Sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps

2. fundur

11. júní 2026 kl. 16:00 - 16:38

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - aðalmaður
Sonja Lind Eyglóardóttir - aðalmaður
Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Þórður Brynjarsson - aðalmaður
Kristján Ágúst Magnússon - aðalmaður
Jovana Pavlovic - aðalmaður
Hermann B. Valsson - aðalmaður
Haukur Þór Hauksson - aðalmaður

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir - sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu


Dagskrá

1. Sumarleyfi sveitarstjórnar 2026
2606089

Lagt er til við sveitarstjórn að fella niður fund sveitarstjórnar í júlí vegna sumarleyfa. Fyrsti fundur eftir sumarleyfi verði 13. ágúst 2026. Sveitarstjórn samþykkir að nefndir hafi heimild til þess að fella niður fundi í júlí nema nefndarritari og formaður telji ekki unnt að fella niður fund vegna afgreiðslu brýnna mála. Sveitarstjórn samþykkir að byggðarráði verði heimilað að fækka fundum sínum í júlí niður í tvo. Sveitarstjórn samþykkir að veita byggðarráði fullnaðarafgreiðsluvald skv. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga frá og með 12. júní 2026, til og með 12. ágúst 2026.

Sveitarstjórn samþykkir að fella niður fund sveitarstjórnar í júlí vegna sumarleyfa. Fyrsti fundur eftir sumarleyfi verði 13. ágúst 2026. Sveitarstjórn samþykkir að nefndir hafi heimild til þess að fella niður fundi í júlí nema nefndarritari og formaður telji ekki unnt að fella niður fund vegna afgreiðslu brýnna mála. Sveitarstjórn samþykkir að byggðarráði verði heimilað að fækka fundum sínum í júlí niður í tvo. Sveitarstjórn samþykkir að veita byggðarráði fullnaðarafgreiðsluvald skv. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga frá og með 12. júní 2026, til og með 12. ágúst 2026.



Samþykkt samhljóða



2. Nafn sameinaðs sveitarfélags
2606090

Lögð er fram niðurstaða íbúakönnunar sem undirbúningsstjórn um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps framkvæmdi á vormánuðum varðandi hug íbúa á nafni hins sameinaða sveitarfélagas Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Niðurstaðan er eftirfarandi en aðeins eru talin upp þau fimm nöfn sem fengu flest atkvæði.



Borgarbyggð: 382 atkvæði

Borgarfjarðarhérað: 21 atkvæði

Borgarfjörður: 20 atkvæði

Sveitarfélagið Borgarfjörður: 7 atkvæði

Skorradalshreppur: 6 atkvæði



Drög: Sveitarstjórn staðfestir að nafn hins sameinaða sveitarélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps verði Borgarbyggð.



Borgarbyggð er nafn á stóru sameinuðu sveitarfélagi á Vesturlandi sem hefur orðið til í áföngum með sameiningu nokkurra sveitarfélaga. Núverandi sveitarfélag varð til árið 2006 við sameiningu Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps og Kolbeinsstaðarhrepps. Nafnið Borgarbyggð hefur því þróast úr því að vera heiti á einu sveitarfélagi yfir í að vera sameiginlegt heiti stærra svæðis sem nær yfir ólíkar byggðir og samfélög.



Sameining Skorradalshrepps við Borgarbyggð myndi falla að þessari þróun.



Rökin fyrir því að halda nafninu Borgarbyggð eru líka þau að í íbúakönnun kom fram afgerandi stuðningur við það nafn meðal íbúa. Mikill meirihluti þeirra sem tóku afstöðu valdi að sveitarfélagið héldi áfram að heita Borgarbyggð.



Þá myndi nafnabreyting hafa í för með sér umtalsverðan kostnað, bæði vegna breytinga á gögnum, merkingum, kynningarefni og öðrum þáttum stjórnsýslunnar.



Einnig hefur nafnið Borgarbyggð byggt upp sterka ímynd í gegnum árin og er vel þekkt bæði innan sveitarfélagsins og á landsvísu. Mikil vinna og fjármunir hafa verið lagðir í markaðssetningu og kynningu á sveitarfélaginu undir þessu nafni, sem hefur skapað verðmæti sem ekki er sjálfgefið að færist yfir á nýtt nafn.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


3. Samþykktir um stjórn sameinaðs sveitarfélags
2606093

Uppfærðar samþykktir sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps skv. tillögu stjórnar til undirbúnings að sameiningu lagðar fram til fyrri umræðu.

