Sveitarstjórn Borgarbyggðar

277. fundur

13. maí 2026 kl. 16:00 - 17:44

Hjálmakletti


Nefndarmenn

Guðveig Eyglóardóttir - Forseti
Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir - 1. varaforseti
Eðvar Ólafur Traustason - aðalmaður
Thelma Dögg Harðardóttir - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri fræðslusviðs
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu


Dagskrá

1. Skýrsla sveitarstjóra
2102062

Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra

Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra



2. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124

Lagður fram viðauki IV við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026 í samræmi við eftirfarandi afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 743:"Byggðarráð samþykkir að vísa drögum að viðauka IV við framkvæmdaáætlun til sveitarstjórnar og til umsagnar í sveitarstjórn Skorradalshreppi. Hrein áhrif á framkvæmdaáætlun er engin en breyting er innan liða þar sem liður vegna Slökkvistöðvar í Borgarnesi lækkar úr 60 m.kr. í 33 m.kr. og á móti skapast skapað jafnhætt svigrúm samtals innan liða við Íþróttahús-Parkethús í Borgarnesi og hækkunar á lið við aðkomuveg fjölnota íþróttahúss - knatthúss."

Sveitarstjórn samþykkir viðauka IV við fjárhagsáætlun 2026 með fyrirvara um samþykki Skorradalshrepps. Sveitarstjóra falið að senda viðaukann til Skorradalshrepps til samþykktar.





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


3. Ársreikningur Borgarbyggðar 2025
2603329

Ársreikningur Borgarbyggðar fyrir árið 2025 tekinn til síðar umræðu í samræmi við afgreiðslu fundar sveitarstjórnar nr. 276. Einnig lögð fram sundurliðunarbók og endurskoðunarskýrsla.

Ársreikningur Borgarbyggðar 2025 ásamt sundurliðunarbók og endurskoðunarskýrslu lagður fram til síðari umræðu í sveitarstjórn. Halldóra Ágústa Pálsdóttir frá KPMG fór yfir breytingar á ársreikningi á milli umræðna og endurskoðunarskýrsluna. Sveitarstjórn samþykkir framlagðan ársreikning, endurskoðunarskýrslu og staðfestingarbréf stjórnenda.



Samþykkt samhljóða



Davíðs Sigurðsson B-lista lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihluta sveitarstjórar:Kjörtímabil núverandi sveitarstjórnar Borgarbyggðar undir forystu Framsóknarflokksins sem hófst vorið 2022 er nú senn á enda. Í skýru umboði kjósenda sveitarfélagsins var ráðist í gífurlega uppbyggingu. Þar ber helst að nefna skólahúsnæði, íþróttamannvirki og nýjar lóðir fyrir íbúðabyggð og atvinnulíf. Framan af var lögð áhersla á undirbúning, næst útboðsvinnu og eingöngu fjárfest fyrir sjóðstreymi frá rekstri. Á síðasta ári var ráðist í lántökur enda árið 2025 líklega mesta framkvæmdaár í sögu sveitarfélagsins. Frá árinu 2022 hafa eignir Borgarbyggðar aukist um 4,0 milljarða króna, eigið fé sveitarfélagsins hefur aukist um 1,5 milljarða og heildarskuldir um tæplega 2,6 milljarða króna. Nýjar eignir eru nýir og endurbættir skólar, íþróttamannvirki, götur, stígar, lóðir og margt fleira. Viðmið um skuldir er enn í góðu samræmi við áætlun og á sambærilegum slóðum og gerist t.d. meðal sambærilegra landstórra fjölkjarna sveitarfélaga. Rekstur síðasta árs var um margt óvenjulegur. Borgarbyggð varð fyrir mikilli tekjuskerðingu vegna lækkunar á endurgreiðslum ríkissjóðs vegna fjárhagsaðstoðar, framlög frá Jöfnunarsjóði stóðu í stað og reiknaðar lífeyrisskuldbindingar hækkuðu töluvert. Það kemur m.a. til vegna þess að laun starfsmanna sveitarfélaga hækkuðu talsvert umfram almenna markaðinn á landsvísu. Þessir liðir eru stærsta ástæða þess að afkoma Borgarbyggðar var neikvæð og veldur vonbrigðum. Þessir einstaka liðir segja hins vegar lítið til um kjarnarekstur sveitarfélagsins. Það er ástæða til að halda áfram þeirri vinnu að þrýsta á að ríkið taki fulla ábyrgð á fjárhagsaðstoð við flóttafólk og gæta þess að Borgarbyggð verði ekki fyrir skerðingu á framlögum Jöfnunarsjóðs þrátt fyrir að grunntekjustofnar sveitarfélagsins séu að styrkjast. Þá þarf alltaf að hafa augun á tækifærum til hagræðingar í rekstri. Á nær öllum sviðum hefur tekist að efla þjónustu við íbúa; í skólamálum, félagsþjónustu, íþrótta- og æskulýðsmálum og skipulagsmálum svo nokkrir málaflokkar séu nefndir. Þrátt fyrir það hefur starfsfólki sveitarfélagsins ekki fjölgað. Skipulagsbreytingar hafa skilað farsælum árangri. Borgarbyggð er í fararbroddi í innleiðingu stafrænnar þjónustu. Rekstur Borgarbyggðar er í góðum farvegi og vill meirihluti Framsóknarflokksins nota þetta tækifæri til að þakka öllum stjórnendum og starfsfólki sveitarfélagsins fyrir ráðdeild, skynsemi og afar gott samstarf.





Til máls tók: DS



Fylgiskjöl


4. Kosningar í ráð og nefndir 2022-2026
2205140

Í ljósi hæfisreglna þurfti að gera breytingar á fulltrúum undirkjörstjórna vegna sveitarstjórnarkosninga 2026 en nýir fulltrúar voru skipaðir inn á fundi sveitarstjórnar nr 276.



Vegna undirkjörstjórnar Lindartungukjördeildar er áréttað að Stefanía Hulda Þórðardóttir sem skipuð var á fundi sveitarstjórnar nr. 276 er skipuð inn sem aðalmaður í undirkjörstjórnina.



Vegna undirkjörstjórnar Kleppjárnreykjakjördeildar er áréttað að Fjölnir Jónsson sem skipaður var á fundi sveitarstjórnar nr. 276 er skipaður inn sem varamaður í undirkjörstjórnina.



