Sveitarstjórn Borgarbyggðar

276. fundur

16. apríl 2026 kl. 16:00 - 18:00

Hjálmakletti


Nefndarmenn

Guðveig Eyglóardóttir - Forseti
Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir - 1. varaforseti
Eðvar Ólafur Traustason - aðalmaður
Thelma Dögg Harðardóttir - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu


Dagskrá

1. Skýrsla sveitarstjóra
2102062

Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra

Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra



2. Ársreikningur Borgarbyggðar 2025
2603329

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 739:"Framlögð drög að ársreikningi 2025. Til fundarins koma undir þessum dagskrárlið Halldóra Ágústa Pálsdóttir frá KPMG, Sigurður Kristjánsson fjármálastjóri og Kristín Lilja Lárusdóttir yfirbókari.



Samstæða Borgarbyggðar var rekin með 31 m.kr. halla á árinu 2025 og rekstur A-hluta var gerður upp með 92 m.kr. halla. Rekstrarhagnaður samstæðu fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 334 m.kr. en 67 m.kr. af rekstri A-hluta.



Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er 233 m.kr. undir áætlun sveitarfélagsins og skýrist frávik aðallega af 90 m.kr. meiri hækkun lífeyrisskuldbindingar en áætlað var ásamt því sem um 120 m.kr. kostnaður við fjárhagsaðstoð við langtímaflóttafólk hefur ekki fengist endugreiddur.



Rekstrartekjur A-hluta Borgarbyggðar voru tæplega 6,7 ma.kr. á árinu 2025 og jukust um 1,4% á milli ára. Útsvarstekjur jukust um 9,1% og voru 3,3 ma.kr. og skatttekjur samtals jukust um 6,8%.



Veltufé frá rekstri samstæðu Borgarbyggðar var 542 m.kr. sem samsvarar 7,0% framlegð en 372 m.kr. af starfsemi A-hluta sem samsvarar 5,6% framlegð. Hreinar fjárfestingar í A-hluta Borgarbyggðar námu 2,7 ma.kr. Þar standa tvær fjárfestingar upp úr, bygging nýs fjölnota íþróttahúss - knatthúss í Borgarnesi og endurbygging Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Þá var fjárfest í gatnagerð, endurbótum á íþróttahúsinu í Borgarnesi og niðurrif hafið í Brákarey svo eitthvað sé nefnt. Á árinu 2025 nam hrein ný lántaka A-hluta Borgarbyggðar 2,3 ma.kr. og voru heildarskuldir- og skuldbindingar samtals 6,5 ma.kr. í árslok. Heildareignir voru bókfærðar á 13,2 ma.kr. í lok árs 2025 og eigið fé samtals um 6,7 ma.kr. sem samsvarar um 51% eiginfjárhlutfalli. Skuldaviðmið samstæðu var í lok árs 71,4% og 70,1% fyrir A-hluta.



Á fyrri hluta þessa árs verður lokið við framkvæmdir við fjölnota íþróttahús - knatthús, og gatnagerð við Vallarás og Kveldúlfshöfða í Borgarnesi. Nýr markaðsvefur fyrir lóðir í sveitarfélaginu er kominn í loftið og ný hverfi tilbúin til uppbyggingar.



Skuldsetning sveitarfélagsins hefur aukist samhliða uppbyggingu. Rekstur ársins 2025 var þyngri en áætlun gerði ráð fyrir og skuldir því ívið hærri undir lok árs 2025 en áætlað hafði verið. Á þessum tímapunkti metur byggðarráð það sem svo að hætt sé við að tekjur á árinu 2026 verði lægri en áætlun gerði ráð fyrir og er þar helst horft til framlaga frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og endurgreiðslna vegna fjárhagsaðstoðar. Því er tilefni til að rýna reksturinn, fjárfestingar og lántökur ársins með það fyrir augum.



Samþykkt samhljóða og vísað til seinni umræðu í sveitarstjórn."

Samstæða Borgarbyggðar var rekin með 31 m.kr. halla á árinu 2025 og rekstur A-hluta var gerður upp með 92 m.kr. halla. Rekstrarhagnaður samstæðu fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 334 m.kr. en 67 m.kr. af rekstri A-hluta.



Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er 233 m.kr. undir áætlun sveitarfélagsins og skýrist frávik aðallega af 90 m.kr. meiri hækkun lífeyrisskuldbindingar en áætlað var ásamt því sem um 120 m.kr. kostnaður við fjárhagsaðstoð við langtímaflóttafólk hefur ekki fengist endugreiddur.



Rekstrartekjur A-hluta Borgarbyggðar voru tæplega 6,7 ma.kr. á árinu 2025 og jukust um 1,4% á milli ára. Útsvarstekjur jukust um 9,1% og voru 3,3 ma.kr. og skatttekjur samtals jukust um 6,8%.



Veltufé frá rekstri samstæðu Borgarbyggðar var 542 m.kr. sem samsvarar 7,0% framlegð en 372 m.kr. af starfsemi A-hluta sem samsvarar 5,6% framlegð. Hreinar fjárfestingar í A-hluta Borgarbyggðar námu 2,7 ma.kr. Þar standa tvær fjárfestingar upp úr, bygging nýs fjölnota íþróttahúss - knatthúss í Borgarnesi og endurbygging Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Þá var fjárfest í gatnagerð, endurbótum á íþróttahúsinu í Borgarnesi og niðurrif hafið í Brákarey svo eitthvað sé nefnt. Á árinu 2025 nam hrein ný lántaka A-hluta Borgarbyggðar 2,3 ma.kr. og voru heildarskuldir- og skuldbindingar samtals 6,5 ma.kr. í árslok. Heildareignir voru bókfærðar á 13,2 ma.kr. í lok árs 2025 og eigið fé samtals um 6,7 ma.kr. sem samsvarar um 51% eiginfjárhlutfalli. Skuldaviðmið samstæðu var í lok árs 71,4% og 70,1% fyrir A-hluta.



Á fyrri hluta þessa árs verður lokið við framkvæmdir við fjölnota íþróttahús - knatthús, og gatnagerð við Vallarás og Kveldúlfshöfða í Borgarnesi. Nýr markaðsvefur fyrir lóðir í sveitarfélaginu er kominn í loftið og ný hverfi tilbúin til uppbyggingar.



Skuldsetning sveitarfélagsins hefur aukist samhliða uppbyggingu. Rekstur ársins 2025 var þyngri en áætlun gerði ráð fyrir og skuldir því ívið hærri undir lok árs 2025 en áætlað hafði verið. Á þessum tímapunkti metur byggðarráð það sem svo að hætt sé við að tekjur á árinu 2026 verði lægri en áætlun gerði ráð fyrir og er þar helst horft til framlaga frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og endurgreiðslna vegna fjárhagsaðstoðar. Því er tilefni til að rýna reksturinn, fjárfestingar og lántökur ársins með það fyrir augum.



Samþykkt samhljóða



Sigurður Guðmundsson lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd Sjálfstæðisflokks D-lista:" Niðurstða ársins 2025 eru ákveðin vonbrigði. Niðurstaðan afhjúpar það sem við Sjálfstæðismenn höfum varað við á kjörtímabilinu þ.e. nauðsyn þess að forgangsraða fjárfestingum í samræmi við fjárhagslega getu sveitarfélgsins. Þróunin á rekstri sveitarfelagsins á kjörtímabilinu hefur verið á þann veg að á sama tíma og rekstrarniðurstaða hefur versnað þá er veruleg aukning á skuldum sveitarfélagsins. Þetta er mjög vond þróun sem verður að bregðast við. Þessi staða er alfarið á ábyrgð meirihluta Framsóknarflokksins sem er að skila sveitarfélaginu, nú í loka kjörtímabils, á mun verri stað fjárhagslega heldur en Framsókn tók við fyrir fjórum árum."





Til máls tók: SG

Fylgiskjöl


3. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124

Lagður fram viðauki III við fjárhagsáætlun árisins 2026. Er um að ræða viðauka vegna afgreiðslu fundar byggðarráð nr. 740 í eftirfarandi málum:



Nr. 2603133:" Lagt fram samkomulag vegna rekstrarstyrks um rekstur GB á golfvellinum Hamri.



Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagðan samning við Golfklúbb Borgarness og að gerður verði viðauki til að mæta kostnaðarauka sem honum fylgir. Málinu vísað til sveitarstjórnar.



Samþykkt samhljóða"



Einnig afgreiðslu í máli nr. 2602071: Lögð fram drög að samkomulagi við Kaupfélag Borgfirðinga vegna skerðingar á lóð við Egilsholt 1.



Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja samkomulag um lúkningu máls milli Borgarbyggðar og Kaupfélags Borgfirðinga vegna skerðingar á lóð kaupfélagsins við Egilsholt 1. Sveitarstjóra falið að senda samning á fyrirsvarsmenn KB og leggja í framhaldinu fyrir sveitarstjórn til samþykktar. Byggðarráð leggur til að gerður verði viðauki vegna kostnaðar í tengslum við uppgjörið.



Samþykkt samhljóða



Viðauki III snýr að því að fjármagna langtímarekstrarstyrk við Golfklúbb Borgarness vegna reksturs á Hamarsvelli að fjárhæð 12 m.kr. á yfirstandandi ári og samkomulag við Kaupfélag Borgfirðinga vegna skerðingar á lóð í kjölfar framkvæmda sveitarfélagsins á svæðinu að fjárhæð 22,5 m.kr.



Verður kostnaði mætt með lækkun á handbæru fé að fjárhæð samtals 34,5 m.kr. og hækka liðurinn skrifstofa framkvæmdarsvið - verktakar samningsverk um 22,5 m.kr. og liðurinn íþróttafélög styrkir um 12 m.kr.



Sveitarstjórn samþykkir viðauka III við fjárhagsáætlun 2026 með fyrirvara um samþykki Skorradalshrepps. Sveitarstjóra falið að senda viðaukann til Skorradalshrepps til samþykktar.



4. Stjórnsýsluskoðun Borgarbyggðar 2025
2603312

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 738:"Kynnt skýrsla um stjórnsýsluskoðun Borgarbyggðar 2025.



Framlagt."

