Dagskrá
1. Skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni
2501058
Lagt er fram til umfjöllunar tillaga um uppbyggingu og rekstur sameiginlegrar skammtímadvalar fyrir börn og ungmenni með fötlun og umfangsmiklar stuðningsþarfir á Vesturlandi. Verkefnið er unnið í samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi og Þroskahjálpar á Vesturlandi og miðar að því að tryggja jafnt aðgengi að lögbundinni þjónustu óháð búsetu.
Gert er ráð fyrir að skammtímadvölin starfi í húsnæðinu að Holti í Borgarbyggð, rekin af sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri. Lagt er til að sveitarfélög á Vesturlandi stofni sjálfseignarstofnunina, en hún sjái um rekstur þjónustunnar og leigi fasteignina að Holti. Fyrir liggur ítarlegt minnisblað ásamt fylgigögnum: Drög að samþykktum fyrir skammtímadvöl Vesturlands ses., Tillaga að rekstrarmódeli og fjárhagsáætlun, þarfagreining á húsnæði Holts og drög að leigusamningi.
Óskað er eftir afstöðu Byggðarráðs til eftirfarandi atriða:
Val á sviðsmynd: Hvort stefnt skuli að sviðsmynd 1 eða 2 við fulla opnun, eða hvort útfærslan eigi að vera með öðrum hætti.
Verkefnastjórn leggur til að sviðsmynd 1 verði fylgt fram að áramótum og sviðsmynd 2, eða full opnun, verði langtímamarkmiðið.
Útfærsla tekjumódels: Val milli valkosts A (skipt eftir íbúafjölda) og valkosts B (50% fastur kostnaður eftir íbúafjölda og 50% breytilegur eftir keyptum sólarhringum).
Verkefnastjórn leggur til að valkosti B verði fylgt, á grundvelli jafnræðissjónarmiða barna á svæðinu.
Fjöldi fulltrúa í fulltrúaráði: Stofnaðilar þurfa að taka afstöðu til þess hve margir fulltrúar eigi að sitja í fulltrúaráði og hvernig tilnefningu þeirra verði háttað.
Verkefnastjórn leggur til að einn fulltrúi, frá hverju sveitarfélagi, komi úr röðum notendaráðs.
Framlag stofnenda: Ákvörðun um skiptingu stofnfjár milli sveitarfélaga.
Verkefnastjórn leggur til jafna skiptingu milli sveitarfélaga.
Tímasetning stofnunar opnunar: Staðfesting á að formleg skráning fari fram tímanlega fyrir áformaða opnun haustið 2026.
Til fundarins koma Erla Björg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri í gegnum fjarfundarbúnað og Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs.
Bjarney L. Bjarnadóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að taka saman fjárhagsleg áhrif á rekstur yfirstandandi árs og leggja fyrir sveitarstjórn. Um leið lýsir byggðarráð yfir ánægju með þá faglegu og umfangsmiklu vinnu sem verkefnastjórn hefur lagt í undirbúning verkefnisins og þakkar jafnframt fyrir aðkomu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi að verkefninu.
Byggðarráð tekur undir sjónarmið Velferðarnefndar og telur afar brýnt að skammtímavistun verði að veruleika og fagnar áformaðri opnun á árinu 2026.
Ráðið tekur undir þau sjónarmið sem fram koma hjá verkefnastjórn og samþykkir fyrir sitt leyti eftirfarandi:
Að sviðsmynd 1 verði lögð til grundvallar í upphafi, fram að áramótum, en stefnt verði að sviðsmynd 2, þ.e. fullri opnun, sem langtímamarkmiði.
Að tekjumódel byggi á valkosti B, þar sem 50% kostnaðar skiptist eftir íbúafjölda og 50% eftir nýtingu (keyptum sólarhringum), með hliðsjón af jafnræði barna á svæðinu.
Að í fulltrúaráði sitji einn fulltrúi frá hverju sveitarfélagi og að þeir fulltrúar komi úr röðum notendaráðs.
Að stofnfé verði jafnt skipt milli þátttökusveitarfélaga.
Að formleg skráning og stofnun verði tryggð tímanlega með það að markmiði að opnun geti átt sér stað haustið 2026.
Samþykkt samhljóða.
Erla Björg fór af fundi.
2. Félagslegt leiguhúsnæði
1810002
Lögð fram tillaga að sölu tveggja íbúða við Hrafnaklett 4 í Borgarnesi í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 742. Jafnframt kynnt staðan á vinnu við að koma á samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög um félagslegt húsnæði til móts við fækkun íbúða í eigu sveitarfélagsins.
