Byggðarráð Borgarbyggðar

1. fundur

18. júní 2026 kl. 08:15 - 10:30

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - formaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - varaformaður
Haukur Þór Hauksson - áheyrnarfulltrúi
Hermann B. Valsson - varamaður

Starfsmenn

Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri fræðslusviðs
Fundargerð ritaði: Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri

Í upphafi fundar voru tvö mál sem tekinn voru inn með afbrigðum:

2509087,2606122, og 2601254

Samþykkt samhljóða.

Jovana Pavlovic boðaði forföll og í hennar stað kom Hermann B. Valsson hennar varamaður.

Fundarðgerð ritarði Hlöðver Ingi Gunnarsson


Dagskrá

1. Beiðni eigenda Hæls um að jörðin verði tekinn af afréttarskrá.
2602154

Farið yfir stöðuna á máli vegna beiðna ábúenda Hæls um afsögn úr fjallskiladeild. Logi Sigurðsson umhverfisfulltrúi sat undir þessum lið.

Logi Sigurðursson umhverfisfulltrúi fór yfir stöðu málsins. Sveitarstjóra er falið að fela lögmanni sveitarfélagsins að senda framlagt bréf þar sem erindinu er svarað.



Samþykkt samhljóða



2. Fjarskiptasamband í Borgarbyggð
2501076

Lagt fram samkomulag við innviðaráðuneytið um styrk til bætra fjarskipta í Hítaldal, við Grjótárvatn og nágrenni. Markmið samningsins er að tryggja öruggt og áreiðanlegt fjarskiptasamband á svæðinu eins og aðstæður leyfa og tryggja þannig möguleika á neyðarsímtölum og almennri fjarskiptaþjónustu fyrir notendur.

Byggðaráð samþykkir samning við Innviðaráðuneytið um styrk til bættra fjarskipta í Hítardal. Áætlaður heildarstofnkostnaður sveitarfélagsins vegna samningsins er um 7 m.kr. auk vsk. Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Sveitarstjóra falið að undirrita samninginn og gera viðauka við fjárhagsáætlun.



Samþykkt samhljóða.



3. Brattagata - Gatnaframkvæmdir
2510327

Framlögð opnunarskýrsla og minnisblað starfsmanns vegna útboðs á gatnagerð við Bröttugötu í Borgarnesi.

Framlögð opnunarskýrsla vegna gatnaframkvæmdar við Bröttugötu dags. 5. júní 2026. Alls bárust þrjú tilboð í verkið. Byggðarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Borgarverk ehf. kt. 540674-0279 með þeim fyrirvörum sem fram koma í opnunarskýrlu. Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Samþykkt samhljóða.



Hlynur, Ottó og Sæmundur.

Fylgiskjöl


4. Brattagata - Gatnaframkvæmdir
2510327

Framlögð opnunarskýrsla vegna verðfyrirspurnar á verkeftirliti við Bröttugötu í Borgarnesi.

Framlögð opnunarskýrsla vegna verðfyrirspurnar á verkeftirliti við Bröttugötu dags. 2. júní 2026. Alls barst eitt tilboð. Byggðarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Eflu hf. kt. 621079-0189 með þeim fyrirvörum sem fram koma í opnunarskýrslu. Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Samþykkt samhljóða



Hlynnur,

Fylgiskjöl


5. Áhorfendabrekka við fótboltavöll
2605003

Framlögð hönnunargögn af áhorfendabrekku við íþróttasvæði að Þorsteinsgötu 1-3. Hlynur Ólafsson situr fundinn undir þessum lið.

Framlögð eru hönnunargögn um úrbætur á áhorfendabrekku við íþróttavöllinn í Borgarnesi vegna hæðarmunar sem skapast hefur við vegna breytinga á aðkomuvegi að fjölnota íþróttahúsi. Verkefnið felur í sér landmótun, jarðvegsstuðning með gabion-körfum, bætt aðgengi, leiksvæði, gróður og áhorfendapalla.



Sveitarstjóra falið að gera útboðsgögn og verðfyrirspurn.



Samþykkt samhljóða.