Framlögð skýrsla KPMG um árlega stjórnsýsluskoðun Borgarbyggðar 2025. Engar nýjar athugasemdir komu fram við skoðun en fáeinar eldri athugasemdir komu fram sem unnið er að úrbótum að.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


5. Samræmdar greiðslur til stuðningsfjölskyldna
2601287

Afgreiðsla byggðarráðs Borgarbyggðar frá fundi nr. 737: "Verkefnahópi er samanstendur af fagaðilum hjá hverju sveitarfélagi á Vesturlandi var falið það verkefni að skoða gjaldskrár fyrir greiðslur stuðningsfjölskyldna, forsendur þeirra og samræma gjaldskrár á Vesturlandi. Skoðað var hvernig greiðslum til stuðningsfjölskyldna var háttað hjá nokkrum misfjölmennum sveitarfélögum á landinu og var lagt fyrir á 168. fundi Velferðarnefndar. Meðfylgjandi eru framlögð gögn frá verkefnahópnum sem voru lögð fyrir fundinn.



Bókun velferðarnefnd var eftirfarandi: "Velferðarnefnd þakkar verkefnahópnum fyrir sitt framlag í því að móta grunn að sameiginlegri gjaldskrá hér á Vesturlandi. Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að gjaldskrá þessi verði uppfærð í samræmi við það sem fram kemur. Málið lagt til frekari umræðu inn í Byggðarráð. Samþykkt samhljóða."



Byggðarráð tekur undir afgreiðslu velferðarnefndar og leggur til við sveitarstjórn að gjaldskráin verði uppfærð til samræmis við tillögu.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá með áorðnum breytingum og felur sveitarstjóra að birta hana.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


6. Ugluklettur - Stækkun
2212062

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 737:"Framlögð opnunarskýrsla útboðs vegna stækkunar á leikskólanum Uglukletti.



Framlagt en sjö tilboð bárust í verkið og stendur nú yfir rýni á tilboðunum.



Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 739:"Á fundi byggðarráðs nr. 738 dags. 26. mars var ákveðið að fresta ákvörðun um töku tilboðs fram að fundi byggðarráðs nr. 739 í ljósi þess að nú stendur yfir rýni á áætlun um tekjur ársins 2026, og áhætta er metin til lækkunar, og öll tilboð eru umfram kostnaðaráætlun. Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Krístín Gísladóttir skólastjóri á Uglukletti komu til fundarins og sátu framan af umræðu um þennan dagskrárlið.



Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að hafna öllum framkomnum boðum í verkið „Leikskólinn Ugluklettur - stækkun“ sem bárust á útboðstíma í samræmi við kafla 0.4.6 í útboðsgögnum og 2. mgr. 83. laga 120/2016, um opinber innkaup. Ljóst er að öll boð voru yfir kostnaðaráætlun eða frá 11% - 50%. Í ljósi upplýsinga frá Jöfnunasjóði sveitarfélaga sem komu fram nú á lokastigum útboðsferilsins gætu áætlaðar tekjur frá Jöfnunarsjóði orðið allt að 280 milljónum króna lægri en miðað er við í fjárhagsáætlun. Myndi það hafa veruleg áhrif á rekstur sveitarfélagsins en það í bland við hærri tilboð miðað við kostnaðaráætlun gerir það að verkum að tilefni er til að endurskoða rekstrar- og fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða."



Sveitarstjórn staðfesti afgreiðslu byggðarráðs og hafnar öllum framkomnum boðum í verkið „Leikskólinn Ugluklettur - stækkun“ sem bárust á útboðstíma í samræmi við kafla 0.4.6 í útboðsgögnum og 2. mgr. 83. laga 120/2016, um opinber innkaup. Ljóst er að öll boð voru yfir kostnaðaráætlun eða frá 11% - 50%. Í ljósi upplýsinga frá Jöfnunasjóði sveitarfélaga sem komu fram nú á lokastigum útboðsferilsins gætu áætlaðar tekjur frá Jöfnunarsjóði orðið allt að 280 milljónum króna lægri en miðað er við í fjárhagsáætlun. Myndi það hafa veruleg áhrif á rekstur sveitarfélagsins en það í bland við hærri tilboð miðað við kostnaðaráætlun gerir það að verkum að tilefni er til að endurskoða rekstrar- og fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


7. Kosningar í ráð og nefndir 2022-2026
2205140

Skipa þarf nýjan fulltrúa í undirkjörstjórnir vegna tengsla kjörstjórnarmanna við frambjóðendur framkominna framboða fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026.

Sigríður Jóna Sigurðardóttir aðalmaður hefur sagt sig úr undirkjörstjórn Lindartungukjördeildar. Guðmundur Sigurðsson aðalmaður og Sólrún Halla Bjarnadóttir aðalmaður hafa sagt sig úr undirkjörstjórn Kleppjárnsreykjakjördeildar.



Er þeim þakkað fyrir vel unnin störf síðustu ár.



Lagt er til að Kolbrún Sveinsdóttir og Fjölnir Jónsson verði skipuð sem aðalmenn í undirkjörstjórn Kleppjárnsreykjakjördeildar.



Lagt er til að Stefanía Hulda Þórðardóttir verði skipuð í undirkjörstjórn Lindartungukjördeildar.



Samþykkt samhljóða



8. Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitafélaga
2201148

Viðauki 1 um Barnaverndarþjónustu Vesturlands, við samning milli Hvalfjarðarsveitar og Borgarbyggðar um rekstrur sameiginlegrar barnaverndarþjónstu lagður fram. Viðaukinn var samþykktur í sveitarstjórn 12. desember 2024 en er lagður fram til endanlegrar staðfestingar eftir nánari yfirferð hjá ráðuneytum.

Sveitarstjórn fangar þeim áfanga að búið sé að samþykkja viðauka 1 og að unnt sé að halda áfram að byggja upp gott samstarf á Vesturlandi um rekstur barnaverndarþjónustu. Sveitarstjórn staðfestir viðaukann fyrir sitt leyti með áorðnum breytingum sem voru litlar efnislega.



Samþykkt samhljóða



Fylgiskjöl


9. Gjaldskrár 2026
2510200

Lögð fram uppfærð gjaldskrá fyrir framkvæmdarleyfi, þjónustugjöld skipulagsfulltrúa og stofnanir lóða með áorðnum breytingum.

Sveitarstjórn samþykkir gjaldskrá fyrir framkvæmdarleyfi, þjónustugjöld skipulagsfulltrúa og stofnanir lóða með áorðnum breytingum.





Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


10. Aðkomuvegur að fjölnotahús
2603024

Afgreiðsla byggðarráðs frá fundi nr. 737:"Yfirferð á fyrirhugaðri gatnagerð við aðkomuveg að fjölnota húsi við Þorsteinsgötu. Til fundarins koma Hlynur Ólafsson og Ottó Ólafsson verkefnastjórar framkvæmda hjá Borgarbyggð.



Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að láta fara fram verðfyrirspurn á gatnagerð við aðkomuveg að fjölnota íþróttahúsi í Borgarnesi.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn staðfestir að fara skuli fram verðfyrirspurn á gatnagerð við aðkomuveg við fjölnota íþróttahús í Borgarnesi.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


11. Úrskurðir örnefnanefndar vegna bæjarnafna í Borgarbyggð
2603187

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 738:"Framlagðir úrskurðir örnefnanefndar um bæjarheitið Heima (L238596) og um bæjarheitin Vanaheim (L237771) og Jötunheim (L237773).



Framlagt."

Úrskurðir örnefnanefndar framlagðir



12. Háskólinn á Bifröst Fulltrúaráð og stjórn endurnýjun 2026
2603309

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 739:"2603309

Tilnefningar á fulltrúum Borgarbyggðar í fulltrúaráð og stjórn Háskólans á Bifröst.



Byggðarráð Borgarbyggðar leggur til við sveitarstjórn að tilnefna Guðveigu Lind Eyglóardóttur sem aðalmann í stjórn Háskólans á Bifröst og Bjarneyju L. Bjarnadóttur sem varamann hennar. Þá leggur byggðarráð til að Brynja Þorsteinsdóttir verði fulltrúi Borgarbyggðar í fulltrúaráði og Sigrún Ólafsdóttir verði varamaður.



Samþykkt samhljóða og vísað til afgreiðslu í sveitarstjórn."

Sveitarstjórn staðfestir að tilefna Guðveigu Lind Eyglóardóttur sem aðalmann í stjórn Háskólans á Bifröst og Bjarneyju L. Bjarnadóttur sem varamann hennar.



Sveitarstjórn tilnefnir Brynju Þorsteinsdóttur sem fulltrúa Borgarbyggðar og Sigrúnu Ólafsdóttur sem varamann hennar í fulltrúaráð Háskólans á Bifröst.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


13. Beiðni frá Golfklúbbi Borgarness um langtímarekstrarstyrk
2603133

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 740:"Lagt fram samkomulag vegna rekstrarstyrks um rekstur GB á golfvellinum Hamri.



Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagðan samning við Golfklúbb Borgarness og að gerður verði viðauki til að mæta kostnaðarauka sem honum fylgir. Málinu vísað til sveitarstjórnar.



Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn samþykkir samning um rekstur golfvallarins að Hamri (Hamarsvöll) við Golfklúbb Borgarness og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


14. Fyrirhuguð hækkun VSK á baðlón
2604005

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 740:"Fjallað um áform ríkisvaldsins að hækka virðisaukaskatt á baðlón en ljóst er að slík hækkun hefur bein áhrif á baðlónastarfssemi, ferðaþjónustu og mögulega aðra atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu.



Fyrir helgina birti ríkisstjórnin áform um að hækka virðisaukaskatt á baðlón. Þessi hækkun snertir a.m.k. Kraumu og Giljaböðin í Húsafelli beint, en ljóst er að neikvæð áhrif gætu hæglega smitast yfir á aðra atvinnustarfsemi í Borgarbyggð. Mikil fjárfesting hefur átt sér stað í ferðaþjónustu í Borgarbyggð síðustu ár sem hefur haft jákvæð áhrif á atvinnulíf í sveitarfélaginu.



Þetta er því mál sem snertir ekki aðeins rekstur fárra fyrirtækja heldur alla virðiskeðju ferðaþjónustunnar. Baðlónin í Borgarbyggð eru mikilvægir seglar í ferðaþjónustu á svæðinu sem draga að ferðamenn og styðja við fjölbreyttari atvinnutækifæri, meiri dreifingu ferðamanna og þjónustu svo að aukin verðmæti verði eftir á svæðunum sjálfum.



Baðlón eru skv. könnun Ferðamálastofu vinsælasta afþreying bæði erlendra og innlendra ferðamanna. Þá hefur íslensk baðmenning nýlega verið viðurkennd á heimsminjaskrá UNESCO og er því nú enn sterkari sem helsta sérstaða landsins hvað varðar markaðssetningu til verðmætari ferðamanna til framtíðar.



