Umhverfis- og landbúnaðarnefnd
2. fundur
5. ágúst 2026 kl. 08:30 - 11:15
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Þórður Brynjarsson - aðalmaður
Þorsteinn Eyþórsson - varaformaður
Kristján Ágúst Magnússon - formaður
Jón E. Einarsson - aðalmaður
Starfsmenn
Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1. Umsóknir í styrkvegasjóð 2026
2602274
Styrkvegaumsókn 2026
Borgarbyggð hefur fengið úthlutað kr. 4.000.000,- frá Vegagerðarinni vegna styrkvega 2026.
Skorradalshreppur hefur fengið úthlutað kr. 1.000.000,- frá Vegagerðinni vegna styrkvega 2026.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd ákveður að eftirfarandi vegir fái styrk samtals að upphæð 5.000.000 kr. :
Vegur að Seljum /Hjörsey
Hraundalsvegur frá Svarfhóli um Hraundal og að Grímsstöðum (með Múlum)
Vegurinn frá Örnólfsdal og fram á Hvítsíðingaafrétt, að afréttargirðingu
Vegur frá Hítarvatnsvegi að Hítarvatni austanverðu
Vegur inn Grenjadal/Mjóadal
Vegur meðfram Langavatn, að Torfhvalastöðum
Vegur með Skorradalsvatni að sunnan verðu.
2. Umhverfisviðurkenningar 2026
2606217
Farið yfir tilnefningar sem hafa borist til Umhverfisviðurkenninga Borgarbyggðar 2026.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd ákveður að framlengja frest til tilnefninga til 20. ágúst.
3. Sorpmál 2026
2606216
Rætt um hugmyndir að gámaplönum í dreifbýli sveitarfélagsins.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram. Taka þarf málið fyrir í vinnu fjárfestingaráætlunar í haust.
4. Ágengar plöntur
2607095
Guðrún Sigurðjónsdóttir, Anja Mager og Guðbrandur Brynjúlfsson frá félaginu Sól til framtíðar komu til fundar til þess að ræða um hvernig ágengar plöntur eru að breyta ásýnd héraðsins og möguleikum á nýtingu landsins. Einnig var rætt um ýmis önnur mál tengd umhverfisvernd.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd þakkar fulltrúum frá Sól til framtíðar fyrir komuna og að vekja athygli nefndarinnar ýmsum umhverfismálum.
Nefndin stefnir á að vinna heildstæða áætlun fyrir sveitarfélagið til þess að vinna gegn dreyfingu ágengra plantna í héraðinu fyrir sumarið 2027. Markmiðið með þeirri vinnu er koma á samstarfi sveitarfélagisins, íbúa og annnarra stofnanna í málaflokknum.
5. Hreinsunarátök 2026
2602275
Rætt um fyrirkomulag söfnunar brotajárns í dreifbýli haustið 2026.
Umhverfisfulltrúa er falið að senda út verðfyrispurn fyrir söfnun brotajárns í dreifbýli 2026. Stefnt að því að söfnun verði með sama hætti og síðustu ár.
6. Bakvaktir dýralækna í Borgarbyggð
2608004
Rætt um bakvaktir dýralækna í sveitarfélaginu.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd harmar þessa grafalvarlegu stöðu sem upp hefur komið í sveitarfélaginu að ekki séu bakvaktir alla daga. Nefndin óskar eftir að fulltrúi Matvælastofnunar komi á næsta fund og fari yfir málið með nefndinni.
Fundi slitið - kl. 11:15