Undir þessum lið sátu, Hlynur, Ottó og Sæmundur.



6. Staða framkvæmda 2026
2606153

Farið yfir stöðu framkvæmda.

Hlynur, Ottó og Sæmundur fóru yfir stöðu framkvæmda í sveitarfélaginu, farið var yfir Knattspyrnuhúsið, framkvæmdir við Grunnskólann í Borgarnesi, frágang og lóðahönnun við Grunnskóla Borgarfjarðar Kleppjárnsreykjadeild, gatnagerð, göngustígagerð, rennibrautir við sundlaugina og framkvæmdir á Uglukletti.



Lagt fram til kynningar.



7. Granastaðir - Umsókn um stöðuleyfi
2606128

Umsækjandi: ÁS rekstur og þjónusta ehf.

Erindi: Sótt er um tímabundið leyfi til að reisa samkomutjald sem verður staðsett í vesturhorni tjaldstæðis. Stærð er áætluð 70m2

Tjaldið mun standa í sumar og verða tekið niður í haust. Áætluð notkun er afdrep fyrir gesti tjaldstæðisins.

Fylgigögn: Rissmynd af fyrirhugaðri staðsetningu

Byggðarráð samþykkir að veita tímabundið stöðuleyfi til 15. september 2026.



Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Samþykkt samhljóða



8. Aðalfundur SSV 2026
2603003

Framlagt boð á aukaaðalfund SSV sem fram 1. júlí 2026.

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl


9. Markaðsefni Borgarbyggðar 2026
2606018

Framlagt tilboð frá markaðstofu í auglýsinga- og markaðsherferð Borgarbyggðar 2026.

Byggðarráð samþykkir framlagt tilboð og felur sveitarstjóra að skrifa undir. Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.



Viktor Ingi Jakobsson Verkefnastjóri upplýsinga og kynningarmála sat fundinn undir þessum lið.



Samþykkt samhljóða.



10. Aðalfundur MHR 2026
2606134

Framlagt fundarboð og fundargögn aðalfundar Miðstöðvar héraðsskjalasafna.

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl


11. Breyting á landnotkun - Hvítárvellir (133886) - Efnistökusvæði
2604243

Lögð er fram vinnslutillaga fyrir breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 í landi Hvítárvalla í Borgarbyggð skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fyrirhugað er að breyta landnotkun svæðis í landi Hvítárvalla úr landbúnaðarland í efnistökusvæði. Markmið breytingarinnar er að heimila allt að 35.000 m³ efnistöku á um 2 ha svæði í Selholti á Heggstaðanesi skammt vestan Grímsár. Í undirbúningi er lagning 19 kV loftlínu í jörð á milli tengivirkis á Vatnshömrum og Ferjubakka undir Hvítá. Stefnt er að því að nýta efni úr landi Hvítárvalla fyrir framkvæmdina þar sem styttra er að sækja efni þar, auk þess sem landeigandi hefur áhuga á að nýta námuna til annarra framkvæmda. Áætlað efnistökusvæði nýtur ekki sérstakrar verndar og engar þekktar minjar eru á svæðinu. Aðkoma að svæðinu er frá Hvítárvallavegi (510) um núverandi slóða sem er á skrá yfir vegi í náttúru Íslands.

Byggðarráð sem fer með fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar samþykkir að auglýsa framlagða vinnslutillögu að Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 til auglýsingar skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


12. Aðalfundur Menntaskóla Borgarfjarðar 2026
2606152

Fundarboð á aðalfund Menntaskóla Borgarfjarðar lagt fram

Lagt fram til kynningar.



Sveitarstjóra falið að mæta til fundarins f.h. sveitarstjórnar.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


13. Úrskurðir örnefnanefndar vegna bæjarnafna í Borgarbyggð
2603187

Úrskurður Örnefnanefndar um bæjarheitin Jötunheim (L237773) og Vanaheim (L237771) var lagður fram á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar þann 16.04.2026.

Örnefnanefnd úrskurðaði að bæjarheitin Jötunheim og Vanaheim eru mynduð án endingar í nefnifalli og því samræmast þau ekki íslenskri málfræði. Nöfnin taka ekki mið af staðháttum og eru ekki í samræmi við íslenska örnefnahefð.

