Umhverfis- og landbúnaðarnefnd
1. fundur
24. júní 2026 kl. 08:30 - 10:30
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Þórður Brynjarsson - aðalmaður
Þorsteinn Eyþórsson - varaformaður
Kristján Ágúst Magnússon - formaður
Jón E. Einarsson - aðalmaður
Starfsmenn
Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1. Erindisbréf umhverfis- og landbúnaðarnefndar
2606219
Gera þarf smávægilegar breytingar á erindisbréfi nefndarinnar.
Umhverfisfulltrúa er falið að breyta texta erindisbréfs umhverfis- og landbúnaðarnefndar í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir byggðarráð, sem hefur nú fullnægðarafgreiðsluvald, til staðfestingar.
2. Umhverfisviðurkenningar 2026
2606217
Undanfarin ár hefur Borgarbyggð veitt umhverfisviðurkenningar til einstaklinga og fyrirtækja.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd óskar eftir tilnefningum til Umhverfisviðurkenninga Borgarbyggðar 2026.
Í ár verða veittar viðurkenningar í eftirfarandi flokkum:
Snyrtilegt bændabýli.
Falleg lóð við íbúðarhúsnæði.
Snyrtileg lóð við atvinnuhúsnæði.
Sérstök viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi.
Samfélagsviðurkenning umhverfis-og landbúnaðarnefndar.
Frestur til að skila tilnefningum er til 4.ágúst 2026. Íbúar eru hvattir til að hafa vakandi auga fyrir umhverfi sínu og senda inn tilnefningar sem heyra undir viðkomandi flokka en einnig annað sem tilefni gæti verið til að veita viðurkenningu.
3. Sorpmál 2026
2606216
Við sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps þarf að huga að samþættingu þjónustu í öllu sveitarfélaginu í heild.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverisfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
4. Útboð - rotþrær 2026
2606262
Bjóða þarf út hreinsun rotþróa í Borgarbyggð fyrir árið 2027. Í Skorradalshreppi er í gildi samningur til ársins 2032 um hreinsun rotþróa.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að segja upp núverandi samningi fyrir Skorradalshrepp en samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 6 mánaða fyrirvara. Nefndin felur umhverfisfulltrúa einnig að undirbúa útboð á rotþróahreinsun fyrir sameinað sveitarfélag Skorradalshrepps og Borgarbyggðar.
5. Snjómokstur í Borgarnesi.
2602276
Lögð fram opnunarskýrsla vegna útboðs á snjómokstri í Borgarnesi.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:30