Byggðarráð Borgarbyggðar lýsir áhyggjum af því að þessi áform eigi eftir að hafa neikvæð og kólnandi áhrif á ferðaþjónustuna og skorar á stjórnvöld að falla frá þessum áformum um skattahækkun.



Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn tekur undir bókun byggðarráðs og áskorun á stjórnvöld um að falla frá áformum um skattahækkunina.



Samþykkt samhljóða



15. Egilsholt 1 - lóðarfrágangur
2602071

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 740:"Lögð fram drög að samkomulagi við Kaupfélag Borgfirðinga vegna skerðingar á lóð við Egilsholt 1.



Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja samkomulag um lúkningu máls milli Borgarbyggðar og Kaupfélags Borgfirðinga vegna skerðingar á lóð kaupfélagsins við Egilsholt 1. Sveitarstjóra falið að senda samning á fyrirsvarsmenn KB og leggja í framhaldinu fyrir sveitarstjórn til samþykktar. Byggðarráð leggur til að gerður verði viðauki vegna kostnaðar í tengslum við uppgjörið.



Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn samþykkir samning um lúkningu máls á millli Borgarbyggðar og Kaupfélags Borgfirðinga og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn.



Samþykkt samhljóða



16. Útboð á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða
2510364

Afgreiðsla fundar byggðaráðs nr. 740:"Lögð fram opnunarskýrsla vegna útboðs á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða.



Byggðarráð leggur til að valið verði tilboð Advania ehf., kt. 590269-7199, í útboði nr. 2510364: ,, Hýsing og rekstur upplýsingatækniumhverfis Borgarbyggðar, auk notendaþjónustu“ og vísar málinu til sveitarstjórnar.



Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og velur tilboð Advania ehf., kt. 590269-7199, í útboði nr. 2510364: ,, Hýsing og rekstur upplýsingatækniumhverfis Borgarbyggðar, auk notendaþjónustu“ Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


17. Fyrirhugaðar lokanir í Hvalfjarðargöngum
2604010

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 740:"Hvalfjarðargöng verða lokuð aðfaranætur mánudags til föstudags frá klukkan 21:30 til 06:00 að morgni frá 7. apríl til 29. maí. Opið verður fyrir umferð aðfaranætur laugardags og sunnudags.



Vegna endurnýjunar á lýsingu í Hvalfjarðargöngum er hafið tímabil þar sem göngin verða lokuð fyrir umferð á virkum dögum frá kl. 21.30 til 6.00 til 29. maí. Á þeim tíma verður umferð vísað um Hvalfjörð. Hvalfjarðargöng eru mikilvæg lífæð fyrir Vesturland og sífellt fleiri treysta á göngin svo sem vegna atvinnu eða skóla.



Endurbætur á lýsingu í göngunum er fagnaðarefni en afleitt að þær leiði til tímabundinnar lokunar. Byggðarráð leggur áherslu á að tryggt verði að bráðaþjónusta geti eftir sem áður átt greiða leið um göngin. Þá hvetur byggðarráð Vegagerðina og verktaka til að sýna sveigjanleika ef brýnir hagsmunir eru í húfi og sýna ákveðið meðalhóf með því að bjóða upp á fylgdarakstur þegar það er mögulegt.



Tímabundin lokun Hvalfjarðarganga sýnir enn og aftur mikilvægi þess fyrir Vesturland að fjölga heilsárssamgönguleiðum milli landshlutans, höfuðborgarsvæðisins og Suðurlands svo sem með uppbyggingu heilsársvegar um Uxahryggi.



Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn tekur undir bókun byggðarráðs og ítrekar að mikilvægt sé að tryggja nauðsynlega umferð um gögnin á meðan á framkvæmdum stendur að því marki sem mögulegt er.



Samþykkt samhljóða



18. Útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027
2509087

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 740:"Kynnt drög að útboði á skólaakstri.



Byggðarráð leggur til að skólakstur verði boðinn út til fjögurra ára og sveitarstjóra falið að vinna áfram að útboðsgögnum í samræmi við umræður á fundi og leggja fyrir sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn samþykkir að gerð verði sú breyting á framlögðum útboðsgögnum að sett verði skilyrði um að allir bílar sem aka malarvegi sveitarfélagsins séu með fjórhjóladrif og gerður 24 mánaða aðlögunartími að því skilyrði frá gildistöku. Að öðru leyti samþykkir sveitarstjórn að láta fara fram útboð á skólaakstri á grundvelli framlagðra útboðsgagna.



Samþykkt samhljóða



Til máls tók REJ, SÓ og EÓT



19. Sveitarstjórnarkosningar 2026
2601070

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr.740:"Lagt fram minnisblað um staðsetningu og opunartíma kjörstaða í Borgarbyggð og Skorradalshreppi.



Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að staðfesta staðsetningar og opnunartíma kjörstaða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026. Að fyrirkomulagið verði eftirfarandi:



Kjörstaðir verða óbreyttir frá því sem áður hefur verið í Borgarbyggð eða samkvæmt gildandi samþykktum sveitarfélagsins. Samþykkt hefur verið að Skorradalur verði ein sérstök kjördeild sbr. mál nr. 2602076 sem tekið var fyrir þann 12. febrúar sl. í sveitarstjórn Borgarbyggðar og mál nr. 2602001 sem var tekið fyrir í Hreppsnefnd Skorradals þann 3. febrúar sl.



Borgarneskjördeild mun þjóna íbúum sem búa á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, ásamt íbúum Hvanneyrar og Andakíls. Kosið verður í Hjálmakletti. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.



Þinghamarskjördeild verður fyrir íbúa Stafholtstungna, Norðurárdals, Bifrastar og Þverárhlíðar. Kosið verður í Þinghamri. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.



Lindartungukjördeild er ætlað íbúum sem búa á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kosið verður í félagsheimilinu Lindartungu. Yfirkjörstjórn leggur til að opnunartími Lindartungukjördeildar verði styttur um tvo klukkutíma en kjörfundur mun hefjast kl. 10:00 og ljúka kl. 18.00.



Kleppjárnsreykjakjördeild verður fyrir íbúa Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals, Reykholtsdals, Hvítársíðu og Hálsasveitar. Kosið verður í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Yfirkjörstjórn leggur til að opnunartími Kleppjárnsreykjakjördeildar verði styttur og í takt við opnunartíma í Þinghamarskjördeild eða frá kl. 10.00 og myndi þá ljúka kl. 20.00.



Skorradalskjördeild verður fyrir íbúa Skorradals. Kosið verður í Laugarbúð. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.



Málinu vísað til sveitarstjórnar



Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn samþykkir að staðsetningar og opnunartímar kjörstaða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026 verði með eftirfarandi fyrirkomulagi:



Kjörstaðir verða óbreyttir frá því sem áður hefur verið í Borgarbyggð eða samkvæmt gildandi samþykktum sveitarfélagsins. Samþykkt hefur verið að Skorradalur verði ein sérstök kjördeild sbr. mál nr. 2602076 sem tekið var fyrir þann 12. febrúar sl. í sveitarstjórn Borgarbyggðar og mál nr. 2602001 sem var tekið fyrir í Hreppsnefnd Skorradals þann 3. febrúar sl.



Borgarneskjördeild mun þjóna íbúum sem búa á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, ásamt íbúum Hvanneyrar og Andakíls. Kosið verður í Hjálmakletti. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.



Þinghamarskjördeild verður fyrir íbúa Stafholtstungna, Norðurárdals, Bifrastar og Þverárhlíðar. Kosið verður í Þinghamri. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.



Lindartungukjördeild er ætlað íbúum sem búa á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kosið verður í félagsheimilinu Lindartungu. Yfirkjörstjórn leggur til að opnunartími Lindartungukjördeildar verði styttur um tvo klukkutíma en kjörfundur mun hefjast kl. 10:00 og ljúka kl. 18.00.



Kleppjárnsreykjakjördeild verður fyrir íbúa Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals, Reykholtsdals, Hvítársíðu og Hálsasveitar. Kosið verður í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Yfirkjörstjórn leggur til að opnunartími Kleppjárnsreykjakjördeildar verði styttur og í takt við opnunartíma í Þinghamarskjördeild eða frá kl. 10.00 og myndi þá ljúka kl. 20.00.



Skorradalskjördeild verður fyrir íbúa Skorradals. Kosið verður í Laugarbúð. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.

Fylgiskjöl


20. Fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2026
2511065

Afgreiðsla byggðarráðs frá fundi nr. 738: "Framlagður viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun Skorradalshrepps fyrir árið 2026.



Viðauki framlagður. Byggðarráð felur sveitarstjóra að óska eftir samtali við Skorradalshrepp um fyrirkomulag framkvæmda vegna ljósleiðara í Skorradalshreppi.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkir viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Skorradalshrepps fyrir árið 2026.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


21. Samningur um umhirðu og slátt á opnum svæðum á Hvanneyri
2603108

Afgreiðsla frá fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar frá fundi nefndarinnar nr. 72:"Farið yfir drög að samningi við Landbúnaðarháskóla Íslands um umhirðu opina svæða á Hvanneyri. Í drögunum er gert ráð fyrir að skólin haldi ekki utan um vinnuskólan á Hvanneyri eins og verið hefur.



Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti drög að samningi og sendir þau til sveitastjórnar til staðfestingar."

Sveitarstjórn samþykkir samning við Landbúnaðarháskóla Íslands um umhirðu opinna svæða á Hvanneyri og felur sveitarstjóra að undirrita samkomulagið.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


22. Umsagnir - skipulagsmál
2603342

Afgreiðsla 85. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við vinnslutillögu aðalskipulags Húnabyggðar 2025-2037 en óskar eftir að fá skipulagið til umsagnar á síðari stigum.

Samþykkt samhljóða. "

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við vinnslutillögu aðalskipulags Húnabyggðar 2025-2037 að svo stöddu en óskar eftir að fá skipulagið til umsagnar á síðari stigum.

Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa að ljúka við umsögn og senda til Skipulagsstofnunar.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


23. Húsafell 3 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi - Stórarjóður 6 L134495
2601020

Afgreiðsla 85. fundar skipulags- og byggingarnefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi Stuttárbotna fyrir lóðina Stórarjóður 6. Breytingin er sett fram í greinagerð og á uppdrætti dags. 05.01.2026.