Sveitarstjórn vísar uppfærðum samþykktum sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps til síðari umræðu í sveitarstjórn eða eftir atvikum til byggðarráðs sem fer með fullnaðaafgreiðsluvald til 12. ágúst 2026.





samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


4. Valdheimildir skipulagsfulltrúa sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
2606103

Valdheimildir skipulagsfulltrúa sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.

Allt skipulagssvæði sveitarfélaganna Borgarbyggðar og Skorradalshrepps sem runnu saman við sameiningu sveitarfélaganna 1. júní sl. í sameinað sveitarfélag Borgarbyggðar og Skorradalshrepps heyrir nú undir valdsvið skipulagsfulltrúa hins sameinaða sveitarfélags. Umboð skipulagsfulltrúa Skorradalshrepps er því afturkallað. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að tilkynna um breytinguna til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar sbr. 1. mgr. 7. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.



Samþykkt samhljóða



5. Fundargerðir funda skipulags og byggingarnefndar Skorradalshrepps nr. 203 og 204.
2606102

Fundargerðir skipulags- og byggingarnefndar Skorradalshrepps frá fundum nr. 203 og 204 lagðar fram.

Sveitarstjórn vísar fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar Skorradalshrepps frá fundum 203 og 204 til skipulags og byggingarnefndar sameinað sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorrdalshrepps.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


6. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning í byggingarnefnd íþróttamannvirkja í Borgarnesi:



Lagt er til að eftirfarandi fulltrúar skipi byggingarnefnd íþróttamannvirkja í Borgarnesi:



Aðalmenn: Birgir Heiðar Andrésson, Svana Hrönn Jóhannsdóttir, Hermann B. Valsson, Tinna Rut Þórarinsdóttir og Jón Theódór Jónsson

Varamenn: Sigurður Guðmundsson, Ragnhildur Eva Jónsdóttir, Melkorka Gunnarsdóttir, Hafsteinn Ingi Gunnarsson og Davíð Sigurðsson

Samþykkt samhljóða



Sonja Lind Eyglóardóttir lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd fulltrúa Framsóknarflokksins B-lista í sveitarstjórn: "Til samræmis við vandaða stjórnsýslu legg ég til að eindisbréf allra nefnda, stjórna og starfshópa verði lögð fyrir Byggðarráð til samþykkis í sumar áður en nefndir taka til starfa. Einnig að það verði klárað að vinna erindsbréf allra nefnda sem ekki hafa það nú þegar.

Þannig að þeir aðilar sem koma til starfa fyrir sveitarfélagið hafi fyrir sér á fyrsta fundi útlistun á meginhlutverki sínu fyrir Borgarbyggð og þeim ramma sem þeim ber að starfa eftir sem og reglur um skipan nefnda, fundahald, fundagerðir og starfshætti. Einnig að öll erindisbréf verði aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins."





Til máls tók: SLE



7. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning í Húsnefnd Brúnar



Lagt er til að eftirfarandi fulltrúar skipi Húsnefnd Brúnar:



Aðalmenn: Flemming Jessen, Friðrik Aspelund og Jón Eiríkur Einarsson

Samþykkt samhljóða



8. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning í húsnefnd Lindartungu



Lagt er til að eftirfarandi fulltrúar skipi húsnefnd Lindartungu:



Aðalmenn: Guðmundur Margeir Skúlason, Stefanía Hulda Þórðardóttir og Karen Gestsdóttir

Samþykkt samhljóða



9. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning í húsnefnd Þinghamars



Lagt er til að eftirfarandi fulltrúar skipi húsnefnd Þinghamars:



Aðalmenn: Brynjólfur Guðmundsson, Hrefna Bryndís Jónsdóttir, Sigbjörn Björnsson

Samþykkt samhljóða



10. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa í stjórn Brákarhlíðar



Lagt er til eftirfarandi fulltrúa í stjórn Brákarhlíðar



Aðalmenn: Sigrún Ólafsdóttir, Sólveig Hallsteinsdóttir, Helena Rós Helgadóttir og Sonja Lind Eyglóardóttir



Varamenn: Sigurður Guðmundsson, Magnús Smári Snorrason, Tinna Rut Þórarinsdóttir og Guðdís Jónsdóttir

Samþykkt samhljóða



11. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

kosning fulltrúa í stjórn Faxaflóahafna



Lagt til að fulltrúar í stjórn Faxaflóahafna verði:



Aðalmaður: Páll S. Brynjarsson

Varsmaður: Hrafnhildur Tryggvadóttir

Samþykkt samhljóða



12. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning í stjórn fólksvangsins Einkunnir



Lagt er til að fulltrúar í stjórn fólksvangsins Einkunnir verði:



Aðalmenn: Friðrik Aspelund, Dagný Pétursdóttir og Valdimar Reynisson.

