Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

260. fundur

18. júní 2026 kl. 11:00 - 12:00

á skrifstofu byggingarfulltrúa


Nefndarmenn

Sæmundur Óskarsson - byggingarfulltrúi
Kara Lau Eyjólfsdóttir - verkefnisstjóri

Starfsmenn

Fundargerð ritaði: Sæmundur Óskarsson - Byggingarfulltrúi


Dagskrá

1. Vatnsendahlíð 189 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2606117

Umsækjandi: Ævar Ingólfsson

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir sumarhúsi á einni hæð. Húsið er byggt úr timbri á steyptar undirstöður. Stærð: 99.6m2, mhl-01.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Jón Stefán Einarsson

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.

- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



2. Háafell 134646 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2109195

Umsækjandi: Þorbjörn Oddsson

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi þjónustuhús. Viðbygging verður bárujárnsklædd timburbygging á steyptum sökkli og plötu. Stærð 86.7m2, mhl-13.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Ómar Pétursson

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum



3. Súluklettur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2606079

Umsækjandi: Eðalsteinar ehf.

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir byggingu á 2. hæða steinsteyptu íbúðarhúsi. Mhl-01. Stærð alls 241.2m2

Um er að ræða breytingar frá uppdrætti dags. 03.05 2007.

Sótt var um byggingarleyfi árið 2007 og það samþykkt á fundi skipulags og byggingarnefndar Borgarbyggðar. Neðri hæð (mhl-01) var uppsteypt sama ár. Byggingin (mhl-01) er í dag á b-stigi 1. Nýju erindi fylgja uppfærðar teikningar af tvíbýlishúsi. Neðri hæð hússins hefur verið steypt upp samkv. eldri uppdráttum.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Eggert Guðmundsson

Erindið þarf að grenndarkynna.

Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.

Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum



4. Selás 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2606061

Umsækjandi: Stofnlagnir ehf.

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir frístundahúsi á einni hæð. Stærð: 150.8m2, mhl-01. Húsið er byggt úr timbri á steyptar undirstöður

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Sigurður Hallgrímsson

Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um afgreiðslu í B-deild stjórnartíðinda. og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.

- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



5. Indriðastaðir 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2606148

Umsækjandi: Hilmar Þór Hauksson

Erindi: Sótt er um leyfi til að byggja geymslu á lóðinni Indriðstaðir 36. Fyrirhuguð geymsla sem sótt er um leyfi fyrir verður sambærileg gestahúsinu sem þegar er á lóðinni, hvað varðar uppbyggingu, frágang og útlit.

Stærð:24.8m2, mhl-03.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Auður Hreiðarsdóttir

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Erindið þarf að grenndarkynna



Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.

- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



6. Dagverðarnes 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2606163

Umsækjandi: Kristinn Örn Sverrisson

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir sumarhúsi á einni hæð. Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður.Stærð: 88.6m2, mhl-01.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Samúel Smári Hreggviðsson

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.

- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



7. Granastaðir - Umsókn um stöðuleyfi
2606128

Umsækjandi: ÁS rekstur og þjónusta ehf.

Erindi: Sótt er um tímabundið leyfi til að reisa samkomutjald sem verður staðsett í vesturhorni tjaldstæðis. Stærð er áætluð 70m2.

Tjaldið mun standa í sumar og verða tekið niður í haust. Áætluð notkun er afdrep fyrir gesti tjaldstæðisins.

Fylgigögn: Rissmynd af fyrirhugaðri staðsetningu.

Erindið er samþykkt með fyrirvara um jákvæða umsögn byggðaráðs.

Málsaðili tryggir að tjaldið sé tryggilega frágengið með tilliti til veðurs og vinda.



Fundi slitið - kl. 12:00