Í undirkjörstjórn Borgarneskjördeildar bætist Helga Sigurlína Halldórsdóttir sem varamaður.



Í undirkjörstjórn Skorradalskjördeildar eru skipaðir eftirfarandi fulltrúar:



Sem aðalmenn: Davíð Pétursson, Ástríður Guðmundsdóttir og Sigrún Guttormsdóttir - Þormar



Sem varamenn þeirra: Gunnar Rögnvaldsson, Óli Rúnar Ástþórsson og Karolina Hulda Guðmundsdóttir



Frekari upplýsingar um skipun undirkjördeilda má finna á heimasíðum sveitarfélaganna Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.



Samþykkt samhljóða



5. Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitafélaga
2201148

Afgreiðsla frá fundi sveitarstjórnar nr. 276:



Afgreiðsla frá fundi velferðarnefndar nr. 170: " Lagt fram drög að viðauka við samþykktir sveitarfélagsins vegna fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Vesturlands samkvæmt 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.



Velferðarnefnd samþykkir samhljóða viðauka við samþykktir sveitarfélagsins og vísar til staðfestingar sveitastjórnar."







Drög að viðauka við samþykkt um stjórn Borgarbyggðar vegna fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Vesturlands samkvæmt 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 lagðar fram til fyrri umræðu.



Sveitarstjórn samþykkir framkomna breytingu á samþykktum fyrir sitt leiti, felur sveitarstjóra að fullvinna þær og vísar til síðari umræðu í sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða

Sveitarstjórn samþykkir framlagðar breytingar á samþykktum sveitarfélagsins, viðauka 1 vegna barnaverndarþjónustu Vesturlands og verklagsreglur þar að lútandi.





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


6. Fjarskiptasamband í Borgarbyggð
2501076

Í framhaldi af lokunum á 3G og 2G farsímakerfum hafa íbúar og aðrir vegfarendur um Borgarbyggð fundið fyrir verulegri skerðingu á fjarskiptasambandi. Málið lagt fyrir sveitarstjórn til umræðu.

Fjöldi íbúa og vegfarenda í Borgarbyggð hefur fundið fyrir verulegri skerðingu á farsímasambandi að undanförnu. Í umræðu manna á milli er útfösun 3G farsímaþjónustu talin langlíklegasta skýringin. Gott fjarskiptasamband snýst um lífsgæði og öryggi og hágæðasamband skapar tækifæri í atvinnu, afþreyingu og samskiptum. Uppbygging 4G og 5G kerfa því fagnaðarefni. Margt bendir hins vegar til að niðurlagning 3G senda í Borgarbyggð hafi víða verið ótímabær. Þar hafi verið stigið mjög stórt skref afturábak í þjónustu við dreifðar byggðir sem ekki verður bætt með núverandi drægni 4G og 5G kerfa landsins. Það veldur óviðunandi skerðingu á þjónustu fyrir íbúa, gesti og vegfarendur í dreifbýli í Borgarbyggð og um land allt. Þá er það mikilvægt öryggismál að ekki verði skyndileg skerðing á farsímasambandi. Sveitarstjórn Borgarbyggðar felur sveitarstjóra að óska eftir upplýsingum frá Fjarskiptastofu um áhrif lokunar 3G senda á fjarskiptaþjónustu innan Borgarbyggðar. Í ljósi upplýsinga frá íbúum um skerta þjónustu telur sveitarstjórn Borgarbyggðar tilefni að endurskoða ákvörðun um lokun 3G senda á landsvísu.



Samþykkt samhljóða



7. Breyting á landnotkun - Hvítárvellir (133886) - Efnistökusvæði
2604243

Afgreiðsla 86. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða lýsingu til auglýsingar fyrir breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 skv. 30. gr. skipulagslaga 123/2010. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða lýsingu til auglýsingar fyrir breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 skv. 30. gr. skipulagslaga 123/2010.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


8. Umsókn um deiliskipulag - Sveinukot
2512076

Afgreiðsla 86. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


9. Umsókn um deiliskipulag - Baula
2503334

Afgreiðsla 86. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


10. Bjargsland II - Breyting á deiliskipulagi
2603048

Afgreiðsla 86. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn í ljósi athugasemda sem bárust á grenndarkynningartíma að breyting á deiliskipulagi Bjargslands II, svæði 1 verði sett í málsmeðferð skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir að breyting á deiliskipulagi Bjargslands II, svæði 1 verði sett í málsmeðferð skv. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.





Samþykkt samhljóða



Til máls tók: DS

Fylgiskjöl


11. Umsagnir - skipulagsmál
2603342

Lögð er fram umsagnarbeiðni úr skipulagsgátt dags. 17.04.2026 vegna ákvörðunar um matsskyldu fyrir strengvæðingu Vatnshamrar-Ferjubakki. Framkvæmdin felur í sér að leggja núverandi 19 kV loftlínu í jörð á milli tengivirkisins á Vatnshömrum og Ferjubakka og undir Hvítá. Strengleiðin er í heildina um 6,8 km löng. Sex 33 kV strengir verða plægðir niður, í tveimur plógförum. Við plægingu er notast við plógvél og aðrar vinnuvélar sem hefur nægilegt flot, spyrnu og togkraft til þess að komist sé hjá því að spilla að óþörfu yfirborði landsins. Strengirnir fara niður á um 90 cm dýpi og er landið skorið með skurðarhjóli áður en plógurinn fer í gegn en þannig er komið í veg fyrir að yfirborð dragist við plægingu. Jarðvegur leggst að strengnum um leið og hann kemur út úr strengrennu sem er aftan við plóginn. Eiginlegt rask vegna framkvæmdarinnar á aðallega við um plógförin tvö sem hvort um sig verða um 30-40 cm á breidd. Heildarumfang svæðis sem kann að raskast takmarkast þó við breidd gröfunnar sem sér um plæginguna en gera má ráð fyrir að það sé um 2-3 m breitt svæði. Með góðum undirbúningu og vali réttum vinnutækjum má halda því í lágmarki. Strax að plægingu lokinni er keyrt yfir farið með belti til að loka því. Strengirnir fara svo undir Hvítá í einu fari. Sú þverun er um 510 m löng, þar af verða 270 m í virkum árfarvegi. Jarðstrengirnir verða dregnir í gegnum ídráttarrör sem verða grafin í árbotninn. Niðurstöður dýptarmælinga benda til þess að vatnsdýpi sé að hámarki 2 m í álum í ánni. Botninn er mjög sendinn og má gera ráð fyrir því að álar séu síbreytilegir. Því þarf að koma jarðstrengnum niður fyrir a.m.k. 2 m dýpi undir virkum farvegi árinnar. Til að halda ídráttarrörunum niðri þarf að setja steinsteypt farg utan um ídráttarrörin með reglulegu millibili. Síðan er fyllt yfir rörin, fyrst með sandi eða möl og síðan með grófara efni til að rofverja botn árinnar yfir ídráttarrörunum. Ákjósanlegast er að það sé gert með efni úr vinnufyllingunni. Á meðan á framkvæmdunum stendur verður vinnufylling fyrir vegslóða lögð út í ána. Á leirunum á norðurbakkanum er mögulegt að koma ídráttarrörum fyrir á þurru en þar flæðir yfir á háflóði. Þar er þó þörf á slóðagerð og yrði efnið úr slóðanum notað sem rofvörn þegar fyllt er yfir ídráttarrörin. Strengurinn er víkjandi fyrir framtíðarskipulagi og ekkert eiginlegt helgunarsvæði.





