Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar

86. fundur

8. maí 2026 kl. 08:30 - 09:50

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Friðrik Aspelund - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir boðaði forföll og Eðvar Ólafur Traustason - varamaður sat fundinn í hans stað
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Kristján Rafn Sigurðsson - aðalmaður

Starfsmenn

Drífa Gústafsdóttir - skipulagsfulltrúi
Ásgerður H Hafsteinsdóttir - verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði: Ásgerður H. Hafsteinsdóttir - Verkefnastjóri


Dagskrá

1. Breyting á landnotkun - Hvítárvellir (133886) - Efnistökusvæði
2604243

Lögð er fram skipulagslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 í landi Hvítárvalla í Borgarbyggð skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fyrirhugað er að breyta landnotkun svæðis í landi Hvítárvalla úr landbúnaðarland í efnistökusvæði. Markmið breytingarinnar er að heimila allt að 35.000 m³ efnistöku á um 2 ha svæði í selholti á Heggstaðanesi skammt vestan Grímsár. Í undirbúningi er lagning 19 kV loftlínu í jörð á milli tengivirkis á Vatnshömrum og Ferjubakka undir Hvítá. Stefnt er að því að nýta efni úr landi Hvítárvalla fyrir framkvæmdina þar sem styttra er að sækja efni þar, auk þess sem landeigandi hefur áhuga á að nýta námuna til annarra framkvæmda.

Áætlað efnistökusvæði nýtur ekki sérstakrar verndar og engar þekktar minjar eru á svæðinu. Aðkoma að svæðinu er frá Hvítárvallavegi (510) um núverandi slóða sem er á skrá yfir vegi í náttúru Íslands.

Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa og var valinn í samráði við skipulagsfulltrúa.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða lýsingu til auglýsingar fyrir breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 skv. 30. gr. skipulagslaga 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


2. Umsókn um deiliskipulag - Sveinukot
2512076

Nýtt deiliskipulag Sveinukots hefur verið auglýst samkvæmt 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynningartími var frá 18.03.26-04.05.26 og óskað eftir umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Athugasemdir bárust frá 1 aðila.

Lagður er fram uppdráttur og greinargerð dags. 25.02.2026, m.s.br 05.05.2026 þar sem brugðist hefur verið við þeim umsögnum og athugasemdum sem bárust á kynningartíma.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


3. Umsókn um deiliskipulag - Baula
2503334

Nýtt deiliskipulag Baulu - þjónustumiðstöð hefur verið auglýst samkvæmt 41.gr. skiplagslaga 123/2010. Kynningartími var frá 26.11.2025 til 12.01.2026 og óskað eftir umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Athugasemdir bárust frá tveim aðilum. Vegagerðin hefur sent inn samþykki sitt fyrir framkvæmdum innan veghelgunarsvæðis með þeim fyrirvara að vegrið verði sett upp samhliða framkvæmdum en ekki eftirá. Allur búnaður og mannvirki innan veghelgunarsvæðis er víkjandi ef Vegagerðin þarf að fara í framkvæmdir á svæðinu síðar.

Lagður er fram uppdráttur og greinargerð dags. 05.05.2026 þar sem brugðist hefur verið við þeim umsögnum og athugasemdum sem bárust á kynningartíma.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


4. Bjargsland II - Breyting á deiliskipulagi
2603048

Sveitarstjórn samþykkti þann 12.03.2026 að grenndarkynna fyrirhugaða breytingu á deiliskipulagi Bjargslands II, dags. 04.03.2026

Breytingin felur í sér að gatan Fjóluklettur er framlengd og tengd við götuna Fjóluklettur eins og hún er sýnd í aðliggjandi deiliskipulagi Fjóluklettur við Kveldúlfshöfða, göngustígar eru tengdir saman og fjögur gesta bílastæði sett þar sem áður var snúninsás. Gangbraut er bætt við hjá Fjólukletti 2 og gangstétt framlengd. Deiliskipulagsmörkum er breytt til að þau falli að deiliskipulagsmörkum aðliggjandi deiliskipulags. Aðrir skilmálar deiliskipulagsins haldast óbreyttir.

Kynnt var frá 18.03.2026 - 19.04.2026 fyrir eigendum fasteigna við Fjóluklett í Borgarnesi og öðrum hagsmunaaðilum í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. 12 hagsmunaaðilar komu með athugasemdir við breytinguna á kynningartíma.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn í ljósi athugasemda sem bárust á grenndarkynningartíma að breyting á deiliskipulagi Bjargslands II, svæði 1 verði sett í málsmeðferð skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum.

Samþykkt samhljóða.











