Dagskrá
1. Dvergholt 8 - Umsókn um stofnun lóða
2605025
Lögð er fram ósk um stofnun á tveimur nýjum lóðum, Dvergholt 4 og Dvergholt 6, úr lóðinni Dvergholt 8 (L135043). Í sömu umsókn er óskað eftir að 191.866 fm landspilda yrði stofnuð og sameinist Galtarholti 3 (L135043). Engin mannvirki eru á lóðunum og ekkert deiliskipulag er á svæðinu.
Dvergholt 4 verður 9775,5 fm.
Dvergholt 6 verður 12.284,7 fm.
Landspildan sem sameinast Galtarholti 3 verður 191.866 fm en stærð jarðarinnar er óskráð.
Dvergholt 8 (L221650) minnkar sem því nemur og verður 13.447,8 fm.
Skiptingin er gerð samkvæmt samkomulagi sem er skjalfest í afsali.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að stofnaðar verði tvær lóðir
9.775,5 fm lóð, Dvergholt 4
12.284,7 fm lóð, Dvergholt 6
og 191.866 fm millispilda sem sameinast Galtarholti 3 úr upprunalandinu Dvergholt 8 (L135043) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðirnar í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðirnar Dvergholt 4, Dvergholt 6 og Dvergholt 8 fara í notkunarflokkinn sumarbústaðalóðir.
2. Laufás land Hjörleifshöfði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2605074
Á 77. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 16. júní 2026 var samþykkt að grenndarkynna fyrirhugað byggingarleyfi á 54,5 m² íbúðarhúsi á lóðinni Hjörleifshöfði í landi Laufás-land í Borgarbyggð (L240818). Grenndarkynnt var fyrir nágrönnum sem hagsmuna eiga að gæta og óskað eftir umsögnum í gegnum skipulagsgátt. Kynningartíminn var frá 18. júní til og með 19. júlí 2026. Allir hagsmunaaðilar skiluðu inn undirrituðu samþykki og er grenndarkynningartíminn því styttur í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3. Lambhagi 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2605007
Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi á einni hæð, 51,5 m² að Lambhaga 2 í Borgarbyggð (L228832). Lóðin er 9460 m². Um er að ræða aðflutt hús sem stendur nú á annari lóð á svæðinu. Fyrir á lóðinni er 94.4 m² sumarhús og 235,8 m² vélageymsla og verður þá heildar nýtingarhlutfall lóðar 0,04. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er á svæði sem skilgreint er sem frístundabyggð í aðalskipulagi (F45).
Skipulagsfulltrúi vísar málinu til skipulags- og byggingarnefndar.
4. Súluklettur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2606079
Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir 241,2 m² steinsteyptu íbúðarhúsi á 2 hæðum að Súlukletti 1 (L189383). Um er að ræða breytingar frá uppdrætti dags. 03.05 2007. Sótt var um byggingarleyfi árið 2007 og það samþykkt á fundi skipulags og byggingarnefndar Borgarbyggðar. Neðri hæð var uppsteypt sama ár. Byggingin er í dag á b-stigi 1. Nýju erindi fylgja uppfærðar teikningar af tvíbýlishúsi. Neðri hæð hússins hefur verið steypt upp samkv. eldri uppdráttum. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er á svæði skilgreint sem íbúðarbyggð (ÍB409) í aðalskipulagi.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið fyrir hagsmunaaðilum í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir eigendum Súlukletts 2,3,4 og 6 og eigendum Svölukletts 2 og 4.
5. Sólbakki 11 - Umsókn um stöðuleyfi
2607024
Lögð er inn umsókn um stöðuleyfi fyrir bráðabirgðar geymslu. Um er að ræða gámatjald sem fest er á milli tveggja gáma. Ætlunin er að setja upp þetta tjald norðan við húsið að Sólbakka 11 (L135803. Mun það ná allt að 15 metrum frá húsinu og verður þá minnst 5 - 6 metrar að lóðarmörkum næstu lóðar. Fyrir á lóðinni er 548 m² iðnaðarhús. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er skilgreind sem iðnaðar- og athafnalóð og er svæðið skilgreint sem iðnaðarsvæði í aðalskipulagi.
Skipulagsfulltrúi vísar málinu til skipulags- og byggingarnefndar.
6. Brekkuland/Skáli 134775 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
2304089
Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu sem tengir saman tvo sumarbústaði og breyta húsinu í einbýlishús á lóðinni Vanaheim í Borgarbyggð (L237771). Húsið verður alls 190 m². Einnig er sótt um að byggja 88 m² bílskúr sunnan við einbýlishúsið. Byggingarmagn verður í heild 278 m². Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði þar sem heimilt er að vera með fasta búsetu. Frekari uppbygging er heimil.