Afgreiðsla 86. fundar skipulags- og byggingarnefndar:



"Skipulags- og byggingarnefnd telur að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum og felur skipulagsfulltrúa að leggja umsögn fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu. Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn tekur undir með skipulags- og byggingarnefd og telur framkvæmdina ekki háða mati á umhverfisáhrifum. Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa að ljúka við umsögn og senda til HMS.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


12. Félagslegt leiguhúsnæði
1810002

Á fundi byggðarráðs nr. 743 var samþykkt samhljóða eftirfarandi afgreiðsla: "Tillagan er í samræmi nýja stefnu Borgarbyggðar um félagslegt leiguhúsnæði sem staðfest var á fundi sveitarstjórnar nr. 274. Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti og leggur til við sveitarstjórn að tvær íbúðir við Hrafnaklett 4 verði settar á sölu. Byggðarráð felur sveitarstjóra að halda áfram samtali við óhagnaðardrifin leigufélög um félagslegt leiguhúsnæði og jafnframt að halda áfram að rýna hvort tilefni sé til að gera frekari breytingar á regluverki sveitarfélagsins til að greiða götu leigutaka að húsnæði sem fellur betur að þeirra þörfum."

Sveitarstjórn samþykkir að tvær íbúðir við Hrafnaklett 4 í Borgarnesi verði settar á sölu enda er það í samræmi við nýja stefnu Borgarbyggðar um félagslegt leiguhúsnæði. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


13. Beiðni um beitarhólf á leigu
2604046

Afgreiðsla frá fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar nr. 73:"Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkti fyrir sitt leyti samning við Halldór Sigurðsson um leigu á beitarsvæði og vísar málinu til endanlegarar afgreiðslu í sveitarstjórn."

Sveitarstjórn samþykkir framlagðan samning við Halldór Sigurðsson vegna beitilands á Hamri, landi vestan Vesturlandsvegar á svæði 2 með gildistíma til 31. desember 2029. Sveitarstjóra falið að undirrita samninginn.



Samþykkt samhljóða





Fylgiskjöl


14. Beitarsamningur um Hamarsland 2026-2030
2604042

Afgreiðsla frá fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar nr. 73:"Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkti fyrir sitt leyti samning við Hestamannafélagið Borgfirðing um leigu á beitarsvæðum og vísar málinu til endanlegarar afgreiðslu í sveitarstjórn."

Sveitarstjórn samþykkir samning við Hestamannafélagið Borgfirðing á leigu á beitarsvæðum að Hamri, landi vestan Vesturlandsvegar á svæðum 3, 4, 5, 6. 7 og 10 með gildistíma til 31. desember 2029 og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn.





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


15. Samskipti við Veitur vegna vatnsveitu á Varmalandi
2405162

Afgreiðsla fundar umhverfis- og landbúnaðarnefndar nr. 73 um mögulega vatnsöflun úr landi Litla-Skarðs:" Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja verkáætlun Verkís. Þar er gert ráð fyrir að farið verði í mat á endurnýjun, mælingar og mögulega vatnsöflun fyrir Vatnsveitu Varmalands."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða verkáætlun Verkís dags. 13. maí 2026 og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.



Samþykkt samhljóða



16. Val á listamanneskju Borgarbyggðar 2026
2605015

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nr. 743 var samþykkt eftirfarandi tillaga: "Lögð fram tillaga að fyrirkomulagi við val á Listamanneskju Borgarbyggðar 2026. Í ljósi sveitarstjórnarkosninga þá leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að skipuð verði þriggja manna valnefnd sem vinnur úr tillögum og velur Listamanneskju Borgarbyggðar 2026."

Sveitastjórn ákveður að skipuð verði þriggja manna valnefnd sem vinnur úr tillögum og velur listamanneskju Borgarbyggðar 2026. Sveitarstjórn skipar í nefndina Þórunni Kjartansdóttur, Evu Margréti Jónudóttur og Stefán Brodda Guðjónsson.





Samþykkt samhljóða



17. Þarfagreining v.parkethús í Borgarnesi
2505246

Afgreiðsla samþykkt samhljóða frá fundi byggðarráðs nr. 743: "Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að fara í lokað tveggja þrepa lokað hönnunarútboð með forvali ásamt því að láta framkvæma jarðvegskönnun á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði."

Sveitarstjórn ákveður að fara skuli í lokað tveggja þrepa hönnunarútboð með forvali ásamt því að framkvæmd verði jarðvegskönnun á fyrirhuguðu framkvæmdarsvæði.



Samþykkt samhljóða



18. Brattagata - Gatnaframkvæmdir
2510327

Eftirfarandi afgreiðsla var samþykkt samhljóða á fundi byggðarráðs nr. 743: "Byggðarráð samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að láta fara fram útboð við fyrsta áfanga endurbyggingar Bröttugötu í Borgarnesi á grundvelli framlagðra útboðsgagna. Framkvæmdin fari fram sumarið 2026. Kostnaðaráætlun er innan fjárheimilda ársins."

Sveitarstjórn staðfestir að fara skuli fram útboð á fyrsta áfanga endurbyggingar Bröttugötu í Borgarnesi á grundvelli framlagðra útboðsgagna.



