Byggðarráð Borgarbyggðar

741. fundur

22. apríl 2026 kl. 08:15 - 10:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Guðveig Eyglóardóttir boðaði forföll og Eðvar Ólafur Traustason - varamaður sat fundinn í hans stað
Thelma Dögg Harðardóttir - áheyrnarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson boðaði forföll og Ragnhildur Eva Jónsdóttir - varamaður sat fundinn í hans stað
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri


Dagskrá

1. Framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
2510326

Nú stendur yfir rýni á tekjuáætlun Borgarbyggðar 2026 svo sem m.t.t. áætlunar um framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Farið yfir þróun, áætlun um úthlutun sjóðsins og samanburð við önnur sveitarfélög.

Framlagt og samþykkt að taka til frekari umræðu á næsta fundi.



Samþykkt samhljóða.



2. Þarfagreining v.parkethús í Borgarnesi
2505246

Framlögð frumkostnaðaráætlun vegna viðbyggingar við íþróttahúsið í Borgarnesi - nýtt parkethús. Til fundarins koma Ottó Ólafssson og Hlynur Ólafsson verkefnastjórar framkvæmda hjá Borgarbyggð.

Byggðarráð samþykkir að setja af stað vinnu við forval fyrir lokað útboð á hönnun parkethúss í Borgarnesi. Sveitarstjóra falið að rýna framlögð gögn með tilliti til áhrifa á fjárfestingaráætlun ársins. Þá samþykkir byggðarráð að láta fara fram jarðvegskönnun á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði.



Samþykkt samhljóða.





3. Ugluklettur - Stækkun
2212062

Lögð til yfirferðar hönnun á fyrirhugaðri stækkun eldhúsrýmis við leikskólann Ugluklett í tengslum við áform um stækkun skólans úr þremur í sex deildir. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta starfsaðstöðu og móttökurými.

Byggðarráð samþykkir að láta fullvinna hönnun á grundvelli framlagðra gagna.



Samþykkt samhljóða.



4. Fjölnota íþróttahús - Knatthús
2303105

Lagt fyrir kostnaðarmat vegna rotþróar og siturlagna við fjölnotahús.

Byggðarráð samþykkir að láta fara fram vinnu við niðursetningu rotþróa og siturlagna í samræmi við kostnaðarmat.



Samþykkt samhljóða.



5. Göngustígar - Verðfyrirspurn
2503353

Lagt fram minnisblað starfsmanns um frágang á göngustígum umhverfis Sóleyjarklett frá Hrafnakletti að Fjólukletti 2. Kynnar niðurstöður verðfyrirspurnar í verkið.

Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði Borgarverks í steypta gangstétt. Tilboðið er innan fjárheimilda yfirstandandi árs í göngustíga.



Samþykkt samhljóða.



Ottó og Hlynur fóru af fundi.



6. Brákarey-Skipulagsmál
2412005

Farið yfir samningaviðræður og önnur samskipti við hagaðila vegna fyrirhugaðrar endurbyggingar Brákareyjar.

Til fundarins kom, undir þessum dagskrárlið, í gegnum fjarfundarbúnað Örn Valdimarsson sviðsstjóri ráðgjafarsviðs hjá PwC og kynnti gang samningaviðræðna við Festi og samskipti við aðra hagaðila. Framundan eru frekari fundir með Festi með það að markmiði að ná samkomulagi sem tryggir uppbyggingu í samræmi við það rammaskipulag sem lagt var upp með en fjárhagslegri áhættu sveitarfélagsins sé haldið í lágmarki.



7. Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2026
2603269

Framlögð fundargerð aðalfundar Orkuveitu Reykjavíkur sem fram fór 17. apríl 2026.

Framlagt.



8. Aðalfundur Háskólans á Bifröst 2026
2604119

Framlagt boð á aðalfund Háskólans á Bifröst sem fram fer 5. maí 2026.

Fundarboð framlagt og sveitarstjóra falið að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða.



9. Ársfundur Brákarhlíðar 2026
2604112

Framlagt boð á ársfund Brákarhlíðar, hjúkrunar- og dvalarheimilis sem fram fer 29. apríl 2026.

Fundarboð framlagt og sveitarstjóra falið að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða.



10. Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitarfélaga
2201148

Á 170. fundi velferðarnefndar var fjallað um greiðslufyrirkomulag er snýr að sameiginlegri bakvaktarþjónustu fyrir Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og skóla- og byggðasamlag Snæfellinga. Fram kom að frá 1. maí 2025 hefur bakvaktarþjónustan verið rekin sameiginlega fyrir öll sveitarfélögin. Bókun velferðarnefndar var eftirfarandi: Velferðarnefnd telur nauðsynlegt að greiðslur vegna bakvakta hjá barnaverndarþjónustu Vesturlands taki mið af kjarasamningum, af því gefnu að öll þau sveitarfélög er standa að þjónustunni samþykki slíkar breytingar. Nefndin felur byggðarráði afgreiðslu á málinu. Til fundarins koma Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Erla Björg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að fullvinna kostnaðarmat á þeim tillögum sem lagðar eru fram og leggja fyrir að nýju.



Samþykkt samhljóða.



11. Útboð á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða
2510364

Farið yfir val boða á grundvelli þegar framlagðrar opnunarskýrslu. Búið er að velja tilboð Advania ehf. kt. 590269-7199.

Ákveðið að taka tilboði Advania kt. 590269-7199 sem var metið hagkvæmast út frá valforsendum. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða.



Fundi slitið - kl. 10:00