Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum
95. fundur
29. apríl 2026 kl. 15:15 - 16:30
í stóra fundarsal í Ráðhúsi
Nefndarmenn
Ása Erlingsdóttir - aðalmaður
Dagný Pétursdóttir - aðalmaður
Sigurður Friðgeir Friðriksson - aðalmaður
Starfsmenn
Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1. Vinnudagur í Einkunnum 2026
2604207
Áætlað er að vera með vinnudag í Einkunnum í maí.
Dagsetning vinnudags verður auglýst þegar nær dregur. Umsjónanefnd fólkvangsins í Einkunnum leggur áherslu eftirfarandi verkefni á þessum vinnudegi:
- Smíði og uppsetning á göngustiklum
- Grisjun
- Yfirfara manngerða afþreyingu
- Drenun
2. Beiðni Björgunarsveitarinnar Brák
2604208
Björgunarsveitin Brák óskar eftir að setja upp sig hringi í vestari Einkunnum.
Nefndin gerir ekki athugasemd við fyrirhuguð áform og gefur leyfi fyrir uppsetningu á sig hringjum.
3. Umferðarmál og bílastæði
2509204
Rætt um aukna ásókn á svæðið, ástand vega og bílastæða.
Einkunnarnefnd vill vekja athygli á því að komið er að viðhaldi innviða á svæðinu og brýnt er að ráðist verði í nauðsynlegar endurbætur. Sérstaklega á þetta við um veginn að Einkunnum. Vegurinn er að mestu úr moldarefni sem hleypir illa frá sér vatni og hefur ástand hans versnað hratt. Vegurinn er nú orðinn það slæmur að hann takmarkar aðgengi almennings að svæðinu og getur skapað hættu fyrir bæði gesti og sjálfboðaliða sem starfa á svæðinu.
Á síðastliðnum árum hefur aðsókn að svæðinu aukist til muna og þar að leiðandi hefur álag á fyrnefndum vegi aukist verulega með fyrrnefndum afleiðingum.
Einnig er brýn þörf á að koma upp viðeigandi bílastæðum, þar sem núverandi aðstæður eru ófullnægjandi og ekki í samræmi við þann fjölda gesta sem sækir svæðið.
Nefndin bendir á að verkefni af þessari stærðargráðu, svo sem lagfæring vegar og uppbygging bílastæða, eru ekki verkefni sem eðlilegt er að nefndin beri kostnað af. Fjárveitingar nefndarinnar frá sveitarfélaginu duga eingöngu fyrir reglulegu viðhaldi og minni háttar framkvæmdum, svo sem stígagerð, kortagerð, uppsetningu leik- og útivistarbúnaðar, samstarfi við Skógræktarfélag Borgarfjarðar o.s.frv.
Einkunnarnefnd óskar því eftir því að sveitarfélagið taki málið til formlegrar skoðunar og tryggi nauðsynlegt fjármagn til að ráðast í lagfæringu vegarins og uppbyggingu bílastæða. Slíkar framkvæmdir eru forsenda þess að svæðið geti áfram þjónað hlutverki sínu sem friðlýst útivistarsvæði og aðgengi almennings verði tryggt til framtíðar.
4. Eldvarnir og eldvarnaráætlun í Einkunnum
2604209
Í ljósi aukinnar aðsóknar, þéttingu gróðurs og álags á svæðið ræddi nefndin nauðsyn þess að styrkja eldvarnir og móta skýrari verkferla til að tryggja öryggi gesta og verndun svæðisins.
Nefndin leggur til við byggðaráð fenginn verði ráðgjafi til að gera heildstæða eldvarnaáætlun fyrir Einkunnir, þar sem m.a. verði skilgreind viðbrögð, ábyrgðaraðilar og nauðsynlegar forvarnir. Einnig verðir lögð áhersla á eldvarnarhólf. Að unnið verði að frekara skipulagi eldvarna, þar á meðal staðsetningu viðeigandi búnaðar, merkinga og upplýsingagjafar til almennings.
Nefndin telur brýnt að þessi vinna hefjist sem fyrst til að tryggja öryggi og vernd Einkunna til framtíðar.
5. Önnur mál Umsjónarnefndar fólkvangsins í Einkunnum
2603252
Rætt var að setja eldstæði í rjóður.
Nefndin hefur ákveðið að fjárfesta í frístandandi eldstæði með glóðarvörn og setja inn við rjóður.
Fundi slitið - kl. 16:30