Breytingin felst í því að byggingarreitur er lengdur um nokkra metra til norð-austurs og suð-austurs auk þess sem hann er einnig settur utan um núverandi fylgihús sem er á lóðinni en húsið stendur nær lóðamörkum en 10m. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir.

Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum og koma þeim á framfæri við málsaðila.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi Stuttárbotna fyrir lóðina Stórarjóður 6. Breytingin er sett fram í greinagerð og á uppdrætti dags. 05.01.2026.

Breytingin felst í því að byggingarreitur er lengdur um nokkra metra til norð-austurs og suð-austurs auk þess sem hann er einnig settur utan um núverandi fylgihús sem er á lóðinni en húsið stendur nær lóðamörkum en 10m. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir.

Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


24. Skúlagata 14 - Umsókn um lóðaleigusamning
2602002

Afgreiðsla 85. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að endurnýja lóðarleigusamning fyrir lóðina Skúlagata 14. Auk þess leggur nefndin til við sveitarstjórn að samþykkja afmörkun lóðar þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir að endurnýja lóðarleigusamning fyrir lóðina Skúlagata 14. Auk þess samþykkir sveitarstjórn afmörkun lóðar þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


25. Hamar - Umsókn um stofnun lóða
2603285

Afgreiðsla 85. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun 3406,7 m2 lóð, Hamar - Golfsvæði 1 og 796,3 m2 lóð, Hamar - Gamli bær úr landi Hamars (L135401) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Lóðirnar fara í notkunarflokkinn lóð.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir stofnun 3406,7 m2 lóð, Hamar - Golfsvæði og 796,3 m2 lóð, Hamar - Gamli bær úr landi Hamars þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


26. Vanaheim - umsókn um breytingu á landnotkun - F2535890
2511125

Afgreiðsla 85. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja skráningu lóðarinnar Vanaheim úr viðskipta- og þjónustulóð í íbúðarhúsalóð. Nefndin bendir á úrskurð örnefnanefndar mál nr. 2-2026 um bæjarheitin Vanaheim og Jötunheim.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir skráningu lóðarinnar Vanaheim úr viðskipta- og þjónustulóð í íbúðarhúsalóð. Sveitarstjórn ítrekar jafnframt ábendingu skipulags- og byggingarnefndar um úrskurð örnefnanefnda, mál nr. 2/2026 um bæjarheitin Vanaheim og Jötunheim.



Samþykkt samhljóða



27. Syðstu-Fossar - umsókn um framkvæmdarleyfi - 133909
2504020

Afgreiðsla 85. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja útgáfu framkvæmdaleyfis þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum.

Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


28. Framlenging á samningi um söfnun dýraleifa
2604043

Afgreiðsla fundar Umhverfis- og landbúnaðarnefndar nr.72:" Skv. samningi um söfnun dýraleifa frá 2024 er heimild til framlengingar á samningi tvisvar (2) sinnum um eitt (1) ár þannig að samningstími geti mest orðið fjögur (4) ár."



Sveitarstjórn staðfestir að framlengdur verði samningur um söfnun dýraleifa við HSS verktak ehf. á grundvelli 4. gr. í þjónustusamningi á milli aðila frá árinu 2024.



Samþykkt samhljóða



29. Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands 2026
2603041

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 737:"2603041

Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands fer fram 25. mars.



Fundarboð framlagt. Byggðarráð tilnefnir Finnboga Leifsson og Kristján Ágúst Magnússon sem fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn tilnefnir Finnboga Leifsson og Kristján Ágúst Magnússon sem fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn Sorpurðunar Vesturlands.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


30. Mál í samráðsgátt - Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks
2603130

Afgreiðasla fundar byggðarráðs nr. 737: "Í Samráðsgátt er kynning á áformum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um lagasetningu um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks.



Byggðarráð tekur undir að tilefni er til að skoða með hvaða hætti gera megi regluverk vegna uppbyggingar orkuinnviða skilvirkara. Uppbygging orkuinnviða er velferðar- og öryggismál fyrir landsmenn alla. Aukin skilvirkni má hins vegar ekki vera á kostnað landeigenda eða sveitarfélaga. Byggðarráð og sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur ítrekað bent á að sjónarmið um sanngjarnan hlut landeigenda og nærsamfélaga og uppbyggingu orkuinnviða geta auðveldlega farið saman. Framleiðsla og flutningur á raforku skapar mikil verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Það er óviðunandi að sú verðmætasköpun sé á kostnað landeigenda eða samfélaga fjarri þeim stað er orkan er nýtt. Það er sanngirnismál að greitt sé eðlilegt verð fyrir það land sem tekið er undir orkumannvirki. Það verð hlýtur að taka mið af þeim skorðum sem mannvirkin setur á nýtingu landsins og þeim miklu verðmætum sem þeim er ætlað að skapa.



Samþykkt samhljóða."

Sveitarstjórn tekur undir bókun byggðarráðs og ítrekar að endurskoða þurfi regluverk vegna uppbyggingar orkuinnviða með það að markmiði að gera það skilvirkara, auka gagnsæi og gæta að hagsmununum landeigenda og nærsamfélags í ferlinu.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


31. Aðalfundarboð Reiðhallarinnar Vindási 2026.
2603241

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 738:"Framlagt boð á aðalfund Reiðhallarinnar Vindási sem fram fer 9. apríl 2026.



Fundarboð framlagt og felur byggðarráð Davíð Sigurðssyni að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins."

Sveitarstjórn staðfestir umboð Davíðs Sigurðssonar sem mætti á aðalfund Reiðhallarinnar Vindáss fyrir hönd sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


32. Aðalfundur Veiðifélags Langár
2603345

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 739:"Lagt fram fundarboð á aðalfund Veiðifélags Langár.



Framlagt."

Fundarboð á aðalfund Veiðfélags Langár 2026 lagt fram.

Fylgiskjöl


33. Aðalfundur Veiðifélags Hítarár 2026
2604022

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 740:"Fundarboð á aðalfund veiðifélags Hítarár lagt fram.



Fundarboð framlagt."

Fundarboð á aðalfund Veiðifélags Hítarár 2026 lagt fram.

Fylgiskjöl


34. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170

Afgreiðsla fundar byggðarráðs nr. 740:"Framlögð tillaga að umsögn vegna máls nr. 582 - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits), sbr. afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 739.



Samstarf sveitarfélaga um rekstur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands verið farsælt. Um er að ræða mjög mikilvæga þjónustu fyrir íbúa, stofnanir og atvinnulíf þar sem staðbundin þekking getur skipt sköpum. Þetta er starfsemi sem byggir á öflugu starfsfólki með staðgóða þekkingu sem er reiðubúið að bregðast hratt við. Mjög vel ígrunduð rök þurfa að búa að baki því að ráðast í svo stóra kerfibreytingu sem frumvarpið felur í sér. Þau rök hafa ekki komið fram svo sannfærandi sé og mikill vafi leikur á að kerfisbreytingin verði til batnaðar.



Byggðarráð Borgarbyggðar ítrekar því fyrri afstöðu sína til fyrirhugaðra breytinga á lögum um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Í bókun frá 720. fundar byggðarráðs frá 18. september 2025 segir: ?Ef svo fer sem horfir virðist vera lögð aukin áhersla á miðstýringu eftirlitsstofnana sem getur haft í för með sér að staðbundin þekking geti tapast, þjónustulund minnki, viðbragðstími lengist og kostnaður notenda hækki.?



Byggðarráð telur að þessi sjónarmið séu enn í fullu gildi. Sveitarfélagið tekur undir þær áhyggjur sem fram koma í umsögnum Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Augljóst er að fyrirhugaðar breytingar fela í sér verulega tilfærslu á verkefnum og ábyrgð frá sveitarfélögum til ríkisins, sem mun hafa áhrif á gæði þjónustu, framkvæmd eftirlits og samstarf stofnana.



Mikil hætta er á að staðbundin þekking og reynsla, sem byggst hefur upp innan heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga á löngum tíma, glatist eða veikist. Það mun leiða til minni þjónustulundar, lengri viðbragðstíma og aukins kostnaðar fyrir íbúa og atvinnulíf, auk þess sem hún getur dregið úr sveigjanleika og skilvirkni í framkvæmd eftirlits.



Byggðarráð telur að frumvarpið geri of lítið úr mikilvægi þess að eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum sé nálægt vettvangi. Nálægð við íbúa og fyrirtæki er lykilforsenda stöðugs árangursríks eftirlits og stuðlar að trausti, skilvirkum samskiptum og betri niðurstöðum.



Byggðarráð telur að ekki hafi verið sýnt fram á að þær breytingar sem lagðar eru til muni í raun leiða til aukinnar skilvirkni eða einföldunar í framkvæmd. Þvert á móti óttast byggðarráð að breytingin hafi neikvæð áhrif á þjónustustig, kostnað og gæði eftirlits.



Að lokum leggur byggðarráð áherslu á að skýrt liggi fyrir hvernig verkaskiptingu og ábyrgð milli ríkis og sveitarfélaga verður háttað. Þennan þátt þarf að skýra mun betur í frumvarpinu.



Samþykkt samhljóða"

Sveitarstjórn tekur undir bókun byggðarráðs og felur sveitarstjóra að koma umsögninni á framfæri.



Samþykkt með 8 akvæðum: DS, GLE, SÓ, EÓT, BLB, TDH, RJE og SG

á móti 1 atkvæði: EMJ

Fylgiskjöl


35. Breyting á fundartíma sveitarstjórnar í maí
2604099

Reglulegur fundur sveitarstjórnar á að vera þann 14. maí nk. en kemur sá dagur upp á uppstigningardegi og því er lagt til að næsti fundur sveitarstjórnar fari fram 13. maí nk.

Sveitarstjórn samþykkir að reglur fundur sveitarstjórnar verði færður til 13. maí nk.



Samþykkt samhljóða



36. Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitafélaga
2201148

Afgreiðsla frá fundi velferðarnefndar nr. 170: " Lagt fram drög að viðauka við samþykktir sveitarfélagsins vegna fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Vesturlands samkvæmt 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.



Velferðarnefnd samþykkir samhljóða viðauka við samþykktir sveitarfélagsins og vísar til staðfestingar sveitastjórnar."



Drög að viðauka við samþykkt um stjórn Borgarbyggðar vegna fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Vesturlands samkvæmt 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 lagðar fram til fyrri umræðu.

