Fundargerð
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
259. fundur
26. maí 2026 kl. 14:00 - 15:00
á skrifstofu byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Mýrarvegur 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir stækkun á núverandi sumarhúsi. Mhl-01. Stækkun alls 19.6m2.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Jón Friðrik Matthíasson
Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
2. Ásendi 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir byggingu á nýrri herbergjaálmu við Hótel Húsafell með 12 nýjum herbergjum. Álmunni sem þessi umsókn tekur til er bætt við hótelið gegnum núverandi tengigang. Álman liggur með landinu út frá núverandi byggingu til norðvesturs. 48 herbergi eru á hótelinu í dag og fjölgar þessi viðbygging hótelherbergjum um 12. Hótelherbergin verða þá alls 60 talsins. Um er að ræða timburbyggingu á steyptar undirstöður. Stærð 648m2. Mhl-01.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Axel Kaaber
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum
3. Laufás land Hjörleifshöfði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir sumarhúsi á einni hæð. stærð: 54.5m2. Mhl-01. Húsið er innflutt einingahús sem er reist á steyptar undirstöður
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Kristján Georg Leifsson
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
Lagfæra þarf lítillega innsend hönnunargögn
4. Múlabyggð 35 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir gestahúsi á einni hæð. Mhl-02. Stærð 52.7m2. Húsið er byggt úr timbri á steyptar undirstöður
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Ríkharður Oddsson
Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
5. Stráskógarbyggð 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir stækkun á núverandi sumarhúsi. Mhl-01. Stækkun alls 113,8m2. Byggt úr timbri á steyptar undirstöður.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Páll Poulsen
Erindinu er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
6. Stafholtsveggir II - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir að breyta núverandi hlöðu í 6 starfsmannaíbúðir. Um er að ræða breytingar á núverandi hlöðu, matshluta-01, sem innréttaður er fyrir gistingu. Matshlutinn er 255,3 m² og í honum verða 6 gistiherbergi ásamt starfsmannaaðstöðu og lagnarými.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður:Svavar M Sigurjónsson
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
7. Kolflöt 2 - Umsókn um stöðuleyfi
Erindi: Sótt er um stöðuleyfi fyrir 20 ft. gámi.
Fyrirhuguð notkun: Geymsla
Gámurinn er staðsettur á lóðinni Kolflöt 2 L134709.
8. Lambhagi 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er leyfi fyrir sumarhúsi á einni hæð. Stærð 51.5m2. Mhl-03. Um er að ræða aðflutt hús sem stendur nú á annari lóð á svæðinu.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður:Sveinn Ívarsson
Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
9. Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Ásendi 9
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir að reisa einnar hæðar timburhús, gestahús,(25,3m2) mhl-02, á grunni eldra húss sem verður rifið. Jafnframt er sótt um heimild til niðurrifs á núverandi gestahúsi sem er 15,7m2 (mhl-01).
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Magnús H Ólafsson
10. Mýrar 134435 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir breytingu á núverandi íbúðarhúsi í gistiheimili. Íbúðarhúsi er breytt í gistihús með 8 herbergjum m. snyrtingu, auk tveggja salerna og tveggja sturturýma og geymslu.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Gunnlaugur Johnson.
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.