Varamenn: Sigursteinn Sigurðsson, Ása Erlingsdóttir og Ásdís Helga Bjarnadóttir.

Samþykkt samhljóða



13. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning í stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar



Lagt er til að fulltrúar í stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar verði:



Aðalmenn: Flosi H. Sigurðsson, Inga Dóra Halldórsdóttir, Guðrún Vala Elísdóttir Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson og Þórður Brynjarsson,



Varamenn: Bjarni Rúnar Bequette, Eðvar Ólafur Traustason, Sigurður Guðmundsson, Hrefna Bryndís Jónsdóttir og Helena Rós Helgadóttir

Samþykkt samhljóða



14. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa í stjórn Nemendagarða HSES (MB)



Framlögð tillaga um skipun í stjórn Nemendagarða HSES (MB):



Aðalmaður: Sigurður Guðmundsson

Samþykkt samhljóða



15. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Nemendagarða HSES (MB)



Lagt er til að eftirfarandi fulltrúar sitji í fulltrúaráði Nemendagarða HSES:



Aðalmenn: Ragnhildur Eva Jónsdóttir, Kristján Ágúst Magnússon, Jovana Pavolovic, Davíð Sigurðsson og Haukur Þór Hauksson

Samþykkt samhljóða



16. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur



Lagt er til að fulltrúi í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur verði:



Aðalmaður: Sigurður Guðmundsson

Varamaður: Ragnhildur Eva Jónsdóttir

Samþykkt samhljóða



17. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa í stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi



Lagt er til að eftirfarandi fulltrúar skipi stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi:



Aðalmenn: Sigurður Guðmundsson og Haukur Þór Hauksson

Varamenn: Jovana Pavlovic og Sonja Lind Eyglóardóttir

Samþykkt samhljóða



18. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa í stjórn Landbúnaðarsafns Íslands



Lagt er til að fulltrúi í stjórn Landbúnaðarsafns Íslands verði:



Aðalmaður: Melkorka Gunnarsdóttir

Varamaður: Hermann B. Valsson

Samþykkt samhljóða



19. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa í stjórn Þróunarfélags Grundartanga



Lagt er til að fulltrúi í stjórn Þróunarfélags Grundartanga verði:



Aðalmaður: Hermann B. Valsson

Varamaður: Sigurður Guðmundsson

Samþykkt samhljóða



20. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa í Almannavarnarnefnd Vesturlands



Lagt er til að fulltrúi í Almannavarnarnefnd Vesturlands verði:



Aðalmaður: Unnur Brá Konráðsdóttir

Samþykkt samhljóða



21. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi



Lagt er til að eftirfarandi fulltrúar fari á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi:



Aðalmenn: Jovana Pavlovic, Ragnhildur Eva Jónsdóttir, Hermann B. Valsson, Sonja Lind Eyglóardóttir og Þórður Brynjarsson



Varmaenn: Kristján Ágúst Magnússon, Birgir H. Andrésson, Guðrún Vala Elísdóttir, Davíð Sigurðsson og Þuríður Geirdal

Samþykkt samhljóða



22. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa á Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga



Lagt er til að fulltrúar á Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verði:



Aðalmenn: Sigurður Guðmundsson, Jovana Pavlovic og Davíð Sigurðsson



Varamenn: Ragnhildur Eva Jónsdóttir, Hermann B. Valsson, Haukur Þór Hauksson

Samþykkt samhljóða



23. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands.



