Dagskrá
1. Hraunbær II - Umsókn um stofnun lóða
2603099
Lögð er fram ósk um breytta afmörkun milli Hraunbæjar (L186680) og Hraunbæjar II (L217814). Stærð lóða breytist ekki. Aðkoma er af Vesturlandsvegi (1). Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að afmörkun breytist á milli Hraunbæjar (L186680) og Hraunbæjar II (L217814) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins með fyrirvara um að eigendur aðliggjandi lóðar undirriti merkjalýsingu þessa.
Fylgiskjöl
2. Litla Brekka - Kvíaholt - Umsókn um stofnun lóða
2605028
Lögð er fram ósk lóðarhafa Litla-Brekka Kvíaholt (L201367) í Borgarbyggð um að breyta stærð lóðar úr 1,9 ha í 4 ha. Stækkunin verður tekin úr aðliggjandi jörð, Litla-Brekka (L135063). Upprunaland minnkar sem því nemur en stærð jarðarinnar er óskráð. Aðkoma að lóðinni er af Snæfellsnesvegi (54) og um Ánabrekkuveg (5336). Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að breyta stærð lóðar Litla-Brekka Kvíaholt(L201367) úr 1,9 ha í 4 ha þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.
Fylgiskjöl
3. Hreimsstaðir - umsókn um stofnun lóða - 134810
2604089
Lögð er fram ósk um stofnun nýrrar lóðar Stekkjardalur úr landi Hreimsstaða (L134810) í Borgarbyggð. Engin mannvirki eru á lóðinni. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er 2.700 fm að stærð og minnkar upprunaland sem því nemur. Svæðið er skilgreint landbúnaðarland í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 (L7) og er stofnun lóðarinnar í samræmi við skilmála landbúnaðarlands. Aðkoma að lóðinni er aflagður þjóðvegur nr. 1.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að stofnuð verði 2.700 fm lóð, Stekkjardalur,úr upprunalandinu Hreimsstaðir (L134810) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðin fer í notkunarflokkinn sumarbústaðalóð.
Fylgiskjöl
4. Skjólabyggð 1 - umsókn um stofnun lóða - L212994
2604250
Lögð er fram ósk um afmörkun og breyta stærð lóðar Skjólabyggð 1 (L212994). Tvö mannvirki eru á lóðinni, sumarbústaður og geymsla. Deiliskipulag er á svæðinu en þessi lóð er á svæði sem er tilgreint sem mögulega til afnota síðar. Stærð lóðar breytist úr 18.300 fm í 26.295,3 fm. Stækkunin kemur úr landi Túns L135170 og minnkar landið sem því nemur en stærð þess er óskráð.
Skipulagsfulltrúi vísar málinu til skipulags- og byggingarnefndar.
5. Þrúðarsel - umsókn um stofnun lóða - L197245
2604095
Lögð er fram ósk um stofnun nýrrar lóðar Sobbasel úr landi Þrúðarsels (L197245) í Borgarbyggð. Á lóðinni er sumarbústaður en flyst ekki á ný stofnaða lóð. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Lóðin er 6.552,4 fm og er svæðið skilgreint sem frístundabyggð í aðalskipulagi (F60). Þrúðarsel minnkar sem því nemur og verður 6.834,1 fm. Á lóðinni sem á að stofna er óskráð hús sem stendur til að skrá.
Skipulagsfulltrúi vísar málinu til skipulags- og byggingarnefndar.
6. Norðurland 2 - umsókn um framkvæmdarleyfi - 217557
2509202
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna vegtengingar af Ferjubakkavegi (530) inn á lóðina Norðurland 2 (L217557). Afleggjarinn verður malarvegur með burðarlagi úr grófri möl. Afleggjarinn fer yfir skurð við hlið Ferjubakkavegar. Skurðurinn er nær vatnslaus en ræsi, 30 cm í þvermál verður sett í bortn skurðar. Engin mannvirki eru á svæðinu. Lóðin er skilgreind sem annað land.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna vegtengingar með vísan til framlagðra gagna. Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda en skipulagsfulltrúi óskar eftir samþykki Vegagerðarinnar. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010
Fylgiskjöl
7. Fróðastaðir - umsókn um framkvæmdarleyfi - 134640
2605043
Lögð er fram umsókn Vegagerðarinnar dags. 08.05.2026 um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku úr námu (E250) í landi Fróðastaða (L134640). Áætluð efnistaka er 4.000 m3 af efni til malarslitlagsframleiðslu en frekari efnistaka er möguleg í samráði við landeiganda. Endanlegt magn er áætlun og getur því orðið bæði meira eða minna en það sem tilgreint er. Efnistakan mun fara fram árið 2027. Landeigandi heimilar Vegagerðinni jafnframt að vinna efnið í námunni með mölun/hörpun og geymslu á efninu að vinnslu lokinni í allt að 4 ár með möguleika á framlenginu. Svæðið er skilgreint sem efnistökusvæði í aðalskipulagi (E250). Undirritað samþykki landeiganda liggur fyrir.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að taka til afgreiðslu framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku úr námu (E250) í landi Fróðastaða að undangenginni grenndarkynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga 123/2010. Kynnt verður fyrir hagsmunaaðilum og óskað umsagna í gegnum skipulagsgátt.
Fylgiskjöl
8. Eskiholtsneið - umsókn um framkvæmdarleyfi - L229353
2605129
Lögð er fram umsókn Vegagerðarinnar dags. 20.05.2026 um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku úr námu (E259) í landi Eskiholts/Eskiholtssneiðar (L229353). Áætluð efnistaka er 8.000 m3. Náman er storkubergsnáma og verður efnið losað með sprengingu og unnið í námunni. Að efnistöku lokinni verður frágangi hagað í samráði við námurétthafa. Framkvæmdatími er 2026-2027. Svæðið er skilgreint sem efnistökusvæði í aðalskipulagi (E259). Undirritað samþykki landeiganda liggur fyrir.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að taka til afgreiðslu framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku úr námu (E259) í landi Eskilholts/Eskiholtssneið að undangenginni grenndarkynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga 123/2010. Kynnt verður fyrir hagsmunaaðilum og óskað umsagna í gegnum skipulagsgátt.
Fylgiskjöl
9. Umsókn um breytingu á deiliskipulagi - Niðurskógur 1
2603175
Skipulagsfulltrúi sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum nr. 73 þann 9. apríl 2026 að grenndarkynna tillögu óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Niðurskóga í landi Húsafells III fyrir lóðina Niðurskógar 1. Breytingin felst í því að byggingarreitur er stækkaður úr 15x15 m í 15x25 m og verður hann þá 375 m². Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir.
Kynnt var frá 10.04.2026-11.05.2026 fyrir nágrönnum og öðrum hagsmunaaðilum í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi Niðurskóga í landi Húsafells III fyrir lóðina Niðurskógar 1.
Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.
Fylgiskjöl