Tillagan er í samræmi nýja stefnu Borgarbyggðar um félagslegt leiguhúsnæði sem staðfest var á fundi sveitarstjórnar nr. 274. Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti og leggur til við sveitarstjórn að tvær íbúðir við Hrafnaklett 4 verði settar á sölu. Byggðarráð felur sveitarstjóra að halda áfram samtali við óhagnaðardrifin leigufélög um félagslegt leiguhúsnæði og jafnframt að halda áfram að rýna hvort tilefni sé til að gera frekari breytingar á regluverki sveitarfélagsins til að greiða götu leigutaka að húsnæði sem fellur betur að þeirra þörfum.
Samþykkt samhljóða.
Hlöðver Ingi fór af fundi.
3. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124
Framlögð drög að viðauka IV við framkvæmdaáætlun Borgarbyggðar 2026.
Byggðarráð samþykkir að vísa drögum að viðauka IV við framkvæmdaáætlun til sveitarstjórnar og til umsagnar í sveitarstjórn Skorradalshreppi. Hrein áhrif á framkvæmdaáætlun er engin en breyting er innan liða þar sem liður vegna Slökkvistöðvar í Borgarnesi lækkar úr 60 m.kr. í 33 m.kr. og á móti skapast skapað jafnhætt svigrúm samtals innan liða við Íþróttahús-Parkethús í Borgarnesi og hækkunar á lið við aðkomuveg fjölnota íþróttahúss - knatthúss.
4. Brattagata - Gatnaframkvæmdir
2510327
Yfirferð á útboðsgögnum vegna endurbyggingar á Bröttugötu í Borgarnesi. Til fundarins koma Sæmundur Óskarsson sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, Ottó Ólafsson og Hlynur Ólafsson verkefnastjórar framkvæmda.
Byggðarráð samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að láta fara fram útboð við fyrsta áfanga endurbyggingar Bröttugötu í Borgarnesi á grundvelli framlagðra útboðsgagna. Framkvæmdin fari fram sumarið 2026. Kostnaðaráætlun er innan fjárheimilda ársins.
Samþykkt samhljóða.
5. Þarfagreining v.parkethúss í Borgarnesi
2505246
Yfirferð á forvali vegna hönnunarvinnu og jarðvegskönnunar fyrir fyrirhugaða framkvæmd við parkethús að Þorsteinsgötu 1 í Borgarnesi.
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að fara í lokað tveggja þrepa lokað hönnunarútboð með forvali ásamt því að láta framkvæma jarðvegskönnun á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði.
Samþykkt samhljóða.
Ottó og Hlynur fóru af fundi.
6. Egilsgata 11 - lóðamál
2004149
Farið yfir stöðu málsins.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að halda áfram að vinna málið í samræmi við umræðu á fundi.
Samþykkt samhljóða.
Sæmundur Óskarsson fór af fundi.
7. Húsnæði fyrir slökkvilið á Hvanneyri
2502140
Leigusali húsnæðis Slökkviliðs Borgarbyggðar við Melabraut á Hvanneyri hefur lagt til breytingar á leigusamningi milli aðila. Tillagan borin undir byggðarráð.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að rýna tillögu að breytingu á samningnum í samræmi við umræðu á fundinum og leggja að nýju fyrir byggðarráð.
Samþykkt samhljóða.
8. Húsnæðismál slökkviliðs á Hvanneyri
2112049
Slökkvilið Borgarbyggðar hafði aðstöðu í húsnæði í eigu Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri 2022 til 2025. Aðilar eiga nú í samskiptum vegna fyrirkomulags á leigu vegna tímabilsins. Málið kynnt fyrir byggðarráði.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að fullvinna samkomulag við LBHÍ um lúkningu málsins og gera ráð fyrir mögulegum fjárhagslegum áhrifum í viðauka.
Samþykkt samhljóða.
9. Safnahús og menningarmál 2026
2605016
Þórunn Kjartansdóttir forstöðumaður menningarmála hjá Borgarbyggð kemur til fundarins og fer yfir helstu verkefni Safnahússins.
Farið yfir þróun og uppbyggingu starfs í Safnahúsinu í Borgarnesi. Safnahús og menningarmál heyra undir byggðarráð. Mikil og jákvæð gerjun hefur átt sér stað í starfi Safnahússins, húsið er mjög aðgengilegt og heimsóknum fjölgar samhliða fjölgun viðburða. Framundan er uppsetning á nýrri grunnsýningu árið 2027 og vel hefur gengið að afla styrkja í þróun hennar. Byggðarráð tekur undir með forstöðumanni um að mikilvægt er að ljúka endurbótum á fyrstu hæð hússins. Samþykkt að heimila að safnið verði lokað dagana 23. júní og 1. ágúst 2026 í samræmi við tillögu forstöðumanns.
