Umhverfis- og landbúnaðarnefnd

72. fundur

13. apríl 2026 kl. 08:30 - 10:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Sigrún Ólafsdóttir - formaður
Þórður Brynjarsson - varaformaður
Þorsteinn Eyþórsson - aðalmaður
Kristján Ágúst Magnússon - aðalmaður
Thelma Dögg Harðardóttir - aðalmaður
Kristján Rafn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi


Dagskrá

1. Snjómokstur í Borgarnesi.
2602276

Lögð fram drög að útboðsgögnum sem umhverfisfulltrúi hefur verið að vinna.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna gögnin áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir endanleg drög á næsta fundi nefndarinnar.



2. Samningur um umhirðu og slátt á opnum svæðum á Hvanneyri
2603108

Farið yfir drög að samningi við Landbúnaðarháskóla Íslands um umhirðu opina svæða á Hvanneyri. Í drögunum er gert ráð fyrir að skólin haldi ekki utan um vinnuskólan á Hvanneyri eins og verið hefur.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti drög að samningi og sendir þau til sveitastjórnar til staðfestingar.



3. Styrktarsjóður EBÍ-umsóknarfrestur til febrúarloka 2026
2601254

Framlagt bréf frá Styrktarsjóði EBÍ þar sem samþykkt er að veita styrk að fjárhæð 450.000 í verkefnið Göngustígur og upplýsingaskilti við Hlíðartúnshúsin í Borgarnesi.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd tekur undir með byggðarráði og fagnar því að fengist hafi styrkur í verkefnið Göngustígur og upplýsingaskilti við Hlíðartúnshúsin.



4. Beitarsamningur um Hamarsland 2026-2030
2604042

Framlögð drög að beitarsamningi við Hestamannafélagið Borgfirðing.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samvinnu við Hestamannafélagið Borgfirðing og leggja fram endanleg drög að samningi á næsta fundi nefndarinnar.



5. Beiðni um beitarhólf á leigu
2604046

Lögð fram beiðni Halldórs Sigurðssonar um beitarsvæði til leigu.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna drög að samningi við Halldór Sigurðsson um leigu á beitarsvæði sem hann hefur verið með og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.



6. Framlenging á samningi um söfnun dýraleifa
2604043

Skv. samningi um söfnun dýraleifa frá 2024 er heimild til framlengingar á samningi tvisvar (2) sinnum um eitt (1) ár þannig að samningstími geti mest orðið fjögur (4) ár.

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til að samningur við HSS verktak ehf. verði framlengdur.



7. Hreinsunarátök 2026
2602275

Hreinsunarátak í dreifbýli

Drög.....Lagt er til að hreinsunarátak í dreifbýli verði með svipuðu sniði og undanfarin ár; gámar fyrir timbur til urðunar verði settir út sem hér segir:



5. - 11. júní



Bæjarsveit



Brautartunga



Bjarnastaðir - á eyrinni



Síðumúli



Lundar







16. - 22. júní



Lyngbrekka



Lindartunga



Eyrin við Bjarnadalsá (Norðurárdalur)



Högnastaðir





Ekki verði boðið upp á gáma fyrir málmúrgang að þessu sinni en stefnt verði að hirðingu málma í haust með svipuðu sniði og undanfarin ár þar sem málmúrgangur hefur verið sóttur heim að bæjum.



Umhverfis-og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að setja auglýsingu á vefmiðla sveitarfélagsins og hvetur íbúa til að hreinsa rusl í sínu nærumhverfi.



8. Staða fjárhagsliða sem heyra undir Umhverfis og landbúnaðarnefnd
2604044

Framlögð staða fjárhagsliða sem heyra undir starfssvið nefndarinnar.

Lagt fram.



Fundi slitið - kl. 10:00