Lagt er til að fulltrúi í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands verði:



Aðalmaður: Sigurður Kristjánsson fjármálastjóri

Samþykkt samhljóða



24. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands



Lagt er til að fulltrúar í fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands:



Aðalmenn: Bjarni Bequette og Margrét Helga Guðmundsdóttir

Varamenn: Sumarliði Sigurbergsson og Guðríður Hlíf Sigfússdóttir

Samþykkt samhljóða



25. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning fulltrúa í Heilbrigðisnefnd Vesturlands



Lagt er til að fulltrúar í heilbrigðisnefnd Vesturlands verði:



Aðalmaður: Sigrún Ólafsdóttir

Varmaður: Kristján Ágúst Magnússon

Samþykkt samhljóða



26. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning í stjórn fjallskilaumdæmis Borgarbyggðar, Skorradalshrepps, Hvalfjarðarsveitar og Akraness.



Lagt er til að fulltrúar í stjórn fjallskilaumdæmis Borgarbyggðar, Skorradalshrepss, Hvalfjarðarsveitar og Akraness verði:



Aðalmenn: Ingimundur Jónsson, Gísli Guðjónsson og Jón Eiríkur Einarsson

Samþykkt samhljóða



27. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning yfirkjörstjórnar



Lagt er til að fulltrúar í yfirkjörstjórn verði:



Aðalmenn: Finnbogi Rögnvaldsson, Sóley Sigurþórsdóttir og Ólafur Pálsson

Varmenn: Nanna Níelsdóttir, Ingibjörg Jónasdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir



Samþykkt samhljóða



28. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning í undirkjörstjórn Borgarneskjördeildar



Lagt er til að fulltrúar í undirkjörstjórn Borgarneskjördeildar verði:



Aðalmenn: Einar G. Pálsson, Kristján Jóhannes Pétursson og Sigrún Halla Gísladóttir

Varamenn: Eygló Lind Egilsdóttir, Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir og Sölvi Gylfason

Samþykkt samhljóða



29. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning í undirkjörstjórn Kleppjárnsreykjakjördeildar



Lagt er til að fulltrúar í undirkjörstjórn Kleppjárnsreykjakjördeildar verði:



Aðalmenn: Kolbrún Sveinsdóttir, Ólöf Guðmundsdóttir og Elísabet Halldórsdóttir

Varamenn: Fjölnir Jónsson, Guðrún María Björnsdóttir og Álfheiður Sverrisdóttir

Samþykkt samhljóða



30. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning í undirkjörstjórn Skorradalskjördeildar



Lagt er til að eftirfarandi fulltrúar verði skipaðir inn í undirkjörstjórn Skorradalskjördeildar:



Aðalmenn: Davíð Pétursson, Ástríður Guðmundsdóttir og Sigrún Guttormsdóttir Þormar



Varamenn: Gunnar Rögnvaldsson, Óli Rúnar Ástþórsson og Kristín Jónsdóttir

Samþykkt samhljóða



31. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning í undirkjörstjórn Lindartungukjördeildar



Lagt er til að fulltrúar í Lindartungukjördeild verði:



Aðalmenn: Aðalheiður Pálsdóttir, Sigríður Jóna Sigurðardóttir og Ásbjörn Pálsson

Varamenn: Jóhannes Jónasson, Stefanía Hulda Þórðardóttir og Guðmundur Marteinn Skúlason

Samþykkt samhljóða



32. Kosningar í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011

Kosning í undirkjörstjórn Þinghamarskjördeildar



Lagt er til að fulltrúar í Þinghamarskjördeild verði:



Aðalmenn: Brynjólfur Guðmundsson, Erla Gunnlaugsdóttir og Guðmundur Finnsson

Varamenn: Gróa Erla Rögnvaldsdóttir, Hrefna Bryndís Jónsdóttir og Sigbjörn Björnsson

Samþykkt samhljóða



33. Frumvarp til laga um lagareldi
2601242

Lögð að nýju fram drög að frumvarpi til laga um lagareldi.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir áhyggjum af því að við smíði frumvarps Hönnu Katrínar Friðrikssson atvinnuvegaráðherra til laga um lagareldi og meðferð þess á Alþingi virðist sem hagsmunir veiðiréttarhafa og þeirra samfélaga víða um land sem byggja afkomu sína meðal annars á tekjum af sjálfbærri nýtingu villtra laxastofna hafi ekki verið teknir til fullnægjandi skoðunar.