Samþykkt samhljóða





19. Útboð á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða
2510364

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 741: "Farið yfir val boða á grundvelli þegar framlagðrar opnunarskýrslu. Búið er að velja tilboð Advania ehf. kt. 590269-7199.



Ákveðið að taka tilboði Advania kt. 590269-7199 sem var metið hagkvæmast út frá valforsendum. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir að taka skuli tilboði Advania kt. 590269-7199 sem var metið hagkvæmast út frá valforsendum og að gengið verði til samninga á þeim grunni.



Samþykkt samhljóða



20. Aðkomuvegur að fjölnotahúsi
2603024

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 742:"Niðurstaða verðfyrirspurnar vegna gatnaframkvæmda við aðkomuveg.



Framlögð opnunarskýrsla og byggðarráð leggur til að tilboð lægstbjóðanda verði valið að öllum skilyrðum uppfylltum.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir að tekið verði tilboði lægstbjóðanda Borgarerks ehf. og felur sveitarstjóra að ganga til samninga.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


21. Umsókn um lóð - stækkun við Engjaás 2-8-10
2311239

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 273:"Lögð fram drög að samkomulagi um uppgjör gatnagerðargjalda vegna úthlutunar á stækkun lóðar við Steypustöðina við Engjaás. Sæmundur Óskarsson sat fundinn undir þessum dagskrárlið.



Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að samkomulagi við Steypustöðina um uppgjör gatnagerðargjalda vegna úthlutunar á stækkun lóðar við Steypustöðina við Engjaás í Borgarnesi, að teknu tilliti til breytinga sem samþykktar voru á fundinum. Sveitarstjóra falið að fullvinna samkomulag og leggja fyrir sveitarstjórn. Á lóðinni hyggst Steypustöðin auka verulega starfsemi sína á næstu árum. Þannig stendur til að stækka verksmiðju fyrirtækisins um 5.500 fermetra sem skapar að líkindum 35-40 störf í Borgarnesi.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir samning við Steypustöðina ehf. um uppgjör gatnagerðargjalda vegna úthlutunar á stækkun lóðar við Engjaás í Borgarnesi, dags. 13. maí 2026 og felur sveitarstóra að undirrita samkomulagið.



Samþykkt með atkvæðum: SG, BLB, EÓT, EMJ, DS og GLE

Situr hjá: SÓ og REJ

Á móti: TDH



Til máls tóku: SÓ, TDH, DS, TDH, DS, TDH, DS, GLE og SÓ



22. Sala samkomuhússins við Þverárrétt
2204038

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 743:"Framlagt afsal vegna sölu á Samkomuhúsinu við Þverárrétt til Kvenfélags Þverárhlíðar sbr. afgreiðslu funda byggðarráðs nr. 737 og 738.



Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirrita með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar. Byggðarráð fagnar því að þessi áfangi sé nú í höfn og félagsheimilið sé nú komið í eigu Kvenfélags Þverárhlíðar sem hefur haft umsjón með húsinu undanfarin ár. Byggðarráð vonast til að þetta skref verði til að efla nýtingu hússins og stuðla að vernd og viðhaldi þess samfélaginu til heilla. Félagsheimilið fer í góðar hendur þeirra sem hafi sinnt því af alúð í áratugi.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að undirrita afsal vegna sölu á Samkomuhúsinu við Þverrárrett til Kvenfélags Þverárhlíðar dags. 8. maí 2026.



Samþykkt samhljóða



Til máls tók: TDH, SBG, TDH, SBG, TDH og SBG



23. Skýrsla um úthlutun til leikskóla
2603325

Afgreiðsla fundar fræðslunefndar nr. 254:"Drög að reglum lagðar fyrir fræðslunefnd. Verklagsreglur um úthlutun til leikskóla.



Fræðslunefnd samþykkir framlagðar reglur um úthlutun fjármagns vegna stoðþjónustu í leikskólum Borgarbyggðar og verklagsreglur um úhlutun stöðugilda til leikskóla Borgarbyggðar.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir verklagsreglur um úthlutun fjármagns vegna stoðþjónustu í leikskólum Borgarbyggðar og úthlutun stöðugilda til leikskóla Borgarbyggðar.



Samþykkt samhljóða



24. Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2026
2604249

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 742:"Framlagt fundarboð á aðalfund Landskerfis bókasafna sem fram fer 12. maí 2026.



Framlagt og byggðarráð felur Þórunni Kjartansdóttur forstöðumanni menningarmála að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins."

Sveitarstjórn felur Þórunni Kjartansdóttur forstöðumanni menningarmála að mæta á aðalfund Landskerfis bókasafna fyrir hönd Borgarbyggðar.





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


25. Snjómokstur í Borgarnesi.
2602276

Afgreiðsla frá fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar nr. 73:"Lögð fram endanleg drög að útboðsgögnum fyrir snjómokstur í Borgarnesi.



Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkir útboðsgögnin fyrir sitt leyti og vísar þeim til byggðaráðs."



Þar sem um er að ræða síðasta fund sveitarstjórnar á yfirstandandi kjörtímabili var ákveðið að taka málið beint upp í sveitarstjórn í stað þess að vísa inn í byggðarráð.

Sveitarstjórn samþykkir framkomin útboðsgögn og að fara skuli fram á útboð á grundvelli þeirra. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


26. Byggðarráð Borgarbyggðar - 741
2604014F

Fundargerð framlögð

26.1
2510326
Framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
Byggðarráð Borgarbyggðar - 741

Framlagt og samþykkt að taka til frekari umræðu á næsta fundi.Samþykkt samhljóða.

26.2
2201148
Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitarfélaga
Byggðarráð Borgarbyggðar - 741

Byggðarráð felur sveitarstjóra að fullvinna kostnaðarmat á þeim tillögum sem lagðar eru fram og leggja fyrir að nýju.Samþykkt samhljóða.

26.3
2510364
Útboð á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða
Byggðarráð Borgarbyggðar - 741

Ákveðið að taka tilboði Advania kt. 590269-7199 sem var metið hagkvæmast út frá valforsendum. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir sveitarstjórn. Samþykkt samhljóða.

