Umhverfis- og landbúnaðarnefnd
73. fundur
7. maí 2026 kl. 13:00 - 14:30
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Sigrún Ólafsdóttir - formaður
Þórður Brynjarsson - varaformaður
Þorsteinn Eyþórsson - aðalmaður
Kristján Rafn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - varamaður
Starfsmenn
Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1. Beiðni um beitarhólf á leigu
2604046
Farið yfir drög að samningi við Halldór Sigurðsson um leigu á beitarsvæði.
Umhvefis- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti samning við Halldór Sigurðsson um leigu á beitarsvæði og vísar málinu til endanlegarar afgreiðslu í sveitarstjórn.
2. Beitarsamningur um Hamarsland 2026-2030
2604042
Farið yfir drög að samningi við Hestamannafélagið Borgfirðing um leigu á beitarsvæðum.
Umhvefis- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti samning við Hestamannafélagið Borgfirðing um leigu á beitarsvæðum og vísar málinu til endanlegarar afgreiðslu í sveitarstjórn.
3. Bjarnhólar - aðgangsstýring
2604247
Rætt um uppsetningu á aðgagnsstýringu að Bjarnhólum. Tengja þyrfti rafmagn og setja upp hlið við gatnamót.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram og samþykkir þessa uppsetningu fyrir sitt leyti.
KRS bókaði eftirfarandi undir þessum lið:
"Undirrituðum finnst núverandi aðgengi ásættanlegt miðað við umfang og finnst ekki ástæða til þess að breyta."
4. Snjómokstur í Borgarnesi.
2602276
Lögð fram endanleg drög að útboðsgögnum fyrir snjómokstur í Borgarnesi.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkir útboðsgögnin fyrir sitt leyti og vísar þeim til byggðaráðs.
5. Beiðni um hjólabraut neðan vatnstanks í Borgarnesi
2604225
Framlögð beiðni frá Hjólreiðafélagi Vesturlands um afnot að svæði neðan vatnstanks í Borgarnesi fyrir hjólabraut. Málið var tekið fyrir í Byggðaráði 30. apríl á fundi nr. 742 og þaðan vísað til umfjöllunar í umhverfis- og landbúnaðarnefnd.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd fagnar þessarri hugmynd, tekur jákvætt í erindið og samþykkir fyrir sitt leyti.
6. Samskipti við Veitur vegna vatnsveitu á Varmalandi
2405162
Lögð fram verkáætlun frá Verkís um mat á endurnýjun og mögulega vatnsöflun fyrir Vatnsveitu Varmalands.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja verkáætlun Verkís. Þar er gert ráð fyrir að farið verði í mat á endurnýjun, mælingar og mögulega vatnsöflun fyrir Vatnsveitu Varmalands.
Fundi slitið - kl. 14:30