Örnefnanefnd úrskurðaði að sveitarfélagið skyldi sjá til þess að nýjir staðvisar komi í stað heitanna Jötunheim og Vanaheim.

Byggðaráð sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald í leyfi sveitarstjórnar samþykkir bæjarheitin Jötunheimur og Vanaheimur og felur skipulagsfulltrúa að óska samþykktar Örnefnanefndar á heitunum.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


14. Skilaskýrsla undirbúningsstjórnar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
2606047

Skilaskýrsla undirbúningsstjórnar framlögð og farið yfir stöðu á sameiningu sveitarfélaganna.

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl


15. Ferill ráðninga hjá Borgarbyggð
2606161

Farið yfir feril á bak við ráðningar almennt í sveitarfélaginu.

Byggðarráð ítrekar að almennt gildir sú regla að auglýsa skuli störf hjá sveitarfélaginu laus til umsóknar áður en gengið er frá ráðningu. Varðandi stöður í ráðhúsinu gildir sú regla að sveitarstjóri þarf að samþykkja allar ráðningar hvort sem þær eru tímabundnar eða fastar.



Samþykkt samhljóða.



16. Kæra til Úrskurðanefndar um upplýsingamál
2601152

Framlagður úrskurður Úrskurðarnefndar upplýsingamála.

Lagt fram til kynningar og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við niðurstöðu úrskurðarins.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


17. Útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027
2509087

Á 1. fundi sveitarstjórnar var samþykkt að draga útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027 til baka og sveitarstjóra falið að kanna möguleika þess að framlengja núverandi samninga um eitt ár.

Byggðarráð samþykkir að framlengja gildandi samninga um skólaakstur frá 2022 um eitt ár. Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Sveitarstjóra falið að afgreiða málið í samræmi við ákvörðun þessa.



Samþykkt samhljóða.



18. Styrktarsjóður EBÍ-umsóknarfrestur til febrúarloka 2026
2601254

Lagt fram tilboð vegna stiga við Hlíðartúnshúsin.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að hafna tilboðinu.



Samþykkt samhljóða.



Logi Sigurðursson sat undir þessum lið.



19. Oddstaðarétt - Flýting rétta
2606122

Afgreiðsla frá fundi Fjallskilanefndar Oddstaðarétta nr.1; Fjallskilanefnd Oddsstaðaafréttar óskar eftir heimild til að flýta fyrri leit haustið 2026. Fyrri leit verði þriðjudaginn 8. september og fyrri Oddsstaðarétt miðvikudaginn 9. september. Óskað er eftir staðfestingu sveitarstjórnar og að sveitarstjórn leggi tillöguna fyrir stjórn fjallskilaumdæmis Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Skorradalshrepps til ákvörðunar.

Ástæður beiðninnar eru einkum þær að fjárhagslega getur verið mun hagstæðara fyrir bændur að fá fé sitt fyrr heim þar sem töluverður munur er á álagsgreiðslum milli vikna í september. Seinni leitir og réttir haldist óbreyttar.

Byggðaráð samþykkir að vísa beiðni Fjallskilanefndar Oddsstaðaréttar um að flýta fyrri leit haustið 2026 til stjórnar fjallskilaumdæmis Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Skorradalshrepps skv. 48. gr. laga nr. 6/1986, um afréttarmálefni, fjallskil og fl.



Samþykkt samhljóða.



Logi Sigðursson umhverfisfulltrúi sat undir þessum lið.



20. Framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
2510326

Framlagt svarbréf Jöfnunarsjóðs við erindi vegna Bifrastar.

Lagt fram til kynningar. Sveitarstjóra falið að vinna áfram með málið.



21. Framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
2510326

Framlagt svarbréf jöfnunarsjóðs við erindi undirbúningsstjórnar vegna sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.

Lagt fram til kynningar.



22. Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
2602005

Framlögð fundargerð 999. fundar stjórnar Sambandsins frá 28. maí 2026.

Byggðarráð staðfestir fundargerðina. Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 10:30