Í sveitarfélaginu eru margar af mikilvægustu og gjöfulustu lax- og silungsveiðiám landsins. Leigutekjur af veiðihlunnindum á svæðinu nema um 850 milljónum króna á ári, en þær tekjur renna að langmestu leyti til bænda og landeigenda og eru mikilvæg undirstaða í afkomu margra heimila. Verðmætasköpun í tengslum við slíkar veiðar er þó mun umfangsmeiri en þessar tölur gefa til kynna. Hún verður til í formi sölu veiðileyfa, reksturs veiðihúsa, gistingar, veitinga, leiðsagnar, flutninga og annarrar þjónustu. Starfsemi tengd slíkum veiðum skapar atvinnu og verðmæti í byggðarlögum um land allt þar sem aðrir atvinnumöguleikar eru oft takmarkaðir.

Alþjóðlegar rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á að villtir laxastofnar standa víða höllum fæti vegna samverkandi áhrifa loftslagsbreytinga, eyðingar og raski á búsvæðum, mengunar og erfðablöndunar frá eldislaxi. Í tilfelli Íslands er eldislaxinn af norskum uppruna og því enn ólíkari íslenskum stofnum. Þessar ógnir geta dregið úr viðnámsþrótti stofna, raskað erfðafræðilegri sérstöðu þeirra og haft neikvæð áhrif á langtímalifun þeirra.

Villtir laxastofnar eru órjúfanlegur hluti af líffræðilegri fjölbreytni Íslands og gegna mikilvægu hlutverki í vistkerfum landsins. Laxinn telst mikilvæg erfðaauðlind þjóðarinnar sem hefur þróast í íslenskum vatnakerfum frá lokum ísaldar og hefur einstakt náttúru- og verndargildi. Verndun laxastofna hérlendis er ekki síður mikilvægt í ljósi þess að stofnar Atlantshafslax standa víða höllum fæti á útbreiðslusvæði sínu í öðrum löndum.

Vernd slíkra auðlinda er ekki einungis náttúruverndarmál heldur einnig samfélagslegt, menningarlegt og efnahagslegt hagsmunamál. Rof á líffræðilegri fjölbreytni getur haft ófyrirsjáanleg og óafturkræf áhrif á getu vistkerfa til að viðhalda þeim náttúrugæðum, auðlindum og lífsskilyrðum sem samfélagið reiðir sig á. Slík áhrif geta komið niður á sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda, ferðaþjónustu, atvinnusköpun og lífsgæðum komandi kynslóða.

Ísland hefur með aðild sinni að alþjóðlegum samningum um vernd líffræðilegrar fjölbreytni skuldbundið sig til að standa vörð um vistkerfi, tegundir og líffræðilega fjölbreytni. Að mati sveitarstjórnarinnar verður því að gæta sérstakrar varúðar við lagasetningu og ákvarðanatöku sem kann að hafa áhrif á villta laxastofna, erfðafræðilega sérstöðu þeirra og þá líffræðilegu fjölbreytni hérlendis sem þeir eru órjúfanlegur hluti af.

Verðmæti villtra laxastofna verða ekki að fullu mæld í krónum og aurum. Þeir eru órjúfanlegur hluti af ímynd Íslands sem lands hreinnar náttúru, ósnortinna vatnakerfa og sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda. Sú ímynd hefur um áratugaskeið verið mikilvægur þáttur í aðdráttarafli Íslands fyrir ferðamenn og veiðimenn víða að úr heiminum.

Með lögfestingu frumvarpsins fengju fyrirtæki í sjókvíaeldi að mati sveitarstjórnar allt of rúmt svigrúm[GG1.1] til athafna á kostnað hagsmuna veiðifélaga, landeigenda og þeirra byggða sem byggja[GG2.1] á sjálfbærri nýtingu villtra laxastofna.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar leggur áherslu á að sveitarfélagið hefur verulegra hagsmuna að gæta af því að veiðar á villtum laxastofnum og afleidd starfsemi verði ekki fyrir skaða af þeim breytingum sem frumvarp um lagareldi felur í sér. Sveitarstjórnin hvetur Alþingi því til að tryggja að hagsmunir villtra laxastofna, veiðiréttarhafa og þeirra samfélaga víða um land sem byggja afkomu sína meðal annars á tekjum af sjálfbærri nýtingu villtra laxastofna verði teknir til fullnægjandi skoðunar við frekari meðferð málsins.



Til máls tók: SLE



Samþykkt með 8 atkvæðum: SG, JP, HBV, REJ, KÁM, DS, HÞH og ÞB

Sat hjá SLE



Fundi slitið - kl. 16:38