Sveitarstjórn samþykkir framkomna breytingu á samþykktum fyrir sitt leiti, felur sveitarstjóra að fullvinna þær og vísar til síðari umræðu í sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða



37. Opnunartími íþróttamannvirkja í Borgarbyggð 2026
2604098

Mál sett á dagskrá að beiðni Evu Margrétar Jónudóttur sveitarstjórnarfulltrúa þar sem lögð er fram eftirfarandi tillaga:



"Undirrituð leggur til að tekið verið saman kostnaðarmat og tillaga að útfærslu á mögulegri lengingu opnunartíma sundlaugarinnar í Borgarnesi um helgar yfir sumartímann. Sérstaklega verði teknar saman eftirfarandi sviðsmyndir.

    a) að laugardagsopnun verði lengd um 4 klukkustundir eða frá 18:00 til kl 22:00.

    b) að opnunartími laugardaga og sunnudaga verði lengdur um 2 klukkustundir, til klukkan 20:00 í stað 18:00.

    c) að opnunartími laugardaga sunnudaga verði lengdur um 4 klst eða frá kl 18:00 til kl 22:00.

Jafnframt legg ég til að kostnaðarmat þetta verði lagt fyrir byggðaráð og að málið komi í framhaldi aftur til afgreiðslu á sveitastjórnarfund í maí. Þannig getur sveitastjórn tekið upplýsta afstöðu til þess hvort rétt sé að lengja opnunartíma sundlaugarinnar í Borgarnesi yfir sumartímann."

Sveitarstjórn samþykkir tilögu Evu Margrétar Jónudóttur.





38. Fundargerðir stjórnar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
2512169

Lagðar fram fundargerðir frá fundum stjórnar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.

Fundargerðir stjórnar um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps frá fundum nr. 3, 4, 5, 6 og 7 lagðar fram.

Fylgiskjöl


39. Byggðarráð Borgarbyggðar - 737
2603018F

Fundargerð framlögð

39.1
2303023
Samræmd móttaka flóttafólks
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Að fundi loknum voru aðilar sammála um eftirfarandi samantekt um það sem fram kom. "Félags- og húsnæðismálaráðherra átti fund þann 18. mars 2026 með fulltrúum frá Borgarbyggð um stöðu flóttafólks sem búsett er á Bifröst. Meðal annars kom fram að kostnaður sveitarfélagsins vegna fjárhagsaðstoðar við hópinn hafi verið íþyngjandi fyrir sveitarfélagið og að Bifröst sé ekki ákjósanlegur staður til langtímabúsetu fólks og að taka þyrfti ákvörðun um framtíð staðarins með tilliti til þess. Ákveðið var að halda samtalinu áfram með áherslu á sameiginlegar tillögur ríkis og sveitarfélags um aðgerðir vegna framangreindra atriða." Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

39.2
2602286
Melabraut 2b - Umsókn um lóð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að lóðinni Melabraut 2b á Hvanneyri verði úthlutað til HIG húsasmíði ehf. með fyrirvara um breytingu deiliskipulagi er varðar þakhalla mannvirkja. Samþykkt samhljóða.

39.3
2603149
Viðhaldsáætlun eignasjóðs 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Byggðarráð þakkar umsjónarmanni eigna fyrir góða yfirferð.Sæmundur Óskarsson og Guðni Rafn Ásgeirsson fóru af fundi.

39.4
2204038
Sala samkomuhússins við Þverárrétt
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Byggðarráð tekur vel í erindið og felur sveitarstjóra að leggja samning við kvenfélagið fyrir sveitarstjórn en félagið hefur um langt árabil séð um rekstur hússins.Samþykkt samhljóða.Lilja Björg Ágústsdóttir fór af fundi.

39.5
2603133
Beiðni frá Golfklúbbi Borgarness um langtímarekstrarstyrk
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Byggðarráð tekur vel í erindi Golklúbbs Borgarness og felur sveitarstjóra að vinna samning við golfklúbbinn, leggja mat á fjárhagsleg áhrif og leggja fyrir byggðarráð að nýju.Samþykkt samhljóða.

39.6
2501076
Fjarskiptasamband í Borgarbyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Byggðarráð leggur til að gengið verði til samninga við Mílu á grundvelli tillagna félagsins að teknu tilliti til breytingartillagna sem ræddar voru á fundi og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.

39.7
2603108
Samningur um umhirðu og slátt á opnum svæðum á Hvanneyri
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Drög að samningi kynnt og byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundi.Samþykkt samhljóða.

39.8
2603106
Frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Framlagt.

39.9
2603130
Mál í samráðsgátt - Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Byggðarráð tekur undir að tilefni er til að skoða með hvaða hætti gera megi regluverk vegna uppbyggingar orkuinnviða skilvirkara. Uppbygging orkuinnviða er velferðar- og öryggismál fyrir landsmenn alla. Aukin skilvirkni má hins vegar ekki vera á kostnað landeigenda eða sveitarfélaga. Byggðarráð og sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur ítrekað bent á að sjónarmið um sanngjarnan hlut landeigenda og nærsamfélaga og uppbyggingu orkuinnviða geta auðveldlega farið saman. Framleiðsla og flutningur á raforku skapar mikil verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Það er óviðunandi að sú verðmætasköpun sé á kostnað landeigenda eða samfélaga fjarri þeim stað er orkan er nýtt. Það er sanngirnismál að greitt sé eðlilegt verð fyrir það land sem tekið er undir orkumannvirki. Það verð hlýtur að taka mið af þeim skorðum sem mannvirkin setur á nýtingu landsins og þeim miklu verðmætum sem þeim er ætlað að skapa. Samþykkt samhljóða.

39.10
2603124
Aðalfundur Símenntunar á Vesturlandi 2026.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Fundarboð framlagt.

39.11
2602034
Faxaflóahafnir fundagerðir 2026.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Fundargerð framlögð.

39.12
2601287
Samræmdar greiðslur til stuðningsfjölskyldna
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Byggðarráð tekur undir afgreiðslu velferðarnefndar og leggur til við sveitarstjórn að gjaldskráin verði uppfærð til samræmis við tillögu.Samþykkt samhljóða.

39.13
2603041
Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Fundarboð framlagt. Byggðarráð tilnefnir Finnboga Leifsson og Kristján Ágúst Magnússon sem fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn.Samþykkt samhljóða.

39.14
2602005
Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Fundargerð framlögð.

39.15
2603173
Dagsetningar funda byggðarráðs og sveitarstjórnar í apríl
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Byggðarráð leggur til að fundur leggur til að fundur byggðarráðs í dymbilviku verði miðvikudaginn 1. apríl og sveitarstjórnarfundur í apríl fari fram fimmtudaginn 16. apríl.Samþykkt samhljóða.

39.16
2603158
Menntaskóli Borgarfjarðar - ársreikningur 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Framlagt.

39.17
2401059
Mælaborð um rekstur Borgarbyggðar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Farið yfir rekstur og framkvæmdir ársins 2025 og fyrir janúar 2026. Verið er að ljúka vinnu við ársreikning 2025 og áætlað er að hann verði kynntur á fyrsta fundi byggðarráðs í apríl.

39.18
2411095
Gatnagerð við Fitjar - erindi frá Björgunarsveitinni Brák
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Byggðarráð þakkar fyrir erindið. Byggðarráð vill ekki auka við framkvæmdaáætlun Borgarbyggðar á árinu 2026 og vísar því erindinu til vinnu við fjárhagsáætlun 2027.Samþykkt samhljóða.

39.19
2602071
Egilsholt 1 - lóðarfrágangur
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Byggðarráð harmar þann drátt sem hefur orðið á því að ljúka samkomulagi við KB. Forsögu þessa máls má rekja aftur til ársins 2018 þegar Borgarbyggð gerði samning við KB um kaup á landi í tengslum við skipulag á íbúðarbyggð á svæðinu. Byggðarráð leggur áherslu á að rétt gögn liggi fyrir til grundvallar samningsgerð við KB. Í tengslum við svar sem barst frá KB 4. mars s.l. á tillögu að samkomulagi við Borgarbyggð til lúkningar á málinu verður unnið að því núna að afla gagna og vinna málið út frá nýjum mælingum á þeirri skerðingu sem hefur orðið á lóð KB. Byggðarráð leggur áherslu á mikilvægi þess að leiða málið til lykta eins fljótt og hægt er m.t.t. hagsmuna beggja aðila.Samþykkt samhljóða.Fundarhlé var gert undir þessum dagskrárlið sem stóð frá kl. 9.30 til 9.50.

39.20
2603024
Aðkomuvegur að fjölnota íþróttahúsi
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að láta fara fram verðfyrirspurn á gatnagerð við aðkomuveg að fjölnota íþróttahúsi í Borgarnesi. Samþykkt samhljóða.

39.21
2212062
Ugluklettur - Stækkun
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Framlagt en sjö tilboð bárust í verkið og stendur nú yfir rýni á tilboðunum.

39.22
2311091
Vallarás - hönnun og framkvæmdir
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja að nýju fyrir byggðarráð.Samþykkt samhljóða.

39.23
2303105
Fjölnota íþróttahús - Knatthús
Byggðarráð Borgarbyggðar - 737

Fundargerð framlögð.Hlynur Ólafsson og Ottó Ólafsson fóru af fundi.



40. Byggðarráð Borgarbyggðar - 738
2603028F

Fundargerð framlögð

40.1
2505064
Fjárhagsáætlun 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Nú stendur yfir rýni á fjárhagsáætlun 2026 sérstaklega m.t.t. tekjuáætlunar. Þar er horft til áætlunar um framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga en þar er áhætta metin til lækkunar tekna. Þá er ljóst að ekki hafa fengist endurgreiðslur vegna fjárhagsaðstoðar sem lækka aðrar tekjur sveitarfélagsins. Í ljósi þessa felur byggðarráð sveitarstjóra að taka rekstrar- og fjárfestingaráætlun ársins til endurskoðunar.Samþykkt samhljóða.

40.2
2511065
Fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Viðauki framlagður. Byggðarráð felur sveitarstjóra að óska eftir samtali við Skorradalshrepp um fyrirkomulag framkvæmda vegna ljósleiðara í Skorradalshreppi.Samþykkt samhljóða.

40.3
2602149
Skipan í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Minnisblað framlagt. Byggðarráð hefur tekið undir sjónarmið Skorradalshrepps og telur að staða vinnu við Holtavörðuheiðarlínu 1 kalli ekki á skipan raflínunefndar sbr. afgreiðslu 727. fundar byggðarráðs. Línustæði Holtavörðuheiðarlínu hefur ekki endanlega verið ákveðið né staðfest og ekki lokið við samninga við landeigendur, auk þess hefur ekki verið til staðar ágreiningur milli sveitarfélaga, sem fyrirhuguð lína kemur til með að fara í gegnum eða milli sveitarfélaga og Landsnets.

