Byggðarráð Borgarbyggðar

742. fundur

30. apríl 2026 kl. 08:15 - 11:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Guðveig Eyglóardóttir - varaformaður
Thelma Dögg Harðardóttir - áheyrnarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri


Dagskrá

1. Fjölnota íþróttahús - Knatthús
2303105

Farið yfir gang framkvæmdar við fjölnota íþróttahús - knatthús í Borgarnesi. Til fundarins koma Sæmundur Óskarsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Hlynur Ólafsson og Ottó Ólafsson verkefnastjórar framkvæmda hjá Borgarbyggð.

Framlagðar fundargerðir verkfunda og farið yfir stöðu verksins. Framundan er vinna við aðkomuveg, ísetning glugga og hurða, uppsetning á tjöldum ofl. Fyrirsjáanlegt er að verktaki nær ekki að afhenda húsið 1. júní eins og að var stefnt og mun afhending dragast inn á sumarið.



2. Aðkomuvegur að fjölnotahús
2603024

Niðurstaða verðfyrirspurnar vegna gatnaframkvæmda við aðkomuveg.

Framlögð opnunarskýrsla og byggðarráð leggur til að tilboð lægstbjóðanda verði valið að öllum skilyrðum uppfylltum.



Samþykkt samhljóða.



3. Þarfagreining v.parkethús í Borgarnesi
2505246

Yfirferð á forvali en fyrirhugað að fara í tveggja þrepa útboðsferli sem er forval og hönnunarsamkeppni.

Í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 741 eru framlögð minnisblöð starfsmanna með rýni á kostnaði við forval og jarðvegsrannsóknir. Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirbúa gerð viðauka vegna forvals og fullnaðarhönnunar á stækkun íþróttahússins í Borgarnesi - parkethúss.



Samþykkt samhljóða.



Hlynur Ólafsson og Ottó Ólafsson fóru af fundi.



4. Endurbætur á miðálmu Grunnskólans í Borgarnesi
2310255

Framundan er lokafrágangur á miðálmu Grunnskólans í Borgarnesi. Farið yfir stöðu verksins.

Á fundinum upplýst að samkvæmt svörum umsjónaraðila verksins eru verktakar væntanlegir í næstu viku til að vinna að lokafrágangi endurbóta á miðálmu Grunnskólans í Borgarnesi. Byggðarráð lýsir yfir vonbrigðum með að verkinu hafi ekki verið lokið á þeim tíma sem liðinn er frá því byggingin var afhent.



5. Eignasjóður - félagslegar íbúðir
2109009

Farið yfir stöðu viðhalds og horfur á árinu er varðar íbúðir í eigu sveitarfélagsins. Til fundarins kemur Guðni Rafn Ásgeirsson umsjónarmaður eigna.

Farið yfir viðhaldsáætlun ársins í félagslegum íbúðum. Viðhaldsáætlun gerir ráð fyrir auknu viðhaldi í ár og fram kom hjá umsjónarmanni eigna vilji til að færa kostnað milli liða í viðhaldsáætlun. Byggðarráð samþykkir hækkun á viðhaldskostnaði vegna íbúða en telur þó ekki tímabært að hækka viðhaldsáætlun sveitarfélagsins í heild. Byggðarráð leggur til að þær íbúðir sem eru lausar verði seldar í samræmi við nýja stefnu sveitarfélagsins um félagslegar leiguíbúðir.



Samþykkt samhljóða.





6. Þinghamar - aðgengismál
2303019

Framlagt bréf frá Húsnefnd Þinghamars með hvatningu til sveitarfélagsins um að sækja um styrk til Jöfnunarsjóðns sveitarfélaga til þeirrar framkvæmdar að setja lyftu í Félagsheimilið Þinghamar.

Byggðarráð tekur undir með Húsnefnd Þinghamars að mikilvægt er að kanna vel tækifæri til að fá styrk frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og mögulega fleiri aðilum þegar ráðist verður í þá framkvæmd að setja lyftu í Þinghamar. Sveitarstjóra falið að sækja um styrk til Jöfnunarsjóðs á grunni þeirrar áætlunar sem þegar hefur verið lögð fyrir.



