustu og hagræðingar eru til staðar. Félagsmálastjóri óskar eftir heimild velferðarnefndar til að vinna áfram að því markmiði að samþætta frekar þjónustu í þessum málaflokki og draga úr félagslegri einangrun.



Velferðarnefnd veitir félagsmálastjóra umboð til að undirbúa ákveðnar breytingar er fela í sér aukna samvinnu við Brákarhlíð. Eru slíkar breytingar í takt við hugmyndafræðina sem er að baki Gott að eldast, auk þess sem slíkt mun auka hagræðingu innan málaflokksins.



5. Móttaka nýrra nefndarmanna
2608066

Félagsmálastjóri fer með kynning á hlutverkum nefndarmanna í velferðarnefnd.

Lagt fram til kynningar.



Fundi slitið - kl. 16:30