Skipulagsfulltrúi vísar málinu til skipulags- og byggingarnefndar.
7. Borg - umsókn um framkvæmdaleyfi - 135018
2606322
Lögð er fram umsókn Veitna ohf. dags. 30.06.2026 um framkvæmdaleyfi fyrir borun á rannsóknarholu í landi Borgar á Mýrum í Borgarbyggð (L135018), ásamt vegslóðagerðar og frágang borvatns.
Áformað er að bora holu niður á um 800 - 1.200 m dýpi með
það að markmiði að kanna hvort virkt jarðhitakerfi sé til staðar á Borg á Mýrum. Fyrirhuguð rannsóknarhola verður boruð með 40 tonna bor með hjólakrónu. Borinn þarf um
1.500m2 athafnasvæði fyrir borplan og aðbúnað, en að borun lokinni verður umfang athafnasvæði minnkað og efnið endurnýtt við gerð borplana annars staðar.
Leggja þarf slóða að fyrirhugaðri rannsóknarholu með tengingu við þjóðveginn (Snæfellsvegur nr. 54). Þar yrði um að ræða tengingu sem er til staðar inn á túnið og þarf aðeins minni háttar lagfæringar til að hægt sé að nýta hana í verkinu. Efni í slóða og borplan verður um 3.000 m3 og verður fengið úr nærliggjandi námum.
Við borun þarf skolvatn sem ber borsvarf upp úr holunni, kælir borkrónuna og kemur í veg fyrir
að holan gjósi. Skolvatnið verður fengið úr vatnsveitu Borgarbyggðar.
Framkvæmdatími vegna undirbúnings borunar eru 4 vikur og áætlað er að undirbúningur eigi sér stað í ágúst til september 2026 og áætlaður framkvæmdatími borunar er 5 vikur og eru borframkvæmdir áætlaðar í október 2026.
í Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 er svæðið skilgreint sem opið svæði. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.
Fylgigögn umsóknar eru:
Álit Náttúrufræðistofnunar á áhrifum borframkvæmda á fuglalíf.
Áhrifamat á vatnshlot frá VSÓ ráðgjöf.
Umsögn Minjastofnunar Íslands.
Samþykki Vegagerðarinnar fyrir tengingu vegslóða við Snæfelssnesveg.
Skýrsla ÍSOR.
Samþykki landeigenda.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna borunar rannsóknarborholu í landi Borgar á Mýrum með vísan til framlagðra gagna. Aflað hefur verið umsagna lögbundinna umsagnaraðila sem fylgdu umsókninni. Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.
8. Umsókn um breytingu á deiliskipulagi Fjólukl. v Kveldúlfshöfða
2607029
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Fjóluklett við Kveldúlfshöfða. Breytingin tekur til afmörkunar á 103 m² nýrri lóð undir dælustöð fráveitu og þar afmarkaður byggingareitur. Bætt er við texta í greinargerð í samræmi. Breytingin er ekki í ósamræmi við þá byggð sem fyrir er t.d. hvað varðar notkun, nýtingarhlutfall, útlit og form svæðis. Ekki er talið að breytingin varði hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.
Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa.
Uppdráttur dags. 28.05.2026.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. Samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010.
Breytingin á við um svo óveruleg frávik að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og 3. mgr. 44. gr. sömu laga.
9. Breyting á deiliskipulagi - Ugluklettur - leikskólalóð
2606285
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir leikskólalóð í Bjargslandi í Borgarnesi. Breytingin tekur til stækkunar á byggingarreit, hækkunar á nýtingarhlutfalli úr 0,17 í 0,2 og hækkunar á byggingarmagni úr 1404 m² í 1651,2 m². Breytingin er ekki í ósamræmi við þá byggð sem fyrir er t.d. hvað varðar notkun, nýtingarhlutfall, útlit og form svæðis. Ekki er talið að breytingin varði hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa.
Uppdráttur dags. 25.06.2026.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. Samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010.
Breytingin á við um svo óveruleg frávik að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og 3. mgr. 44. gr. sömu laga.
10. Fauskás 3 - umsókn um deiliskipulag - F2334325
2407181
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Fossatún í Borgarbyggð. Breytingin tekur til lóðarinnar Fauskás 3 þar sem ákvæði um mænisstefnu er fellt niður. Aðrir skilmálar deiliskipulagsins haldast óbreyttir. Breytingin er ekki í ósamræmi við þá byggð sem fyrir er t.d. hvað varðar notkun, nýtingarhlutfall, útlit og form svæðis. Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa.
Uppdráttur dags. 10.06.2025.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. Samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynnt verði óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir eigendum Fauskáss 2,4 og 5.