Dagskrá
1. Leyfisumsókn rallaksturskeppni 2026
2606167
Framlögð beiðni Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur um að fá að halda rallýkeppni innan marka sveitarfélagsins 27.-28. júní 2026 um Uxahryggi og Kaldadal.
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti beiðni Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavikur. Uxahryggir og Kaldidalur gegna mikilvægu hlutverki, ekki síst fyrir ferðaþjónustu í uppsveitum Borgarfjarðar. Byggðarráð leggur áherslu á að lokun verði í lágmarki og vegurinn verði ekki í lakara ástandi að aflokinni keppni.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
2. Staða fjármála sveitarfélagsins á fyrsta ársfjórðungi 2026
2606236
Sigurður Kristjánsson, fjármálastjóri og Kristín Lilja Lárusdóttir, eru gestir fundarins undir þessum lið.
Farið er yfir stöðu fjármála sveitarfélagsins á fyrsta ársfjórungi 2026.
3. Grunnskóli Borgarfjarðar- Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði
2104092
Hönnun á skólalóð við GBF á Kleppjárnsreykjum
Hlynur og Ottó koma til fundarins og fara yfir stöðuna við framkvæmdir á skólahúsnæði á Kleppjárnsreykjum.
Ljóst er að ekki verður byrjað á framkvæmdum við skólalóðina á Kleppjárnsreykjum í sumar. Byggðarráð hefur farið yfir tillögu að teikningu á skólalóðinni. Teikninginn er ekki í samræmi við væntingar Byggðarráðs og auk þess rúmast hún ekki innan fjárheimilda sveitarfélagsins.
Samþykkt að unnið verði áfram að málinu í sumar.
4. Snjómokstur í Borgarnesi.
2602276
Lögð fram opnunarskýrsla vegna útboðs á snjómokstri í Borgarnesi.
Byggðarráð leggur til að valið verði tilboð Sigur-Garðar ehf., kt. 700622-0610, í útboði nr. 2602276: ,, Vetrarþjónusta í Borgarnesi"; í samræmi við valforsendur. Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Sveitastjóra falið að tilkynna bjóðendum valið.
Fylgiskjöl
5. Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011
Kjör fulltrúa í stjórn Gleipnis en aðalfundur fer fram 6. júlí.
Byggðarráð leggur til að Signý Óskarsdóttir verði aðalmaður og Kristján Guðmundsson til vara.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
6. Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011
Kjör fulltrúa í Fjallskilanefnd Brekku- og Svignaskarðréttar.
Byggðarráð leggur til að eftirfarandi fulltrúar verði í Fjallskilanefnd Brekku- og Svignaskarðréttar.
Aðalmenn:
Bergþór Jóhannesson
Halldóra Jónasdóttir
Sigvaldi Jónsson
Þorsteinn Viggósson
Varamenn:
Heiða Dís Fjeldsteð
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
7. Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011
Jovana Pavlovic hefur óskað eftir leyfi frá Byggðarráði frá og með 18. júní til og með 31. júlí.
Byggðarráð samþykkir leyfisbeiðnina
Lagt er til að Hermann B. Valsson komi inn í Byggðarráð sem áheyrnarfulltrúi og Bjarni Bequette varaáheyrnarfulltrúi.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
8. Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
2602005
frammlögð fundargerð 1000. fundar stjórnar Sambandsins frá 9. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl
9. Faxaflóahafnir fundagerðir 2026.
2602034
Framlögð fundargerð 264. fundar stjórnar Faxaflóahafna frá 23.jan 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl
10. Aðalfundur Vélabæjar ehf. 23. júní 2026 kl. 17 í Brún - fundarboð.
2606251
Aðalfundur Vélabæjar, haldinn 23. júní 2026. Staðfesta þarf veitingu umboðs til mætingar á fundinn.
Byggðarráð samþykkir að veita sveitarstjóra heimild til að undirrita umboð vegna aðalfundarins.