40.4
2603269
Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Framlagt og felur byggðarráð sveitarstjóra að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

40.5
2603241
Aðalfundarboð Reiðhallarinnar Vindási 2026.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Fundarboð framlagt og felur byggðarráð Davíð Sigurðssyni að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

40.6
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

40.7
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

40.8
2602005
Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Framlagt.

40.9
2212062
Ugluklettur - Stækkun
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Fundargerðir framlagðar.

40.10
2603187
Úrskurðir örnefnanefndar vegna bæjarnafna í Borgarbyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Framlagt.

40.11
2503353
Göngustígar - Verðfyrirspurn
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Verkið kynnt og tölur úr verðfyrirspurn lagðar fram. Sveitarstjóra falið að rýna gögn og skoða heimildir í fjárhagsáætlun 2026.Samþykkt samhljóða. Ottó Ólafsson verkefnastjóri framkvæmda á skipulags- og umhverfissviði sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

40.12
2212062
Ugluklettur - Stækkun
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Í ljósi þess að nú stendur yfir rýni á áætlun um tekjur ársins 2026, og áhætta er metin til lækkunar, og öll tilboð eru umfram kostnaðaráætlun þá frestar byggðarráð ákvörðun um töku tilboðs fram að næsta fundi sem fram fer 1. apríl.Samþykkt samhljóða.Sæmundur Óskarsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

40.13
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

40.14
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

40.15
2603312
Stjórnsýsluskoðun Borgarbyggðar 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Framlagt.

40.16
2212062
Ugluklettur - Stækkun
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Í ljósi þess að nú stendur yfir rýni á áætlun um tekjur ársins 2026, og áhætta er metin til lækkunar, og öll tilboð eru umfram kostnaðaráætlun þá frestar byggðarráð ákvörðun um töku tilboðs fram að næsta fundi sem fram fer 1. apríl.Samþykkt samhljóða.

40.17
2603281
Stefnumótun fyrir Hjálmaklett
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Byggðaráð felur sveitarstjóra að vinna drög að stefnu fyrir mennta- og menningarhúsið Hjálmaklett og leggja fyrir byggðarráð.Samþykkt samhljóða.

40.18
2512102
Eigendanefnd Orkuveitunnar
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Byggðarráð þakkar Sævari og Eiríki fyrir góða kynningu á vinnu eigendanefndar.

40.19
2603133
Beiðni frá Golfklúbbi Borgarness um langtímarekstrarstyrk
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Staða vinnu kynnt og sveitarstjóra falið að vinna áfram í samræmi við umræðu á fundi.Samþykkt samhljóða.

40.20
2511138
Leigusamningur um land fyrir golfvöll að Hamri
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Merkjalýsingar framlagðar.

40.21
2204038
Sala samkomuhússins við Þverárrétt
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Farið yfir vinnu við samningsgerð við Kvenfélagið. Byggðarráð samþykkir að halda samningsgerð áfram á þeim nótum sem kynntar voru.Samþykkt samhljóða.

40.22
2602071
Egilsholt 1 - lóðarfrágangur
Byggðarráð Borgarbyggðar - 738

Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við Kaupfélag Borgfirðinga í samræmi við tillögur sem hafa gengið á milli aðila og leggja samningsdrög fyrir byggðarráð.Samþykkt samhljóða.Guðveig Lind Eyglóardóttir fór af fundi að afloknum þessum dagskrárlið.



41. Byggðarráð Borgarbyggðar - 739
2603041F

Fundargerð framlögð

41.1
2603329
Ársreikningur Borgarbyggðar 2025
Byggðarráð Borgarbyggðar - 739

Samstæða Borgarbyggðar var rekin með 31 m.kr. halla á árinu 2025 og rekstur A-hluta var gerður upp með 92 m.kr. halla. Rekstrarhagnaður samstæðu fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 334 m.kr. en 67 m.kr. af rekstri A-hluta.Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er 233 m.kr. undir áætlun sveitarfélagsins og skýrist frávik aðallega af 90 m.kr. meiri hækkun lífeyrisskuldbindingar en áætlað var ásamt því sem um 120 m.kr. kostnaður við fjárhagsaðstoð við langtímaflóttafólk hefur ekki fengist endugreiddur.Rekstrartekjur A-hluta Borgarbyggðar voru tæplega 6,7 ma.kr. á árinu 2025 og jukust um 1,4% á milli ára. Útsvarstekjur jukust um 9,1% og voru 3,3 ma.kr. og skatttekjur samtals jukust um 6,8%. Veltufé frá rekstri samstæðu Borgarbyggðar var 542 m.kr. sem samsvarar 7,0% framlegð en 372 m.kr. af starfsemi A-hluta sem samsvarar 5,6% framlegð. Hreinar fjárfestingar í A-hluta Borgarbyggðar námu 2,7 ma.kr. Þar standa tvær fjárfestingar upp úr, bygging nýs fjölnota íþróttahúss - knatthúss í Borgarnesi og endurbygging Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Þá var fjárfest í gatnagerð, endurbótum á íþróttahúsinu í Borgarnesi og niðurrif hafið í Brákarey svo eitthvað sé nefnt. Á árinu 2025 nam hrein ný lántaka A-hluta Borgarbyggðar 2,3 ma.kr. og voru heildarskuldir- og skuldbindingar samtals 6,5 ma.kr. í árslok. Heildareignir voru bókfærðar á 13,2 ma.kr. í lok árs 2025 og eigið fé samtals um 6,7 ma.kr. sem samsvarar um 51% eiginfjárhlutfalli. Skuldaviðmið samstæðu var í lok árs 71,4% og 70,1% fyrir A-hluta.Á fyrri hluta þessa árs verður lokið við framkvæmdir við fjölnota íþróttahús - knatthús, og gatnagerð við Vallarás og Kveldúlfshöfða í Borgarnesi. Nýr markaðsvefur fyrir lóðir í sveitarfélaginu er kominn í loftið og ný hverfi tilbúin til uppbyggingar. Skuldsetning sveitarfélagsins hefur aukist samhliða uppbyggingu. Rekstur ársins 2025 var þyngri en áætlun gerði ráð fyrir og skuldir því ívið hærri undir lok árs 2025 en áætlað hafði verið. Á þessum tímapunkti metur byggðarráð það sem svo að hætt sé við að tekjur á árinu 2026 verði lægri en áætlun gerði ráð fyrir og er þar helst horft til framlaga frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og endurgreiðslna vegna fjárhagsaðstoðar. Því er tilefni til að rýna reksturinn, fjárfestingar og lántökur ársins með það fyrir augum.Samþykkt samhljóða og vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

41.2
2212062
Ugluklettur - Stækkun
Byggðarráð Borgarbyggðar - 739

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að hafna öllum framkomnum boðum í verkið „Leikskólinn Ugluklettur - stækkun“ sem bárust á útboðstíma í samræmi við kafla 0.4.6 í útboðsgögnum og 2. mgr. 83. laga 120/2016, um opinber innkaup. Ljóst er að öll boð voru yfir kostnaðaráætlun eða frá 11% - 50%. Í ljósi upplýsinga frá Jöfnunasjóði sveitarfélaga sem komu fram nú á lokastigum útboðsferilsins gætu áætlaðar tekjur frá Jöfnunarsjóði orðið allt að 280 milljónum króna lægri en miðað er við í fjárhagsáætlun. Myndi það hafa veruleg áhrif á rekstur sveitarfélagsins en það í bland við hærri tilboð miðað við kostnaðaráætlun gerir það að verkum að tilefni er til að endurskoða rekstrar- og fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða.

41.3
2004149
Egilsgata 11 - lóðamál
Byggðarráð Borgarbyggðar - 739

Farið yfir stöðu málsins og sveitarstjóra falið að vinna að samkomulagi í samræmi við umræðu á fundi.Samþykkt samhljóða.

41.4
2603309
Háskólinn á Bifröst Fulltrúaráð og stjórn endurnýjun 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 739

Byggðarráð Borgarbyggðar leggur til við sveitarstjórn að tilnefna Guðveigu Lind Eyglóardóttur sem aðalmann í stjórn Háskólans á Bifröst og Bjarneyju L. Bjarnadóttur sem varamann hennar. Þá leggur byggðarráð til að Brynja Þorsteinsdóttir verði fulltrúi Borgarbyggðar í fulltrúaráði og Sigrún Ólafsdóttir verði varamaður. Samþykkt samhljóða og vísað til afgreiðslu í sveitarstjórn.

41.5
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 739

Framlagt og sveitarstjóra falið að senda umsögn í samræmi við fyrri bókanir og umsagnar sem unnar hafa verið fyrir hönd sveitarfélagsins og umræðu á fundi.Samþykkt samhljóða.

41.6
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 739

Framlagt.

41.7
2602005
Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 739

Framlagt.

41.8
2510364
Útboð á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða
Byggðarráð Borgarbyggðar - 739

Framlagt.

41.9
2603345
Aðalfundur Veiðifélags Langár
Byggðarráð Borgarbyggðar - 739

Framlagt.



42. Byggðarráð Borgarbyggðar - 740
2604001F

Fundargerð framlögð

42.1
2603133
Beiðni frá Golfklúbbi Borgarness um langtímarekstrarstyrk
Byggðarráð Borgarbyggðar - 740

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagðan samning við Golfklúbb Borgarness og að gerður verði viðauki til að mæta kostnaðarauka sem honum fylgir. Málinu vísað til sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða

42.2
2604022
Aðalfundur Veiðifélags Hítarár 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 740

Fundarboð framlagt.