26.4
2505246
Þarfagreining v.parkethús í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 741

Byggðarráð samþykkir að setja af stað vinnu við forval fyrir lokað útboð á hönnun parkethúss í Borgarnesi. Sveitarstjóra falið að rýna framlögð gögn með tilliti til áhrifa á fjárfestingaráætlun ársins. Þá samþykkir byggðarráð að láta fara fram jarðvegskönnun á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði.Samþykkt samhljóða.

26.5
2212062
Ugluklettur - Stækkun
Byggðarráð Borgarbyggðar - 741

Byggðarráð samþykkir að láta fullvinna hönnun á grundvelli framlagðra gagna.Samþykkt samhljóða.

26.6
2303105
Fjölnota íþróttahús - Knatthús
Byggðarráð Borgarbyggðar - 741

Byggðarráð samþykkir að láta fara fram vinnu við niðursetningu rotþróa og siturlagna í samræmi við kostnaðarmat.Samþykkt samhljóða.

26.7
2503353
Göngustígar - Verðfyrirspurn
Byggðarráð Borgarbyggðar - 741

Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði Borgarverks í steypta gangstétt. Tilboðið er innan fjárheimilda yfirstandandi árs í göngustíga.Samþykkt samhljóða.Ottó og Hlynur fóru af fundi.

26.8
2412005
Brákarey-Skipulagsmál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 741

Til fundarins kom, undir þessum dagskrárlið, í gegnum fjarfundarbúnað Örn Valdimarsson sviðsstjóri ráðgjafarsviðs hjá PwC og kynnti gang samningaviðræðna við Festi og samskipti við aðra hagaðila. Framundan eru frekari fundir með Festi með það að markmiði að ná samkomulagi sem tryggir uppbyggingu í samræmi við það rammaskipulag sem lagt var upp með en fjárhagslegri áhættu sveitarfélagsins sé haldið í lágmarki.

26.9
2603269
Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 741

Framlagt.

26.10
2604119
Aðalfundur Háskólans á Bifröst 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 741

Fundarboð framlagt og sveitarstjóra falið að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.

26.11
2604112
Ársfundur Brákarhlíðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 741

Fundarboð framlagt og sveitarstjóra falið að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.



27. Byggðarráð Borgarbyggðar - 742
2604022F

Fundargerð framlögð

27.1
2303105
Fjölnota íþróttahús - Knatthús
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Framlagðar fundargerðir verkfunda og farið yfir stöðu verksins. Framundan er vinna við aðkomuveg, ísetning glugga og hurða, uppsetning á tjöldum ofl. Fyrirsjáanlegt er að verktaki nær ekki að afhenda húsið 1. júní eins og að var stefnt og mun afhending dragast inn á sumarið.

27.2
2401059
Mælaborð um rekstur Borgarbyggðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Farið yfir mælaborð um rekstur og fjárfestingar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026. Rekstur sveitarfélagsins gengur í meginatriðum í samræmi við áætlun að frátöldum endurgreiðslum vegna fjárhagsaðstoðar. Framlög frá Jöfnunarsjóði eru lægri en áætlun ársins gerði ráð fyrir en aðrir tekjustofnar vega upp lækkun þeirra framlaga að mestu leyti. Launakostnaður hefur þróast í takti við áætlun.

27.3
2510326
Framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Lagt fram minnisblað um þróun og áætlun um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Við yfirferð á framlögum virðist mikill óútskýrður mismunur á áætluðu framlagi til Borgarbyggðar frá áhrifamati nýrra laga um Jöfnunarsjóð. Áætluð úthlutun á þessari stundu virðist nokkuð á skjön við markmið laganna. Sveitarstjóra falið að óska eftir nánari upplýsingum frá Jöfnunarsjóði.Samþykkt samhljóða.Sigurður Kristjánsson og Kristín Lilja Lárusdóttir fóru af fundi.

27.4
2512169
Fundargerðir stjórnar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Framlagt.

27.5
2405162
Samskipti við Veitur vegna vatnsveitu á Varmalandi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Lögð fram verkefnislýsing frá Verkís á þeim valkosti að sækja vatn fyrir Vatnsveitu Varmalands úr vatnsbóli í landi Litla-Skarðs. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fram að nýju á næsta fundi byggðarráðs.Samþykkt samhljóð.

27.6
2604249
Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Framlagt og byggðarráð felur Þórunni Kjartansdóttur forstöðumanni menningarmála að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

27.7
2603024
Aðkomuvegur að fjölnotahús
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Framlögð opnunarskýrsla og byggðarráð leggur til að tilboð lægstbjóðanda verði valið að öllum skilyrðum uppfylltum.Samþykkt samhljóða.

27.8
2505246
Þarfagreining v.parkethús í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 741 eru framlögð minnisblöð starfsmanna með rýni á kostnaði við forval og jarðvegsrannsóknir. Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirbúa gerð viðauka vegna forvals og fullnaðarhönnunar á stækkun íþróttahússins í Borgarnesi - parkethúss. Samþykkt samhljóða. Hlynur Ólafsson og Ottó Ólafsson fóru af fundi.

27.9
2310255
Endurbætur á miðálmu Grunnskólans í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Á fundinum upplýst að samkvæmt svörum umsjónaraðila verksins eru verktakar væntanlegir í næstu viku til að vinna að lokafrágangi endurbóta á miðálmu Grunnskólans í Borgarnesi. Byggðarráð lýsir yfir vonbrigðum með að verkinu hafi ekki verið lokið á þeim tíma sem liðinn er frá því byggingin var afhent.

27.10
2109009
Eignasjóður - félagslegar íbúðir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Farið yfir viðhaldsáætlun ársins í félagslegum íbúðum. Viðhaldsáætlun gerir ráð fyrir auknu viðhaldi í ár og fram kom hjá umsjónarmanni eigna vilji til að færa kostnað milli liða í viðhaldsáætlun. Byggðarráð samþykkir hækkun á viðhaldskostnaði vegna íbúða en telur þó ekki tímabært að hækka viðhaldsáætlun sveitarfélagsins í heild. Byggðarráð leggur til að þær íbúðir sem eru lausar verði seldar í samræmi við nýja stefnu sveitarfélagsins um félagslegar leiguíbúðir.Samþykkt samhljóða.

27.11
2303019
Þinghamar - aðgengismál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Byggðarráð tekur undir með Húsnefnd Þinghamars að mikilvægt er að kanna vel tækifæri til að fá styrk frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og mögulega fleiri aðilum þegar ráðist verður í þá framkvæmd að setja lyftu í Þinghamar. Sveitarstjóra falið að sækja um styrk til Jöfnunarsjóðs á grunni þeirrar áætlunar sem þegar hefur verið lögð fyrir.Samþykkt samhljóða.Guðni Rafn Ásgeirsson fór af fundi.

