Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa

75. fundur

6. maí 2026 kl. 15:00 - 15:30

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Drífa Gústafsdóttir - skipulagsfulltrúi
Ásgerður H Hafsteinsdóttir - verkefnisstjóri

Starfsmenn

Fundargerð ritaði: Ásgerður Hafsteinsdóttir - Verkefnastjóri


Dagskrá

1. Sturlureykir 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2601251

Lögð er inn umsókn um byggingarleyfi fyrir þjónustuhúsi með starfsmannaaðstöðu og tveimur íbúðum sem er viðbygging við þjónustuhús sem fyrir er á svæðinu, stærð alls 341 m2 að Sturlureykjum 4 (L201093). Um er að ræða timburhús á steyptum undirstöðum sem kemur í stað eldra gróðurhúss sem er ónýtt. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið fyrir hagsmunaaðilum í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir eigendum Sturlureykja 2, 3, 5 og 6.

Fylgiskjöl


2. Vallarás 16 - umsókn um framkvæmdarleyfi - 240016
2604241

Lögð er fram umsókn Borgarverks dags. 28.04.2026 um framkvæmdaleyfi vegna sprenginga fyrir húsbyggingu að Vallarási 16c (L240016). Áætlað er að sprengja um 2-3 m þykka klöpp og er rúmmál áætlað um 4.000 m3. Efni úr sprengingum verður nýtt í uppbyggingu Vallaráss 16b og 16d. Verktími sprenginga er áætlaður 4 vikur og frágangur á efni og jarðvegsskipti 13 vikur. Öryggisráðstafanir á verktíma verða:

Fyrir hverja sprengingu verða kallaðir til tveir menn með tvö bíla með öryggisljósum og standa 200-300 metra frá sprengingu að stoppa alla umferð bæði akandi, ríðandi eða gangandi.

Fyrir hverja sprengingu verða gefin hljóðmerki.

Fylgst verður með áhrifum á næstu byggingum með höggmælum / skjálftamæli. Sprengingar verða framkvæmdar af reyndum mönnum sem hafa komið að öllum sprengingum í Bjargslandi og Borgarbraut s.l 2 ár. Lóðin er skilgreind sem iðnaðar og athafnalóð. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem athafnasvæði. Deiliskipulag er á svæðinu.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, telur að umrædd framkvæmd sé hluti af byggingarleyfi mannvirkis og því ekki háð framkvæmdaleyfi skv. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.

Skipulagsfulltrúi vill ítreka að haft verði samráð við sveitarfélagið varðandi öryggisráðstafanir og tilkynningar. Skipulagsfulltrúi mun hafa samband við málsaðila varðandi leiðbeiningar þess efnis.



Fundi slitið - kl. 15:30