42.3
2601070
Sveitarstjórnarkosningar 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 740

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að staðfesta staðsetningar og opnunartíma kjörstaða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026. Að fyrirkomulagið verði eftirfarandi: Kjörstaðir verða óbreyttir frá því sem áður hefur verið í Borgarbyggð eða samkvæmt gildandi samþykktum sveitarfélagsins. Samþykkt hefur verið að Skorradalur verði ein sérstök kjördeild sbr. mál nr. 2602076 sem tekið var fyrir þann 12. febrúar sl. í sveitarstjórn Borgarbyggðar og mál nr. 2602001 sem var tekið fyrir í Hreppsnefnd Skorradals þann 3. febrúar sl. Borgarneskjördeild mun þjóna íbúum sem búa á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, ásamt íbúum Hvanneyrar og Andakíls. Kosið verður í Hjálmakletti. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.Þinghamarskjördeild verður fyrir íbúa Stafholtstungna, Norðurárdals, Bifrastar og Þverárhlíðar. Kosið verður í Þinghamri. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00. Lindartungukjördeild er ætlað íbúum sem búa á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kosið verður í félagsheimilinu Lindartungu. Yfirkjörstjórn leggur til að opnunartími Lindartungukjördeildar verði styttur um tvo klukkutíma en kjörfundur mun hefjast kl. 10:00 og ljúka kl. 18.00.Kleppjárnsreykjakjördeild verður fyrir íbúa Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals, Reykholtsdals, Hvítársíðu og Hálsasveitar. Kosið verður í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Yfirkjörstjórn leggur til að opnunartími Kleppjárnsreykjakjördeildar verði styttur og í takt við opnunartíma í Þinghamarskjördeild eða frá kl. 10.00 og myndi þá ljúka kl. 20.00.Skorradalskjördeild verður fyrir íbúa Skorradals. Kosið verður í Laugarbúð. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.Málinu vísað til sveitarstjórnar Samþykkt samhljóða

42.4
2604005
Fyrirhuguð hækkun VSK á baðlón
Byggðarráð Borgarbyggðar - 740

Fyrir helgina birti ríkisstjórnin áform um að hækka virðisaukaskatt á baðlón. Þessi hækkun snertir a.m.k. Kraumu og Giljaböðin í Húsafelli beint, en ljóst er að neikvæð áhrif gætu hæglega smitast yfir á aðra atvinnustarfsemi í Borgarbyggð. Mikil fjárfesting hefur átt sér stað í ferðaþjónustu í Borgarbyggð síðustu ár sem hefur haft jákvæð áhrif á atvinnulíf í sveitarfélaginu. Þetta er því mál sem snertir ekki aðeins rekstur fárra fyrirtækja heldur alla virðiskeðju ferðaþjónustunnar. Baðlónin í Borgarbyggð eru mikilvægir seglar í ferðaþjónustu á svæðinu sem draga að ferðamenn og styðja við fjölbreyttari atvinnutækifæri, meiri dreifingu ferðamanna og þjónustu svo að aukin verðmæti verði eftir á svæðunum sjálfum. Baðlón eru skv. könnun Ferðamálastofu vinsælasta afþreying bæði erlendra og innlendra ferðamanna. Þá hefur íslensk baðmenning nýlega verið viðurkennd á heimsminjaskrá UNESCO og er því nú enn sterkari sem helsta sérstaða landsins hvað varðar markaðssetningu til verðmætari ferðamanna til framtíðar. Byggðarráð Borgarbyggðar lýsir áhyggjum af því að þessi áform eigi eftir að hafa neikvæð og kólnandi áhrif á ferðaþjónustuna og skorar á stjórnvöld að falla frá þessum áformum um skattahækkun.Samþykkt samhljóða

42.5
2602154
Beiðni eigenda Hæls um að jörðin verði tekinn af afréttarskrá.
Byggðarráð Borgarbyggðar - 740

Farið yfir efni bréfins frá lögmanni eigenda Hæls í Flókadal. Sveitarstjóra falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundi. Samþykkt samhljóða

42.6
2601170
Umsagnarmál frá Alþingi 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 740

Samstarf sveitarfélaga um rekstur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands verið farsælt. Um er að ræða mjög mikilvæga þjónustu fyrir íbúa, stofnanir og atvinnulíf þar sem staðbundin þekking getur skipt sköpum. Þetta er starfsemi sem byggir á öflugu starfsfólki með staðgóða þekkingu sem er reiðubúið að bregðast hratt við. Mjög vel ígrunduð rök þurfa að búa að baki því að ráðast í svo stóra kerfibreytingu sem frumvarpið felur í sér. Þau rök hafa ekki komið fram svo sannfærandi sé og mikill vafi leikur á að kerfisbreytingin verði til batnaðar.Byggðarráð Borgarbyggðar ítrekar því fyrri afstöðu sína til fyrirhugaðra breytinga á lögum um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Í bókun frá 720. fundar byggðarráðs frá 18. september 2025 segir: ?Ef svo fer sem horfir virðist vera lögð aukin áhersla á miðstýringu eftirlitsstofnana sem getur haft í för með sér að staðbundin þekking geti tapast, þjónustulund minnki, viðbragðstími lengist og kostnaður notenda hækki.?Byggðarráð telur að þessi sjónarmið séu enn í fullu gildi. Sveitarfélagið tekur undir þær áhyggjur sem fram koma í umsögnum Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Augljóst er að fyrirhugaðar breytingar fela í sér verulega tilfærslu á verkefnum og ábyrgð frá sveitarfélögum til ríkisins, sem mun hafa áhrif á gæði þjónustu, framkvæmd eftirlits og samstarf stofnana. Mikil hætta er á að staðbundin þekking og reynsla, sem byggst hefur upp innan heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga á löngum tíma, glatist eða veikist. Það mun leiða til minni þjónustulundar, lengri viðbragðstíma og aukins kostnaðar fyrir íbúa og atvinnulíf, auk þess sem hún getur dregið úr sveigjanleika og skilvirkni í framkvæmd eftirlits.Byggðarráð telur að frumvarpið geri of lítið úr mikilvægi þess að eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum sé nálægt vettvangi. Nálægð við íbúa og fyrirtæki er lykilforsenda stöðugs árangursríks eftirlits og stuðlar að trausti, skilvirkum samskiptum og betri niðurstöðum.Byggðarráð telur að ekki hafi verið sýnt fram á að þær breytingar sem lagðar eru til muni í raun leiða til aukinnar skilvirkni eða einföldunar í framkvæmd. Þvert á móti óttast byggðarráð að breytingin hafi neikvæð áhrif á þjónustustig, kostnað og gæði eftirlits.Að lokum leggur byggðarráð áherslu á að skýrt liggi fyrir hvernig verkaskiptingu og ábyrgð milli ríkis og sveitarfélaga verður háttað. Þennan þátt þarf að skýra mun betur í frumvarpinu.Samþykkt samhljóða

42.7
2601254
Styrktarsjóður EBÍ-umsóknarfrestur til febrúarloka 2026
Byggðarráð Borgarbyggðar - 740

Byggðarráð fagnar því að fengist hafi styrkur í verkefnið Göngustígur og upplýsingaskilti við Hlíðartúnshúsin og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við umhverfis og landbúnaðarnefnd og starfsmenn sviðsins. Samþykkt samhljóða

42.8
2602071
Egilsholt 1 - lóðarfrágangur
Byggðarráð Borgarbyggðar - 740

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja samkomulag um lúkningu máls milli Borgarbyggðar og Kaupfélags Borgfirðinga vegna skerðingar á lóð kaupfélagsins við Egilsholt 1. Sveitarstjóra falið að senda samning á fyrirsvarsmenn KB og leggja í framhaldinu fyrir sveitarstjórn til samþykktar. Byggðarráð leggur til að gerður verði viðauki vegna kostnaðar í tengslum við uppgjörið. Samþykkt samhljóða

42.9
2510364
Útboð á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða
Byggðarráð Borgarbyggðar - 740

Byggðarráð leggur til að valið verði tilboð Advania ehf., kt. 590269-7199, í útboði nr. 2510364: ,, Hýsing og rekstur upplýsingatækniumhverfis Borgarbyggðar, auk notendaþjónustu“ og vísar málinu til sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða

42.10
2604010
Fyrirhugaðar lokanir í Hvalfjarðargöngum
Byggðarráð Borgarbyggðar - 740

Vegna endurnýjunar á lýsingu í Hvalfjarðargöngum er hafið tímabil þar sem göngin verða lokuð fyrir umferð á virkum dögum frá kl. 21.30 til 6.00 til 29. maí. Á þeim tíma verður umferð vísað um Hvalfjörð. Hvalfjarðargöng eru mikilvæg lífæð fyrir Vesturland og sífellt fleiri treysta á göngin svo sem vegna atvinnu eða skóla. Endurbætur á lýsingu í göngunum er fagnaðarefni en afleitt að þær leiði til tímabundinnar lokunar. Byggðarráð leggur áherslu á að tryggt verði að bráðaþjónusta geti eftir sem áður átt greiða leið um göngin. Þá hvetur byggðarráð Vegagerðina og verktaka til að sýna sveigjanleika ef brýnir hagsmunir eru í húfi og sýna ákveðið meðalhóf með því að bjóða upp á fylgdarakstur þegar það er mögulegt. Tímabundin lokun Hvalfjarðarganga sýnir enn og aftur mikilvægi þess fyrir Vesturland að fjölga heilsárssamgönguleiðum milli landshlutans, höfuðborgarsvæðisins og Suðurlands svo sem með uppbyggingu heilsársvegar um Uxahryggi. Samþykkt samhljóða

42.11
2509087
Útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027
Byggðarráð Borgarbyggðar - 740

Byggðarráð leggur til að skólakstur verði boðinn út til fjögurra ára og sveitarstjóra falið að vinna áfram að útboðsgögnum í samræmi við umræður á fundi og leggja fyrir sveitarstjórn. Samþykkt samhljóða



43. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 72
2603038F

Fundargerð framlögð

43.1
2602276
Snjómokstur í Borgarnesi.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 72

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna gögnin áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir endanleg drög á næsta fundi nefndarinnar.

43.2
2603108
Samningur um umhirðu og slátt á opnum svæðum á Hvanneyri
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 72

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti drög að samningi og sendir þau til sveitastjórnar til staðfestingar.

43.3
2601254
Styrktarsjóður EBÍ-umsóknarfrestur til febrúarloka 2026
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 72

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd tekur undir með byggðarráði og fagnar því að fengist hafi styrkur í verkefnið Göngustígur og upplýsingaskilti við Hlíðartúnshúsin.

43.4
2604042
Beitarsamningur um Hamarsland 2026-2030
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 72

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samvinnu við Hestamannafélagið Borgfirðing og leggja fram endanleg drög að samningi á næsta fundi nefndarinnar.

43.5
2604046
Beiðni um beitarhólf á leigu
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 72

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna drög að samningi við Halldór Sigurðsson um leigu á beitarsvæði sem hann hefur verið með og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.

43.6
2604043
Framlenging á samningi um söfnun dýraleifa
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 72

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til að samningur við HSS verktak ehf. verði framlengdur.