27.12
2004149
Egilsgata 11 - lóðamál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Farið yfir stöðu málsins og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundi.Samþykkt samhljóða.

27.13
2601018
Rekstur á tjaldsvæðinu í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Í samræmi við samning um rekstur tjaldsvæðisins samþykkir byggðarráð að verkefni þau er lýst er í tillögum leigutaka komi að fullu upp í áætlaða greiðslu vegna leigu yfirstandandi árs. Ekki er gert ráð fyrir öðru framlagi í rekstur tjaldsvæðisins í fjárhagsáætlun Borgarbyggðar og byggðarráð telur ekki tilefni né tímabært að samþykkja hærra framlag að svo komnu máli.Samþykkt samhljóða.Sæmundur Óskarsson fór af fundi.

27.14
2604225
Beiðni um hjólabraut neðan vatnstanks í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 742

Byggðarráð tekur vel í erindið og vísar til umfjöllunar í Umhverfis- og landbúnaðarnefnd.Samþykkt samhljóða.



28. Byggðarráð Borgarbyggðar - 743
2605004F

Fundargerð framlögð

28.1
2501058
Skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að taka saman fjárhagsleg áhrif á rekstur yfirstandandi árs og leggja fyrir sveitarstjórn. Um leið lýsir byggðarráð yfir ánægju með þá faglegu og umfangsmiklu vinnu sem verkefnastjórn hefur lagt í undirbúning verkefnisins og þakkar jafnframt fyrir aðkomu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi að verkefninu. Byggðarráð tekur undir sjónarmið Velferðarnefndar og telur afar brýnt að skammtímavistun verði að veruleika og fagnar áformaðri opnun á árinu 2026. Ráðið tekur undir þau sjónarmið sem fram koma hjá verkefnastjórn og samþykkir fyrir sitt leyti eftirfarandi:Að sviðsmynd 1 verði lögð til grundvallar í upphafi, fram að áramótum, en stefnt verði að sviðsmynd 2, þ.e. fullri opnun, sem langtímamarkmiði.Að tekjumódel byggi á valkosti B, þar sem 50% kostnaðar skiptist eftir íbúafjölda og 50% eftir nýtingu (keyptum sólarhringum), með hliðsjón af jafnræði barna á svæðinu.Að í fulltrúaráði sitji einn fulltrúi frá hverju sveitarfélagi og að þeir fulltrúar komi úr röðum notendaráðs.Að stofnfé verði jafnt skipt milli þátttökusveitarfélaga.Að formleg skráning og stofnun verði tryggð tímanlega með það að markmiði að opnun geti átt sér stað haustið 2026.Samþykkt samhljóða.Erla Björg fór af fundi.

28.2
2605015
Val á listamanneskju Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Lögð fram tillaga að fyrirkomulagi við val á Listamanneskju Borgarbyggðar 2026. Í ljósi sveitarstjórnarkosninga þá leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að skipuð verði þriggja manna valnefnd sem vinnur úr tillögum og velur Listamanneskju Borgarbyggðar 2026.Samþykkt samhljóða.Þórunn Kjartansdóttir fór af fundi.

28.3
2311239
Umsókn um lóð - stækkun við Engjaás 2-8-10
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að samkomulagi við Steypustöðina um uppgjör gatnagerðargjalda vegna úthlutunar á stækkun lóðar við Steypustöðina við Engjaás í Borgarnesi, að teknu tilliti til breytinga sem samþykktar voru á fundinum. Sveitarstjóra falið að fullvinna samkomulag og leggja fyrir sveitarstjórn. Á lóðinni hyggst Steypustöðin auka verulega starfsemi sína á næstu árum. Þannig stendur til að stækka verksmiðju fyrirtækisins um 5.500 fermetra sem skapar að líkindum 35-40 störf í Borgarnesi.Samþykkt samhljóða.

28.4
2204038
Sala samkomuhússins við Þverárrétt
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirrita með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar. Byggðarráð fagnar því að þessi áfangi sé nú í höfn og félagsheimilið sé nú komið í eigu Kvenfélags Þverárhlíðar sem hefur haft umsjón með húsinu undanfarin ár. Byggðarráð vonast til að þetta skref verði til að efla nýtingu hússins og stuðla að vernd og viðhaldi þess samfélaginu til heilla. Félagsheimilið fer í góðar hendur þeirra sem hafi sinnt því af alúð í áratugi. Samþykkt samhljóða.

28.5
2604098
Opnunartími íþróttamannvirkja í Borgarbyggð 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Framlagt minnisblað starfsmanns. Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að taka til skoðunar opnunartíma sundlaugarinnar í Borgarnesi í samræmi við efni minnisblaðsins við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.Samþykkt samhljóða.

28.6
2412005
Brákarey-Skipulagsmál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Örn fór yfir gang þeirra viðræðna sem nú standa yfir á milli PwC, fyrir hönd Borgarbyggðar, og Festis. Markmið viðræðnanna er að Festir leiði endurbyggingu Brákareyjar í samræmi við nýtt aðalskipulag og deiliskipulag sem nú er í vinnslu. Sem kunnugt er hefur Festir látið vinna og fjármagnað ítarlegt rammaskipulag fyrir Brákarey og er deiliskipulag unnið á grundvelli þess. Markmiðið er að í eynni byggist upp aðlaðandi ferðaþjónusta, á borð við hótel og baðlón, ásamt annarri atvinnustarfsemi, torgi og íbúðabyggð.

28.7
2303019
Þinghamar - aðgengismál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Framlagt minnisblað um stöðu málsins og byggðarráð felur nýrri sveitarstjórn að gera ráð fyrir kostnaði við framkvæmdina.Samþykkt samhljóða.

28.8
1810002
Félagslegt leiguhúsnæði
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Tillagan er í samræmi nýja stefnu Borgarbyggðar um félagslegt leiguhúsnæði sem staðfest var á fundi sveitarstjórnar nr. 274. Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti og leggur til við sveitarstjórn að tvær íbúðir við Hrafnaklett 4 verði settar á sölu. Byggðarráð felur sveitarstjóra að halda áfram samtali við óhagnaðardrifin leigufélög um félagslegt leiguhúsnæði og jafnframt að halda áfram að rýna hvort tilefni sé til að gera frekari breytingar á regluverki sveitarfélagsins til að greiða götu leigutaka að húsnæði sem fellur betur að þeirra þörfum.Samþykkt samhljóða.Hlöðver Ingi fór af fundi.