Samþykkt samhljóða.



Guðni Rafn Ásgeirsson fór af fundi.



7. Egilsgata 11 - lóðamál
2004149

Farið yfir stöðu málsins.

Farið yfir stöðu málsins og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundi.



Samþykkt samhljóða.



8. Rekstur á tjaldsvæðinu í Borgarnesi
2601018

Í samræmi við leigusamning eru lagðar fram tillögur frá leigutaka um framkvæmdir sem hann telur mikilvægt að ráðast í á tjaldsvæðinu á Granastöðum í Borgarnesi.

Í samræmi við samning um rekstur tjaldsvæðisins samþykkir byggðarráð að verkefni þau er lýst er í tillögum leigutaka komi að fullu upp í áætlaða greiðslu vegna leigu yfirstandandi árs. Ekki er gert ráð fyrir öðru framlagi í rekstur tjaldsvæðisins í fjárhagsáætlun Borgarbyggðar og byggðarráð telur ekki tilefni né tímabært að samþykkja hærra framlag að svo komnu máli.



Samþykkt samhljóða.



Sæmundur Óskarsson fór af fundi.



9. Beiðni um hjólabraut neðan vatnstanks í Borgarnesi
2604225

Framlögð beiðni frá Hjólreiðafélagi Vesturlands um afnot að svæði neðan vatnstanks í Borgarnesi fyrir hjólabraut.

Byggðarráð tekur vel í erindið og vísar til umfjöllunar í Umhverfis- og landbúnaðarnefnd.



Samþykkt samhljóða.



10. Mælaborð um rekstur Borgarbyggðar
2401059

Farið yfir mælaborð um þróun rekstrar og fjárfestinga á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026. Til fundarins koma Sigurður Kristjánsson fjármálastjóri og Kristín Lilja Lárusdóttir aðalbókari.

Farið yfir mælaborð um rekstur og fjárfestingar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026. Rekstur sveitarfélagsins gengur í meginatriðum í samræmi við áætlun að frátöldum endurgreiðslum vegna fjárhagsaðstoðar. Framlög frá Jöfnunarsjóði eru lægri en áætlun ársins gerði ráð fyrir en aðrir tekjustofnar vega upp lækkun þeirra framlaga að mestu leyti. Launakostnaður hefur þróast í takti við áætlun.



11. Framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
2510326

Farið yfir áætlun um framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og samanburð sveitarfélaga.

Lagt fram minnisblað um þróun og áætlun um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Við yfirferð á framlögum virðist mikill óútskýrður mismunur á áætluðu framlagi til Borgarbyggðar frá áhrifamati nýrra laga um Jöfnunarsjóð. Áætluð úthlutun á þessari stundu virðist nokkuð á skjön við markmið laganna. Sveitarstjóra falið að óska eftir nánari upplýsingum frá Jöfnunarsjóði.



Samþykkt samhljóða.



Sigurður Kristjánsson og Kristín Lilja Lárusdóttir fóru af fundi.



12. Fundargerðir stjórnar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
2512169

Framlagðar fundargerðir undirbúningsstjórnar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.

Framlagt.



13. Samskipti við Veitur vegna vatnsveitu á Varmalandi
2405162

Í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 732 er farið yfir stöðu vinnu við skoðun á ný tækifæri til vatnsöflunar nærri veitukerfi Vatnsveitu Varmalands. Til fundarins kemur Logi Sigurðsson umhverfisfulltrúi.

Lögð fram verkefnislýsing frá Verkís á þeim valkosti að sækja vatn fyrir Vatnsveitu Varmalands úr vatnsbóli í landi Litla-Skarðs. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fram að nýju á næsta fundi byggðarráðs.



Samþykkt samhljóð.



14. Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2026
2604249

Framlagt fundarboð á aðalfund Landskerfis bókasafna sem fram fer 12. maí 2026.

Framlagt og byggðarráð felur Þórunni Kjartansdóttur forstöðumanni menningarmála að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.



Fundi slitið - kl. 11:00