Dagskrá
1. Miklaholt 1 - Umsókn um stofnun lóða
2606069
Lögð er fram ósk um stofnun nýrrar lóðar Miklaholt 1 úr landi Miklaholts (L136022) í Borgarbyggð. Engin mannvirki eru á lóðinni. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er 875 fm að stærð og upprunaland minnkar sem því nemur. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði (L3) í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025- 2037.
Aðkoma að nýju fasteigninni er frá Snæfellsnesvegi nr. 54 og Skíðholtsvegi nr. 537.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að stofnuð verði 875 fm lóð, Miklaholt 1,úr upprunalandinu Miklaholt (L136022) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðin fer í notkunarflokkinn iðnaðar- og athafnalóð.
Fylgiskjöl
2. Strýtusel 4 - umsókn um stofnun lóða - L172679
2606092
Lögð er fram ósk um að breyta stærð lóðar Strýtusel 4 (L172679). Engin mannvirki eru á lóðinni. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Stærð lóðar breytist úr 5.500 fm í 6.816,4 fm, eða stækkar um 1.316,4 fm. Stækkunin kemur úr landi Eskiholts 2(L135027) og minnkar upprunalandið sem því nemur. Svæðið er skilgreint sem frístundabyggð í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 (F33).
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að breyta stærð lóðarinnar Strýtusel 4 (L172679) úr 5.500 fm í 6.816,4 fm þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.
Fylgiskjöl
3. Stráskógarbyggð 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2604127
Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við sumarhús að Stráskógarbyggð 1 (L135125) í landi Stóra-fjalls og Túns í Borgarbyggð. Á lóðinni er 27,6 m² sumarhús og er sótt um byggingarleyfi fyrir 113,8 m² viðbyggingu. Sumarhúsið verður eftir stækkun 141,4 m². Deiliskipulag er á svæðinu þar sem heimiluð eru 40-50 m² sumarhús með allt að 10 m² útigeymslu. Hús stærri en 60 m² séu ekki leyfð. Svæðið er skilgreint sem frístundabyggð í aðalskipulagi.
Skipulagsfulltrúi vísar málinu til skipulags- og byggingarnefndar.
4. Sturlureykir 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2601251
Á 75. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 6. maí 2026 var samþykkt að grenndarkynna fyrirhugað byggingarleyfi á þjónustuhúsi með starfsmannaaðstöðu og tveimur íbúðum sem er viðbygging við þjónustuhús sem fyrir er á svæðinu, stærð alls 341 m² að Sturlureykjum 4 (L201093). Grenndarkynnt var fyrir nágrönnum sem hagsmuna eiga að gæta og óskað eftir umsögnum í gegnum skipulagsgátt. Kynningartíminn var frá 7. maí til og með 7. júní 2026. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5. Indriðastaðir 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2606148
Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir 24,8 m² geymslu á lóðinni Indriðastaðir 36 (L134203) í Skorradal. Fyrir á lóðinni er 73,8 m² frístundahús og 24,8 m² gestahús. Lóðin er 2.500 m² og er skráð sem sumarbústaðaland. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem frístundabyggð en ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Í aðalskipulagi er nýtingarhlutfall 0.05 og er þá heimilað byggingarmagn 125 m² en með viðbættri geymslu verður heildarbyggingarmagn á lóð 123,4 m².
Málið var áður tekið fyrir á 204. fundi skipulags- og byggingarnefndar Skorradalshrepps dags. 30.05.2026.
"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að byggingarleyfisumsókn verði grenndarkynnt fyrir Indriðastöðum 28, 29, 30, 35, 37, 46, 47, 48 og landeigendum sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m. s.br. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram."
Sameining Borgarbyggðar og Skorradalshrepps tók gildi 1. júní 2026 og hefur skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps lokið störfum og skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar tekið við. Málið hefur því verið fært inn til afgreiðslu hjá skipulagsfulltrúa Borgarbyggðar.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið fyrir hagsmunaaðilum í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar undirritað samþykki landeiganda hefur verið skilað inn til sveitarfélagsins. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir eigendum Indriðastaða 28, 29, 30, 35, 37, 46, 47 og 48.
Fylgiskjöl
6. Laufás land Hjörleifshöfði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2605074
Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir 54,5 m² íbúðarhúsi á lóðinni Hjörleifshöfði (240818) í landi Laufás-Land í Borgarbyggð. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er á skilgreindu landbúnaðarlandi í flokki IV. Lóðin er skráð sem íbúðarhúsalóð.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið fyrir hagsmunaaðilum í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir eigendum Skjólbrekku, Ánabrekkuland-Selás og Selás 11.
