Byggðarráð Borgarbyggðar

3. fundur

2. júlí 2026 kl. 08:15 - 10:15

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson boðaði forföll og Sonja Lind Eyglóardóttir - varamaður sat fundinn í hans stað
Sigurður Guðmundsson - formaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - varaformaður
Jovana Pavlovic boðaði forföll og Hermann B. Valsson - varamaður sat fundinn í hans stað
Haukur Þór Hauksson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri

Í upphafi fundar var samþykkt samhljóða að taka sjö mál inn með afbrigðum, mál nr. 2606323, Stöðugildi á fjölskyldusviði 2027, mál nr. 2104092, Grunnskóli Borgarfjarðar- Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði, mál nr. 2606324 Aðalfundur Þróunarfélags Grundartanga 2026,mál nr. 2511136, Húsnæði frístundar á Hvanneyri, mál nr. 2606139, Tilkynning um breytingar á rekstri landsbyggðarvagna, mál nr.2607008, Eigendanefnd - erindisbréf og kjör fulltrúa 2026 og mál nr.2607015, Fundir byggðarráðs sumar 2026.

Fundargerð ritaði Þórunn Unnur Birgisdóttir


Dagskrá

1. Fjárhagsaðstoð í sveitarfélaginu
2606304

Lagt fram minnisblað fyrrverandi sveitarstjóra vegna stöðu málsins.

Byggðarráð Borgarbyggðar fer þess á leit við félags- og húsnæðismálaráðuneytið að settur verði á fót starfshópur til að fara yfir þá stöðu sem komin er upp í sveitarfélaginu varðandi þá miklu aukningu sem orðið hefur í fjárhagsaðstoð vegna langtímabúsetu flóttafólks frá Úkraínu á Bifröst. Um er að ræða eldra fólk sem ekki hefur náð að safna lífeyrisréttindum á Íslandi og fyrirséð er að mun ekki ná að afla sér annarra tekna en treysta á fjárhagsaðstoð þess sveitarfélags sem þau velja sér búsetu í, ævina á enda.

Lagt er til að auk ráðuneytisins og Borgarbyggðar verði óskað eftir aðkomu Sambands íslenskra Sveitarfélaga og annarra ráðuneyta og stofnanna sem málið varða að mati ráðuneytisins.



Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Samþykkt samhljóða.



2. Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kjör fulltrúa í stjórn Brákarhlíðar.

Mál fellt út af dagskrá



3. Útboð - rotþrær 2026
2606262

Farið yfir samning í Skorradalshrepp um hreinsun rotþróa.

Frestað til næsta fundar.



4. Fjarskiptasamband í Borgarbyggð
2501076

Lagður fram samningur við Mílu um umbætur á fjarskiptarsambandi.

Sveitarstjóra falið að undirrita samninginn.



Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



5. Upplýsingartækniumhverfi vegna sameiningar við Skorradal
2606269

Yfirfærsla upplýsingartækniumhverfis Skorradals yfir í umhverfi Borgarbyggðar

Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna áfram að þeim verkefnum sem fram koma í minnisblaðinu. Þar á meðal verði þeim aðgöngum lokað sem ekki eiga lengur að vera virkir. Sveitarstjóra er falið að óska eftir tilboði frá Advania vegna yfirtöku hýsingar og segja gildandi samningum Skorradalshrepps á sviði upplýsingatækni upp.



Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



6. Verksamningur - Tæknistjóri
2606305

Farið yfir stöðu upplýsingatækniumhverfis Borgarbyggða og framlagður þjónustsamningur um tæknisjóra.

Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að styrkja rekstur upplýsingatækni, netöryggi og upplýsingaöryggi hjá Borgarbyggð. Byggðarráð telur brýnt að fá aðila með sérfræðiþekkingu til að tryggja markvissa forgangsröðun verkefna og skilvirka innleiðingu umbótaverkefna á sviði upplýsingatækni og netöryggis. Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirrita samning við Advanía vegna tæknistjóra.



Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



7. Stöðugildi á fjölskyldusviði 2027
2606323

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs, Hlöðver Gunnarsson, kynnir áætlun um stöðugildi fyrir árið 2027. Áætlunin er liður í undirbúningi fjárhagsáætlunargerðar næsta árs.

Lagt fram til kynningar.



8. Grunnskóli Borgarfjarðar- Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði
2104092

Til umfjöllunar: Framkvæmdir á skólalóð GBF á Kleppjárnsreykjum og tilboð vegna leiktækis fyrir lóðina.

Sveitarstjóra falið að ganga að tilboðinu og koma tækinu fyrir á/við lóð skólans.



Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Samþykkt samhljóða.



9. Aðalfundur Þróunarfélags Grundartanga 2026
2606324

Framlagt boð á aðalfund Þróunarfélags Grundartanga sem fram fer 3. júlí 2026.

Framlagt og er sveitarstjóra og Hermanni B. Valssyni falið að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

Fylgiskjöl


10. Húsnæði frístundar á Hvanneyri.
2511136

Farið yfir þann möguleika að færa færanlega kennslustofu á Kleppjárnsreykjum að Hvanneyri.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að leita annarra leiða til að koma frístund betur fyrir á Hvanneyri. Byggðarráð felur sveitarstjóra að rýma til á lóð skólans á Kleppjárnsreykjum með því að selja færanlega kennslustofu og gám sem notaður var sem fatahengi og salernisaðstaða.



Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



11. Tilkynning um breytingar á rekstri landsbyggðarvagna
2606139

Vegagerðin tilkynnir breytingar á almenningssamgöngum á landsbyggðinni.

Framlagt bréf frá Vegagerðinni um breytingar á almenningssamgögnum á landsbyggðinni. Sveitarstjóra falið að fá nánari upplýsingar um málið hjá Vegagerðinni.

Fylgiskjöl


12. Eigendanefnd - erindisbréf og kjör fulltrúa 2026
2607008

Erindisbréf eigendanefndar framlagt - Erindisbréfið er óbreytt frá því sem samþykkt var í byggðaráðum eigenda 18. desember sl.



Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar, Snorri Hafsteinn Þorkelsson framkvæmdastjóri fjármála og Eiríkur Hjálmarsson sjálfbærnistjóri og Elín Smáradóttir yfirlögfræðingur koma til fundarins undir þessum lið og kynna vinnu eigendanefndar Orkuveitunnar.

Byggðarráð þakkar fyrir gott erindi. Framlagt er erindisbréf eigendanefndar Orkuveitu Reykjavíkur um endurskoðun eigendastefnu o.fl. Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir fyrir sitt leyti að endurnýja umboð eigendanefndarinnar.



Reykjavíkurborg hefur tilnefnd fjóra aðila í nefndina en Akraneskaupstaður og Borgarbyggð tilnefna tvo hvort sveitarfélag fyrir sig.



Byggðarráð tilnefnir Sigurð Guðmundsson og Davíð Sigðursson sem fulltrúa Borgarbyggðar í eigendanefnd Orkuveitunnar.



Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Fylgiskjöl


13. Fundir byggðarráðs sumar 2026
2607015

Lögð fram tillaga um fyrirkomulag funda byggðarráðs Borgarbyggðar í júlí 2026.

Lagt er til að fella niður fundi byggðarráðs Borgarbyggðar þann 9. júlí og 16. júlí. Næsti fundur verði haldinn fimmtudaginn 23. júlí.



Byggðarráð samþykkir eftirfarandi frávik frá hefðbundnum fundum og næsti fundur verði fimmtudaginn 23. júlí



Fundi slitið - kl. 10:15