Velferðarnefnd Borgarbyggðar

171. fundur

12. maí 2026 kl. 15:00 - 16:30

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Guðveig Eyglóardóttir - formaður
Kristín Erla Guðmundsdóttir - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - aðalmaður
Kristján Ágúst Magnússon - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir - aðalmaður

Starfsmenn

Erla Björg Kristjánsdóttir - félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði: Erla Björg Kristjánsdóttir - félagsmálastjóri


Dagskrá

1. Trúnaðarbók 2026
2601286

Lagðar fram afgreiðslur starfsmanna frá síðasta fundi og afgreiddar umsóknir um fjárhagsstyrk.

Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins



2. Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitafélaga
2201148

Þann 6. maí síðastliðinn barst erindi frá sveitastjóra Dalabyggðar um að viðræður um formlega aðild Dalabyggðar að barnaverndarþjónustu Vesturlands verði teknar upp. Tveir fundir hafa átt sér stað á milli sveitarfélagana, annars vegar við sveitastjóra og hins vegar við verkefnastjóra í Dalabyggð sem stýrir jafnframt barnaverndarþjónustunni þar. Dalabyggð er með undanþágu frá skilyrði um lágmarks íbúafjölda vegna barnaverndarþjónustu, skv. 3. og 4.

mgr. 11. gr. barnverndariaga, nr. 80/2002. Því er brýnt að Dalabyggð sameinist öðrum barnaverndarþjónustum til að uppfylla ofangreind skilyrði. Óskað er eftir afstöðu nefndarinnar.

Velferðarnefnd tekur jákvætt í að farið verði í formlegar viðræður við Dalabyggð, og að sveitarfélagið verði hluti af barnaverndarþjónustu Vesturlands. Velferðarnefnd felur félagsmálastjóra að vinna málið áfram i samvinnu við sveitastjóra Dalabyggðar.



3. Skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni
2501058

Þann 07.05.26 var lagt fyrir Byggðarráð til umfjöllunar tillaga um uppbyggingu og rekstur sameiginlegrar skammtímadvalar fyrir börn og ungmenni með fötlun og umfangsmiklar stuðningsþarfir á Vesturlandi. Verkefnið er unnið í samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi og Þroskahjálpar á Vesturlandi og miðar að því að tryggja jafnt aðgengi að lögbundinni þjónustu óháð búsetu. Gert er ráð fyrir að skammtímadvölin starfi í húsnæðinu að Holti í Borgarbyggð, rekin af sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri. Lagt er til að sveitarfélög á Vesturlandi stofni sjálfseignarstofnunina, en hún sjái um rekstur þjónustunnar og leigi fasteignina að Holti. Óskað var eftir afstöðu Byggðarráðs til nokkurra þátta er snéri að málinu og var bókun eftirfarandi:

Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að taka saman fjárhagsleg áhrif á rekstur yfirstandandi árs og leggja fyrir sveitarstjórn. Um leið lýsir byggðarráð yfir ánægju með þá faglegu og umfangsmiklu vinnu sem verkefnastjórn hefur lagt í undirbúning verkefnisins og þakkar jafnframt fyrir aðkomu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi að verkefninu.

Byggðarráð tekur undir sjónarmið Velferðarnefndar og telur afar brýnt að skammtímavistun verði að veruleika og fagnar áformaðri opnun á árinu 2026.

Ráðið tekur undir þau sjónarmið sem fram koma hjá verkefnastjórn og samþykkir fyrir sitt leyti eftirfarandi:

Að sviðsmynd 1 verði lögð til grundvallar í upphafi, fram að áramótum, en stefnt verði að sviðsmynd 2, þ.e. fullri opnun, sem langtímamarkmiði.

Að tekjumódel byggi á valkosti B, þar sem 50% kostnaðar skiptist eftir íbúafjölda og 50% eftir nýtingu (keyptum sólarhringum), með hliðsjón af jafnræði barna á svæðinu.

Að í fulltrúaráði sitji einn fulltrúi frá hverju sveitarfélagi og að þeir fulltrúar komi úr röðum notendaráðs.

Að stofnfé verði jafnt skipt milli þátttökusveitarfélaga.

Að formleg skráning og stofnun verði tryggð tímanlega með það að markmiði að opnun geti átt sér stað haustið 2026. Samþykkt samhljóða.



Fyrir liggur ítarlegt minnisblað ásamt fylgigögnum sem lögð voru fram og eru eftirfarandi: Drög að samþykktum fyrir skammtímadvöl Vesturlands ses., Tillaga að rekstrarmódeli og fjárhagsáætlun, þarfagreining á húsnæði Holts og drög að leigusamningi.

Velferðarnefnd tekur undir með Byggðarráði og samþykkir fyrir sitt leyti þau sjónarmið sem koma fram í tillögum frá verkefnahópnum. Um verulega aukningu á mikilvægari þjónustu er að ræða og ljóst að með aukinni þjónustu skapist kostnaður. Velferðarnefnd telur að með samstarfi á milli sveitarfélaga sé tækifæri til hagræðingar í uppbyggingu á umræddri þjónustu.





4. Gott að eldast
2311278

Í tengslum við gott að eldast hefur tengiráðgjafi á vegum SSV framkvæmt könnun á högum og líðan eldri borgara í Borgarbyggð. Markhópur í könnunni var 80 ára og eldri, sem búa einir.

Tengiráðgjafi hefur nú látið frá störfum hjá SSV. Sveitarfélagið óskað eftir að fá gögnin afhent. Nú hefur komið í ljós að ekki er búið að fullvinna gögnin og þau því ekki tilbúin til afhendingar og kynningar. Þó hefur komið fram að niðurstöður bendi til þess að eldri borgarar séu ánægðir með þá þjónustu sem er í boði í sveitarfélaginu. Málið verður lagt fyrir að nýju þegar niðurstöður liggja formlega fyrir. Velferðarnefnd leggur til að eftir að ný nefnd sem hefur störf að loknum kosningum fái greinagóða kynningu á þeirri vinnu sem hefur verið innt af hendi og hvernig sú vinna komi til með að nýtast sveitarfélögum á Vesturlandi.



Fundi slitið - kl. 16:30