Fylgiskjöl


5. Umsagnir - skipulagsmál
2603342

Lögð er fram umsagnarbeiðni úr skipulagsgátt dags. 17.04.2026 vegna ákvörðunar um matsskyldu fyrir strengvæðingu Vatnshamrar-Ferjubakki. Framkvæmdin felur í sér að leggja núverandi 19 kV loftlínu í jörð á milli tengivirkisins á Vatnshömrum og Ferjubakka og undir Hvítá. Strengleiðin er í heildina um 6,8 km löng. Sex 33 kV strengir verða plægðir niður, í tveimur plógförum. Við plægingu er notast við plógvél og aðrar vinnuvélar sem hefur nægilegt flot, spyrnu og togkraft til þess að komist sé hjá því að spilla að óþörfu yfirborði landsins. Strengirnir fara niður á um 90 cm dýpi og er landið skorið með skurðarhjóli áður en plógurinn fer í gegn en þannig er komið í veg fyrir að yfirborð dragist við plægingu. Jarðvegur leggst að strengnum um leið og hann kemur út úr strengrennu sem er aftan við plóginn. Eiginlegt rask vegna framkvæmdarinnar á aðallega við um plógförin tvö sem hvort um sig verða um 30-40 cm á breidd. Heildarumfang svæðis sem kann að raskast takmarkast þó við breidd gröfunnar sem sér um plæginguna en gera má ráð fyrir að það sé um 2-3 m breitt svæði. Með góðum undirbúningu og vali réttum vinnutækjum má halda því í lágmarki. Strax að plægingu lokinni er keyrt yfir farið með belti til að loka því. Strengirnir fara svo undir Hvítá í einu fari. Sú þverun er um 510 m löng, þar af verða 270 m í virkum árfarvegi. Jarðstrengirnir verða dregnir í gegnum ídráttarrör sem verða grafin í árbotninn. Niðurstöður dýptarmælinga benda til þess að vatnsdýpi sé að hámarki 2 m í álum í ánni. Botninn er mjög sendinn og má gera ráð fyrir því að álar séu síbreytilegir. Því þarf að koma jarðstrengnum niður fyrir a.m.k. 2 m dýpi undir virkum farvegi árinnar. Til að halda ídráttarrörunum niðri þarf að setja steinsteypt farg utan um ídráttarrörin með reglulegu millibili. Síðan er fyllt yfir rörin, fyrst með sandi eða möl og síðan með grófara efni til að rofverja botn árinnar yfir ídráttarrörunum. Ákjósanlegast er að það sé gert með efni úr vinnufyllingunni. Á meðan á framkvæmdunum stendur verður vinnufylling fyrir vegslóða lögð út í ána. Á leirunum á norðurbakkanum er mögulegt að koma ídráttarrörum fyrir á þurru en þar flæðir yfir á háflóði. Þar er þó þörf á slóðagerð og yrði efnið úr slóðanum notað sem rofvörn þegar fyllt er yfir ídráttarrörin. Strengurinn er víkjandi fyrir framtíðarskipulagi og ekkert eiginlegt helgunarsvæði.

Skipulags- og byggingarnefnd telur að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum og felur skipulagsfulltrúa að leggja umsögn fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


6. Rekstrarleyfi í frístundabyggð
2605017

Framlagðar eru reglur Borgarbyggðar um gististaði innan sveitarfélagsins.

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að koma með tillögu að endurskoðuðum reglum og leggja fyrir nýja sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


7. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 74
2604023F

7.1
2602094
Umsókn um deiliskipulag - Kiðárbotnar 62
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 74

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi Stuttárbotna fyrir lóðina Kiðárbotnar 62.Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.

7.2
2601075
selás 11 - umsókn um deiliskipulag - L177900
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 74

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. Samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynnt verði óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir eigendum Seláss 9 og 10 og landeigendum Ánabrekku.

7.3
2604150
Brekka - umsókn um framkvæmdarleyfi - 134758
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 74

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis til gerðar könnunargryfja í landi Brekku og Hvassafells vegna neysluvatnsrannsókna með vísan til framlagðra gagna. Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins, umsækjanda og landeigenda. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010

7.4
2603342
Umsögn Strengvæðing Vatnshamrar-Ferjubakki
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 74

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar vísar málinu til skipulags- og byggingarnefndar.



8. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258
2604019F

8.1
2310081
Stafholtsveggir 2 L194129 - Umsókn um byggingarleyfi_íbúðarhús
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012. Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum. Uppfæra þarf aðaluppdrætti með réttu landnúmeri og matshluta.

8.2
2209047
Miðháls 24 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258

Um er að ræða endurupptöku á sama máli sem var tekið fyrir á 201. afgreiðslufundi byggingafulltrúa. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.

8.3
2604108
Refsstaðir - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.

8.4
2604082
húsafell 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.

8.5
2604081
húsafell 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.

8.6
2604072
Birkiból - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.

8.7
2511021
Laugaland 1 134894 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258

Samþykkt.Athugasemdir: Niðurrif skal gera í samræmi við reglur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.

8.8
2603317
Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Galtarholt
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.

8.9
2604052
Arnþórsholt - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.

8.10
2604060
Eskiholt 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.

8.11
2604061
Eskiholt 1 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 258

Erindið er samþykkt með fyrirvara um að fyrir liggi veðbókarvottorð. Athugasemdir: Niðurrif skal gera í samræmi við reglur heilbrigðiseftirlits Vesturlands.



Fundi slitið - kl. 09:50