Tímabært er að hefja vinnu við endurnýjun á menningarstefnu Borgarbyggðar og bíður það verkefni nýrrar sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
10. Val á listamanneskju Borgarbyggðar 2026
2605015
Framundan er val á Listamanneskju Borgarbyggðar fyrir árið 2026.
Lögð fram tillaga að fyrirkomulagi við val á Listamanneskju Borgarbyggðar 2026. Í ljósi sveitarstjórnarkosninga þá leggur byggðarráð til við sveitarstjórn að skipuð verði þriggja manna valnefnd sem vinnur úr tillögum og velur Listamanneskju Borgarbyggðar 2026.
Samþykkt samhljóða.
Þórunn Kjartansdóttir fór af fundi.
11. Umsókn um lóð - stækkun við Engjaás 2-8-10
2311239
Lögð fram drög að samkomulagi um uppgjör gatnagerðargjalda vegna úthlutunar á stækkun lóðar við Steypustöðina við Engjaás. Sæmundur Óskarsson sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að samkomulagi við Steypustöðina um uppgjör gatnagerðargjalda vegna úthlutunar á stækkun lóðar við Steypustöðina við Engjaás í Borgarnesi, að teknu tilliti til breytinga sem samþykktar voru á fundinum. Sveitarstjóra falið að fullvinna samkomulag og leggja fyrir sveitarstjórn. Á lóðinni hyggst Steypustöðin auka verulega starfsemi sína á næstu árum. Þannig stendur til að stækka verksmiðju fyrirtækisins um 5.500 fermetra sem skapar að líkindum 35-40 störf í Borgarnesi.
Samþykkt samhljóða.
12. Sala samkomuhússins við Þverárrétt
2204038
Framlagt afsal vegna sölu á Samkomuhúsinu við Þverárrétt til Kvenfélags Þverárhlíðar sbr. afgreiðslu funda byggðarráðs nr. 737 og 738.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirrita með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar. Byggðarráð fagnar því að þessi áfangi sé nú í höfn og félagsheimilið sé nú komið í eigu Kvenfélags Þverárhlíðar sem hefur haft umsjón með húsinu undanfarin ár. Byggðarráð vonast til að þetta skref verði til að efla nýtingu hússins og stuðla að vernd og viðhaldi þess samfélaginu til heilla. Félagsheimilið fer í góðar hendur þeirra sem hafi sinnt því af alúð í áratugi.
Samþykkt samhljóða.
13. Opnunartími íþróttamannvirkja í Borgarbyggð 2026
2604098
Í samræmi við afgreiðslu frá fundi sveitarstjórnar nr. 276 er skv. beiðni Evu Margrétar Jónudóttur sveitarstjórnarfulltrúa lagt fram kostnaðarmat og tillaga að útfærslu á mögulegri lengingu opnunartíma sundlaugarinnar í Borgarnesi um helgar yfir sumartímann.
Framlagt minnisblað starfsmanns. Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að taka til skoðunar opnunartíma sundlaugarinnar í Borgarnesi í samræmi við efni minnisblaðsins við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.
Samþykkt samhljóða.
14. Brákarey-Skipulagsmál
2412005
Farið yfir sviðræður og önnur samskipti við hagaðila vegna fyrirhugaðrar endurbyggingar Brákareyjar. Til fundarins kemur í gegnum fjarfundarbúnað Örn Valdimarsson sviðsstjóri hjá PwC.
Örn fór yfir gang þeirra viðræðna sem nú standa yfir á milli PwC, fyrir hönd Borgarbyggðar, og Festis. Markmið viðræðnanna er að Festir leiði endurbyggingu Brákareyjar í samræmi við nýtt aðalskipulag og deiliskipulag sem nú er í vinnslu. Sem kunnugt er hefur Festir látið vinna og fjármagnað ítarlegt rammaskipulag fyrir Brákarey og er deiliskipulag unnið á grundvelli þess. Markmiðið er að í eynni byggist upp aðlaðandi ferðaþjónusta, á borð við hótel og baðlón, ásamt annarri atvinnustarfsemi, torgi og íbúðabyggð.
15. Þinghamar - aðgengismál
2303019
Í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs Borgarbyggðar nr. 742 er farið yfir gang málsins.
Framlagt minnisblað um stöðu málsins og byggðarráð felur nýrri sveitarstjórn að gera ráð fyrir kostnaði við framkvæmdina.
Samþykkt samhljóða.