Byggðarráð Borgarbyggðar

745. fundur

28. maí 2026 kl. 08:15 - 09:15

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Guðveig Eyglóardóttir - varaformaður
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri


Dagskrá

1. Útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027
2509087

Nú stendur yfir útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027. Á fundi byggðarráðs nr. 744 var sveitarstjóra falið að kanna hvort mögulegt væri að gera breytingu á útboðsgögnum í samræmi við umræðu á þeim fundi. Farið yfir stöðu málsins.

Til fundarins undir þessum dagskrárlið kom Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs. Lagt fram minnisblað með kostnaðaráætlun vegna skólaaksturs 2026-2029 og drög að svörum við frekari spurningum sem borist hafa á útboðstíma. Byggðarráð felur sveitarstjóra að skila inn svörum við fyrirspurnum við útboðsgögn.



Samþykkt samhljóða.



2. Samstarf Gömlu sporanna og Byggðasafns Borgarfjarðar
2605228

Framlögð drög að viljayfirlýsingu um samstarf milli Gömlu sporanna SES og Byggðasafns Borgarfjarðar á sviði miðlunar, skráningar og menningararfs í samhengi við Húsafell.

Byggðarráð sem fer með yfirstjórn menningarmála í Borgarbyggð samþykkir framlagða viljayfirlýsingu og að hún verði undirrituð fyrir hönd sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


3. Melabraut á Hvanneyri - staða og skipulag
2510125

Farið yfir stöðu samtals milli Borgarbyggðar og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri um þróun Melabrautar og samnings milli aðila um leigu á landi á Hvanneyri.

Við sunnanverða Melabraut á Hvanneyri hefur Borgarbyggð skipulagt atvinnusvæði með 21 lóð og uppbygging hafin. Landið er í eigu Landbúnaðarháskólans en Borgarbyggð er með það á leigu á grundvelli samnings milli aðila dags. 22. maí 2019 um leigu á landi Hvanneyrar til Borgabyggðar. Nú standa yfir endurbætur á Melabraut sem gert er ráð fyrir að ljúki í sumar. Fulltrúar úr sveitarstjórn Borgarbyggðar og sveitarstjóri hafa kynnt fyrir Landbúnaðarháskólanum hugmyndir um að sex lóðir norðan megin við Melabraut verði einnig færðar undir leigusamning aðila ásamt götunni og þar verði einnig skipulagðar atvinnulóðir. Byggðarráð tekur vel í þá tillögu enda henta lóðirnar vel til atvinnuppbyggingar og mynda góða samfellu með annarri atvinnuppbyggingu við Melabraut. Byggðarráð bindur vonir við jákvæð viðbrögð frá Landbúnaðarháskólanum og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.



Samþykkt samhljóða.



4. Kosning í fulltrúaráð EBÍ
2605218

Framlagt bréf frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands aðildarsveitarfélaga er varðar nýlegar breytingar á samþykktum félagsins.

Framlagt. Byggðarráð telur breytingar á samþykktum Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands ekki gefa tilefni til að gera breytingar á samþykktum um stjórn Borgarbyggðar.

Fylgiskjöl


5. Aðalfundur Faxaflóahafna sf. 2026
2605219

Framlagt boð á aðalfund Faxaflóahafna 2026. Einnig lagður fram ársreikningur félagsins 2025 og önnur fundargögn.

Framlagt og sveitarstjóra eða staðgengli hans falið að mæta á fundinn fyrir hönd Borgarbyggðar.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


6. Boð um þátttöku í samráði Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum
2605220

Framlagt til umsagnar í Samráðsgátt áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga).

Framlagt og sveitarstjóra falið að taka saman drög að umsögn.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


7. Tekjuáætlun Borgarbyggðar 2026
2605239

Yfirferð um þróun og forsendur tekjuliða í fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026.

Eins og fram kom í afgreiðslu frá fundi byggðarráðs nr. 739 er útlit fyrir að framlög Jöfnunarsjóðs til Borgarbyggðar gætu orðið allt að 280 m.kr. lægri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2026. Hér er þó ekki tekið tillit til sameiningarframlaga í kjölfar sameiningar Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Á móti er útlit fyrir að útsvar ársins verði hærra en áætlun gerði ráð fyrir. Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna viðauka við fjárhagsáætlun ársins m.t.t. þessa og vísa til nýrrar sveitarstjórnar. Þá er eðlilegt að endurskoða reglulega áætlun um fjárhagsaðstoð vegna flóttafólks og endurgreiðslur ríkissjóðs vegna hennar.

Í byrjun árs 2026 tóku gildi lög nr. 56/2025 sem eru fyrstu heildarlögin um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og jafnframt var tekið í notkun nýtt úthlutunarlíkan. Fyrsta áætlun um framlag til Borgarbyggðar felur í sér að annað árið í röð standa framlög sjóðsins að nafnvirði nánast í stað þvert á áhrifamat laganna og þvert á áætlaða úthlutun til sambærilegra sveitarfélaga. Af öllum sveitarfélögum landsins virðist Borgarbyggð koma verst út ef borin er saman áætlun um framlög nú og áhrifamat nýju laganna frá því sumarið 2025. Kjarni nýrra laga er að styðja við þróun sveitarfélagsstigsins m.a. með auknum framlögum til víðfeðmra fjölkjarna sveitarfélaga en það virðist ekki vera raunin í tilviki Borgarbyggðar árið 2026. Óskað hefur verið eftir nánari skýringum frá Jöfnunarsjóði.



Samþykkt samhljóða.



Sigurður Kristjánsson fjármálastjóri, Kristín Lilja Lárusdótti aðalbókari og Eiríkur Ólafsson verkefnastjóri sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.



Fundi slitið - kl. 09:15