28.9
2601124
Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Byggðarráð samþykkir að vísa drögum að viðauka IV við framkvæmdaáætlun til sveitarstjórnar og til umsagnar í sveitarstjórn Skorradalshreppi. Hrein áhrif á framkvæmdaáætlun er engin en breyting er innan liða þar sem liður vegna Slökkvistöðvar í Borgarnesi lækkar úr 60 m.kr. í 33 m.kr. og á móti skapast skapað jafnhætt svigrúm samtals innan liða við Íþróttahús-Parkethús í Borgarnesi og hækkunar á lið við aðkomuveg fjölnota íþróttahúss - knatthúss.

28.10
2510327
Brattagata - Gatnaframkvæmdir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Byggðarráð samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að láta fara fram útboð við fyrsta áfanga endurbyggingar Bröttugötu í Borgarnesi á grundvelli framlagðra útboðsgagna. Framkvæmdin fari fram sumarið 2026. Kostnaðaráætlun er innan fjárheimilda ársins.Samþykkt samhljóða.

28.11
2505246
Þarfagreining v.parkethúss í Borgarnesi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að fara í lokað tveggja þrepa lokað hönnunarútboð með forvali ásamt því að láta framkvæma jarðvegskönnun á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði. Samþykkt samhljóða.Ottó og Hlynur fóru af fundi.

28.12
2004149
Egilsgata 11 - lóðamál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Byggðarráð felur sveitarstjóra að halda áfram að vinna málið í samræmi við umræðu á fundi.Samþykkt samhljóða.Sæmundur Óskarsson fór af fundi.

28.13
2502140
Húsnæði fyrir slökkvilið á Hvanneyri
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Byggðarráð felur sveitarstjóra að rýna tillögu að breytingu á samningnum í samræmi við umræðu á fundinum og leggja að nýju fyrir byggðarráð.Samþykkt samhljóða.

28.14
2112049
Húsnæðismál slökkviliðs á Hvanneyri
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Byggðarráð felur sveitarstjóra að fullvinna samkomulag við LBHÍ um lúkningu málsins og gera ráð fyrir mögulegum fjárhagslegum áhrifum í viðauka.Samþykkt samhljóða.

28.15
2605016
Safnahús og menningarmál 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 743

Farið yfir þróun og uppbyggingu starfs í Safnahúsinu í Borgarnesi. Safnahús og menningarmál heyra undir byggðarráð. Mikil og jákvæð gerjun hefur átt sér stað í starfi Safnahússins, húsið er mjög aðgengilegt og heimsóknum fjölgar samhliða fjölgun viðburða. Framundan er uppsetning á nýrri grunnsýningu árið 2027 og vel hefur gengið að afla styrkja í þróun hennar. Byggðarráð tekur undir með forstöðumanni um að mikilvægt er að ljúka endurbótum á fyrstu hæð hússins. Samþykkt að heimila að safnið verði lokað dagana 23. júní og 1. ágúst 2026 í samræmi við tillögu forstöðumanns.Tímabært er að hefja vinnu við endurnýjun á menningarstefnu Borgarbyggðar og bíður það verkefni nýrrar sveitarstjórnar.Samþykkt samhljóða.



29. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 86
2605001F

Fundargerð framlögð

29.1
2604243
Breyting á landnotkun - Hvítárvellir (133886) - Efnistökusvæði
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 86

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða lýsingu til auglýsingar fyrir breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 skv. 30. gr. skipulagslaga 123/2010.Samþykkt samhljóða.

29.2
2512076
Umsókn um deiliskipulag - Sveinukot
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 86

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.Samþykkt samhljóða.

29.3
2503334
Umsókn um deiliskipulag - Baula
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 86

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.Samþykkt samhljóða.

29.4
2603048
Bjargsland II - Breyting á deiliskipulagi
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 86

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn í ljósi athugasemda sem bárust á grenndarkynningartíma að breyting á deiliskipulagi Bjargslands II, svæði 1 verði sett í málsmeðferð skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum.Samþykkt samhljóða.

29.5
2603342
Umsagnir - skipulagsmál
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 86

Skipulags- og byggingarnefnd telur að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum og felur skipulagsfulltrúa að leggja umsögn fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.Samþykkt samhljóða.

29.6
2605017
Rekstrarleyfi í frístundabyggð
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 86

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að koma með tillögu að endurskoðuðum reglum og leggja fyrir nýja sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.

29.7
2604023F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 74
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 86

29.8
2604019F
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 86



30. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 73
2604026F

Fundargerð framlögð

30.1
2604046
Beiðni um beitarhólf á leigu
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 73

Umhvefis- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti samning við Halldór Sigurðsson um leigu á beitarsvæði og vísar málinu til endanlegarar afgreiðslu í sveitarstjórn.

30.2
2604042
Beitarsamningur um Hamarsland 2026-2030
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 73

Umhvefis- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti samning við Hestamannafélagið Borgfirðing um leigu á beitarsvæðum og vísar málinu til endanlegarar afgreiðslu í sveitarstjórn.

30.3
2604247
Bjarnhólar - aðgangsstýring
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 73

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram og samþykkir þessa uppsetningu fyrir sitt leyti.KRS bókaði eftirfarandi undir þessum lið:"Undirrituðum finnst núverandi aðgengi ásættanlegt miðað við umfang og finnst ekki ástæða til þess að breyta."

30.4
2602276
Snjómokstur í Borgarnesi.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 73

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkir útboðsgögnin fyrir sitt leyti og vísar þeim til byggðaráðs.

30.5
2604225
Beiðni um hjólabraut neðan vatnstanks í Borgarnesi
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 73

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd fagnar þessarri hugmynd, tekur jákvætt í erindið og samþykkir fyrir sitt leyti.

30.6
2405162
Samskipti við Veitur vegna vatnsveitu á Varmalandi
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 73

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja verkáætlun Verkís. Þar er gert ráð fyrir að farið verði í mat á endurnýjun, mælingar og mögulega vatnsöflun fyrir Vatnsveitu Varmalands.



31. Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 95
2604021F

Fundargerð framlögð

31.1
2604207
Vinnudagur í Einkunnum 2026
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 95

Dagsetning vinnudags verður auglýst þegar nær dregur. Umsjónanefnd fólkvangsins í Einkunnum leggur áherslu eftirfarandi verkefni á þessum vinnudegi:- Smíði og uppsetning á göngustiklum- Grisjun- Yfirfara manngerða afþreyingu - Drenun

31.2
2604208
Beiðni Björgunarsveitarinnar Brák
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 95

Nefndin gerir ekki athugasemd við fyrirhuguð áform og gefur leyfi fyrir uppsetningu á sig hringjum.

31.3
2509204
Umferðarmál og bílastæði
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 95

Einkunnarnefnd vill vekja athygli á því að komið er að viðhaldi innviða á svæðinu og brýnt er að ráðist verði í nauðsynlegar endurbætur. Sérstaklega á þetta við um veginn að Einkunnum. Vegurinn er að mestu úr moldarefni sem hleypir illa frá sér vatni og hefur ástand hans versnað hratt. Vegurinn er nú orðinn það slæmur að hann takmarkar aðgengi almennings að svæðinu og getur skapað hættu fyrir bæði gesti og sjálfboðaliða sem starfa á svæðinu.Á síðastliðnum árum hefur aðsókn að svæðinu aukist til muna og þar að leiðandi hefur álag á fyrnefndum vegi aukist verulega með fyrrnefndum afleiðingum.Einnig er brýn þörf á að koma upp viðeigandi bílastæðum, þar sem núverandi aðstæður eru ófullnægjandi og ekki í samræmi við þann fjölda gesta sem sækir svæðið.Nefndin bendir á að verkefni af þessari stærðargráðu, svo sem lagfæring vegar og uppbygging bílastæða, eru ekki verkefni sem eðlilegt er að nefndin beri kostnað af. Fjárveitingar nefndarinnar frá sveitarfélaginu duga eingöngu fyrir reglulegu viðhaldi og minni háttar framkvæmdum, svo sem stígagerð, kortagerð, uppsetningu leik- og útivistarbúnaðar, samstarfi við Skógræktarfélag Borgarfjarðar o.s.frv.Einkunnarnefnd óskar því eftir því að sveitarfélagið taki málið til formlegrar skoðunar og tryggi nauðsynlegt fjármagn til að ráðast í lagfæringu vegarins og uppbyggingu bílastæða. Slíkar framkvæmdir eru forsenda þess að svæðið geti áfram þjónað hlutverki sínu sem friðlýst útivistarsvæði og aðgengi almennings verði tryggt til framtíðar.

31.4
2604209
Eldvarnir og eldvarnaráætlun í Einkunnum
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 95

Nefndin leggur til við byggðaráð fenginn verði ráðgjafi til að gera heildstæða eldvarnaáætlun fyrir Einkunnir, þar sem m.a. verði skilgreind viðbrögð, ábyrgðaraðilar og nauðsynlegar forvarnir. Einnig verðir lögð áhersla á eldvarnarhólf. Að unnið verði að frekara skipulagi eldvarna, þar á meðal staðsetningu viðeigandi búnaðar, merkinga og upplýsingagjafar til almennings. Nefndin telur brýnt að þessi vinna hefjist sem fyrst til að tryggja öryggi og vernd Einkunna til framtíðar.

31.5
2603252
Önnur mál Umsjónarnefndar fólkvangsins í Einkunnum
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 95

Nefndin hefur ákveðið að fjárfesta í frístandandi eldstæði með glóðarvörn og setja inn við rjóður.



32. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 254
2604027F

Fundargerð framlögð

32.1
2501033
Skóladagatöl fyrir leik-, grunn- og listaskóla Borgarbyggðar
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 254

Fræðslunefnd samþykkir framlagðar reglur um skóladagatöl. Fræðslunefnd samþykkir framlögð skóladagatöl fyrir skólaárið 2026-2027 1.útgáfu.

32.2
2604068
Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 254

32.3
2603325
Skýrsla um úthlutun til leikskóla
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 254

Fræðslunefnd samþykkir framlagðar reglur um úthlutun fjármagns vegna stoðþjónustu í leikskólum Borgarbyggðar og verklagsreglur um úhlutun stöðugilda til leikskóla Borgarbyggðar. Samþykkt samhljóða.

32.4
2602141
Reglur um starfsemi frístundarheimila í Borgarbyggð
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 254

Lagt fram til kynningar. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að vinna málið áfram.



33. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 171
2605007F

Fundargerð framlögð



Til máls tók: DS



33.1
2201148
Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitafélaga
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 171

Velferðarnefnd tekur jákvætt í að farið verði í formlegar viðræður við Dalabyggð, og að sveitarfélagið verði hluti af barnaverndarþjónustu Vesturlands. Velferðarnefnd felur félagsmálastjóra að vinna málið áfram i samvinnu við sveitastjóra Dalabyggðar.

33.2
2501058
Skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 171

Velferðarnefnd tekur undir með Byggðarráði og samþykkir fyrir sitt leyti þau sjónarmið sem koma fram í tillögum frá verkefnahópnum. Um verulega aukningu á mikilvægari þjónustu er að ræða og ljóst að með aukinni þjónustu skapist kostnaður. Velferðarnefnd telur að með samstarfi á milli sveitarfélaga sé tækifæri til hagræðingar í uppbyggingu á umræddri þjónustu.

33.3
2311278
Gott að eldast
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 171

Tengiráðgjafi hefur nú látið frá störfum hjá SSV. Sveitarfélagið óskað eftir að fá gögnin afhent. Nú hefur komið í ljós að ekki er búið að fullvinna gögnin og þau því ekki tilbúin til afhendingar og kynningar. Þó hefur komið fram að niðurstöður bendi til þess að eldri borgarar séu ánægðir með þá þjónustu sem er í boði í sveitarfélaginu. Málið verður lagt fyrir að nýju þegar niðurstöður liggja formlega fyrir. Velferðarnefnd leggur til að eftir að ný nefnd sem hefur störf að loknum kosningum fái greinagóða kynningu á þeirri vinnu sem hefur verið innt af hendi og hvernig sú vinna komi til með að nýtast sveitarfélögum á Vesturlandi.



Fundi slitið - kl. 17:44