43.7
2602275
Hreinsunarátök 2026
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 72

Drög.....Lagt er til að hreinsunarátak í dreifbýli verði með svipuðu sniði og undanfarin ár; gámar fyrir timbur til urðunar verði settir út sem hér segir:5. - 11. júníBæjarsveitBrautartungaBjarnastaðir - á eyrinniSíðumúliLundar16. - 22. júníLyngbrekkaLindartungaEyrin við Bjarnadalsá (Norðurárdalur)HögnastaðirEkki verði boðið upp á gáma fyrir málmúrgang að þessu sinni en stefnt verði að hirðingu málma í haust með svipuðu sniði og undanfarin ár þar sem málmúrgangur hefur verið sóttur heim að bæjum.Umhverfis-og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að setja auglýsingu á vefmiðla sveitarfélagsins og hvetur íbúa til að hreinsa rusl í sínu nærumhverfi.

43.8
2604044
Staða fjárhagsliða sem heyra undir Umhverfis og landbúnaðarnefnd
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 72

Lagt fram.



44. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85
2603044F

Fundargerð framlögð

44.1
2603343
Hvítárbakki 7 - umsókn um aðalskipulagsbreytingu - L179429
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 fyrir Hvítárbakka 7 en bendir á að sveitarstjórn Borgarbyggðar ber ábyrgð á gerð og breytingum á aðalskipulagi sveitarfélagsins og felur skipulagsfulltrúa framgang málsins og gerð tillögu að breyttu aðalskipulagi til auglýsingar. Samþykkt samhljóða.

44.2
2504020
Syðstu-Fossar - umsókn um framkvæmdarleyfi - 133909
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja útgáfu framkvæmdaleyfis þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga 123/2010. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum. Samþykkt samhljóða.

44.3
2603342
Umsagnir - skipulagsmál
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við vinnslutillögu aðalskipulags Húnabyggðar 2025-2037 en óskar eftir að fá skipulagið til umsagnar á síðari stigum.Samþykkt samhljóða.

44.4
2603015F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 71
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

44.5
2603032F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 72
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

44.6
2604003F
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 73
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

44.7
2603004F
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 256
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

44.8
2603040F
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 257
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

44.9
2602002
Skúlagata 14 - Umsókn um lóðaleigusamning
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að endurnýja lóðarleigusamning fyrir lóðina Skúlagata 14. Auk þess leggur nefndin til við sveitarstjórn að samþykkja afmörkun lóðar þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.

44.10
2603285
Hamar - Umsókn um stofnun lóða
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun 3406,7 m2 lóð, Hamar - Golfsvæði 1 og 796,3 m2 lóð, Hamar - Gamli bær úr landi Hamars (L135401) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðirnar fara í notkunarflokkinn lóð.Samþykkt samhljóða.

44.11
2404295
Margrétartún L134457 - Umsókn um stofnun lóða
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í að lóðin Margrétartún verði stofnuð úr landi Samtúns að því gefnu að aðkoma að lóðinni verði frá Reykdælavegi (517) af afleggjara að Hátúni og að samkomulag verði gert um göngustíg sem liggur austan við Borgarfjarðarbraut og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju.Samþykkt samhljóða.

44.12
2506060
Hátún - umsókn um stofnun lóða - 172733
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í stækkun lóðar Hátúns og felur skipulagsfulltrúa að afla frekari gagna, vinna málið áfram og leggja það fram að nýju.Samþykkt samhljóða

44.13
2511125
Vanaheim - umsókn um breytingu á landnotkun - F2535890
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja skráningu lóðarinnar Vanaheim úr viðskipta- og þjónustulóð í íbúðarhúsalóð. Nefndin bendir á úrskurð örnefnanefndar mál nr. 2-2026 um bæjarheitin Vanaheim og Jötunheim.Samþykkt samhljóða.

44.14
2603140
Fyrirspurn um skipulagsmál - Egilsgata 11
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í breytingu á deiliskipulagi en leggur til að lóðaafmörkun verði með þeim hætti að lóðin Brákarbraut 2 verði stækkuð og afmörkuð og lóð Egilsgötu 11 minnkuð sem því nemur.Nefndin felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram og leggja fyrir Byggðarráð.Samþykkt samhljóða.

44.15
2603145
Fyrirspurn um skipulagsmál-Brúartorg 1
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

Skipulags- og byggingarnefnd sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, tekur jákvætt í uppsetningu rafhleðslustöðva á lóðinni og felur skipulagsfulltrúa að koma á framfæri við málsaðila hvaða gögnum þarf að skila inn með framkvæmdaleyfisumsókn. Ef frekari uppbygging og/eða framkvæmdir eru fyrirhugaðar á lóðinni þarf að deiliskipuleggja svæðið.Samþykkt samhljóða.

44.16
2601020
Húsafell 3 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi - Stórarjóður 6 L134495
Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 85

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi Stuttárbotna fyrir lóðina Stórarjóður 6. Breytingin er sett fram í greinagerð og á uppdrætti dags. 05.01.2026.Breytingin felst í því að byggingarreitur er lengdur um nokkra metra til norð-austurs og suð-austurs auk þess sem hann er einnig settur utan um núverandi fylgihús sem er á lóðinni en húsið stendur nær lóðamörkum en 10m. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir.Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum og koma þeim á framfæri við málsaðila.Samþykkt samhljóða.



45. Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 94
2603026F

Fundargerð framlögð

45.1
2603247
Skógræktarfélag Borgarfjarðar - Vinna í Einkunnum 2026
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 94

Nefndin þakkar Sveini fyrir kynningu á fyrirhuguðum verkefnum á árinu.

45.2
2508228
Skipulag og kortagerð í Einkunnum
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 94

Nefndin fór yfir drög og kom með ábendingar er varðar það. Stefnt er á að kort verði tilbúin fyrir sumarið. Einnig var rætt á hvaða hátt kortið verður sett upp í Einkunnum, til að mynda með staðsetninga skilta.

45.3
2603248
Stígagerð og þemasvæði í Einkunnum
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 94

Nefndin ræddi um næstu skref í stígagerð um nýjan appelsínugulan stíg í kringum Álatjörn.

45.4
2603250
Samráðsfundur með Náttúruverndarstofnun
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 94

Nefndin kallar eftir samráðsfundi með Náttúruverndarstofnun, með það að markmiði að efla samskipti og fræðslu. Nefndin telur mikilvægt að góð samskipti og samvinna séu á milli þessara tveggja aðila. Stefnt er að því að fá fulltrúa stofnunarinnar á næsta fund nefndarinar.

45.5
2603252
Önnur mál Umsjónarnefndar fólkvangsins í Einkunnum
Umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum - 94

Nefndin ákveður að endurnýja og bæta við skiltum til þess að auka sýnileika, aðgengi og upplýsingar um svæðið.



46. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 252
2603009F

Fundargerð framlögð

46.1
2409322
UMSB - samstarfssamningur
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 252

Til Fundarins komu samninganefnd UMSB og samninganefnd Borgarbyggðar.Umræður á fundinum voru um drög að samningi á milli Borgarbyggðar og UMSB.Afgreiðslu frestað til næsta fundar.Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að vinna málið áfram í samráði við samninganefnd UMSB.Samþykkt samhljóða.



47. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 253
2603033F

Fundargerð framlögð

47.1
2501033
Skóladagatöl fyrir leik-, grunn- og listaskóla Borgarbyggðar
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 253

Lagt fram til kynningar tillögu að skóladagatölum og drög að reglum um skóladagatöl. Nú fara skóladagatölin til umsagnar í skólum sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða.

47.2
2603325
Skýrsla um úthlutun til leikskóla
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 253

Lagt fram til kynningar. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir skýrslu um úthlutun til leikskóla Borgarbyggðar. Þar er einnig farið yfir drög að verklagsreglum um úthlutun til leikskóla og drög að reglum um úhlutun fjármagns vegna stoðþjónustu í leikskólum Borgarbyggðar.

47.3
2212062
Ugluklettur - Stækkun
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 253

Lagt fram til kynningar.

47.4
2601055
Fjórblómið - mönnun grunnskóla
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 253

Lagt fram til kynningar. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir vinna við gerð stöðugildalíkans fyrir grunnskóla.

47.5
2601091
Ósk um breytingu á upptökusvæði skóla.
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 253

Lögð fram umsögn skólaráðs Grunnskóla Borgarfjarðar. Skólaráð skólans tekur vel í að breyta upptökusvæðum.Fræðslunefnd leggur til að upptökusvæði verði breytt. Sviðsstjóra falið að uppfæra reglur um upptökusvæði og kynna á næsta fundi nefndarinnar.Samþykkt samhljóða.

47.6
2603284
Aðstaða til myndalistakennslu í Listaskólanum
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 253

Fræðslunefnd tekur jákvætt í erindið og felur sviðstjóra fjölskyldusviðs að vinna málið áfram.

47.7
2409322
UMSB - samstarfssamningur
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 253

Umræður um stöðuna á samningarviðræðum við UMSB. UMSB hefur komið með tillögu að viðauka við samnninginn.Fræðslunefnd telur að samtalið við UMSB þurfi að halda áfram og ljóst sé að vinna þurfi áfram með málið til þess að hægt sé að gera langtímasamning. Fræðslunefnd felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að gera tillögu að árssamningi við UMSB eftir umræður á fundinum.Samþykkt samhljóða.

47.8
2602141
Reglur um starfsemi frístundarheimila í Borgarbyggð
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 253

Máli frestað.

47.9
2509087
Útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027
Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 253

Sviðsstjóri fer yfir drög að útboði á skólaakstri.Fræðslunefnd mælir með því að allir bílar sem aka malarvegi sveitarfélagsins séu með fjórhjóladrif.Málinu er vísað til byggðarráðs.Samþykkt samhljóð.



48. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 170
2604007F

Fundargerð framlögð

48.1
2201148
Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitafélaga
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 170

Velferðarnefnd samþykkir samhljóða viðauka við samþykktir sveitarfélagsins og vísar til staðfestingar sveitastjórnar.

48.2
2201148
Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitafélaga
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 170

Velferðarnefnd telur nauðsynlegt að greiðslur vegna bakvakta hjá barnaverndarþjónustu Vesturlands taki mið af kjarasamningum, af því gefnu að öll þau sveitarfélög er standa að þjónustunni samþykki slíkar breytingar. Nefndin felur byggðarráði afgreiðslu á málinu.

48.3
2603073
Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu
Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 170

Lögð fram til kynningar.



Fundi slitið - kl. 18:00