7. Selás 11 - umsókn um deiliskipulag - L177900
2601075
Skipulagsfulltrúi sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum nr. 74 þann 30.04.2026 að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Ánabrekku. Breytingin tekur til lóðarinnar Selás 11 þar sem hámarsksstærð frístundahúss er breytt úr 120m² í 138m². Breytingin er ekki í ósamræmi við þá byggð sem fyrir er t.d. hvað varðar notkun, nýtingarhlutfall, útlit og form svæðis. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir.
Kynnt var frá 30.04-31.05.2026 fyrir nágrönnum og öðrum hagsmunaaðilum í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma. Samþykki landeigenda liggur fyrir.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar Seláss í landi Ánabrekku.
Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.
Breytingin tekur gildi þegar auglýsing hefur verið birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Fylgiskjöl
8. Kveldúlfsgata 28 - umsókn um framkvæmdarleyfi - 135747
2606094
Lögð er fram umsókn Húsfélags Kveldúlfsgötu 24-28 dags. 08.06.2026. um framkvæmdaleyfi til að steypa stétt við bílastæði innan lóðar við Kveldúlfsgötu 28 (L135747). Steypt verður stétt, sambærileg við stétt milli bílastæða Kveldúlfsgötu 26 og 28. Í leiðinni verður komið fyrir rörum til uppsetningar á hleðslustöðvum síðar. Deiliskipulag er á svæðinu.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, metur að umrædd framkvæmd falli ekki undir reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 þar sem um lokafrágang lóðar er um að ræða. Heimild til framkvæmdar verður send málsaðilum þar sem m.a koma fram leiðbeiningar skipulagsfulltrúa.
9. Brattagata - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gatnaframkvæmdir
2606141
Lögð fram umsókn framkvæmdadeildar Borgarbyggðar um framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar á gatnagerð og veitulögnum í Bröttugötu í Borgarnesi. Endurnýjað verður yfirborð götu, bílastæða og gangstétta og gras ásamt beðum þar sem þarf. Lagnir verða endurnýjaðar, fráveitu-, kaldavatns- og hitaveitulagnir ásamt rafveitu. Veitur leggja dreifikerfi hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu samhliða gatnagerð. RARIK leggur lágspennustrengi og jarðvíra í skurði og uppsetningu á tengiskápum. Áætluð verklok eru 30. október 2026.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna endurnýjunar á götu og lögnum í Bröttugötu með vísan til framlagðra gagna. Gætt verður að öryggi vegfarenda á framkvæmdatíma og vinnusvæði vel girt af. Gætt verður að, eins og kostur er, að íbúar hljóti sem minnst ónæði af framkvæmdum og öllu raski verði haldið í lágmarki. Fyrirhuguð framkvæmd hefur verið kynnt íbúum og varðar ekki hagsmuni annarra en þeirra og sveitarfélagsins. Upplýsingum um framkvæmd á framkvæmdatíma verður haldið til haga til hagsmunaaðila eins og um framvindu verksins. Leiðbeiningar og skilyrði varðandi þær framkvæmdir sem sótt er um og eru á valdi skipulagsfulltrúa munu koma fram í framkvæmdaleyfi. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
10. Þorsteinsgata 1-3_Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir jarðvegsrannsóknum
2606142
Lögð er fram umsókn framkvæmdadeildar Borgarbyggðar dags. 15.06.2026 um framkvæmdaleyfi fyrir jarðvegsrannsóknir vegna undirbúnings fyrirhugaðra framkvæmda við Þorsteinsgötu 1-3 vegna fyrirhugaðs parkethúss við núverandi íþróttahús. Gert er ráð fyrir að boraðar verði 7 holur með heildarborvagni Vegagerðarinnar. Borvagninn er af gerðinni GM 100 og er á beltum og vegur um 8 tonn. Borunin er framkvæmd með því að beita samtímis snúnings- og þrýstiborun með 45 mm borstöngum. Mótstaða er skráð sem fall af dýpi og veitir þannig vísbendingar um styrk og eðli jarðlaganna.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdatími sé að hámarki 2 dagar.
Framkvæmdin mun ekki hafa í för með sér hávaða eða titring sem gæti haft áhrif á nágranna. Tilkynning verður sett á heimasíðu Borgarbyggðar íbúum til upplýsingar.
Svæðið er skilgreint sem íþróttasvæði í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037. Deiliskipulag er á svæðinu.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, telur að umrædd framkvæmd sé ekki háð framkvæmdaleyfi, sbr. 4. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Skipulagsfulltrúi áréttar að frekari framkvæmdir innan svæðisins geti verið háðar ákvæðum um framkvæmdaleyfi.
Heimild til framkvæmda verður send málsaðila þar sem m.a koma fram leiðbeiningar skipulagsfulltrúa.